Morgunblaðið - 05.03.1996, Page 29
28 ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996 29
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
FRIÐARSTARF
OG HRYÐJUYERK
ALVARLEGASTA afleiðing sprengjutilræðis Hamas, hryðju-
verkasamtaka heittrúaðra múslima, í Jerúsalem sl. sunnu-
dag og Tel Aviv í gær kann að verða sú, að friðarsamkomulag
ísraels og Palestínumanna fari út um þúfur. Það væri hörmu-
lejrt, því samkomulagið gefur vonir um frið eftir áratuga átök
milli Israela og Araba. Það væri jafnframt hörmulegt af þeirri
ástæðu, að þar með hefði hryðjuverkamönnum tekizt að ráða
gangi mála í Miðausturlöndum með tilheyrandi mannfórnum
um ókomna tíð. Báðir leiðtogarnir, þeir Shimon Peres og Yass-
er Arafat, hafa lýst eindregnum vilja til þess að halda samninga-
viðræðum áfram, þrátt fyrir hryðjuverkin. Hins vegar er ekki
víst að þeir fái ráðið þeirri för.
Morðárásir Hamas samtakanna hafa beinst að saklausum
farþegum strætisvagna og í sprengingunum_ hafa tugir manna
farizt. Skiljanlegt er og eðlilegt, að íbúar ísraels telji. öryggi
sínu alvarlega ógnað og krefjist harðra aðgerða af ríkisstjórn
sinni. Spurningin er hins vegar sú, hvort öfgasinnaðir ísraelar,
sem barizt hafa harkalega gegn friðarsamkomulaginu, muni
ekki grípa til gagnaðgerða utan laga og réttar. Skemmst er að
minnast morðsins á Yitzhak Rabin, forsætisráðherra. Reiði
manna beindist þá gegn öfgasinnuðum Gyðingum, en merki
sjást um það nú, að reiði fólks beinist ekki sízt að eftirmanni
hans, Shimon Peres, fyrir að geta ekki tryggt öryggi þegna
ísraels.
Kosningar eiga að fara fram í ísrael 29. maí nk. og þegar
Peres boðaði til þeirra naut hann og Verkamannaflokkurinn
mikils fylgis í kjölfar morðsins á Rabin. Hryðjuverkamönnum
Hamas er að takast að snúa dæminu við, því fylgi við Likud-
bandalagið fer ört vaxandi. Forustumenn þess eru andstæðing-
ar friðarsamninganna og stofnunar sjálfstæðs ríkis Palestínu-
manna.
Shimon Peres hefur krafizt þess, að Arafat grípi til allra
ráða til að útrýma vopnuðum flokkum Hamas samtakanna og
annarra slíkra öfgahópa á sjálfstjórnarsvæðunum. Arafat, sem
hefur fordæmt morðárásirnar í ísrael harkalega, mun gera hvað
hann getur til að verða við óskum Peresar, enda veit hann, að
framtíð friðar er undir því komin. Vandi Arafats er hins vegar
sá, að ýmis öfgasamtök Palestínumanna eiga vísan stuðning
stórra hópa á sjálfstjórnarsvæðunum, sem eiga erfitt með að
sættast við Israela.
Fjöldi þjóðarleiðtoga hefur fordæmt morðin í ísrael, en það
er ekki nóg. Veita verður þeim Peres og Arafat allan þann stuðn-
ing sem mögulegt er til að handsama morðingjana og leysa upp
hryðjuverkasamtökin. Hraða verður uppbyggingarstarfinu á
sjálfstjórnarsvæðunum, því fátækt og menntunarskortur er
gróðrarstía hryðjuverkasamtakanna.
AUÐLIND í HÆTTU
DEILUR strandríkjanna, sem eiga lögsögu að gönguslóð
norsk-íslenzka síldarstofnins, um stjórn síldveiðanna eru
komnar í harðan hnút. Viðræður íslands, Noregs, Færeyja og
Rússlands í Ósló í seinustu viku báru engan árangur, ekki held-
ur fundur landanna fjögurra með Evrópusambandinu.
Evrópusambandið hefur lýst því yfir að náist ekki samningar
við strandríkin um heildstæða veiðistjórnun, muni það úthluta
sjálfu sér 150.000 tonna veiðikvóta á alþjóðlega hafsvæðinu í
Síldarsmugunni. Það er fráleitlega há krafa og ekki í neinu
samræmi við veiðireynslu ESB-ríkja, sem stunduðu síldveiðar á
árum áður. Hins vegar geta strandríkin sjálfum sér um kennt,
því að hefðu þau náð samkomulagi sín á milli hefði mátt hindra
sjálftöku ESB í Síldarsmugunni.
Síldarstofninn, sem var nánast útrýmt í lok sjöunda áratugar-
ins, hefur náð sér á strik á undanförnum árum. Vísindamenn
telja að eigi að vera hægt að tryggja áframhaldandi vöxt stofns-
ins til lengri tíma megi ekki veiða meira en milljón tonn á þessu
ári. Ef 8VO fer fram sem horfir verþa í ár veidd 350.000 tonn
af síld umfram það, sem fiskifræðingar ráðleggja. Með því er
síldarstofninum, þessari gjöfulu auðlind, stefnt í hættu að nýju.
