Morgunblaðið - 17.02.1996, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Morgunblaðið/Halldór
SÝNINGIN kynnt. Marianne Rassmusen, John Legate og Ellen Ingvadóttir segja veg íslenzku sjáv-
arútvegssýningarinnar fara stöðugt vaxandi.
Mikill áhugi á íslenzku
sjávarútvegssýningumii
MIKILL áhugi er á þátttöku í ís-
lenzku sjávarútvegssýningunni, sem
haldin verður hér á landi í Laugar-
dalshöllinni í september í haust.
Segja má að allt pláss sé upppant-
að, þó er ætlað heldur meira rými
undir sýninguna en í síðasta skipti.
John Legate, framkvæmdastjóri
Nexus Media Ltd., sem skipuieggur
sýninguna, segir að aldrei hafí sýn-
endur pantað pláss með jafnmiklum
fyrirvara, enda séu enn átta mánuð-
ur í sýninguna. „Skýringin virðist
liggja í batnandi afkomu í sjávarút-
vegi, bæði á Islandi og annars stað-
ar í heiminum,“ segir John Legate.
Hugsanlegt er að hægt sé að auka
húsakost, verði aðsókn sýnenda enn
mikil, en auk Laugardalshallarinnar
verða fluttar inn sérstakar skemmur
til að hýsa hluta sýningarinnar. Sýn-
ingarsvæðið verður því alls 4.105
fermetrar. Nú er gert ráð fyrir því
að sýningarbásar verði nokkuð á
annað hundrað, en um 500 fyrirtæki
alls verði kynnt á sýningunni. Af
þeim er um helmingurinn íslenzk
fyrirtæki.
Færeyskur þjóðarbás
Þegar hafa fímm svokallaðir þjóð-
arbásar verið pantaðir. Það eru ís-
lenzk fyrirtæki koma saman undir
merkjum Samtaka iðnaðarins, en
auk þess eru þjóðarbásar frá Dan-
mörku, Noregi, Hollandi, Færeyjum
og Kanada, en það er fylkið Nova
Seotia, sem verður fulltrúi Kanada
hér í haust. John Legate segir að
þrátt fyrir að alþjóðleg sjávarútvegs-
sýning verði haldin í Þrándheimi í
Noregi í sumar, verði norski þjóðar-
básinn nú stærri en á síðustu sýn-
ingu. „Það er því ekki að sjá, að
fiskveiðideilur Islands og Noregs,
dragi úr þátttöku Norðmanna í Is-
lenzku sjávarútvegssýningunni,"
segir John Legate.
Af öðrum þátttökulöndum má
nefna Austurríki, Belgíu, Finnland,
Frakkland, Þýzkaland, Ítalíu, Japan,
Pólland, Portúgal, Suður-Afríku,
Spán, Svíþjóð, Sviss, Tæwan, Bret-
land og Bandaríkin.
Panta óvenju snemma
Marianne Rassmusen, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðsmála
hjá Nexus, segir að íslenzku fyrir-
tækin hafí pantað pláss óvenju
snemma og í mörgum tilfellum hafí
þau stækkað við sig frá síðustu sýn-
ingu, sem var fyrir þremur árum.
„íslenzka sjávarútvegssýningin hef-
ur öðlast mikinn sess í heimi sýninga
af þessu tagi og hefur meðal annars
skotið Alþjóðlegu sjávarútvegssýn-
ingunni í Bella Cebter í Kaupmanna-
höfn aftur fyrir sig. Það skiptir miklu
máli í þessu sambandi hve mikilvæg-
ur sjávarútvegurinn er íslendingum.
Þegar erlend fyrirtæki átta sig á
því, þá fá þau meira traust á íslensk-
um sjávarútvegi og íslenzku sjávar-
útvegssýningunni um leið,“ segir
Marianne Rassmusen.
