Morgunblaðið - 25.02.1996, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 18/2 - 24/2.
►91% FALL varð á prófi I
almennri lögfræði í laga-
deild Háskóla íslands. Af
133 stúdentum á fyrsta ári,
sem þreyttu prófið féll 121.
Alls voru 167 manns skráðir
til prófs en 34 mættu ekki.
►LÖGREGLA beitti tára-
gasi á veitingastað í Skeif-
unni til að binda enda á
skemmtanahald sem þar fór
fram. Þegar lögreglan kom
á staðinn voru þar 40-50
manns, nemendur úr Fjöl-
brautaskólanum i Breið-
holti. Einn nemandi fékk of
mikinn skammt af táragasi
í andlit og lungu og missti
við það meðvitund og var
sendur á bráðamóttöku.
►FRAMKVÆMDIR við
veggöng undir Hvalfjörð
hefjast um miðjan næsta
mánuð. Skrifað hefur verið
undir samninga um fjár-
mögnun framkvæmdanna
og langtímafjármögnun að
þeim loknum. Félagið Spöl-
ur er verkkaupi en Foss-
virki sf. sameignarfélag ís-
taks hf., sænska verktaka-
fyrirtækisins Skanska og
danska verktakafyrirtækis-
ins E. Pihl og Son vinnur
verkið. Áætlað er að verk-
inu ljúki snemma árs 1999.
► APÓTEKARAFÉLAG ís-
lands hefur kært lyfjabúð-
arrekstur Sjúkrahúss
Reylgavíkur og Ríkisspítal-
anna til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins. Félagið telur
spítalana brjóta lyfjalög.
Flóð um vestan
vert land
MIKILL viðbúnaður var í sjávarpiáss-
um um allt vestanvert land vegna
yfírvofandi sjávarflóðahættu. Tjón
varð þó minna en óttast hafði verið
þrátt fyrir að sjór gengi víða á land
í stormi sem gekk yfír landið. Storm-
ur eða rok var um allt land, 9-10
vindstig og ofsaveður á stöku stað.
Nokkrar skemmdir urðu á bryggjum
og hafnargarði Reykhólahafnar og
við höfnina á Flateyri. Sjóvamargarð-
ur við Mýrargötu í Reykjavík brotn-
aði og á Álftanesi flæddi inn í hús.
Verulegt magn
af fíkniefnum
FÍKNIEFNAEFTIRLIT toílgæslunn-
ar á Keflavíkurflugvelli gerði upptækt
verulegt magn af fíkniefnum í vik-
unni. Mun fundurinn vera eitt stærsta
mál sinnar tegundar, sem upp hefur
komið. Efnin fundust í fórum þriggja
farþega, sem voru að koma frá Amst-
erdam. Var fólkið handtekið ásamt
flórða manni sem var að taka á móti
einum farþeganum.
Vill opinbera
rannsókn
HR. ÓLAFUR Skúlason biskup hefur
óskað eftir því við embætti ríkissak-
sóknara að það láti fara fram opin-
bera rannsókn á tilurð og sannleiks-
gildi ásakana, sem á hann hafa verið
bomar um refsivert athæfi. Siðanefnd
Prestafélagsins hefur til meðferðar
mál, sem varðar ásakanir konu á
hendur biskupi um kynferðislega
áreitni fyrir 17 ámm þegar hann var
prestur í Bústaðasókn.
Signr Buchanans
vekur ugg
PAT Buchanan bar sigur úr býtum
í forkosningum bandarískra repúblik-
ana í New Hamps-
hire sl. þriðjudag.
Fékk hann 27% at-
kvæða, Bob Dole
26% og Lamar
Alexander 23%.
Hafa úrslitin valdið
miklum taugatitr-
ingi meðal and-
stæðinga Buchan-
ans í Repúblikana-
flokknum og þeir
Dole og Alexander
halda því fram hvor
um sig, að nú standi
slagurinn millí sín og Buchanans.
Segja þeir, að tekist sé á um framtíð
flokksins og gagnrýna harðlega öfga-
fulla einangmnarhyggju Buchanans.
