Morgunblaðið - 05.03.1996, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ
26 ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996
MENNTUN
N ámsráðgj afar
mikilvægir hlekkir
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
HARALDUR Finnsson skólastjóri: Ráðuneytið SIGRÚN Ágústsdóttir námsráðgjafi: Námsráð-
vill sýna að grunnskólinn sé sem ódýrastur og gjafi er oft sá fyrsti sem greinir vanda nem-
hefur því haldið að sér höndum. anda, því hann er óháður aðili.
HLUTVERK grunnskólans
hefur breyst gríðarlega
undanfarinn aldarfjórðung.
Áður var hann fyrst og fremst
kennslustofnun en nú gegnir hann
uppeldishlutverki í síauknum mæli.
„Mér finnst gefa auga leið að setja
þurfí sérstakan starfsmann inn í
skólastarfið tii að sinna þessu hlut-
verki. Ég álít að námsráðgjafi sé
mikilvægur hlekkur til þess að sam-
ræma ýmsa hluti,“ sagði Haraldur
Finnsson, skólastjóri Réttarholts-
skóla, þegar Morgunblaðið hitti hann
og Sigrúnu Ágústsdóttur, formann
Félags námsráðgjafa, en hún er jafn-
framt námsráðgjafi í Réttarholts-,
Breiðagerðis- og Fossvogsskóla.
Haraldur er ekki einn um að hafa
þessa skoðun, því fyrr í mánuðinum
sendu reykvískir skólastjómendur
ályktun til Skólamálaráðs um að það
beitti sér fyrir því að námsráðgjafar
komi í auknum mæli til starfa í
grunnskóium borgarinnar frá og með
næsta hausti.
Námsráðgjafi sjálfsagður
Haraldur segir viðhorf skólastjóm-
enda hafa breyst mjög á undanföm-
um árum eftir að hafa fylgst með
störfum námsráðgjafa innan grunn-
skólans, en þeir fyrstu komu til starfa
til reynslu árið 1991. Nú telji þeir
námsráðgjafa sjálfsagðan starfs-
mann skólans.
Haraldur var á árunum 1989-91
starfsmaður nefndar á vegum
menntamálaráðuneytis, sem vann að
reglugerð um námsráðgjafa. Niður-
staðan varð m.a. sú að æskilegt
væri að stefna að því að einn náms-
ráðgjafi yrði á hverja 500 nemendur
í grunnskóla og á hveija 300 nem-
endur í framhaldsskóla.
„Við í Félagi námsráðgjafa höfum
tekið undir að þetta sé raunhæf við-
miðun,“ segir Sigrún. Hún kom til
starfa þegar fjárveiting var sett í
tilraunastarfið, en þá var ráðið í sam-
svarandi fimm stöðugildi
um land allt. „Síðan hefur
árlega verið úthlutað sömu
fjárveitingu en engri við-
bót. Hins vegar hafa
nokkrir skólastjórar getað
búið til stöðu námsráð-
gjafa eftir öðrum leiðum eins og að
nota af sérkennslukvóta eða hafa
einn aðstoðarskólastjóra þar sem
leyfi er fyrir tveimur."
Sigrún bendir jafnframt á að í
menntamálaráðuneytinu sé nú unnið
að reglugerð varðandi sérfræðiþjón-
ustu skólanna. í drögum hafí verið
minnst á námsráðgjöf en ekkert um
útfærslur, engar viðmiðunartölur
nefndar og ekkert fjallað um hver
ætti að sinna starfinu. Félag náms-
ráðgjafa hafi lagt fram ákveðnar til-
lögur ásamt öðrum sem leitað hafi
verið tii. Nú sé væntan-
lega verið að vinna úr
þeim.
„Það er aftur á móti
ljóst að eftir að málið um
yfirfærsluna komst á flot
er ríkið að hamast við að
sýna fram á að grunnskólinn sé sem
ódýrastur. Þess vegna vill ráðuneytið
ekki byija á einu né neinu en hefur
frekar dregið í land með ýmislegt,"
bætir Haraldur við.
