Morgunblaðið - 21.01.1996, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1996 31
guðshúsið. Afi minn tók það ráð
að fylgja stráknum heim, sem sneri
sér við í sáluhliði kirkjugarðsins,
bölvandi yfir því að mamma hans
skyldi hafa hent honum út! Þetta
atvik var oft rifjað upp þegar við
afi skröfuðum saman, og hló hann
þá iðulega dátt að þessu tiltæki.
Afi minn hafði fádæma næmt
auga fyrir spaugilegum hliðum til-
verunnar, þó að hann væri alvöru-
gefinn á yfirborðinu.
Að lokum langar mig að geta
þess sem varð eitt helsta áhugamál
afa, en það er stangveiði. Hann
sagði alltaf að ég hefði „smitað sig
af stangveiðidellu" sem vel kann
að vera rétt, því sem strákur man
ég eftir því að hafa dregið hann til
veiða með stöng. Þessu áhugamáli
sinnti afi af miklum eldmóði, og á
vetrum hnýtti hann flugur sem
hann notaði til veiða á sumrin. Mun
hans nú sárt saknað um ókomin
ár, en lífið heldur áfram og minn-
ingin um hann mun ætíð lifa í brjósti
mér.
Ég votta ömmu minni mína
dýpstu samúð, blessuð sé minning
afa.
Þinn nafni
Sigurður Kári.
Þegar ég hugsa aftur til þeirra
stunda með afa sem eru mér hvað
efstar í minni koma heimsóknir
mínar í bókabúð Æskunnar einna
fyrst upp í hugann. A þeim árum
sem afi starfaði þar var það fastur
liður hjá mér, ef ég átti leið um
Laugaveginn, að líta inn til hans.
Það var alveg sama hve mikið var
að gera, alltaf fann hann sér tíma
til að fara með mér upp á kaffi-
stofu og bjóða mér upp á mjólk og
vínarbrauð. Ósjaldan leysti hann
mig svo út með bókagjöfum og var
það þá ánægður lítill drengur sem
flýtti sér heim að lesa.
Afi var mikill spilamaður og á
því sviði var brids hans eftirlæti.
Einnig hafði hann mikinn áhuga á
skák og er hann líklega kveikjan
að áhuga mínum á þeirri íþrótt.
Þolinmæði afa við að leiða mig
fyrstu skrefin í skákinni voru engin
takmörk sett og var hann alltaf til
í eina bröndótta.
Ef ég velti fyrir mér spurningun-
um um hvað það er sem mér er
minnisstæðast við afa er svarið sem
ég gef sjálfum mér stutt og lag-
gott. Hann var Afi!
Þinn
Arni Jón.
Að morgni 28. september fékk
ég þær sorglegu fréttir að hann afi
minn hefði dáið um nóttina, og þar
með bundið enda á langa og jafn-
framt erfiða baráttu við banvænan
sjúkdóm.
Þessar fréttir fengu mikið á mig
sem og alla aðra fjölskyldumeðlimi,
þó að maður hafi að vissu leyti
verið feginn fyrir hans hönd vegna
þess hve hann var orðinn lasburða.
Hann skilur þó eftir sig ljúfar og
góðar minningar sem munu lifa
með okkur sem urðum þeirrar
ánægju aðnjótandi að kynnast hon-
um. Þær minningar sem eru mér
efstar í huga eru veiðiferðirnar ófáu
sem ég fór með honum í ásamt
Steina og Kára, bræðrum mínum.
Þessir veiðitúrar voru oft með
skrautlegasta móti og þá sérstak-
lega á mínum yngri árum. Ég og
Steini höfðum nú takmarkaðan
áhuga á veiðiskap á þessum árum.
Ef við vorum óþolinmóðir að bíða
eftir því að fiskur biti á hjá okkur
þá fundum við okkur bara eitthvað
annað að gera á meðan. Þeir leikir
sem við fórum þá í féllu ekki í góð-
an jarðveg hjá afa og Kára sem var
kannski ekki nema von þvi að við
vorum ýmist að fleyta kerlingar á
vatninu eða í keppni um hvor okkar
gæti hent gijóti lengra út í vatnið
eða hvor gæti loftað stærri steinum
og búið til meiri gusugang með
þeim. Og svo til að bæta gráu ofan
á svart vorum við yfirleitt klæddir
í svo skærlituð föt að enginn fiskur
hefði vogað sér nálægt bakkanum.
