Morgunblaðið - 17.02.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996 15
Sjónvarpsumræður vegna forkosninga repúblikana
Bob Dole í vörn sem
fulltrúi kerfisins
Boston. Rcutcr.
BOB Dole átti heldur í vök að vetj-
ast í sjónvarpsumræðum í fyrra-
kvöld milli þeirra átta manna, sem
gefa kost á sér í forkosningum
bandarískra repúblikana í New
Hampshire á þriðjudag. Samkvæmt
skoðanakönnunum hefur hann
nauma forystu á keppinauta sína
en það virðist vinna gegn honum,
að margir líta á hann sem fulltrúa
kerfísins og hinir frambjóðendurnir
gagnrýndu hann og flokkinn harð-
lega fyrir frammistöðuna að undan-
fömu.
Dole, sem er 72 ára gamall, virt-
ist þreyttur og illa fyrir kallaður í
umræðunum í fyrrakvöld og hafí
áheyrendur átt von á að heyra eitt-
hvað um hugsjónir og nýja framtíð-
arsýn, þá fengu þeir sitt lítið af því
taginu frá auðkýfingnum Steve
Forbes, Lamar Alexander, fyrrv.
ríkisstjóra í Tennessee, og Pat Buch-
anan. Frá Dole fengu þeir að heyra
um laga- og frumvarpaferilinn hans
á þingi.
Misstu af sögulegu tækifæri
Þegar talið barst að frammistöðu
repúblikana á þingi þar sem þeir
hafa haft meirihluta í 13 mánuði
vom keppinautar Doles ekki að
skafa utan af því og enginn var
óvægnari en Buchanan. Hann er nú
í öðru sæti samkvæmt könnunum í
New Hampshire og Alexander í því
þriðja.
„Repúblikanar hafa misst af sögu-
legu tækifæri í Washington og
ástæðan er sú, að þeir era búnir að
gleyma fyrir hverju þeir ætluðu að
beijast. Þeir létu baráttuna um fjár-
lögin gleypa sig,“ sagði Buchanan.
Fyrir rúmu ári tóku repúblikanar
þingið með áhlaupi og ætluðu að
endurskapa Bandaríkin í anda
íhaldssemi og gamalla gilda. Þá
voru allir á einu máli um, að Bill
Clinton forseti og demókratar væru
búnir að vera. í umræðunum í fyrra-
kvöld hélt enginn því fram.
Árásir á velferðarkerfið
gagnrýndar
Richard Lugar, öldungadeildar-
þingmaður frá Indiana, sagði, að
repúblikanar hefðu gengið of langt
' í andstöðu sinni við ýmis umhverfis-
mál og í árásum sínum á velferðar-
kerfí aldraðra, sjúkra og fátækra
og Forbes sagði, að þeir hefðu glat-
að þeirri sterku, siðferðilegu stöðu,
sem þeir áður .höfðu. Aðrir tóku í
líkan streng og Dole var einn til
varnar. Kvaðst hann vera stoltur
af störfum þingflokksins og kenndi
Clinton og neitunarvaldi hans um,
að ekki hefði náðst meiri árangur.
Það þótti sýna vel þá klemmu,
sem repúblikanar eru í, þegar fyrir-
spyijandinn spurði hvers vegna
kjósendur ættu að fylkjá sér um þá.
Reuter
NOKKUR hópur manna úr ýmsum flokkum og baráttusamtökum
safnaðist saman fyrir utan húsakynni sjónvarpsstöðvarinnar þar
sem umræðurnar fóru fram og leið ekki á iöngu þar til í odda
skarst. Lögðu menn gjarna áherslu á orð sín með kröfuspjöldunum
en enginn meiddist þó alvarlega.
Fyrir fjórum árum hefði verið mik-
ill samdráttur og erfiðleikar í New
Hampshire en nú væri þar mikill
uppgangur. Svarið var yfirleitt það,
að það væri ekki Clinton að þakka
en útvarpsmaðurinn Alan Keyes,
einn frambjóðendanna, varaði hina
við og sagði, að ætluðu repúblikanar
að byggja sína kosningabaráttu á
efnahagsmálunum, þá myndu þeir
tapa.
Mörgum þótti niðurstaða sjón-
varpsumræðnanna í fyrrakvöld vera
sú fyrst og fremst, að það yrði
hvorki lítið verk né löðurmannlegt
fyrir væntanlegan forsetaframbjóð-
anda að sameina Repúblikanaflokk-
inn gegn Clinton.
Stjórnarandstöðuflokkarnir í Bretlandi
Krefjast afsagnar
tveggja ráðherra
Lundúnum. Reuter.
BRESKU stjórnarandstöðuflokkarnir, Verkamannaflokkurinn og Fijálslynd-
ir demókratar, kröfðust þess í gær að tveir háttsettir ráðherrar segðu af
sér embætti vegna skýrslu um vopnasölu Breta til íraks á síðasta áratug.
Flokkarnir efndu til sameiginlegs
blaðamannafundar, sem er mjög
sjaldgæft, þar sem þeir kröfðust
þess að William Waldegrave, næst
æðsti ráðherra fjármálaráðuneytis-
ins, og Nicholas Lyell, dómsmálaráð-
herra, segðu af sér.
John Major forsætisráðherra segir
hins vegar enga ástæðu til afsagnar
þar sem í skýrslunni sé öllum helstu
ásökunum á hendur ráðherrunum
vísað á bug.
