Morgunblaðið - 25.02.1996, Side 44
l4 SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Tónleikar
HljómsveitTónlistarskólans í Reykjavík
miðvikudaginn 28.febrúar kl. 20.30 í Bústaðakirkju.
Frumflutt lokaverkefni
eftir Arnþrúði Lilju Þorbjörnsdóttur ogjón Guðmundsson,
nemendur tónfræðideildar.
Einsöngvarar: Xu Wen, sópran ogValdimar Másson, bassi.
Stjórnandi: Kjartan Óskarsson.
Ókeypis aðgangur.
Alþjóðleg og öðruvísi
kennaramenntun
Det Nodvendige Seminarium í Danmörku býður uppá 4ra ára kennaranám
fyrir unga Evrópubúa, sem vilja afla sér menntunar í alþjóðlegu umhverfi.
Lagt er stund á nám í mörgum fögum í tengslum við starfsnám I skólum
í Danmörku og öðrum löndum: Samfélagsfræði, sálfræði, uppeldisfræði,
listum, tónlist, íþróttum, dönsku, öðrum Evrópumálum, stærðfræði, trúar-
þragðafræði og heimspeki.
4ra mánaða námsferð með langferðabíl gegnum Evrópu og Asíu til
Indlands. í ferðinni er aflað upplýsinga um lifnaðarhætti fólks í ýmsum
löndum.
Unnið við kennslu í Afríku: í 8 mánuði tekur þú þátt í að mennta nýja
kennara í Mosambík og Angóla.
Allir nemendur búa við skólann. Byrjað 1. september 1996.
Kynningarfundur í Norræna húsinu í Reykjavík, sunnudaginn 3. mars kl. 14.
Skrifið eða hringið og fáið bækling.
Det Nodvendige Seminarium, Tvind, DK-6990 Ulfborg.
Fax 00 45 43 99 5982. Sími 00 45 4399 5544.
Trúarbrögð - trúarbragðasaga
Ný námskeið í mars og apríl
Trúarbragðasaga - yflrlit
Gerð verður í stórum dráttum grein fyrir sögu, þróun og
aðaleinkennum helstu trúarbragða mannkynssögunnar.
Efnisleg skipting:
1. Einkenni sem eru sameiginleg öllum trúarbrögðum.
2. Trúarbrögð runnin upp í Austurlöndum nær.
3. írönsk og indversk trúarbrögð, þ.á m. hindúa- og búdda-
siður.
4. Trúarbrögð Austur-Asíu, þ.á m. Konfúsíusarsiður, taó og
shinto.
5. Trúarbrögð Evrópu fyrir kristni.
6. Trúarbrögð Afríku - sunnan Sahara, þjóða norðurhjarans,
Ameríku fyrir Kólumbus, Eyjaálfu o.fl.
6 vikna námskeið á þriðjudögum kl. 19.40-21.45.
Hefst 5. mars. Kr. 4.800,-
Saga og trú Ameríku fyrir Kólumbus
Farið verður yfir sögu álfunnar framundir 1500 og gerð grein
fyrir mismunandi menningu hinna ýmsu svæða. Áhersla lögð á
að kynna trúarbrögð indíána og eskimóa. Fjallað verður um
útbreiðslu kristninnar í álfunni og blöndun hennar og „innfæd-
dra" trúarbragða. Viðhorf indíána og eskimóa skoðuð.
3 vikna námskeið á miðvikudögum kl. 19.40-21.45.
Hefst 6. mars. Kr. 2.400,-
Trú og galdrar norðurhjaran
Fjallað verður um „innfædd" trúarbrögð þjóða Norður- og Mið-
Asíu, norðurhjara Evrópu og Norður-Ameríku. Skoðuð verða
helstu einkenni trúarbragða svæðanna, einkum sjamanismann
og komið inn á hugsanlegan skyldleika hans við skandinavískan
galdur. Önnur mikilvæg atriði, svo sem verndarandatrú indfána,
trú á dýradrottna, menningargjafa, „trickstera" o.fl. verða einnig
til meðferðar.
3 vikna námskeið á miðvikudögum kl. 19.40-21.45.
Hefst 27. mars. Kr. 2.400,-
I DAG
SKÁK
Umsjön Margclr
Pétursson
HVÍTUR leikur' og vinnur
EINN af stigahæstu kepp-
endunum á Reykjavíkurskák-
mótinu sem hefst næsta laug-
ardag, verður sterkasti skák-
maður Litháa, Eduard Roz-
entalis (2.605). Hann hafði
hvítt og átti leik í þessari
stöðu á opna kanadíska
meistaramótinu í Montreal í
fyrra. Gordon Taylor,
(2.320), Kanada, var með
svart.
26. Bxh6! (Það verður stutt
í mátið eftir 26. — gxh6 27.
Dxh6 þvf hvítur er með alltof
mikið lið í sókninni) 26. —
g6 27. Bg5 - Be7 28. Bxg6
- fxg6 29. Dxe6+ - Hf7
30. Bxe7 og svartur gafst
upp.
