Morgunblaðið - 21.01.1996, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 14/1-20/1
►FJÓRIR menn voru úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald
á föstudag vegna gruns
um að hafa sviðsett fjögur
umferðaróhöpp og svikið
á annan tug milijóna
króna út úr fjórum trygg-
ingafélögum. Talið er að
mennirnir hafi veitt sjálf-
um sér áverka til að gera
atvikin trúverðugri.
Grunur um að einn mann-
anna hefði tvívegis svið-
sett innbrot kom lögreglu
á sporið.
►YFIRMAÐUR rann-
sóknastofu Háskóla ís-
lands í meinafræði sagði
í áliti að útilokað væri að
sæðissýni, sem tekið var
til rannsóknar, væri úr
breskum sjómanni, sem
dæmdur var í 12 mánaða
fangelsi fyrir nauðgun og
hefur verið i farbanni frá
18. október. Dóminum
hefur verið áfrýjað til
Hæstaréttar, sem fram-
lengdi á föstudag far-
bannið til 8. febrúar.
►ÞÝSKUR auðkýfingur,
Hasso Schíítzendorfer,
hóf rekstur bílaleigu og
er yfirlýst markmið hans
að vera alltaf ódýrastur á
markaðnum.
►RAGNAR Jónsson tón-
listarkennari lýsti yfir því
að hann hygðist bjóða sig
fram til forseta.
►LÖGREGLAN í Reykja-
vík hefur verið að reyna
uppsetningu myndavéla í
miðborg Reykjavíkur.
Hugmyndin er erlend og
benti Böðvar Bragason
lögreglustjóri á að viða
hefði glæpum fækkað
með tilkomu slíkra véla.
Ár frá snjóflóðunum
í Súðavík
ÞESS var minnst
víða um land á
þriðjudag að þá
var ár liðið frá því
að snjóflóðin féllu
á Súðavík og í
Reykhólasveit
með þeim afleið-
ingum að fimmtán
manns létu lífið.
í Súðavík var
farin blysför um
snjóflóðasvæðið
og að henni lok-
inni haldin bænastund til að minnast
hinna látnu. Fánar voru í hálfa stöng
og vinna var lögð niður meðan blysför-
in og athöfnin fóru fram.
Sigríður Hrönn Elíasdóttir, oddviti í
Súðavík, sagði að uppbygging í þorpinu
eftir flóðið hefði gengið ótrúlega vel.
ESB krefst sama
kvóta og ísland fengi
VIÐRÆÐUR Islendinga, Norðmanna
og Rússa um þorskveiðar íslenskra
skipa í Smugunni hafa verið í sjálf-
heldu undanfama þrjá mánuði vegna
hótana Evrópusambandsins um að
krefjast sambærilegs kvóta fyrir eigin
skip verði samið við íslendinga. Sá
kvóti yrði til viðbótar við þær þorsk-
veiðiheimildir, sem ESB hefur nú þeg-
ar í Barentshafi.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa Norðmenn gi’eint íslend-
ingum frá því að hendur þeirra séu
bundnar af þessum sökum og ekki
verði samið við íslendinga nema Evr-
ópusambandið láti af kröfu sinni.
Skrifstofustjóri í norska utanríkisráðu-
neytinu sagði hins vegar að afstaða
Evrópusambandsins stæði ekki í vegi
fyrir samningum við íslendinga.
íslendingar, Rússar og Norðmenn
munu funda i Moskvu í vikunni.
Uppreisnarmenn
sleppa í Dagestan
RÚSSNESKAR hersveitir bundu enda
á gíslatöku tsjetsjenskra uppreisnar-
manna í þorpinu Pervomaískoje í Dag-
estan á fimmtudag
eftir harðar flug-
skeytaárásir sem
hófust á mánudag.
Borís Jeltsín Rúss-
landsforseti sagði að
82 af rúmlega 100
gíslum hefði verið
bjargað. Haft var
eftir gíslum að hluti
uppreisnarmann-
anna hefði sloppið úr
þorpinu og hugsaniegt er áð leiðtogi
þeirra, Salman Radújev, hafi komist
undan. Samkvæmt tölum, sem Jeltsín
gaf upp, gekk allt að helmingur upp-
reisnarmannanna 300 hersveitunum
úr greipum. Haft var eftir Jeltsín að
153 uppreisnarmenn hefðu verið
drepnir og 39 voru teknir til fanga.