Sigur Buchanans hefur einnig vakið
ugg i Evrópu og víðar og þar ganga
sumir svo langt að líkja honum við
kynþáttahatara og fasista. Kosninga-
stjóri Doles segir hann verða að sigra
í forkosningunum í Suður-Karólínu
2. mars en fréttaskýrendur telja hins
vegar, að Buchanan eigi góða mögu-
leika þar.
Serbar flýja
Sarajevo
SERBAR hafa flúið tugþúsundum
saman frá Sarajevo síðustu daga
en á föstudag tók sambandsstjórn
múslima og Króata við stjórninni í
hverfum þeirra í borginni. Hefur
verið skorað á þá að vera um kyrrt
en þeir óttast hefndaraðgerðir og
hafa margir kveikt í húsum sínum
til að þau nýtist ekki múslimum og
Króötum. Leiðtogar Bosníu-Serba
hafa ákveðið að hefja aftur viðræð-
ur við fulltrúa friðargæsluliðs
NATO en þeir slitu þeim þegar tveir
serbneskir herforingjar vom hand-
teknir og sakaðir um stríðsglæpi.
►JACQUES Chirac, forseti
Frakklands, tilkynnti á
fimmtudag, að herskylda
yrði afnumin innan sex ára
og herinn þá eingöngu skip-
aður atvinnuhermönnum.
Hætt yrði að framleiða úran
og plúton í kjarnorkuvopn
og og ýmsum langdrægum
og skammdrægum eldflaug-
um eytt. Þá er stefnt að því
að fækka hermönnum úr
500.000 í 350.000.
►OLÍUSKIPIÐ Sea Em-
press náðist af strandstað
við Wales á miðvikudags-
kvöld og er það nú komið í
höfn í Milford Haven. Talið
er, að allt að 70.000 tonn
af olíu hafi farið í sjóinn og
er því um að ræða eitt af
mestu olíumengunarslysun-
um.
►RÚSSNESKI herinn náði
í vikunni á sitt vald einu
helsta vígi uppreisnar-
manna í Tsjetsjngu, bænum
Novogrozneskíj, eftir harða
bardaga. Sagt er, að mikið
mannfall hafi orðið í röðum
Tsjetsjena og Rússa einnig
en þeir fullyrða, að upp-
reisnarmenn hafi verið að
ráðgera nýja gislatöku.
►TVEIR tengdasynir Sadd-
ams Husseins, forseta íraks,
bræðurnir Hussein og Sadd-
am Kamel, voru skotnir til
bana af ættingjum sínum á
föstudag. Flýðu þeir land
fyrir hálfu ári en sneru aft-
ur til íraks á þriðjudag. _
Samkvæmt fréttum frá írak
vildu ættingjar manna
hreinsa orðstír fjölskyld-
unnar, sem beðið hefði
hnekki vegna „landráða"
bræðranna.
FRÉTTIR
Heilbrigðisráðherra er mótfallinn skiptingu ráðuneytisins
Fjármagn verði frek-
ar flutt í kjördæmin
SIGHVATUR Björgvinsson, fyrrum
heilbrigðisráðherra, vill ekki útiloka
hugmynd Sturlu Böðvarssonar,
varaformanns fjárlaganefndar, um
að skipta heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu í tvö ráðuneyti.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbnigðis-
ráðherra og Matthías Bjarnason,
fyrrum heilbrigðisráðherra, eru mót-
fallin hugmyndinni. Ingibjörg segir
að verið sé að vinna að annarri hug-
mynd á vegum ráðuneytisins, þ.e.a.s.
að færa ákveðið fjármagn á einn
stað í hvetju kjördæmi.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra kvaðst mótfallin því að
skipta heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneyti í tvö ráðuneyti. „Eg sé
engan sparnað í því að reka tvö ráðu-
neyti. Þvert á móti yrði hér um mik-
inn kostnaðarauka að ræða og ef
talað er um að skipta heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytinu í tvö ráðu-
neyti mætti með sömu rökum um
kaupanda og seljanda stinga upp á
því að skipta samgönguráðuneyti í
tvö ráðuneyti," sagði Ingibjörg.