Rozentalis er kunnur fyrir
kreddufestu í byijanavali,
hann svarar ávallt Sikileyjar-
vöm, 1. e4 — c5 með 2. c3
og gegn spánska leiknum
beitir hann uppskiptaafbrigð-
inu að staðaldri. Flestir stór-
meistarar reyna hins vegar
að koma andstæðingnum
sem mest á óvart.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbi.is
„Nú er ég búin
að bijóta og
týna“
SVO vill til að á undan-
förnu einu og hálfu ári
hefur mér tekist að týna
nokkrum hlutum. Hér með
vildi ég því auglýsa eftir
þeim á einu bretti. Ég hef
reynt að auglýsa eftir þeim
áður en það hefur því mið-
ur ekki borið árangur.
í byrjun ágúst 1994
datt eymalokkapar upp úr
vasa mínum í kirkju-
garðinum við Suðurgötu
að ég tel, eða á leið í
miðbæinn þaðan. Eyma-
lokkamir era gylltir, laf-
andi hringir með fullt af
marglitum kúlum á, rauð-
um, silfurlituðum, græn-
um, gylltum og einni við-
arlitri.
í september 1994 tapaði
ég eymalokki á leiðinni
MR-Hressó. Hann er gyllt-
ur og lafandi með einni
stórri gerviperlu neðst.
í apríl 1995 tapaði ég
trefli á leið minni frá leik-
fimishúsi MR að Tomma-
borguram á Lækjartorgi.
Það gæti hafa verið inni
á öðram hvorum staðnum.
Hann er mynstraður, í
grunnlitunum bláum og
brúnum, þar sem hvítur
og fleiri litir koma fyrir.
Laugardaginn 1. júlí
1995, á Kántríhátíð HG-
klúbbsins, glataðist
myndavélin mín á tjald-
stæðinu við Þrastarlund.
Þegar ég fór að leita að
henni fannst hvorki tang-
ur né tetur af henni. Því
vona ég að einhver hafi
fundið hana og haldi henni
til haga fyrir mig því að
myndimar sem era á film-
unni eru mér mjög mikils
virði, sem og myndavélin
að sjálfsögðu, en það er
nú einu sinni svo að
myndavélar eru bætan-
legar en ekki augnablikin
sem fest era á filmu. Því
vildi ég a.m.k. fá filmuna
til baka. Myndavélin er
af gerðinni CHINON
Multi focus 3001 og er
merkt á botni með nafninu
mínu og síma nema hvað
það vantar 55 fyrir fram-
an. Hún er í svörtu og
gráu CHINON-hulstri með
rifinni beltisfestingu.
Föstudaginn 1. septem-
ber 1995 gleymdi ég sund-
bolnum mínum hangandi á
rekka í Laugardalslaug-
inni. Það var kl. 18. Kl.
21 var sundlauginni lokað
svo að á þeim 3 klst. hefur
bolurinn horflð því að þeg-
ar ég hringdi árla næsta
morguns til að athuga með
hann hafði hann ekki
fundist kvöldið áður. Bol-
urinn er svartur af gerð-
inni O’Neill og er „út-
saumaður" á öllum jöðrum
með hvítum tvinna, fleginn
í bak og nær frekar hátt
upp á mjaðmir.
Mig tekur það sárt í
hvert skipti sem ég hugsa
um þessa hluti að ég skuli
hafa tapað þeim en vona
að skilvísir fmnendur sjái
sér fært að skila þeim aft-
ur í réttar hendur og býð
fundarlaun fyrir.
Heiða Dögg Jónsdóttir,
sími 552 3736.
HÖGNIHREKKVÍSI
/; Ne.Cy þetta. er e/c/cc hundur,"
Pennavinir
TUTTUGU og eins árs
finnsk stúlka með áhuga á
tónlist, bréfaskriftum o.fl.:
Marika Lehto,
KivelSntie 13,
16200 Artjarvi,
Finland.
SEXTÁN ára Ghanapiltur
með áhuga á knattspymu,
tónlist, söng og ferðalög-
um:
Francis Asare,
c/o Presby J.S.S. (A),
P.O. Box 18,
Berekum B/A,
Ghana.
ÍTALSKUR áhugamaður
um knattspyrnu og safnari
alls kyns hluta sem við-
koma þeirri íþrótt. Getur
ekki um aldur:
Luciano Zinelli,
Via Pergolesi 11,
42100 Reggio Emilia,
Italy.
SAUTJÁN ára þýsk stúlka
með mikinn Islands- og
hestaáhuga:
Annette Krauss,
Hofweg 6,
72622 Niirtingen-
Hardt,
Germany.
ÞRETTÁN ára bandarískur
strákur vill skrifast á við
stráka á sama reki:
Evan Edwardsen,
4759 Carnoustie Lane,
Manlius,
NY 13104,
U.S.A.
