Morgunblaðið - 21.01.1996, Side 41

Morgunblaðið - 21.01.1996, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1996 41 I DAG BRIPS Umsjón Guðmundur l'áli Arnarson LIÐSMENN Tímans, Bjöm Þorláksson og Vign- ir Hauksson, renndu sér í snaggaralegu slemmu í spili dagsins, sem er frá fjórðungsúrslitum Reykja- víkurmótsins. Þetta var í þriðju lotu, í viðureign Tímans og Landsbréfa. Vestur gefur; allir á hættu. Sjorður ♦ 10875432 ¥ K9 ♦ K ♦ ÁG9 Vestur ♦ ÁKD ¥ 42 ♦ 965 ♦ D10974 Austur ♦ G6 ¥ 765 ♦ DG73 ♦ K652 Suður ♦ 9 ¥ ÁDG1083 ♦ Á10842 ♦ 3 Vestur Norður Austur Suður ÞJ BÞ GPA VH 1 lauf 1 spaði 2 lauf 2 hjörtu 3 lauf 4 spaðar Pass 6 tíglar! Pass Pass 6 hjörtu Pass Dobl Pass í AV voru Þorlákur Jónsson og Guðm. P. Arn- arson. Þorlákur kom út með spaðaás og skipti síð- an yfir í tromp. Vignir átti slaginn í borði og not- aði innkomuna til að trompa spaða. Fór síðan inn á tígulkóng og fríaði spaðann með trompum. Tók síðan trompin, spilaði blindum inn á laufás og lagði upp: 1660 í NS. Utspilið í spaða var sagnhafa hjálplegt, en nánari athugun kom í ljós að slemman stendur allt- af, hvað sem kemur út. Tromp dugir ekki, því þá má fríspila spaðann á sama hátt. Sagnhafi gefur strax spaðaslag. Ef vörnin trompar aftur út, er spaði stunginn, önnur láglita- innkoman notuð til að fría spaðann og hin til að taka fríslagina. En hvað með útspil í láglit, til dæmis laufi? Þá fríar sagnhafi tígulinn. Hann drepur á laufás, tek- ur tígulkóng, trompar lauf, tekur tígulás og trompar tígul. Stingur svo lauf heim og trompar aft- ur tígul. Fimmti tígullinn er nú frír, svo sagnhafi gefur aðeins einn slag á spaða. Á hinu borðinu voru spiluð fjögur hjörtu, svo Tímamenn unnu 14 IMPa á spilinu, en leikinn vann Landsbréf með 66 IMPa mun. Arnað heilla Q/\ÁRA afmæli. Á O U morgun, mánudag- inn 22. janúar, verður átt- ræð Valborg Emilsdóttir, ljósmóðir. Eiginmaður hennar er Guðmundur Ólafsson, fyrrverandi póstur og bóndi frá Dröngum á Skógar- strönd, Snæfellsnesi. Þau hjónin taka á móti gestum á heimili sínu Borgarholts- braut 27, Kópavogi á af- mælisdaginn. rr\ÁRA afmæli. Á tlU morgun, mánudag- inn 22. janúar, verður fimm- tugur Trausti Svein- björnsson, rafmagnsiðn- fræðingur, Álfabergi 14, Hafnarfirði. Hann og kona hans Ingveldur Einars- dóttir taka á móti gestum í kvöld, sunnudaginn 21. janúar, í Iðnaðarmanna- húsinu, Hallveigarstíg 1, Reykjavík milli kl. 20 og 23. HOGNIHREKKVISI „þeHs er /e'iSi'ndaoebur.. takbu mynhiíf. Með morgunkaffinu ioi efr NEI, ég get það ekki VILTU kyssa mig strax meðan hún stendur eða eigum við fyrst að þarna og glápir. skála fyrir heimkomu minni? ORÐABOKIN Hv-Kv Hvetja - kveðja EFTIR því sem kv-fram- burður hefur sótt á hv- framburð, verður æ erfiðara fyrir þá, sem bera hv og kv eins fram, að greina hér á milli eft- ir hljóðunum eingöngu. Ég hef t.d. tekið eftir því, að menn gera sér ekki alltaf fulla grein fyrir muninum á ofan- greindum sagnorðum eftir hljóðgildinu einu saman, þ.e. hvetja — hvatti — hvatt og kveðja — kvaddi — kvatt. Hér getur tveimur orðmynd- um, þ.e. lh. þt., auðveld- lega slegið saman, ef ekki er gætt réttrar staf- setningar, og merking sagnanna brenglazt við það. Þá getur farið svo, að sá, sem hefur einung- is kv- í framburði sínum, skrifi óvart „Liðið var hvatt á vettvang." Hér ádiins vegar að vera kv, þar sem verið var að kveðja liðið á vettvang, en ekki hvetja. Þeir sem bera hv fram sem hv falla trúlega ekki í þessa gryfju, því að þeir heyra hér að öllum jafnaði skýran mun á og gera sér grein fyrir þeim merkingarmun, sem er hér á milli sagnanna. — Sá er einmitt kosturinn við hv-framburðinn, að auðvelt er að halda svo- nefndum hv- og kv-orð- myndum nokkurn veg- inn aðgreindum. Eitt orð er þó, sem ég held, að nær allir landsmenn muni bera fram með kv, þ.e. no. /iv/ksaga. Það er skylt