Morgunblaðið - 18.02.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1996 39
i
I
I
t
I
I
I
í
BRÉF TIL BLAÐSINS
Hamfarir
í heilbrigðiskerfinu
*
Akvörðun um staðal velferðar
Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur
og Ásdísi Frímannsdóttur:
ORÐ eins og forgangsröðun og
forvarnir, sem hafa borið hátt að
undanförnu, fljúga fyrr en varir á
brott líkt og farfuglarnir á haust-
in. Það liggur við að menn séu
búnir að gleyma því að til stóð,
að taka upp tilvísanakerfí, sem fór
þó vart fram hjá lesendum blað-
anna a.m.k.
Stjórnmálamenn hafa staðið
frammi fyrir því að mynda sér
skoðun í þessu efni. Sé litið til
síðustu ára virðist sem hræðsla
við fylgistap hafí hamlað ákvarð-
anatöku á vettvangi flokkanna.
Afar forvitnilegt var einmitt að
fylgjast með umræðunni um tilvís-
anakerfíð af hálfu stjórnmála-
manna, þar sem fyrrverandi heil-
brigðisráðherra virtist ætla að hífa
seglin einn og óstuddur um tíma.
Fór þá afskaplega lítið fyrir yfir-
lýsingum opinberlega um þetta
tiltekna málefni, enda kosningar
í nánd.
Það er í raun sorglegt til þess
að vita að flokkspólitískir drættir
skuli aðskilja menn á þessum vett-
vangi, þar sem mannlegt líf og
heilsa er annars vegar.
Það hlýtur til dæmis að koma
fljótlega upp á borðið hvaða gæða-
staðal þjónustan hefur til að bera
nú og hvaða gæðastaðal þjónustan
á að hafa í framtíðinni. Samtökin
Lífsvog, sem eru samtök fólks sem
gefur krafta sína í það að aðstoða
fólk sem telur sig hafa orðið fyrir
læknamistökum, geta því miður
ekki skrifað upp á gæðin. Jón
Jónsson er nefnilega ekki alls kost-
ar ánægður með það að þurfa að
fara oftar en einu sinni og oftar
en tvisvar í sömu aðgerðina, vegna
mistaka.
„Hvað ert þú að vilja upp á
dekk, Jón?“
„Þetta hefði svo sem mátt betur
fara, en þú mátt bara þakka fyrir
að ekki fór verr.“ Þetta eru ef til
vill þau svör sem Jón fær þegar
hann hefur farið margar, margar
ferðir sinna erinda í „kerfinu."
Fyrir það fyrsta þarf Jón að fara
með lögin í höndunum til þess að
fá afhentar sínar sjúkraskýrslur,
því svo virðist að menn viti ekki
enn, að Jón má fá sínar sjúkra-
skýrslur í dag. Hann fór því næst
á bókasafnið og fékk sér
fræðibækur til að fletta í, ásamt
ýmsum gagnlegum upplýsingum,
gegnum alnetið. Á þessum grund-
velli heldur hann síðan af stað til
þess að kvarta.
Eru gæði þjónustunnar feimnis-
mál?
Þjónusta sem skilar ekki nógu
góðum árangri þykir ekki upp á
marga físka nú á dögum. Hvar
skyldi heilbrigðiskerfið flokkast í
gæðastjórnun? Hins sama má
reyndar spyija um ríkisrekstur
almennt. Getur það'verið að kjark-
leysi í ákvarðanatöku komi til með
að standa í vegi fyrir breytingum?
Hér er eðli málsins samkvæmt
dýr málaflokkur á ferðinni, en at-
huga má hvað það er sem skapar
arðinn í upphafí.
Það er mikið rætt um að velta
ekki skuldum okkar yfir á afkom-
endurna. Hafa menn hugsað út í
það að börnin okkar koma örugg-
lega til með að geta borgað
skatta, rétt eins og við, og kunna
ef til vill ennþá fleiri ráð, eftir
að hafa horft upp á ráðaleysi
okkar í því að sinna sjúku fólki,
sem skyldi.
GUÐRÚN MARÍA
Ó SKARSDÓTTIR,
ÁSDÍS FRÍMANNSDÓTTIR,
samtökunum Lífsvog.
