Morgunblaðið - 05.03.1996, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Heilsugæslustöðin á Akureyri þarf að spara 5,5 milljónir
Krabbameinsleit verður hætt
og bílar heimahjúkrunar seldir
KRABB AMEINSLEIT á vegum
Heilsugæslustöðvarinnar á Akur-
eyri verður hætt frá og með 1. júní
næstkomandi, kostnaður vegna
komu sérfræðings í heila- og tauga-
sjúkdómum verður ekki lengur
greiddur, þrjár af bifreiðum heima-
hjúkrunar verða seldar og þá verð-
ur flúortöflum ekki lengur dreift
ókeypis í ungbarnaverndinni. Þetta
er á meðal þess sem stjóm Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri hef-
ur ákveðið til að ná fram 5,5 millj-
óna króna sparnaði sem stöðinni
er gert að ná á árinu.
Guðmundur Sigvaldason, fram-
kvæmdastjóri Heilsugæslustöðvar-
innar á Akureyri, sagði að stöðin
Formaður Einingar
um breytingar
á landvinnslu ÚA
Hugmyndirn-
ar verða skoð-
aðar með opn-
um huga
ÞAÐ ER búið kynna fyrir okkur
fyrstu hugmyndir varðandi breyting-
ar á vinnutilhögun. Við erum samt
ekkert farin að ræða þessi mál þar
sem ekki liggja fyrir neinar fullmót-
aðar tillögur. Það er því of snemmt
að segja mikið á þessu stigi máls-
ins,“ segir Björn Snæbjömsson, for-
maður Verkalýðsfélagsins Einingar,
um fyrirhugaðar breytingar á land-
vinnslu Útgerðarfélags Akureyringa
hf.
Eins og fram kom í Mo'rgunblað-
inu á laugardag, stendur fyrir dyrum
uppstökun á allri landvinnslu félags-
ins og ér ráðgert að hún komi til
framkvæmda með haustinu. Þær
breytingar kalla á aukna tæknivæð-
ingu á flestum stigum framleiðslu-
ferlisins og að vinnutilhögun verði
tekin til endurskoðunar. í því sam-
bandi er rætt um að taka upp tví-
eða jafnvel þrískiptar vaktir í vinnsl-
unni og um leið þarf að endurskoða
það launakerfi sem nú er við lýði.
Semja þarf
um útfærsluna
Björn segir fyrirliggjandi að skoða
þær hugmyndir sem settar verða
fram með opnum huga og í fram-
haldi af því að semja um útfærsluna.
Ásta Guðný Krisjánsdóttir, for-
maður Starfsmannafélags Útgerðar-
félagsins, STÚA, tók í sama streng
og Björn, að enn væri of snemmt
að tjá sig mikið um fyrirhugaðar
breytingar. „Það sem ég hef þó séð
og heyrt líst mér vel á og mér heyr-
ist starfsfólkið jákvætt gagnvart
fyrirhugðum breytingum. Framund-
an er þó mikil vinna við að útfæra
nánar þær hugmyndir sem liggja
fyrir,“ segir Ásta Guðný.
væri sú stærsta á landinu og þar
væri mesti niðurskurðurinn.
Árið 1995 hafði Heilsugæslu-
stöðin á Akureyri 28,5 milljónir
króna til ráðstöfunar í annað en
laun, en á þessu ári hefur upphæð-
in verið lækkuð í 25,5 milljónir
króna.
Stjórn stöðvarinnar tók í janúar
þá ákvörðun að flytja starfsemi
ungbarnaverndar úr núverandi
húsnæði á 2. hæð yfir Akureyrar-
apóteki og yfir í húsnæði Heilsu-
gæslustöðvarinnar. „Við ætlum að
reyna að koma þessari starfsemi
fyrir hérna, þó plássið sé ekki mik-
ið, en við höfum hreinlega ekki
efni á því lengur að leigja þetta
í ÞRIÐJA sinn í vetur hefur
skautasvellið við Krókeyri þiðnað
í sunnanvindi og hlýindum og
sagði Magnús Finnsson, formaður
ísknattleiksdeildar Skautafélags
Akureyrar, að algjört ófremdar-
ástand hefði ríkt í vetur. Fresta
þurfti Islandsmóti unglinga sem
vera átti um helgina og er það í
annað sinn. Von var á um 180
börnum og unglingum á mótið.
„Þetta er auðvitað gremjulegt og
við sjáum ekki fram á annað en
að verða að flytja mótið suður til
Reykjavíkur," sagði Magnús. Þá
hefur heldur ekki verið hægt að
leika úrslitaleiki í ísknattleik þar
sem svellið er horfið. Allar líkur
eru því á að þá verði líka að flytja ,
suður. „Meistaraflokkurinn hefur
ekki getað æft í þrjár vikur, við
höfum misst af mörgum æfingum
í vetur vegna veðurs.“
Að sögn Magnúsar er ekki útlit
fyrir að hægt verði að setja ís á
pláss sem ungbarnaverndin hefur
haft til afnota," sagði Guðmundur.
Óvíst um starfsemi
krabbameinsleitar
„Stærsta málið varðandi okkar
sparnaðaráform er að leggja niður
krabbameinsleitina, en það er óvíst
á þessari stundu hvað um þessa
starfsemi verður," sagði Guðmund-
ur, en um er að ræða samstarfs-
verkefni Heilsugæsjustöðvarinnar,
Krabbameinsfélags íslands og heil-
brigðisráðuneytisins. Kostnaður
stöðvarinnar vegna krabbameins-
leitar er um 1,2 milljónir króna á
ári.