Hópvinna þjá þeim yngri
í yngri deildum grunnskólans
vinnur Sigrún meira með hópa en
einstaklinga. Hún hefur afskipti af
samskiptamálum, eineiti og hefur
tekið þátt í að greina náms- eða
hegðunarvandmál með öðrum sér-
fræðingum skólanna. „Síðan hef ég
unnið sérstaklega með 12 ára nem-
endur í Fossvogs- og Breiðagerðis-
skóla, sem eru að fara í Réttarholts-
skóla. Ég kenni þeim námstækni og
undirbý þá undir þessi skipti með
heimsóknum í skólann. Margjr kviðu
mjög þessum umskiptum en úr því
hefur dregið.“
Unglingar leita meira til námsráð-
gjafa að eigin frumkvæði en nemend-
ur yngri deilda. Hijái einhver vanda-
mál þá fínnst þeim oft auðveldara
að banka á dyr námsráðgjafa en bíða
eftir tíma hjá sálfræðingi. „Hvort
sem nemandi kemur til mín að eigin
frumkvæði eða er vísað hingað af
kennara eða foreldri, tengist fyrsta
vandamál oftast námi. Þeir læra ekki
heima, skrópa í skóla, eiga í erfiðleik-
um í einni eða fleiri námsgreinum.
Það er t.d. ótrúlegt hvað lestrar-
örðugleikar vinda upp á
sig,“ segir Sigrún.
Hún tekur fram að þeg-
ar rætt sé við nemendur
komi stundum eitthvað
annað í ljós, sem jafnvel
þurfí að vinna í á öðrum
vettvangi. „Námsráðgjafí er oft sá
fyrsti sem greinir vandann og vísar
þá máli nemenda til sálfræðideildar
eða annað.“
Frumskógur
vinnu og náms
Sigrún segist hafa fundið í vax-
andi mæli ásókn nemenda í að taka
áhugasviðspróf til að hjálpa til við
að velja námsbrautir og skóla. „Þetta
er mikill frumskógur og um mun íjöl-
breyttari leiðir að ræða í námi og
starfi en var fyrir nokkrum áratug-
um.“
Undir þetta tekur Haraldur, sem
segir að nemendur hljóti að þurfa
einhveija leiðsögn. „Ég sé fyrir mér
að sinna þurfi náms- eða starfsleið-
um allt frá 8. bekk til að vekja krakka
til umhugsunar um að velja og marka
sér stefnu,“ segir hann og bætir við
að námsefni í starfsfræðslu sem
ætlað er 8.-10. bekk sé nýkomið út.
Þar er fjallað um atvinnulífíð, skóla-
kerfið og ákvarðanatöku einstakl-
ingsins.
Sigrún bætir við að erlendar rann-
sóknir hafí sýnt að þeir nemendur,
sem séu alvarlega farnir að velta
fyrir sér framtíðinni gangi að meðal-
tali betur í námi en öðrum, því þeir
virðist eiga auðveldara með að sjá
tilgang með náminu.
30% undir
lágmarkseinkunn
Þegar talið berst að skólakerfinu
í heild, samræmdum prófum og fleiru
láta Haraldur og Sigrún í ljós
óánægju sína með að of mikil áhersla
sé lögð á að meta nemendur út frá
getu í bóklegu námi. „Um það bil
30% yfírgefa grunnskólann án þess
að hafa náð tilskyldum árangri í einni
eða fleiri grein og það finnast mér
vond skilaboð til nemenda," segir
Sigrún.
„Ég tel að beina eigi þeim fyrr inn
á ákveðnar brautir, sem væri hægt
að ljúka á mismunandi hátt. Þannig
gætu þeir jafnvel í 9. bekk valið
hvort þeir kjósi að taka samræmd
próf eða að ljúka annars konar burt-
fararprófí."
Undir þetta tekur Haraldur og
segir það vægast sagt óþægilegt að
geta ekki boðið upp á aðra leið. „Við
erum með fornámsdeild hér í skólan-
um og sjáum krakka, sem hafa verið
brotnir mjög illa niður.
Mér finnst nauðsynlegt að
eitthvað sé gert fyrir þessa
nemendur án þess að
bijóta þá niður fyrst."
