Morgunblaðið - 05.03.1996, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996 15
Sundlaug-
amar á
Akranesi fá
sundjakka
Akranesi - Kvennadeild Slysa-
varnafélags íslands á Akranesi
afhenti á dögunum sundlaugnm
Akraneskaupstaðar að gjöf
sundjakka sem ætlaðir eru sem
hjálpartæki við sundiðkun ungra
bama á aldrinum 3-9 ára.
Þessi gjöf er afar kærkomin
og kemur sér vel enda sundiðk-
un unga fólksins á Akranesi
mikil. Þessi sundjakki er sér-
staklega hannaður til að veita
börnum öryggi í vatni, hann
hjálpar barninu að fljóta og
gerir því sundið öruggara og
ánægjulegra. Barnið getur
hreyft sig fijálslega og getur
æft sundtökin í jakkanum. Þá
er jakkinn einnig góð vöm í
kulda.
Kristinn Reimarsson, skóla-
stjóri íþróttamannvirkjanna á
Jaðarsbökkum og Helgi
Hannesson, forstöðumaður
Bjamalaugar, veittu gjöfinni
viðtöku og þökkuðu þann hlý-
hug sem konurnar sýndu sund-
laugunum og öryggi á Akra-
nesi. Að sögn þeirra hefur
reynsla af notkun þessara sund-
jakka verið góð.
-----» ♦ »----
Líkur á
heitu
vatni við
Stykkis-
hólm
Stykkishólmi - í haust var ákveð-
ið að fara út í að kanna möguleika
á að fínna heitt vatn í nágrenni
Stykkishólms. Áður hefur verið
leitað í bæjarlandinu og nágrenni
en án árangurs enda hefur Stykk-
ishólmur verið talinn tilheyra köld-
um svæðum.
Hér er um samstarfsverkefni
að ræða milli Stykkishólmsbæjar
og Rafmagnsveitu ríkisins. Hvor
aðili borgar helming kostnaðar og
ef árangur verður og nýtanlegt
heitt vatn finnst greiðir sá aðili
sem tekur að sér framkvæmdir
allan rannsóknarkostnaðinn.
Orkustofnun var fengin til að ann-
ast jarðhitaleit og bora rannsókn-
arholur. Það var gert í haust og
var borað í landi Ögurs, Hofsstaða
og Arnarstaða.
Orkustofnun skilaði skýrslu í
janúar. Þar kemur fram að hitast-
uðull er hagstæður og leggur hún
til að rannsóknum verið haldið
áfram áður en vinnsluhola verður
endanlega staðsett. Kostnaður er
núna 3,5 millj. kr. og þarf að
bæta við 2,5 millj. kr. áður en
hægt er að bora vinnsluholuna,
en kostnaður við hana er áætlaður
12 millj. kr.
Það er mikið hagsmunamál fyr-
ir sveitarfélagið og bæjarbúa ef
finnst nægilegt heitt vatn hér sem
næst bænum og hægt verði að
bjóða hitaveitu á lægri verði en
rafmagnshitunin kostar.
PARKETSLÍ PUN
Siguröar Óiafssonar
VIÖ gorum gömlu
gólfln sem ný
Sfmi: 564 3500 - 852 $070
LANDIÐ
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson •
FULLTRÚAR kvennadeildar Slysavarnafélags íslands á Akra-
nesi og Kristinn Reimarsson og Helgi Hannesson við afhendingu
sundjakkanna.
SIÐASTA
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐIÐ..!
ea Viltu marefalda lestrarfiraðann og afköst í starfi?
ea Viltu margfalda lestrarhraðann og aflíöst í námi?
Ef svarið er jákvætt skaltu skrá þig strax á síðasta hraðlestrar-
námskeið vetrarins sem hefet fimmtudaginn 7. mars.
Skráning er í símum 564-2100 og 564-1091
HFtA.0LJESriirtAFtSKS0I.JIMN
31 árs sjálfstæður atvmnurekandi
Mínar ástæður fyrir að velja
Lífeyrissjóðinn Einingu eru einfaldar:
- skattalegt hagræði
viðtæk tryggingavernd á góðum kjörum
- traust eignasamsetning
ársfjórðungslega fæ ég sent yfirlit yfir
eign mína og ávöxtun hennar
■ lágmarkskostnaður við rekstur
lífeyrissjóðsins
25 ara lögfræðingur
Ég hefmínar ástæður fyrir að velja
Lífeyrissjóðinn Einingu:
■ mitt framlag er mín séreign sem erfist
- besta ávöxtun séreignarsjóða á síðasta ári
• traustfjárfestingarstefna
- Kaupþing hfer elsta og stærsta
verðbréfafyrirtæki landsins
Veldu Lífeyrissjóðinn Eininfu
Frelsi fylgir ábyrgð
Um 400 manns gengu á síðasta ári í Lífeyrissjóðinn Einingu sem er
séreignarsjóður í vörslu Kaupþings hf. Á síðasta ári sýndi hann bestu
ávöxtun séreignarsjóða, 8,8% nafnávöxtun eða 7,0% raunávöxtun.
Einstaklingar sem ekki eru lögskyldaðir til þess, að greiða í ákveðinn
lífeyrissjóð geta greitt iðgjöld sín í Lífeyrissjóðinn Einingu. Einnig geta allir
greitt viðbótarframlag í sjóðinn. Eignir sjóðsins eru ávaxtaðar á öruggan
hátt, að mestu leyti í ríkisverðbréfum. Treystu ekki hverjum sem er fyrir
þinni framtíð. Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 515-1500.
KAUPÞING HF
-elsta og stxrsta
verðbréfafyrirtæki landsins