OPIÐ HÚS
Hátröð 1, Kópavogi - laus
74 fm neðri hæð í tvíbýli. 2 herb. og stofa.
Húsið er vel staðsett í botnlangagötu. Áhv. 4,0 millj.
húsnæðislán. Verð 7,6 millj. Mögul. að taka bíl uppí
útb. Bjarni verður á staðnum í dag millil kl. 14 og 17.
Húsið - fasteignasala,
Suðurlandsbraut 50, sími 533 4300.
(t
FASTEIGNA
MARKAÐURINNeht
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540
OPIÐ HUS
Frostafold 34, RvíkGlæsileg 100 fm íb. á 3. hæð til
hægri. Samliggjandi stofur með suðursvölum og 2
svefnherb.,Þvottaherb. í íbúð. 21 fm bílskúr. Laus
strax. Áhv. 4,9 millj. byggsi. Verð 9,3 millj.
Eignin verður til sýnis í dag frá kl. 14—17.
Gjörið svo vel að líta inn.
Jón Guömundsson, sölustjóri, lögg. fasteignasali. Ólafur Stefánsson, viösk.fr. og lögg. fasteignasali
FASTEIGNAMARKAÐURINN ehf=
Óðinsgötu 4. Símar 551-1540, 552-1700
'J)
{jðf FASTEIGNAMIÐSTÖDIN " pT
SKIPHOLTI 50B - SÍMI 562 20 30 - FAX 562 22 90
STOFNSETT 19SS
Áminning til
ríkisvaldsins
Frá Ingólfi H. Ingólfssyni:
EITT megin hlutverk ríkisvaldsinser
að skapa öllum þegnum þau skilyrði
að þeir geti lifað við félagslegt- og
efnahagslegt öryggi og notið al-
mennra mannréttinda.
Þótt réttindi fólks eigi að vera al-
menn er þeim oft misskipt og minni-
hlutahópar hafa alla tíð þurft að beij-
ast fyrir réttindum sínum við öfluga
hagsmunaaðila. Það er hlutverk ríkis-
ins sem fulltrúi almannaheilla að slá
skjaldborg um þá sem veikastir eru
í réttindabaráttunni svo ekki sé hallað
á þá og gengið á rétt þeirra.
Það er því alvarlegt þegar stofn-
anir hins opinbera hafa frumkvæði
að því að ganga á veikburða rétt
geðsjúkra, þeirra einstaklinga sem
eiga nánast allt undir því að ríkisvald-
ið verndi þá og tryggi öryggi þeirra.
Geðhjálp skorar því á ríkisstjórnina
að bregðast ekki þessari skyldu sinni
og leiti annarra leiða í peningaspam-
aði en að svipta geðsjúka heimili sínu
eða aðgangi að heilbrigðisþjónustu.
INGÓLFUR H. INGÓLFSSON,
framkvæmdastjóri.
Handvömm
Frá Eggert E. Laxdal:
NÚ HAFA margir kirkjunnar þjónar
tekið upp þann sið, að dýfa ofbl-
átunni í vínið við altarisgöngur. Þessi
aðferð á að spara vín og ganga fljót-
ar fyrir sig. Eg spyr, þurfa prestar
og safnaðarstjórar að flýta sér svo
mjög, að þeir hafi ekki tíma til þess
að tilreiða þessa heilögu máltíð á
réttan hátt.
1 Biblíunni er að finna greinilega
lýsingu á því, hvernig athöfnin á að
fara fram. Guðspjallamaðurinn Lúk-
as lýsir þessu nákvæmlega í guð-
sPjalli sínu, í 22. kap. versunum 19
til 20, og þar segir: „Og hann (Jes-
us) tók brauð, gjörði þakkir, braut
það og sagði: Þetta er líkami minn,
sem fyrir yður er gefinn. Gjörið þetta
í mína minningu. Eins tók hann kal-
eikinn eftir kvöldmáltíðina og sagði:
»,Þessi kaleikur er hinn nýi sáttmáli
í mínu blóði, sem fyrir yður er út-
helt. Og annars staðar segir: Drekk-
>ð allir hér af.
Með öðrum orðum, það á að bijóta
brauðið og drekka af kaleiknum og
þetta verður auðvitað að taka sinn tíma
eins og allt annað. Það liggur ekkert
á að hespa þessu af eða spara vínið.