Miðpunktur þessara túra hjá okkur
Steina var sá tími sem nestið var
borðað, þá kláruðum við okkar nesti
fyrst og tókum svo til við að hakka
í okkur nestið hans afa sem var
alltaf brauð með spægipylsu og
súkkulaðikex.
Veiðitúramir sem ég fór með afa
á síðari árum voru mun rólegri og
þá sérstaklega þegar ég var einn
með honum, vegna þess að þá gafst
mér gott tækifæri að kynnast því
hvað afi var ljúfur og góður maður
og líka hvað hann var góður vinur.
Ég fór með honum í síðasta veiði-
túrinn hans, það var í lok sumars
1994. Við fórum í Þingvallavatn
þann dag og ég prófaði að kasta
færinu út í á öllum bestu veiðistöð-
unum en ég fékk engan físk og afi
ekki heldur vegna þess að hann
setti sína stöng aldrei saman. Hann
vildi heldur sitja og horfa á nátt-
úrufegurðina sem var einstök þenn-
an dag.
A leiðinni til baka heimsóttum
við ónefndan kjúklingastað þar sem
afi keypti ríflegan skammt af kjúkl-
ingabitum sem við fórum með heim
til ömmu.
Þessar stundir sem ég átti með
honum afa líða sjálfsagt aldrei úr
minni mínu og ég á seint eftir að
geta sætt mig við þá staðreynd að
eiga aldrei eftir að fara með afa
aftur í veiðitúr, ekki í þessu lífi að
minnsta kosti.
Um leið og ég óska afa góðrar
ferðar yfir móðuna miklu, vil ég
biðja Guð um að veita ömmu Ingi-
björgu styrk til að lifa góðu lífi það
sem eftir er.
Þinn
Pétur Jóhann.
Þegar ég kynntist afa var hann
orðinn mjög veikur. Ég er þakklátur
fyrir þær stundir sem við áttum
saman þótt ég vissi að: Dauðinn
kemur að lokum, hvenær veit ei
nokkur. Senn líður að ferðalokum
að óvörum koma okkur. Dauðinn
svífur loks að þér, í skjóli læðist
skugga þíns. Hryggðin drýpur úr
hjarta mér. Von er brostin hjarta
míns.
Þinn
Sigfús Róbert.
Það sem ég man best um afa eru
allar veiðiferðirnar sem ég fór í
með honum. Hjartað í mér tók allt-
af kipp og ég spenntist allur upp
þegar afi hringdi og spurði hvort
við ættum að fara í veiði. Þetta var
það besta sem gat komið fyrir
mann á þessum árum. Ég fann fram
S
I
3
1
3
|
5
Fersk blóm og
skreytingar
við öll tækifæri
Opið til kl.10 öll kvöld
Persónuleg þjónusta
Yáhafcni 11, sími 568 9120
2
I
5
I
I
I
3
&toi#«0i#io§a
allt veiðidótið og beið óþolinmóður
eftir að afi kæmi að sækja mig.
Afi hafði visst innsæi í sambandi
við hvort við ættum að fara í Þing-
vallavatn eða ekki, með því að skoða
yfírborðið á litlum polli á leiðinni
til Þingvalla. Þennan poll kallaði
hann Litla Þingvallavatn og sagði
að veiðiskilyrði væru eins í þessum
polli og Þingvallavatni sjálfu. Þetta
fannst mér stórkostlegt.
Mér fannst alltaf fyndið að á leið-
inni í vatnið þegar bílstjórar flaut-
uðu á afa, þá sagði hann i hvert
sinn: „Hvaða gijónapungur er
þetta?“, og þóttist hann alls ekki
skilja hví þeir væru að flauta á
hann. Annað sem mér er minnis-
stætt eru afmælisveislurnar á mín-
um yngri árum þegar allir krakk-
arnir í hverfinu voru boðnir. Afí
gerði þær ógleymanlegar með ýms-
um skemmtilegum uppátækjum.
Eitt sinn brá hann sér á glænýtt
gírahjól, en þau voru sjaldséð þá.
Gesturinn, sem átti hjólið, leit undr-
andi á afa þegar hann hjólaði virðu-
lega og beinn í baki út götuna.
Orð geta ekki lýst allri fegurð-
inni og skemmtilegheitunum í
kringum afa.
Ég þakka honum fyrir allt og
veit að hann er nú í góðum höndum.
Þinn
Steinn.