SEXTÁN ára tælenskur
frímerkjasafnari vill skipt-
ast á merkjum:
Nawana Yajai,
114/1 Moo 3,
T. Tha-ngiew,
A. Banphot Phi Sai,
Nakhon Sawan 60180,
Thailand.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI lenti í undarlegri að-
stöðu á dögunum, er hann
þurfti að fara með bílinn sinn á verk-
stæði, sem staðsett er í hverfínu við
Ártúnshöfða. Hann átti að skila bíl
sínum klukkan 08 um morguninn
og var mættur á slaginu. Þjónusta
bifreiðaverkstæðisins bauð upp á
lánsbíl á meðan gert var við það lítil-
ræði, sem amaði að bíl Víkveija.
Þegar Víkverji hafði síðan afhent
bíllyklana sína, fékk hann í hendur
lyklana að lánsbílnum og ók hróðug-
ur af stað í vinnuna í Kringunni 1.
Á Miklubrautinni, áður en kom
að gatnamótum við Grensásveg,
hafði dóttir Víkverja, sem var með
honum í bílnum, orð á því að bensín-
mælirinn á lánsbílnum sýndi að eitt-
hvað lítið væri af bensíni í tankinum,
en Víkverji hafði á orði, að það hlyti
að vera nóg, alltjent myndi bílaverk-
stæðið með svo fína þjónustu ekki
afhenda viðskiptavinunum bensín-
láusa lánsbíla.
Nú en áfram var haldið og upp
brekkuna og að ljósunum við Háa-
leitisbraut. Þá var þar rautt ljós og
nú fóru að koma fram einhveijar
gangtruflanir í lánsbílnum. Með ein-
hveiju móti tókst þó Víkveija að
komast á síðustu dropunum yfir
gatnamótin og yfír í slakkann hand-
an þeirra, en þá var bíllinn þurrund-
inn af bensíni og vélin neitaði með
öllu að ganga án eldsneytis. Tókst
Víkveija með naumindum að láta
bílinn renna inn á aðreinina að
Shell-stöðinni norðanmegin Miklu-
brautarinnar og þar stöðvaðist hann
á miðri reininni, svo að engir kom-
ust framhjá nema fuglinn fljúgandi.
Þá voru góð ráð dýr og var nú far-
þeginn settur undir stýri og Vík-
veiji tók að ýta lánsbílnum síðustu
metrana inn á afgreiðslusvæði Shell,
bensín var sótt í brúsa og eftir það
komst „límósínan“ af sjálfsdáðum
að bensíndælunni. Víkveiji keypti
bensín fyrir 500 kall og vandræðin
voru að baki.
Það kann að vera skýringin á
bensínskortinum, að eftir að Vík-
vetji setti bensínið á lánsbílinn, sýndi
mælirinn enn að tankurinn væri tóm-
ur. Það getur nefnilega valdið erfið-
leikum að vera með bilaðan bensín-
mæli.
xxx
VINUR Víkveija bar sig aumlega
vegna harkalegrar gagnrýni á
gæsaveiðimenn sem nýlega birtist í
fréttabréfí Fuglaverndunarfélags ís-
lands og tekin var upp hér í dálkin-
um. Þessum vini þótti málflutningur
„fuglaverndarans" um gæsaskyttur
ekki ólíkur málflutningi útlendra
hvalavina um hvalveiðar Islendinga
- byggður á vanþekkingu.
Vinurinn segir að það hljóti að
vera merkilegt rannsóknarefni fyrir
fuglafræðinga og fuglavini hvernig
það geti gerst að stofnar grágæsar
og heiðargæsar séu nú í sögulegu
hámarki og hafi tvö- og þrefaldast
að stærð undanfarna áratugi, þrátt
fyrir „hátæknihernaðinn“ sem
„fuglaverndarinn“ lýsti í grein sinni.
Vinur Víkveija dró í efa að skot-
veiðimenn óhlýðnuðust almennt
þeirri reglu að hafa fleiri en tvö skot
í skotgeymi. Annars skipti skota-
fjöldi í byssu ekki öllu máli við gæsa-
veiðar. Yfirleittt væru allar gæsir
löngu komnar úr skotfæri eftir tvö
til þijú skot og skipti þá engu hvort
fleiri skot væru eftir. Því að gæsir
séu laðaðar að veiðistað með tálfugl-
um og gæsaflautum megi jafna við
að stangveiðimenn noti agn eða
beitu. Reynslan af rafknúnum kall-
tækjum, sem búið er að banna, hafi
ekki verið það góð að veiðimönnum
sé eftirsjá að þeim.
Á íslandi eru yfír 12 þúsund virk-
ir skotveiðimenn og flestir þeirra
„landlausir“ þéttbýlisbúar. Það er
því ekki að furða þótt gæsaveiðistað-
ir utan almenninga séu umsetnir.
Ein leið til að bæta úr því væri að
opna fyrir veiðar á löndum í eigu
ríkisins, sagði vinur Víkveija að lok-
um.