Stjórnin hefur legið undir þeim
ásökunum að hafa stutt vopnasölu
til íraks á síðasta áratug og reynt
að koma sökinni yfir á stjórnendur
vopnasölufyrirtækja.
I skýrslu dómarans Richards
Scotts kemur fram að Waldegrave
hafí leitt þingmenn á villigötur í svari
við fyrirspurn um það, hvort reglum
um vopnasölu til íraks hefði verið
breytt að loknu stríðinu við írani.
Einnig kemur fram í skýrslunni
að það hafi verið rangt hjá Lyell að
undirrita tilskipun um að ákveðin
skjöl mætti ekki leggja fram í réttar-
höldum yfir stjórnendum vopnafyrir-
tækja.
Robin Cook, talsmaður Verka-
mannaflokksins í utanríkismálum,
sagði stjórnarandstöðuflokkanna
vera sammála um það, eftir að hafa
lesið 1.800 blaðsíðna skýrslu Scotts,
að gagnrýnin á hendur ráðherranum
tveimur væri það alvarleg að þeir
yrðu að láta af embætti.
Óvært í embætti
Menzies Campbell, talsmaður
fijálslyndra demókrata í utanríkis-
málum, sagði varðandi Waldegrave
að óhugsandi væri að sjá fyrir sér
einstakling í nokkurri annarri stöðu
sem væri vært í embætti eftir gagn-
rýni af þessu tagi.
Michael Heseltine, aðstoðarfor-
sætisráðherra Bretlands, sagði Cook
hafa háð þriggja ára langa „lyga-
og rógburðsherferð" með því að gefa
í skyn að Bretar hefðu selt írökum
vopn, sem síðan hefðu verið notuð
gegn breskum hersveitum í Persa-
flóastríðinu.
Cook segir stjórnarandstöðuflokk-
ana ætla að fara fram á atkvæða-
greiðslu um málið í lok umræðna
um skýrsluna þann 26. febrúar.
Ekki er ljóst hvort í röðum stjómar-
sinna sé að finna óánægða þingmenn
er greiða munu atkvæði með
stjórnarandstöðunni. Stjórnin hefur
einungis fjögurra manna meirihluta
á þinginu.
Vilja fá lögreglu
í skólana
París. Reutcr.
KÖNNUN, sem gerð var fyrir
franska dagblaðið Le Figaro og
sjónvarpsstöðina France 2, bendir
til þess, að meirihluti Frakka sé
því hlynntur, að lögregluvörður
verði hafður í skólum vegna vax-
andi ofbeldis.
Samkvæmt könnun IPSOS-
stofnunarinnar eru 63% Frakka
hlynnt því að lögregla taki sér
stöðu í skólum landsins en 36%
andvíg. Aðeins 1% sagðist ekki
hafa gert upp hug sinn.
Ofbeldi á skólalóðum fer vax-
andi í Frakklandi. Tvö atvik í
þéssum mánuði hafa hrundið af
stað umræðu um hvort efla beri
öryggi í skólum og hvórt Frakkar
geti tekið Bandaríkjamenn sér til
fyrirmyndar í þeim efnum.
í öðru tilvikinu var kennari
stunginn lífshættulega með hnífi
er hann reyndi að hindra fyrrver-
andi nemanda í að komast inn í
skóla. í hinu gekk faðir nemanda
í skrokk á skólastjóra.
Alain Juppe forsætisráðherra
segir að ríkisstjórnin hefði ákveð-
ið að kalla fulltrúa kennara, for-
eldra og sjónvarpsstöðva til
skrafs og ráðagerða um hvernig
reisa mætti skorður við ofbeldi í
skólum og mcðal unglinga. Að
sögn Juppe hafa 175 skólar af
73.000 fengið sérstakt starfslið til
eftirlitsstarfa vegna ofbeldis.
Eldriborgaraferb
til Kanarí
22. apríl - 39 nætur
Abeins kr.
68.960
pr. mann
m.v. 3 í
smáhýsi.
A pr. mann m.v. 2 í íbúb,
Kr. / / ,/ÖV Paraiso Maspalomas.
Við höfum nú fengib viöbótargistingu á þessum vinsæla gististaö þar sem, fjöldi
farþega okkar gisti í fyrra og líkabi afar vel. Stór og glæsilegur garður, vel búnar
íbúðir og staðsetningin á ensku ströndinni. Með frábærum samningum höfum við
samib vib gististaöi okkar um ótrúleg kjör: Þú dvelur í 39 nætur á Kanarí, en borgar
það sama og fyrir þriggja vikna ferð og færð því 18 daga ókeypis.
Innifalib í verði: Flugvallarskattar, flug, gisting,
ferbir til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
Forfallagjald kr. 1.200 ekki innifalib.
Undirtektir vib Kanaríferbum
Heimsferba hafa verib hreint
ótrúlegar í vetur og æ fleiri
íslendingar kjósa ab dvelja í
þessari heillandi paradís.
Þjónusta Heimsferba
1. Beint leiguflug án millilendingar.
2. Þrif 5 sinnum í viku á gististað.
3. Spennandi kynnisferðir.
4. íslenskir fararstjórar.
íslenskur hjúkrunarfræbingur
Við tryggjum þér örugga
þjónustu í fríinu og íslenskur
hjúkrunarfræbingur verður meb
hópnum allan tímann.
HE1M5 >F1
|H|y •> **
Austurstræti 17,2. hæð. Sími 5624600.