43 óbreyttir borgarar og 27 rússnesk-
ir hermenn biðu bana í átökunum og
93 hermenn særðust. Nokkrir Tyrkir,
sem taldir eru eiga ættir að rekja til
Kákasushéraða, rændu farþegaskipi í
tyrkneska hafnarbænum Trabzon á
þriðjudag til að mótmæla árásum
Rússa á uppreisnarmennina og héldu
200 farþegum skipsins í gíslingu. Þeir
gáfust upp á föstudag án þess að til
blóðsúthellinga kæmi.
Harðlínumaður skip-
aður ráðgjafi Jeltsíns
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti skipaði
harðlinumanninn Níkoiaj Jegorov sem
skrifstofustjóra sinn og helsta ráðgjafa
á mánudag. Forystumenn umbóta-
sinna segja það ekki boða gott fyrir
framhaldið.
►COSTAS Simitis var
kjörinn forsætisráðherra-
efni grískra sósíalista á
fimmtudag í stað Andreas
Papandreou, sem sagði af
sér vegna veikinda. Simit-
is hét því að Grikkir
myndu nú hefja göngu inn
í nýtt skeið efnahagslegra
og pólitískra umbóta.
►SILVIO Berlusconi,
fyrrverandi forsætisráð-
herra Ítaiíu, kom fyrir
rétt í Mílanó á miðvikudag
vegna meintra mútu-
greiðslna og kvaðst sak-
laus af sakargiftunum.
►STJÓRNVOLD í Kína
hafa takmarkað frétta-
flutning af kínverskum
efnahagsmálum og snúið
þar með af þeirri braut,
sem Deng Xiaoping mark-
aði með efnahagsumbót-
unum 1979. Óttast er að
þetta geti gert út af við
þann vísi að fjármála-
markaði sem hefur mynd-
ast í landinu.
► ÍRAKAR eru reiðubún-
ir að ganga til viðræðna
við Sameinuðu þjóðirnar
um að þeir fái að selja
olíu í skiptum fyrir mat
og Iyf, að sögn Tareqs
Aziz, aðstoðarforsætis-
ráðherra landsins á mið-
vikudag.
►JOHN Major, forsæt-
isráðherra Bretlands,
sagði á fimmtudag ekkert
hæft í fréttum um að hátt
settir menn í Ihalds-
flokknum hefðu lagt á
ráðin um að steypa honum
af stóli gjaldi flokkurinn
afhroð í sveitarstjórna-
kosningum í maí.
Forsvarsmenn kvikmyndahúsa telja að auglýsingar
um bannað efni þurfi ekki að skaða börn
Vísa kröfu umboðs-
manns bama á bug
FORSVARSMENN kvikmyndahúsa,
sem Morgunblaðið ræddi við í gær,
telja kynningarmyndir um kvikmynd-
ir öllum ætlaðar, hvort sem kvik-
myndirnar eru bannaðar eða öllum
leyfðar. Þórhildur Líndal, umboðs-
maður bama, hefur farið fram á við
samkeppnisráð að bannað verði að
auglýsa kvikmyndir, sem sýndar eru
í kvikmyndahúsum og eru bannaðar
bömum yngri en 12 ára, á sjónvarps-
stöðvum, í kvikmyndahúsunum sjálf-
um og á myndböndum.
Halldór V. Kristjánsson, auglýs-
ingastjóri Ríkisútvarpsins, segist
munu skrifa öllum kvikmyndahúsum
og myndbandaleigum og itreka þá
kröfu að farið verði að lögum um
auglýsingar í sjónvarpinu. Hann seg-
ir að þar sem ekki sé bent á neitt
sérstakt tilefni í erindi umboðs-
manns barna þá þurfi að rannsaka
hvert það sé að þessu sinni. „Ég vil
ekki gera lítið úr þessum vanda.