Skauta-
svellið þiðn-
aðiíþriðja
sinn í vetur
svæðið á næstunni því framhald
virðist vera á sunnanátt og hlýind-
um norðan heiða, ekki sé mögu-
leiki á að halda ísnum þegar hitinn
er um 10 gráður. Oftast hefur
tekist að hálda svellinu þokkalegu
út marsmánuð. „Við stefnum að
því að geta klárað tímabilið, en
við ráðum ekkert við þetta veður.
Það hefur verið jöfn og góð að-
sókn þegar þannig viðrar, en hún
dettur alltaf niður þegar við fáum
Sérfræðingur í heila- og tauga-
sjúkdómum hefur komið til Akur-
eyrar einu sinni í mánuði að jafn-
aði og hefur Heilsugæslustöðin
greitt kostnaðinn. Guðmundur
sagði að um mikilvæga þjónustu
væri að ræða og hefði sparað fólki
á svæðinu, sem þyrfti á þjónustu
hans að halda, ferðir til Reykjavík-
ur. í raun stæði það Trygginga-
stofnun næst að greiða ferðir sér-
fræðings norður, ella þyrfti stofn-
unin að greiða fyrir fólkið suður
sem gæti orðið umtalsvert dýrara
þegar upp er staðið. Kerfið væri
hins vegar afar stíft og ekki tíðkað-
ist að greiða ferðir fyrir lækna.
svona kafla. Þetta hefur áhrif á
alla okkar starfsemi, þetta er
fremur magurt ár og nýliðun i
félaginu afskaplega lítil, krakk-
arnir gefast upp,“ sagði Magnús.
Svipaða sögu er að segja úr
Hlíðarfjalli þar sem snjór er nú
af skornum skammti og einungis.
hefur verið hægt að hafa skíða-
svæðið opið fyrir almenning í um
15 til 17 daga frá áramótum.
„Ástandið er nú ekki eins og ég
vil hafa það á þessum árstíma og
það kemur lítið af peningum í
kassann," sagði ívar Sigmundsson
forstöðumaður. Keppnisfólk hefur
eitthvað getað æft á efsta svaéð-
inu, í Strýtu, en skíðafæri hefur
ekki hentað almenningi. Von var
á töluverðum hópi fólks til Akur-
eyrar um helgina vegna snjó-
brettamóts sem halda átti í Hlíðar-
fjalli, en í miðstöð vetraríþrótta á
Islandi viðrar lítt til slíkra íþrótta
og var mótinu frestað.
Hráefnisskortur
hjá ÚA
Engin
vinnaí
gær og í
dag
yiNNA lá niðri hjá starfsfólki
Útgerðarfélags Akureyringa
hf í gær vegna hráefniss-
korts. Ekkert verður unnið í
frystihúsinu í dag en ráðgert
að vinna hefjist þar á morgun
en þá kemur Harðbakur EA
inn til löndunar.
Mjög sjaldgæft er að vinna
falli niður hjá fyrirtækinu
vegna hráefnisskort og sagði
Björgólfur Jóhannsson, fjár-
málastjóri að slíkt hefði ekki
gerst síðan hann kom til ÚA
fyrir um 4 árum.
Bilun varð í stýrisstamma
Kaldbaks EA og hefur togar-
inn verið í viðgerð hjá Slipp-
stöðinni Odda hf. frá því í
byrjun síðustu viku. Aðrir tog-
arar ÚA eru á veiðum.
Unnið var í frystihúsinu
fram yfir hádegi á föstudag
en laugardagskvöld var
árshátíð fyrirtækisins haldin
í KA-heimilinu.
Kvöldvaka
á kirkju-
viku
KVÖLDVAKA, sem er liður
í kirkjuviku í Akureyrarkirkju
verður í kvöld, þriðjudags-
kvöldið 5. mars og hefst kl.
20.30.
Blysför verður frá fram-
haldsskólunum og einnig
Gagnfræðaskólanum á Akur-
eyri, Kór Menntaskólans leiðir
söng. Leikhópar koma fram
og Lýður Ólafsson leikur á
gítar. Haukur Ingi Jónsson,
framkvæmdastjóri Æsku-
lýðsráð Reykavíkurprófasts-
dæmis, ræðir við unga fólkið
og Blásara- og slagverksleik-
arar úr Tónlistarskólanum á
Akureyri leika. Kvöldvökunni
lýkur með flugeldasýningu
skáta.
Trúar-
þroski
barna
HAUKUR Ingi Jónsson ræðir
um vitsmuna- og trúarþroska
barna og segir frá Heimspeki-
skóla barna á opnu húsi for-
eldra með ung börn í Safnað-
arheimili Akureyrarkirkju á
morgun, miðvikudaginn 6.
mars, frá kl. 10 til 12.
Lítt vetrarlegt í miðstöð vetraríþrótta á íslandi
f w i v tni'
11
Morgunblaðið/Kristján
MAGNÚS Finnsson, formaður ísknattleiksdeildar Skautafélags Akureyrar hugar að svellinu, sem
hefur verið að bráðna í sunnanátt og hlýindum síðustu daga.
iddtu e kki
rtíarbókunum
Glerárgötu 28 - Akureyri
Áskriftarsími 462 4966