so. að hvika = hopa, halda ekki fast á máli sínu. Skyld orð eru hvikull og hviklyndi. - J.A.J. STJÖRNUSPA eítír Frances Drake VATNSBERI Afmælisbarn dagsins: Þú ertjafnan fús til að leggja þitt af mörkum fyrirgóð- an málstað. Hrútur (21. mars - 19. apríl) Þér gengur vel í viðskiptum, og ný tækifæri bjóðast, sem vert er að gefa gaum. Ein- hver nákominn er sérlega hjálpfús. Naut (20. apríl - 20. maí) (fffi Þú nýtur þín sennilega betur heima í dag en ef þú ferð út. Kvöldið verður rólegt en ánægjulegt. Bam færir þér góðar fréttir. Tvíburar (21. maí - 20.júní) AX' Þú kemur vel fyrir þig orði, og þér tekst fljótlega að leysa deilumál innan fjöl- skyldunnar. Framlag þitt er mikils metið. Krabbi (21. júnt — 22. júlí) HI6 Þú þarft ekki að biðja afsök- unar þótt þú þurfir tíma útaf fyrir þig. Ef þú vilt njóta kvöldsins, vertu þá heima með ástvini. Ljón (23. júlí — 22. ágúst) ‘gff Þú ættir að nota frístundim- ar til umbóta heima fyrir í dag. Þegar kvöldar gefst ástinum tækifæri tii að fara út saman. Meyja (23. ágúst - 22. september) Ef vanhugsuð orð þín hafa valdið misskilningi ættir þú að biðjast afsökunar. Reyndu svo að njóta kvölds- ins í vinahópi. Vog (23. sept. - 22. október) Þú þarft að ljúka við heima- verkefni áður en þú býður heim gestum í dag. Njóttu svo kvöldsins heima með fjöl- skyldunni. Sþoródreki (23. okt. - 21. nóvember) Smá vandamál kemur upp varðandi samkvæmislífið, en dagurinn verður engu að síð- ur ánægjulegur. Einhugur ríkir hjá ástvinum. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) R0 Þótt þú hafir mikinn áhuga á verkefni úr vinnunni, ættir þú að láta það eiga sig í dag og sinna þörfum fjölskyld- unnar. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Verkefni, sem setið hefur á hakanum, þarfnast lausnar í dag þótt þú hafír haft ann- að í huga. Sumir undirbúa langþráð ferðalag. Vatnsberi (20.janúar-18. febrúar) Þú afþakkar tilboð um við- skipti sem stríðir gegn sið- ferðiskennd þinni. Astvinir eru að íhuga skemmtilegt ferðalag í vor. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) “S* Þú ættir að hugsa þig um tvisvar áður en þú ákveður að taka tilboði um vafasöm viðskipti sem geta komið þér í koll síðar. <S><3> Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. BRIDSSKOUNN Námskeið á vorönn að hefjast Byrjendur: Hefst 23. janúar og stendur yfir í 10 þriðjudagskvöld frá kl. 20-23. Framhald: Hefst 25. janúar og stendur yfir í 10 fimmtudagskvöld frá kl. 20-23. Kennslan er byggð upp á fyrirlestrum, sérvöldum æfingaspilum og spilamennsku undir leiðsögn. Standard-sagnkerfið er lagt til grundvallar á báðum námskeiðum, en á framhaldsnámskeiðinu er jafnframt lögð mikil áhersla á vörnina og spilamennsku sagnhafa. Það er fólk á öllum aldri og af báðum kynjum sem sækir skólann og ekki er nauðsynlegt að hafa með sér spilafélaga. Vönduð námsgögn fylgja, Bæði námskeiðin fara fram í húsnæði BSÍ, Þönglabakka I, í Mjódd (3. hæð). Upplýsingar og innritun í síma 564 4247 milli kl. 14 og 18 virka daga Útsala — buxur — peysur — pils — dragtir — kápur — úlpur — blússur r'ýjTft-’ 05 CaituY tískuverslun v/Nesveg, Seltj., s. 5611680. Útsala — buxur — peysur — pils — dragtir — kápur — úlpur — blússur fyrir leiðbeinendur í líkamsþjálfun Byrjendanámskeið Fyrir þá sem vilja fá grunnþekkingu og undirbúning fyrir eróbikkkennslu. Námskeiðið er dagana 27. janúar - 2. febrúar. Nýtt og endurbætt - 50 kennslustundir. Námsefni: lífeðlisfræði, vöðvafræði, uppbygging tíma o.m. fl. bóklegt og verklegt. Líkamsræktarstöðvarnar eru ávallt á höttunum eftir hæfileikaríku og hressu fólki til að kenna eróbikk. Skelltu þér á námskeið og stattu vel að vígi þegar þú sækir um! Láttu skrá þig strax í síma: 533-3355 AGUSTU OG HRAFNS SKEIFAN 7 108 REYKJAVlK S. 533-3355

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.