Staðreyndin er sú að áreiti auglýs-
inga í sjónvarpinu er meira en í öðr-
um fjölmiðlum og þar af leiðandi
þarf að fara varlega með svona,
sérstaklega þegar um böm er að
ræða,“ segir Halldór.
Skammt í ritskoðun
Páll Baldvin Baldvinsson, dag-
skrárstjóri Stöðvar 2, segist gera ráð
fyrir að erindi umboðsmanns barna
sé fram komið vegna kvikmynda-
húsaauglýsinga í Ríkissjónvarpinu.
Hann segir að á Stöð 2 sé fylgt flokk-
un Kvikmyndaeftirlits ríkisins á
kvikmyndum þótt menn séu ekki
alltaf sammála henni. í Bandaríkjun-
um og Bretlandi séu skoðunarkerfí
við lýði, samsvarandi íslenska kvik-
myndaeftirlitinu, og samkvæmt
þeim sé kynningarefni aldursskil-
greint rétt eins og venjulegar kvik-
myndir. Lög um kvikmyndaeftirlit
hér eigi eingöngu við opinberar kvik-
myndasýningar i kvikmyndahúsum
og segist Páll gera ráð fyrir að kvik-
myndaeftirlitið taki á því máli í kjöl-
farið á þessari umræðu.
„Það er mjög vandratað einstigið
milli þess að halda illum áhrifum frá
ungum sálum og þess að ritskoða
heiminn. Það er mjög erfitt að hafa
þetta vald og menn verða að um-
gangast það af mikilli varfærni,"
segir Páll.
Auglýsingarnar öllum Ieyfðar
Þorvaldur Ámason hjá SAM-bíó-
unum segir að bíóin noti kynningar-
efni sem sé þannig klippt að allir
megi horfa á það. „Við tökum undir
að það eigi að passa hvað sé sýnt
og við reynum það eftir bestu getu.
Mér finnst þetta hins vegar að vissu
leyti ómakleg athugasemd. Auglýs-
ingatímar bíóanna eru í sjónvarpinu
rétt fyrir klukkan átta. Sumar mynd-
ir sem þar eru kynntar eru með
hasar og látum. Svo horfir maður á
fréttir þar sem viðbjóðslegir hlutir
eru sýndir, jafnvel sundurtætt lík,“
segir Þorvaldur.
Einar Logi Vignisson, markaðs-
stjóri Háskólabíós, segist fullyrða
að Háskólabíó hafi aldrei sent út
auglýsingu 'sem sé bönnuð börnum,
enda sé ekki sama að mynd sé bönn-
uð og að auglýsing sé bönnuð. „Það
vill enginn að börn horfi á ofbeldis-
myndir. Það hlýtur hins vegar að
vera efnið og samhengið sem skiptir
máli og Þórhildur litur mjög alvar-
lega framhjá því. Ég get ekki séð
hvernig hún ætlar að fara að taka
sér það vald að banna auglýsingar
sem innihalda ekkert sem stuðar
börn. Það er hægðarleikur að gera
auglýsingu sem börn mega horfa á
um mynd sem er bönnuð börnum.
Mín tilfinning er sú að þetta sé
stormur í vatnsglasi. Þórhildur verð-
ur að koma með dæmi máli sínu til
stuðning því eins og staðan er í dag
þá vitum við ekki um hvað hún er
að taia,“ sagði Einar Logi.
Ætti eins að banna fréttatíma
Karl Ottó Schiöth, framkvæmda-
stjóri Stjörnubíós, segir að eitt verði
yfir alla að ganga og ef banna á
auglýsingar kvikmyndahúsanna eigi
allt eins að banna fréttatíma sjón-
varpsins. Hann segist nota tilbúnar
auglýsingar, sem séu þannig gerðar
að þær séu ætlaðar öllum aldurshóp-
um. Þær séu notaðar þannig um
allan heim. „Ég get ekki séð að
þessi sýnishorn, sem ég hef verið
að sýna, hafi brotið í bága við nein
lög,“ segir Karl.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Formaður Alþýðuflokks um Þjóðvaka
Vill ekki taka í út-
rétta sáttahönd
JÓN Baldvin Hannibalsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, segir að Jó-
hanna Sigurðardóttir, formaður
Þjóðvaka, hafi ekki viljað taka í út-
rétta sáttahönd þegar hún hafí hafn-
að tillögu hans um að flokkarnir
sameini krafta sína á þingi.