Ellen Ingvadóttir, umboðsmaður
sýningarinnar hér á landi, segir að
mörg minni fyrirtæki, sem voru með
á síðustu sýningu í fyrsta sinn, hafi
náð mjög góðum árangri. Sýningin
hafí skilað þeim miklum viðskiptum
og tekjum, sem tryggt hafí rekstur
þeirra að minnsta kosti til þessa.
Þessi fyrirtæki verði öll með nú.
Norðmenn fjölmennastir
á síðustu sýningu
Gestir á síðustu sýningu voru alls
12.127, þar af 428 að utan. Flestir
voru þeir frá Noregi, 65, 47 frá
Danmörku, 37 frá Svíþjóð, 35 frá
Hollandi, 32 frá Grænlandi og 30
frá Þýzkalandi. Þá má áætla að er-
lendir sýnendur verði að auki um
500. Bókanir á hótelherbergjum eru
þegar hafnar, en sýningin stendur
yfír dagana 18. til 21. september.
Samhliða sýningunni er áætlað
að halda ráðstefnu í samvinnu sam-
taka úr íslenzka atvinnulífinu og
Evrópusambandsins. Þar verður
kynnt svokalluð „Framtaks áæltun",
en henni er ætlað að örva viðskipti
og samvinnu á sviði sjávarútvegs
milii landa. Henni er einnig ætlað
að örva starfsemi meðalstórra fyrir-
tækja.
„Meiriháttar sigxir“
AÐ SÖGN Kristjáns Ragnarssonar,
formanns LÍÚ, hefur það ekkert for-
dæmisgildi að Hæstiréttur dæmdi
útgerðarmann Guðfinns KE 19 til
að endurgreiða fyrrverandi háseta á
bátnum 292 þúsund krónur. Þær
höfðu verið dregnar af launum hans
vegna leigu á kvóta fyrir bátinn frá
mars til maí 1992. Sævar Gunnars-
son, formaður Sjómannasambands
Islands, kallar dóminn aftur á móti
meiriháttar sigur.
Bannað í mörg ár að kaupa
kvóta og draga frá skiptum
„Þetta er svolítið sérstakt mál að
því leyti til að þetta gerist áður en
samið var um að þetta væri óheim-
ilt,“ segir Kristján Ragnarsson, for-
maður Landssambands íslenskra út-
vegsmanna. „Dómurinn hefur ekkert
fordæmisgildi. Það vita allir að það
er búið að vera bannað í mörg ár
að kaupa kvóta og draga hann frá
skiptum.
Hann segir að þetta hafi verið
fyrir þann tíma og útgerðarmaður-
inn hafi viljað láta á það reyna hvort
samkomulag hans við skipshöfnina
héldi um þetta atriði. Ákvæði kjara-
samninga sem þá hafi verið í gildi,
Hæstiréttur
dæmir þátttöku
sjómanna í kvóta-
kaupum ólöglega
miðað við dóm Hæstaréttar, hafi
ekki heimilað að þetta væri gert,
þótt samkomulag um það hafí verið
gert við skipshöfnina.
Aðspurður um hvort það tíðkist
enn að sjómenn séu látnir taka þátt
í kvótakaupum segir Kristján að það
sé alveg liðin tíð.
Staðfesting Hæstaréttar
á okkar túlkun
„Þetta er meiriháttar sigur,“ segir
Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambands íslands. Hann segir
að fyrir það fyrsta hafí kvótakaup
sjómanna verið bönnuð samkvæmt
dómi Hæstaréttar og í öðru lagi séu
samningar útgerðarmanna við sjó-
menn sem ekki hafi fengið staðfest-
ingu stéttarfélaga kolólöglegir.
„Þótt skriflegur samningur hafí
verið gerður í þessu kvótakaupamáli
var hann dæmdur kolólöglegur úr
því hann hafði ekki fengið staðfest-
ingu stéttarfélagsins," segir Sævar.