Ingibjörg sagði að verið væri að
vinna að öðrum tillögu varðandi svip-
aða hugmyndafræði, þ.e. um að
kaupa og selja þjónustu. „Nú er
þverpólitísk og þverfagleg nefnd að
vinna að hugmynd um að flytja
ákveðið fjármagn heilbrigðis- og
tryggingamála á einn stað í hveiju
kjördæmi. Eins konar heilbrigðis-
stjóm myndi svo kaupa þjónustuna
af heilsugæslustöðvum, sjúkrahús-
um og öidrunarþjónustu í kjördæm-
inu. Með því væri verið að flytja fleiri
verkefni heim í hérað. Vonandi kall-
aði breytingin á hagræðingu og betri
samvinnu sjúkrahúsanna og ýtti frá
hreppapólitík," sagði hún.
Ingibjörg sagði að nefndin hefði
enn ekki skilað áliti sínu og útséð
Ingibjörg
Pálmadóttir
Matthías
Bjarnason
væri um að hugmyndin kæmi fyrir
vorþing. Hún tók fram að miklar
lagabreytingar þyrfti til að gera
hugmyndina að veruleika.
Hærri stjórnsýslukostnaður
Sighvatur Björgvinsson, fyrrum
heilbrigðisráðherra, vildi ekki útiloka
hugmyndina. „Eftir sem áður hefðu
sjúklingar hins vegar engan fagleg-
an fulltrúa til að gæta hagsmuna
sinna. Sjúkrasamlögin höfðu ákveðið
eftirlit með því að sjúklingurinn
fengi þjónustu við hæfi og sem greitt
hafði verið fyrir. Mér sýnist svo að
Bretar hafi farið ágæta leið með því
að gera heimilislækni viðkomandi
sjúklings að nokkurs konar fulltrúa
hans í kerfinu. Honum er uppálagt
að fylgjast með því hvaða þjónustu
sjúklingurinn fær og sér um að
greiðsla komi fyrir sérfræðihjálp.
Sami tilgangur var með tilvísana-
kerfínu," sagði Sighvatur og lagði
áherslu á að nú fylgdist enginn með
því hvaða þjónustu sjúklingur fengi
og hvort hún væri fullnægjandi.
Sighvatur sagði að gallinn við
tvískiptingu ráðuneytisins fælist
væntanlega í eitthvað hærri stjórn-
sýslukostnaði. „Kosturinn er að ann-
ars vegar yrði um að ræða ráðu-
neyti heilbrigðis-
mála, sem fýlgdist
með heilbrigðis-
kerfinu og sæi til
þess að veitt yrði
besta þjónusta
sem hægt væri að
veita á hveijum
tíma, og hins veg-
ar væri fulltrúi
þess sem greiðir,
Sighvatur þ.e.a.s. trygg-
Björgvinsson ingakerfisins sem
greiðir flesta
þessa reikninga. Þannig væri skorið
á tengsl þessara tveggja aðila,
þ.e.a.s. þeirra sem gera kröfurnar
og þess sem borgar, og í því fælust
ýmsir kostir."
Ástæðulaus fjölgun
Matthías Bjamason, sem var heil-
brigðisráðherra á árinum 1974 til
1978 og 1983 til 1985, sagði að sér
fyndist fráleitt að skipta heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytinu í tvennt
enda sæi hann enga ástæðu til að
fjölga ráðuneytunum. Lengst af
hefði verið stefna Sjálfstæðisflokks-
ins að fækka ráðuneytum fremur
en fjölga. „Ef menn eru að tala um
að spara er lítið gagn í því að hafa
í gangi tvö ráðuneyti. Ég get heldur
ekki skilið hvaða sáluhjálparatriði
er að færa tryggingamálin í annað
ráðuneyti enda er allt greitt úr sama
kjarnanum, ríkissjóði, hvort sem
er,“ sagði hann. „Og svo örlaði á
því að draga ætti úr lífeyristryggg-
ingum og það finnst mér vera eitt
það alósanngjarnasta sem mönnum
getur komið til hugar.“
Hann tók fram að hann hefði
frekar viljað sjá tillögu um að ráðu-
neytunum yrði fækkað en þeim
fjölgað.
