Morgunblaðið - 18.02.1996, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 18.02.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1996 13 LÍFSKJÖR margra hafa versnað eftir að Sovétríkin liðu undir lok og iðulega er umbótum í átt til markaðsbúskapar kennt um. Nú bíður Jeltsíns að telja Rússum trú um að betri tíð sé í vændum. nýlegu sjónvarpsviðtali. „Það er vit- anlega afar mikil hætta á ferðum þegar reynt er að breyta forsetan- um í einvald liðinna tíma.“ Jeltsín fæddist 1. febrúar 1931 í Sverdlovsk (nú Jekaterínborg) í Úralfjöllum og reis þar til valda. Hann kynntist Gorbatsjov seint á áttunda áratugnum. Þegar Gorb- atsjov komst til valda í Sovétríkjun- um 1985 valdi hann Jeltsín til að uppræta spillinguna í Moskvu. Jeltsín var gerður að félaga í stjór- málaráðinu án atkvæðisréttar árið 1986 og þótti ötull umbótasinni í embætti flokksleiðtoga í Moskvu. Hins vegar versnaði samband hans og Gorbatsjovs þegar Jeltsín tók að segja hug sinn og gagnrýna íhaldsarm kommúnistaflokksins. Þegar Jeltsín beindi spjótum sínum að stefnu Gorbatsjovs kastaði tólf- unum og hann var neyddur til að segja af sér úr forystu flokksins í Moskvu árið 1987 og úr stjórnmála- ráðinu 1988. Jeltsín var kosinn á þing með 89% atkvæða í sínu kjördæmi árið 1989 millilenti á leið til Rússlands frá Bandaríkjunum. Aðstoðarmenn sögðu að misskilningur hefði átt sér stað, en Jeltsín kvaðst hafa sofið yfir sig. Hann var lagður tvisvar inn á sjúkrahús í fyrra vegna hjartveiki og sást ekki í Kreml svo mánuðum skipti. Fréttaskýrendur sögðu að hann hefði virst við góða heilsu þegar hann lýsti yfir framboði og slegið á létta strengi, en í sjónvarpi virtist hann stífur og þreytulegur, þótt eitthvað hefði hann grennst. Hermt er að hann sé hættur að leika tennis sér til heilsubótar og farinn að tefla. Hann er nú 65 ára gamall og hefur lifað sjö árum leng- ur en rússneskir karlmenn gera að meðaltali. Spurning er hvort hann sé það heilsutæpur að annað kjör- tímabil verði honum um megn. Róðurinn verður þungur fyrir Jeltsín. Það er ótímabært að af- skrifa forsetann, en hann mun þurfa á allri sinni kunnáttu og kænsku að halda hyggist hann bera sigur úr býtum. með Heimsferðum ogVivaAir Vikulegt flug Heimsferða til Costa del Sol hefur viva, sannanlega slegið í gegn og uppselt er nú í 4 ferðir og nánast að seljast upp í aðrar íjórar. Hér eru í boði glæsilegir gististaðir og eitthvert skemmtilegasta mannlíf í Evrópu enda getur þú valið úr ótrúlegu úrvali skemmti- og veitingastaða og hvergi færðu eins mikið úrval spennandi kynnisferða eins og á Costa del Sol. Öruggur ferðafélagi HeimsferðirJljúga í sumar með VIVA Air flugfélaginu, sem er í eigu Iberia á Spáni og er eitt virtasta leiguflugfélag Spánar. Glæsi- legur nýr flugfloti Boeing 737 þota tryggir þér glæsilegan aðbúnað um borð og topp þjónustu í fluginu þínu í sólina í sumar. © Flugsæti fyrir manninn með sköttum. Verð fyrir manninn með sköttum: Ferð í tvær vikur fyrir hjón með 2 börn, 4. júlí. Verð í 2 vikur fyrir hjón á studio á E1 Pinar, 4. júlí. Kynntu þér Heimsferðatilboð til Benidorm - Cancun - Parísar - Barcelona Bandaríkjamenn hafa löngum verið gagnrýndir fyrir að binda of mikið traust við einstaklinga í Rúss- landi í stað þess að tryggja fram- gang stefnumála. Fyrst hafi Gorb- atsjov verið maður Bandaríkja- manna og nú Jeltsín. Einu ummæl- in, sem komu frá Bandaríkjamönn- um við framboði Jeltsíns, voru höfð eftir ónafngreindum starfsmánni forsetans, sem sagði að það væri Rússa að velja sér leiðtoga. Banda- ríkjamenn myndu vinna með lýð- ræðislega kjörinni forystu landsins. Þessi orð voru í sama anda og grein, sem birtist eftir Strobe Tal- bott aðstoðarutanríkisráðherra í dagblaðinu International Herald Tribune 8. febrúar: „Jafnvel þegar ekki er ljóst hvaða stefnu rússnesk stjórnmál eru að taka eru grund- vallaratriði stefnu Bandaríkja- manna vís. Fyrst ber að telja að við styðjum lýðræði. Það er ekki okkar hlutverk að velja leiðtoga Rússa og hefur aldrei verið. Rúss- neska þjóðin hefur nú vald til að gera það sjálf.“ Því heyrist oft fleygt að Jeitsín sé einangraður í embætti. Hann hafi eintóma jábræður í kringum sig, sem skjalli hann við hvert tæki- færi. Vjatsjelav Kostíkov, fyri-ver- andi blaðafulltrúi Jeltsíns, segir að forsetinn sé valdasjúkur og hans nánustu ráðgjafar hafi sannfært hann um eigið mikilvægi. „Það er skelfilegt. þegar tiltekinn maður öðlast sannfæringu fyrir því að hann sé mikilmenni og gjörsam- lega ómissandi," sagði Kostíkov í og 1990 kaus sovéska þingið hann forseta, Rússlands. Mánuði síðar gekk hann úr kommúnistaflokkn- um. Jeltsín barðist fyrir því að auka vald forsetaembættisins og í júní 1991 var hann kjörinn forseti. í ágúst það ár lék hann lykilhlutverk í að kveða niður tilraun harðlínu- manna í kommúnistafiokknum til að bylta Gorbatsjov. Skömmu síðar niðurlægði hann fyrrum velunnara sinn með því að banna starfsemi kommúnistaflokksins í Rússlandi. í desember skrifuðu Jeltsín og leiðtogar Hvíta Rússlands og Úkra- ínu undir sáttmála um að stofna samveldi sjálfstæðra ríkja og leggja Sovétríkin niður og í apríl 1992 hleypti hann einkavæðingaráætlun af stokkunum undir forystu Gaid- ars., 1993 var gerð tilraun til að steypa Jeltsín og var hún kveðin niður með valdi. Á ýmsu hefur gengið í valdatíð Jeltsíns. Þingið hefur oft verið hon- um óþægur ljár í þúfu og kjaftask- arnir hafa ekki látið sitt eftir liggja. Fiskisögur um drykkjuskap hafa lengi verið á kreiki og fengu byr undir báða vængi þegar Jeltsín hrasaði eftir kampavínsdrykkju í Berlín, greip tónsprota hljómsveit- arstjóra eins, tók að stjórna hljóm- sveit hans og söng um leið ramm- falskt í hljóðnema. Ekki bætti úr skák þegar Jeltsín lét Albert Reyn- olds, forseta írlands, bíða á flug- brautinni í Shannon án þess að láta svo lítið að stinga út nefi er hann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.