„í raun er þetta ekkert nýtt fyrir
okkur. Þetta er aðeins staðfesting
Hæstaréttar á því að okkar túlkun
á þessum tveimur þáttum hafí alltaf
verið rétt.“
Hann segist ekki hafa orðið var
við að skipun úrskurðarnefndar um
fískverð hafí komið í veg fyrir svona
mál. „Hún átti ekkert endilega að
taka á því,“ segir hann. „Hún átti
að skapa mönnum rétt til að semja
um fiskverð og koma í veg fyrir ein-
hliða ákvörðun fiskkaupenda um það
hvaða verð væri borgað fyrir afl-
ann.“
Sævar segir að hún hafí skilað
því starfi: „Hún hefur tekið á all-
mörgum málum og það sem skiptir
meira máli er að hún hefur leitt til
þess að sjómenn og útgerðarmenn
hafa klárað málin heima fyrir. Það
er það sem við ætluðumst til.“
Að sögn Sævars veit hann dæmi
þess að sjómenn séu látnir taka þátt
í kvótakaupum enn þann dag í dag.
„Ég vonast til þess að menn vitkist
eftir þennan dóm og láti þetta ekki
yfír sig ganga lengur. Þarna höfum
við fengið staöfestingu á því að þetta
er bullandi ólöglegt.“
FRÉTTIR: EVRÓPA
Undirbúningur Svía undir
ríkjaráðstefnu ESB
Ríkjaráðstefna
fyrir opnum dyrum
Stokkhólmi. Morgunblaðið.
I ÞETTA skiptið verður ekki hægt
að endurtaka leikinn frá því Maa-
stricht-sáttmálinn var gerður og
undirbúa niðurstöður ríkjaráðstefn-
unnar fyrir luktum dyrum. Þær
verður á einhvern hátt að undirbúa
svo að almenningur í Evrópu geti
fylgst með þeim hugmyndum, sem
ræddar eru, svo niðurstaðan verði
ekki í andstöðu við þorra almenn-
ings. Þetta segir Sven-Oluf Peters-
son sendiherra, sem vinnar að und-
irbúningi ríkjaráðstefnu ESB í vor.
Sænska stjórnin er hlynnt styrkri
utanríksstefnu ESB og möguleikum
til að fylgja henni eftir, en hafa
beri í huga að engin ógn blasi við
Evrópu.
Heima fyrir hafa Svíar þróað
kerfi til að almenningur geti fylgst
með því hvernig stjórnsýslan gangi
fyrir sig. Þannig eru flest bréf og
skjöl ráðuneyta opin þeim, sem
vilja fylgjast með, nema eðlilega
þau skjöl er snerta öryggi ríkisins.
Sama hátt vilja Svíar taka upp
innan ESB, þar sem stjórnsýslan
þykir rammlokuð og með öllu óað-
gengileg. Petersson þykir brýnt að
brejding verði á hjá ESB, sem lið
í að sambandið fái á sig alþýðlegri
blæ og að almenningur fái það á
tilfinninguna að ESB komi sér að
gagni.
Styrk utanríkisstefna
en ekki her
Svíar hafa ekki áhuga á auknu
varnarmálasamstarfi innan ESB,
enda segir Peterson að þau mál séu
ekki á dagskrá ríkjaráðstefnunnar.
Hins vegar segir Peterson að sam-
bandið þurfi miðla til að geta brugð-
ist við skyndilegu neyðarástandi, til
dæmis vegna átaka þjóðarbrota,
eins og reynslan í Bosníu sýni, eða
vegna félagslegra átaka og þar
þyki eðlilegt að nýta Vestur-Evr-
ópusambandið, sem Svíar eru
áheyrnaraðilar að, þótt á því séu
ýmis tormerki. Um leið þurfi einnig
að styrkja möguleika ESB til að
reka styrka utanríkisstefnu, meðal
annars með einhvers konar einingu
í ætt við eigið utanríkisráðuneyti.
Oft heyrist nefnt að þar með sé
ESB aðeins að undirbúa sig undir
að taka að sér aðrar aðgerðir en
þær sem eru beinlínis herðnaðarleg-
ar. Petersson segist ekki taka und-
ir þetta, því annað sé ekki á dag-
skrá. Evrópu sé ekki hótað á þann
hátt sem var, meðan Varsjárbanda-
lagið var og hét.