Morgunblaðið/Júlíus
Vestur-
landsvegur
breikkaður
FRAMKVÆMDIR við breikkun
Vesturlandsvegar frá Höfða-
bakka og vestur yfir Elliðaárbrú
eru hafnar og á verkinu að Ijúka
fyrir 1. október næstkomandi.
Gert er ráð fyrir að núverandi
vegur verði notaður fyrir akstur
í austur en umferð í vestur verði
á nýjum vegi, sem byggður verð-
ur norðan við núverandi veg og
á nýrri brú sem verður við hlið
núverandi brúar.
Dapurleg blaðamennska
ÞAÐ KEMUR að vísu afar sjaldan
fyrir að fjölmiðlafólk bregðist trún-
aði við viðmælendur sína. Þó henti
það undirritaðan eitt sinn að birt var
við hann viðtal, sem aldrei hafði
verið tekið. Aðspurður sagði blaða-
maðurinn að hann hefði birt viðtalið
ótekið af því honum tókst ekki að
ná í mig! Ummælin sem eftir mér
voru höfð hafði hann eftir ljósmynd-
ara, sem kvaðst hafa heyrt mig fara
með þau inn á gangi í Landsbankan-
um.
Þriðjudaginn 20. janúar gekk mik-
ið á í Landsbankanum. Pjölmiðlar
sóttu mjög á um fréttir af vaxta-
breytingum. M.a. ritstjóri Alþýðu-
blaðsins. Hleypti ég honum í gegn,
af því aðallega sem ég hafði aldrei
við manninn talað. Ég á það að vísu
ekki eftir, svo það er frá.
Ritstjórinn spurði hvort Lands-
bankinn myndi breyta vöxtum að
því sinni. Og kvað ég nei við. Bank-
inn teldi sig ekki hafa framið afglöp
með hækkuninni 1. febrúar og vildi
ekki játa neitt slíkt á sig, enda væru
tök á vaxtabreytingum á 10 daga
fresti. Ég kvað óðagot á mönnum í
þeim efnum vera með ólíkindum og
væri líkast því sem þeir hefðu étið
„óðsmannsskít", sem var algengt
orðatiltæki í minni sveit um fólk sem
anaði áfram með gassagangi. Að
öðru leyti margtók ég fram að ég
vildi ekkert láta eftir mér hafa en
lét vaða nokkuð á súðum í viðtalinu.
Mig minnir að ritstjórinn hafi þrítek-
ið að það væri allt okkar í milli eða
„off the record“, eins og blaðamönn-
um er tamt að segja.
Morguninn eftir var .þetta viðtal
forsíðufrétt í Alþýðublaðinu, meira
og minna úr lagi fært. Sérstaklega
hafði óðsmannsskíturinn farið öfugt
ofan í ritstjórann svo úr varð tóm
vitleysa. M.a.s. íslandsbanki við það
bendlaður á miður smekklegan hátt.
Nú væri ég ekki að eltast við
þennan ritstjóravesling nema af því
sem Ríkissjónvarpið lét sér sæma
að taka upp ambögur ritstjórans sl.
föstudagskvöld og smíðaði að vissu
leyti nýtt axarskaft úr vitleysunni.
Engum getum skal að því leitt hvað
að baki hefur búið þessu smekklega
hugarflugi Sjónvarpsins, en visast
renna fleiri fjölmiðlar í slóðina „il-
bleikir með strengdan kvið“.
En við ritstjóra Alþýðublaðsins er
ekki hættandi á að eiga frekari orða-
stað. Hann myndi vafalaust mis-
skilja mig ef ég segði að honum
væri sæmst að éta sinn eigin þrekk
og halda að ég væri að vísa honum
á eitthvert hnossgæti. Og Sjónvarpið
myndi undireins biðja um mynd af
krásinni til birtingar.
Sverrir Hermannsson
I