Morgunblaðið - 25.02.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1996 23
ERLENT
Fymim
kona Kims
til Vestur-
landa?
Scoul. Reuter.
FYRSTA eiginkona Kim Jong-il,
hins leyndardómsfulla leiðtoga
Norður-Kóreu, vill fá hæli á Vestur-
löndum. Þetta var haft eftir suður-
kóreskum embættismönnum á
fimmtudag.
Kunngjört var fyrir skemmstu að
Sung Hye-rim, sem dvalist hefur
mörg undanfarin ár í Moskvu hefði
yfirgefið borgina og hygðist ekki
snúa aftur til Norður-Kóreu heldur
leita eftir pólitísku hæli erlendis.
Óstaðfestar fréttir herma að hún sé
í Hollandi ásamt systur sinni og
frænku sem flúðu með henni.
Heimildarmenn Reuíers-frétta-
stofunnar sögðu á fimmtudag að
Sung, sem þjónaði leikiistargyðjunni
á yngri árum sínum, vildi fá landvist-
arleyfi annaðhvort í Bandaríkjunum
eða Evrópu. Þeir hinir sömu kváðust
hins vegar ætla að hún myndi á
endanum setjast að í Suður-Kóreu.
Það gæti á hinn bóginn reynst
olía á eldinn í samskiptum Norður-
og Suður-Kóreu. Stjórnvöld í Norð-
ur-Kóreu fóru hörðum orðum um
ráðamenn í suðurhlutanum þegar
fréttir bárust af flótta Sung og létu
að því liggja að þessum „óhróðri"
yrði svarað með vopnavaldi. Var því
og lýst yfir að öllum ráðum yrði
beitt til að „vetja forystusveitina í
Norður-Kóreu“ en þar í landi þykir
persónudýrkun hafa komist á nýtt
og áður óþekkt stig. Gjarnan er vís-
að til Kim Jong-il sem „merkilegasta
manns sögunnar“ og látið að því
liggja að fæðing hans inn í þennan
heim hafi verið helgur atburður sem
einungis standist samanburð við
fæðingu föður hans Kim il-Sung.
------» ♦ ♦------
Skotpallur
verður
mmjasafn
Helfaut-Wizernes, Frakklandi. Reuter.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að opna
stríðsminjasafn við skotpall sem
þýskir nasistar notuðu til að skjóta
V-2 flugskeytum á England á árum
síðari heimsstyijaldarinnar.
Skotpallurinn sem er mikið stein-
steypubyrgi er nærri bænum Saint
Omer í Norður-Frakklandi. Það voru
rússneskir stríðsfangar sem neyddir
voru til að smíða skotpallinn sem er
sérlega rammgerður. Breskum
sprengjuvélum tókst ekki þrátt fyrir
ítarlegar tilraunir að leggja byrgi
þetta í rúst.
„Hitler sagði að ríki hans myndi
standa í þúsund ár. Blessunarlega
rættist sá spádómur hans ekki. En
hann lét byggja þetta ferlíki og það
mun standa hér næstu þúsund árin,“
sagði franski sagnfræðingurinn Yves
Le Maner.
Gert er ráð fyrir að safnið verði
opnað á næsta ári. Búist er við að
um 250.000 gestir sæki það heim á
ári hveiju. Kostnaður verður um 650
milljónir króna og mun Evrópusam-
bandið standa undir hluta hans.
Bútasab
Til Danmerkur fyrir tuttugu þúsund krúnur
i i
\ 0 >
I v-.
i 11
1 11
i >
\ \
SERSTMT FERÐATILBOÐ
. ^ -aldir í stuttan tíma!
/ s\ &
Eigum nokkur sœti laus til Billund:
BROTTFARIR:
27. jiíní 4» júlí (ðrfá sætí) 11. júlí 18. júlí
Ath.: Næturflug til Danmerkur
BOKIÐ STRAX!
Flug til Billund og til baka
Verð pr.mann:
Verð pr.mann:
2>j
\
■ %
% %
w
% '%
%
s
Enn óaýrari ferðir fyrir Islendinga.
VISA
FERÐIR
Faxafeni 5 108 Reykjavík Sími: 568 2277 Fax: 568 2274
Farþegar PLÚSferða fljúga
eingöngu með Flugleiðum.
OPIÐA
LAUGARDÖGUM
kl: 10-14
£ l I
o' 1
al I
"l I
-I I
o« 1
I I
—• I
I
ÚTSALA
Bútfsala
Trönuhrauni 6 • HafnarFtrði • Sími 565 1660
Opið mánud.-föstud. 10-18. laugard. 10-14
Suðurlandsbraut 50 V/Fákafen • Sími 588 4545
Opið mánud.-fimmtud. 10-18. föstud. 10-19. laugard. 10-16
Bútasalan hefst í
fyrramálið kl. 10.00
Frábær verð