Jón Baldvin lýsti því yfir í viðtali
við Alþýðublaðið í fyrradag að sam-
starfið við þingmenn Þjóðvaka hefði
gengið ágætlega og málefnaleg
samstaða væri með þeim í ýmsum
stórmálum. Það sé því ekki einungis
spurning um hvort heldur hvenær
fulltníar Þjóðvaka á þingi dragi rök-
réttar ályktanir af stöðu sinni. Hann
sæi ekkert því til fyrirstöðu að flokk-
arnir sameinuðu krafta sína á þingi
og hann sæi það gjarnan fyrir sér
sem fyrsta skrefið á langri leið. Jó-
hanna hafnaði þessum hugmyndum
í hádegisfréttum útvarps á föstudag.
Jón Baldvin sagði í samtali við
Morgunblaðið að það væri við hæfi
að þegar Alþýðuflokkurinn fagnaði
80 ára afmæli að menn lærðu eitt-
hvað af sögunni. Flokkurinn hefði
klofnað alls sex sinnum og það orð-
ið til ills eins í hvert einasta skipti
pg veikt stöðu jafnaðarstefnunnar á
íslandi.
„Ég vísa til þess að það gangi
sorglega seint að draga réttar álykt-
anir af þessari sögu og læra lexíurn-
ar. Ef menn meina hins vegar eitt-
hvað með því sem þeir segja um að
það þurfi að sameina jafnaðarmenn
en ekki sundra þá ætti þetta að vera
fyrsta skrefið. Ég viðurkenni það
að þetta er flokksbrot sem telur sig
starfa á grundvelli jafnaðarstefnu
og það er engin ástæða til að rengja
það. Fulltrúar flokksins og form-
aðurinn sérstaklega, sem er nýbúinn
að kljúfa Alþýðuflokkinn, gerir nú
kröfu til þess að sameina jafnaðar-
menn strax, og við réttum út sátta-
hönd og segjum: Gjörið svo vel, við
skulum taka fyrsta skrefið. Þetta
er einfaldlega eins og málið blasir
við og rökréttar aðgerðir. En svarið
kom strax frá formanni Þjóðvaka
um það að hún væri ekki reiðubúin
til að taka í þá útréttu sáttahönd
og þá nær það ekki lengra," sagði
Jón Baldvin.
Brunavarnir Árnes-
sýslu fengu lánsbíl frá
Keflavíkurflugvelli
Mikið ör-
yggi að fá
þennan bíl
Selfossi. Morgunblaðið.
SLÖKKVILIÐ Brunavarna Ár-
nessýslu hefur fengið að láni
öflugan slökkvibíl hjá slökkvi-
liði varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli. Bíllinn verður á Sel-
fossi næstu sex vikur á meðan
unnið er að viðgerðum á
slökkvibíl liðsins sem bræddi
úr sér á leið á brunastað fyrir
skömmu. Slökkvibíllinn frá
Keflavíkurflugvelli tekur
3.000 lítra af vatni og er með
mjög öflugri dælu sem getur
dælt 5.000 lítrum á mínútu.
Bíllinn er mjög vel útbúinn og
fljótlegt að koma honum í
vinnslu á brunastað.
„Það er mikið öryggisatriði
fyrir okkur að fá þennan bíl
lánaðan. Hann brúar bilið sem
myndaðist þegar bíllinn okkar
bilaði. Slökkvilið varnarliðsins
var okkur mjög hjálplegt og
menn þar á bæ skildu vel að-
stæður okkar,“ sagði Krislján
Einarsson slökkviliðsstjóri.
Hann sagði einnig að stjórn
Brunavarna Árnessýslu hefði
nú tóm til að vinna að því að
fá nýjan bíl og finna skynsam-
lega nýtingu á þeim gamla.
A myndinni eru Kristján
Einarsson slökkviliðsstjóri og
Karl Bergsson varaslökkviliðs-
stjóri með lánsbílinn frá Kefla-
víkurflugvelli framan við
slökkvistöðina á Selfossi.
í
>
I
)
i
I
.