Þau leggja þó áherslu á
að eðlilegt sé að duglegir
nemendur sem stefni á háskólanám
fari í samræmt próf. „En mér fynd-
ist eðlilegt að annað viðmið væri
fyrir þá sem stefna til dæmis á tré-
smíðanám," segir Sigrún. „Við ætl-
umst ekki til að lagaprófessorinn
geri við bílinn sinn,“ bætir Haraldur
við. „Það getur verið að sumir geti
það en við megum ekki einblína á
að allir eigi að kunna og geta allt.“
Ekki einblína
á að allir eigi
að kunna og
geta allt
Námsráðgjafi
ætti að vera á
hverja 500
nemendur
Framtíð-
arsýn
nemenda
SAMNORRÆNA nemendaverk-
efnið Ný öld - Norræn framtíð-
arsýn var opnuð í Listasafninu
á laugardaginn að viðstöddum
Birni Bjarnasyni menntamála-
ráðherra og Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur borgarstjóra auk
fjölda annarra gesta.
Bera Nordal forstöðumaður
Listasafnsins lýsti ánægju sinni
með verk unga fólksins og
þakkaði því þrotlausa vinnu og
ómetanlegt framtak. Hún sagði
eftirtektarvert að nemendur
hefðu í verkum sínum sett
manninn í fyrirrúm þó svo að
tölvur kæmu einnig við sögu,
enda væri þetta fyrsta kynslóð
sem alist hefði upp í tölvu-
heimi. Hafliði Sævarsson einn
nemendanna opnaði sýninguna.
í máli hans kom fram hversu
ómetanlegt hefði verið fyrir
nemendur að vinna með „alvöru
hráefni, í alvöru aðstöðu með
hjálp alvöru listamann. Þetta
er of gott til að vera satt,“ sagði
hann og benti á að gera ætti
mun meira af slíku í skólum
landsins.
Þess má geta að slóð vefsins
er: http://this.is/cybercity
Morgunblaðið/Árni Sæbcrg
Námskynning 1996
Komið til móts við
landsbyggðina
HÁSKÓLI íslands hefur á undan-
förnum árum verið.í forsvari fyrir
námskynningu ýmissa skóla til að
auðvelda fólki val á þeim fjöl-
breyttu námsleiðum sem eru í boði.
Kynningin er ætluð fólki á öllum
aldri, allt frá efstu bekkjum grunn-
skóla til þeirra sem hyggjast taka
upp þráðinn að nýju á fullorðinsár-
um. Að þessu sinni verður lögð
áhersla á að koma til móts við fólk
á landsbyggðinni með því að bjóða
upp á ýmsa menningarviðburði
samhliða kynningunni. Er sú fram-
kvæmd í höndum Hins hússins.
Sjálf námskynningin fer fram
víða um borgina sunnudaginn 10.
mars kl. 13-18. Hefur verið valin
sú leið að kynna nám samkvæmt
innbyrðis faglegum tengslum í
kynningarkjörnum fremur en að
beina athyglinni að þeim skólum
þar sem námið fer fram. Verða t.d.
kjarnar heilbrigðisgreina, félags-
vísinda og uppeldisgreina kynntar
í húsi Sjómannaskólans. Hátt í 200
kynningarborð verða á vegum um
60 aðila. Meðal nýjunga er að
kynna breyttar áherslur og nýtt
skipulag á framhaldsskólakerfínu.
Með því er verið að mæta þörfum
foreldra barna í efri bekkjum
grunnskóla og í framhaldsskólum
sem vilja kynna sér framtíðar-
möguleika barna sinna.
Ásta Ragnarsdóttir fram:
kvæmdastjóri Námsráðgjafar HÍ
sagði að við skipulag námskynn-
ingar hafí verið skilningur á því
að þeir sem sækja kynninguna af
landsbyggðinni kosti meira til en
aðrir. Því hafi verið samið um ódýr
gistirými og flugfargjöld fyrir þá.
Sömuleiðis muni Reykjavíkurborg
láta þeim sem koma í skipulögðum
hópum í té gestakort borgarinnar
sem veiti frían aðgang að strætis-
vögnum, söfnum og sundlaugum.
Fjöldamargir tónleikar verða
haldnir um helgina og ýmis leik-
verk verða sýnd allt frá síðari hluta
föstudags til sunnudagskvölds. Má
nefna Cats, Panorama-tónleika,
leikritið Himnaríki, tónleika Har-
alds Reynissonar trúbadors og
Ekkert svona, svo dæmi séu tekin.
„Okkur fannst að eitthvað meira
yrði að vera í boði en fímm tíma
kynning og þá gjarnan það sem
höfðar til ungs fólks,“ sagði Ásta.
Hún bætti því við að ótrúlegt væri,
hversu auðvelt hefði verið á
skömmum tíma að setja upp menn-
ingarefni fyrir ungt fólk.