Dýr ást
REGLUR Evrópusambandsins
um innri landamæri valda fólki
í Tornedalen, sem er á landa-
mærum Svíþjóðar og Finnlands
í norðri, miklum áhyggjum.
Aldalöng hefð er fyrir því að
efnt sé til ástarsambanda yfir
landamærin en jafnframt er al-
gengt að hin ástföngnu pör kjósi
að búa hvort 1 sínu lagi sín meg-
in landamæranna.
Fyrir þær þúsundir para sem
lent hafa í þessari stöðu hefur
það ávallt verið sjálfsagður hlut-
ur að hægt sé að fara yfir landa-
mærin án nokkurrar skrif-
finnsku enda landamærin gjarn-
an kölluð hin „friðsömustu í
heimi“.
Eftir að Svíar og Finnar gengu
í Évrópusambandið gæti þó orðið
nokkur breyting þar á. Þeir sem
fara frá Svíþjóð yfir til Finnlands
til að dvelja þar næturlangt
vegna næturfunda, verða nú að
hafa nákvæma tölu á þeim ferð-
um. Verði ferðirnar fleiri en 185
AÐSKILUR langur armur
ESB finnska og sænska elsk-
endur?
á ári gætu þeir neyðst til að skrá
bifreiðar sínar í Finnlandi, sam-
kvæmt reglum Evrópusambands-
ins. Þar sem gjöld á bifreiðar eru
margfalt hærri í Finnlandi en í
Svíþjóð gæti þetta haft allt að
500 þúsund íslenskra króna
aukakostnað í för með sér fyrir
meðalbifreiðina.
Óttast íbúar í Tornedalen að
það hversu dýrkeypt ástin gæti
reynst muni nægja til að slökkva
jafnvel heitustu ástarelda.
\
I
>
\
I
I
i
i
I
I
I
I
ESB er enn úti ,
í miðri Maas '
Brussel. Reuter.
SILVIO Fagiolo, hinn reyndi ítalski
diplómat sem hefur verið fenginn
til að stýra ríkjaráðstefnu Evrópu-
sambandsins fyrstu þrjá mánuðina,
segir að öll aðildarríkin muni þurfa
að gera meiri eða minni málamiðl-
anir á ráðstefnunni vegna þess að
þau eigi engan annan kost. Þetta
eigi líka við um Breta, þótt þeir séu
ekki hrifnir af málamiðlunum í
Evrópumálum.
Ekkert áframhald án
ríkjaráðstefnunnar
Fagiolo segir að viðfangsefni
ríkjaráðstefnunnar, til dæmis
stækkun Evrópusambandsins,
fjölgun atkvæðagreiðslna í ráðherr-
aráðinu og þróun sameiginlegrar
utanríkisstefnu séu öll viðkvæm
mál, en þau muni engu að síður
verða leyst á því eina ári, sem
áformað er að ráðstefnan standi.
„Hin endanlega málamiðlun mun
ná yfir öll málefnin," segir Fagiolo.
„Ég sannfærður um að okkur muni
ekki mistakast."
Diplómatinn segir að á ríkjaráð-
stefnunni þurfi skilvirkara, fljót-
virkara og lýðræðislegra Evrópu-
samband að verða til, auk þess sem
búa þurfi sambandið undir fjölgun
aðildarríkja og ný verkefni á sviði
utanríkismála. „Éf þéssi ráðstefna
væri ekki haldin, gæti ESB ekki
stækkað. Án þess að breyta reglun-
um, getur Evrópusambandið ekki
haldið áfram,“ segir Fagiolo.
Hann bætti því við að ríkjaráð-
stefnan væri „óhjákvæmilegur
áfangi á leið til nýs Evrópusam-
bands" og bætti við að í Maastricht
(nafn borgarinnar, sem sáttmálinn
er kenndur við, þýðir vaðið á Maas)
hefði Evrópusambandið verið skilið
eftir í miðju straumvatninu.