EGGERT E. LAXDAL,
Box 174, Hveragerði.
Glæsilegt sumarhús til sölu
Þessi glæsilegi nýi og vandaði bústaður í landi Galtar-
holts í Borgarfirði er til sölu. 50 fm heilsárshús með
28 fm manngengu svefnlofti. Vatn, rafmagn, vatnshita-
kútur, sturta, parket á gólfum, vandaður lakkaður pan-
ell og fullbúið eldhús. Land 1,1 hektari vaxið birki-
skógi. Skipti möguleg á íbúð á Reykjavíkursvæðinu.
Nánari upplýsingar á skrifstofu.
Húsakaup, Suðurlandsbraut 52 v/Faxafen, s. 568-2800.
Magnús Leópoldsson, löggiltur fasteignasali
Flókagata 62
Til sölu 2. hæð í þessu myndarlega húsi. íbúðin er um
150 fm. 4 herb., stórt hol auk stofu og borðstofu.
Þvottahús og búr innaf eldhúsi. Góðir skápar. Um 20
fm suðursvalir. Einnig fylgir innbyggður bílskúr, ca 20
fm. Stærð alls 172,4 fm. Ibúðin getur verið laus strax.
Verð 11,4 millj.
' *
Aflagrandi 40
þjónustuíbúð fyrir aldraða
Til sölu glæsileg 2ja herb. 69,1 fm íbúð á 2. hæð í þjón-
ustuþlokk þar sem er þjónustumiðstöð. Stærð íbúðar-
innar með sameign er 92,3 fm. Stórar suðvestursvalir.
Bílageymsluhús. Áhv. byggsj. ríkisins um 3,5 millj.
Verð 8,0 millj.
ÁSBYRGI fasteignasala,
Suðurlandsbraut 54,
sími 568 2444.
SUÐURLANDSBRAUT 52 v/FAXAFEN
<\ HÚSAKAUP
Brynjar Harðarson
viðskiptafraeðingur,
Guðrún Arnadóttir
Iðggiltur fasteignasali.
Kart Q. Sigurbjðrnaaon.
lögfrœðingur
Sigrvin PorgrimsdOttir
rekstrarfmðingur.
Til leigu nýtt iðnaðarhúsnæði
Til leigu sérstaklega vel staösett, nýtt, fullklárað iönaöarhúsnæöi. Um
er aö ræöa 4 einingar, alls um 1800 fm, hver eining frá 200—600 fm.
• 5 metra lofthæö
• háar innkeyrsludyr
• malbikuö rúmgóö bílastæði
• fyrsta flokks aökoma og aðkeyrsla
• frágangur allur sérstaklega vandaöur
• sýnilegt frá fjölförnum umferöargötum
Frekari upplýsingar veittar á skrifstofu okkar.
•FASTEIGNA & SKIPASALA
★ Opiðhúsfrákl. 13-16 ídag ★
Boðahlein 9 - parh. við DAS, Hfj.
Glæsil. 85 fm parh. á einni hæð með sólskála. Parket. Allt
sér. Vönduð eign. Verið veikomin til Guðbjargar.
Opið hús frá kl. 13-16 í dag ★
Víðiteigur 2C - raðhús - Mos.
Nýkomið mjög fallegt 3ja herb. 85 fm raðh. á einni hæð. Full-
búin eign. Afgirtur suðurgarður með verönd. Áhv. byggsj. rík.
5,8 millj. Verð 8,2 millj. Verið velkomin til Helgu.
★ Opið hús í dag frá kl. 13-16 ★
Hrísmóar 4 - 3ja herb. - Gbæ
Mjög falleg björt og rúmgóð íb. á 3. hæð í lyftuh. með yfir-
byggðum svölum (sólskáli), alls 118 fm auk bílskýlis. Parket.
Verð 8,9 millj. Verið velkomin til Svövu.
★ Opiðhúsídagfrákl. 13-16 ★
Skálaheiði 3 - Kóp. - 2ja
Nýkomin mjög skemmtileg og björt rúmg. 76 fm íb. á 1. hæð
með sérinng. í 4ra-íb. húsi. Parket. Verð 5,2 millj. Verið vel-
komin til Stefáns og Ástu.