Þær stundir, sem eru mér minnis-
stæðastar með afa, eru heimsókn-
irnar og afmælin þeirra afa og
ömmu á Holtsgötunni. Það var eins
og framlenging á jólunum að fara
í afmælin þeirra í janúar. Ég man
sérstaklega eftir einu afmæli þegar
Pétur bróðir minn var að herma
eftir hljóðinu í heyrnartækinu hans
afa, hvað afí hló innilega.
Þegar ég var lítil kom afi oft að
spila bridds hér heima hjá okkur.
Þá kom hann alltaf með ópal eða
annað góðgæti í poka handa okkur,
mér og bræðrum mínum. Þetta
gerði hann þar til ég var orðin þó
nokkuð gömul.
Ég þakka afa fyrir allar samveru-
stundirnar, hann var hijúfur að
utan en mildur að innan og ég vissi
alltaf hvað honum þótti vænt um
mig.
Þín
Katrín.
Opið öll kvöld
Skreytingar fyrír öll tílcfni.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
áður Breiðagerði 8,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju
þriðjudaginn 23. janúar kl. 13.30.
Magnús Júlíusson,
Guðm. Rúnar Magnússon, Svanhildur Stefánsdóttir,
Margrét Jóna Magnúsdóttir, Haraldur Einarsson,
Erna Magnúsdóttir, Gunnar Jakobsson
og aðrir aðstandendur.
t
Bróðir minn,
BIRGIR ÓLAFUR ÞORMAR
lögfræðingur,
lést í Borgarspítalanum 11. janúar sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Gunnar Þormar.
+
Móðir mín, tengdamóðir, systir, mág-
kona og amma,
EDDA GUÐRÚN TRYGGVADÓTTIR
fyrrverandi borgargjaldkeri,
Ásholti 2,
Reykjavik,
verður jarðsungin frá Krossinum, Hlíð-
arsmára 5-7, Kópavogi, þriðjudaginn
23. janúar kl. 13.30.
Pétur Þórir Hugus,
Stella Tryggvadóttir,
Hrefna Dóra Tryggvadóttir,
Gunnar T ryggvason,
Sveinn Ól. Tryggvason,
Erla Dennison,
Guðmundur Þ. Tryggvason,
Kristján G. Tryggvason,
og barnabörn.
Sigríður Hafdi's Sigurðardóttir,
Leifur Guðlaugsson,
Guðrún Jónsdóttir,
Edwin Dennison,
Edda Lóa Skúladóttir,
Annalfsa Magnúsdóttir
+
Innilegar þakkir til allra, sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför
JÓRUNNAR KRISTINSDÓTTUR,
Skólabraut 3,
Seltjarnarnesi.
Jón Haukur Bjarnason, Elsa Jónsdóttir,
Kristinn Bjarnason, Vilfrfður Jónsdóttir,
Guðrún V. Einarsdóttir,
Erla Bjarnadóttir, Ingólfur Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra, sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar eiginkonu
minnar, móður, fósturmóður, ömmu og
langömmu,
SIGURLAUGAR KRISTINSDÓTTUR,
Norðurgötu 32,
Akureyri,
Sérstakar þakkirtil lækna og starfsfólks
handlækningadeildar F.S.A og heima-
hlynningar fyrir frábæra hjúkrun.
Ásgrímur Stefánsson,
Kristinn Ásgrímsson, Þórdís Karlsdóttir,
Hekla Gestsdóttir, Hörður Júli'usson,
Kristinn Gunnarsson, Lilja Hallgrímsdóttir,
Hannes Rútsson, Jóhanna Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Við þökkum innilega öllum þeim, sem
auðsýndu okkur vináttu og samhug við
fráfall og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
INGVELDAR GÍSLADÓTTUR,
Tjarnarbraut 29,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki
Grundar fyrir hlýhug og fráþæra um-
hyggju, einnig sr. Guðmundi Óskari Ólafssyni, sem gaf henni
styrk og öryggi í Drottins nafni. Guð blessi ykkur öll, kæru vinir.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, Örn Forberg,
Margrét Jónfna Guðmundsdóttir, Gísli Engilbertsson
Guðmunda Inga Forberg, Sveinn Vilhjálmsson,
Erna Birna Forberg,
Ágústa Hrefna Forberg, Brian O’Loughlin,
Ingveldur Þorkelsdóttir, Gunnar Þorsteinsson,
Guðrún Agústa (Rúna) Þorkelsdóttir,
Guðmundur Þorkelsson, Guðrún Sigurðardóttir,
Sigurður Hrafn Þorkelsson
og fjölskyldur þeirra.