Samkvæmt hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna og hinum
nýja úthafsveiðisamningi hvílir skylda á síldveiðiríkjunum að
umgangast auðlindina af ábyrgð og að semja sín á milli um
skynsamlega nýtingu hennar.
Það er alveg Ijóst að það ríki, sem hefur sýnt mesta óbilgirni
og minnstan samningsvilja í þessu máli, er Noregur. Það er eina
ríkið, sem hefur nánast ekkert viljað slá af kröfum sínum til
þess að veiðarnar gangi ekki of nærri stofninum. Norðmenn
halda því gjarnan fram að þeir eigi síldarstofninn, af því að þeir
hafi byggt hann upp með friðunaraðgerðum í meira en tuttugu
ár. Það er rétt að Norðmenn hafa stuðlað að vexti stofnsins
undanfarin ár, en norsk stjórnvöld virðast gleyma því að síldin
hætti að ganga út úr norsku lögsögunni og yfir til Færeyja og
íslands meðal annars vegna gegndarlausrar ofveiði Norðmanna
á smásíldinni. Norðmenn kasta því steinum úr glerhúsi er þeir
saka aðra um að ætla að ganga of nærri síldarstofninum.
*
Alda hryðjuverka öfgasinna úr röðum múslima ríður yfir Israel
u
’M 60 ísraelar hafa látið
lífið í sprengjutilræðum
íslamskra öfgamanna á
síðustu átta dögum. Þjóð-
in stendur sem lömuð frammi fyrir
sjálfsmorðstilræðum sprengjumanna
Hamas-hreyfingarinnar, sem tilbúnir
eru til að fórna lífi sínu í þágu mál-
staðarins; hinnar heilögu andstöðu
gegn friðarsamningum ísraela og
Palestínumanna. Ljóst er að sú alda
hryðjuverka sem nú ríður yfir samfé-
lag Israela kann að hafa djúpstæð
pólitísk áhrif í landinu auk þess sem
nokkur óvissa ríkir um framhald frið-
arferlisins. Ætla má að krafan um
að öryggi ísraelskra borgara skuli
njóta forgangs fram yfir framgang
friðarviðræðna mun hljóma hærra á
næstunni. Jafnfram þykir fréttaskýr-
endum sýnt að Yasser Arafat, for-
seti sjálfstjórnarsvæða Palestínu-
manna, sæti nú vaxandi þrýstingi
um að ganga fram með mun meiri
hörku gegn Hamas-liðum.
Sprengjutilræðið í miðborg Tel
Aviv í gær sem kostaði allt að 20
manns lífið er hið þriðja í röðinni á
átta dögum. í þessum tilræðum hafa
yfir 60 manns farist en eftir því sem
næst verður komist hafa 13 sambæri-
legar árásir átt sér stað í ísrael frá
því að samningar um frið og sjálfs-
stjórn Palestínumanna voru gerðir
haustið 1993. í þessum tilræðum
hafa rúmlega 130 manns týnt lífi.
Tilræðið er gífurlegt áfall fyrir
íbúa Tel Aviv sem notið hafa tiltölu-
lega mikils öryggis gagnvart
sprengjutilræðum íslamskra öfga-
manna. Ástandið í Tel Aviv hefur
fram til þessa ekki verið borið saman
við það sem ríkir hér í Jerúsalem.
Óhugnanleg endurtekning
Sprengjan sem sprakk á sunnu-
dagsmorgun í Jerúsalem var óhugn-
anleg endurtekning samskonar at-
burðar í síðustu viku. Aftur var það
snemma morguns í strætisvagni núm-
er átján, að morðinginn, klæddur sem
hermaður, setti af stað sprengju sem
var ekki einungis gerð úr sprengiefni
heldur einnig nöglum sem ætlað var
að gera vítisvélina enn banvænni. Lík-
amsleifar fórnarlambanna fundust í
margra metra fjarlægð, í trjám og á
rúðum nærliggjandi húsa. Á nálægum
svölunum mátti jafnvel finna sundur-
tætt höfuð. Morðinginn drap 19
manns og bættust þeir í hóp þeirra
25 fórnarlamba sem biðu bana undan-
genginn sunnudag.
Eftir nokkra tiltölulega friðsæla
mánuði hefur síðastliðin vika hrint
ísraelum, sem teknir voru að kunna
vel við nýja öryggiskennd, aftur ofan
í hyldýpi hryðjuverka, örvinglunar og
reiði. Það verður ekki sagt að ísraelar
hafi verið vaktir með gát til fyrri raun-
veruleika. Hryðjuverk hafa snúið aft-
ur til þeirra af þvílíkum krafti að jafn-
vel þeir allra hörðustu I hópi þeirra
sem vinna á vettvangi og eru því
ýmsu vanir eru andlega að niðurlotum
komnir.
Hryðjuverkaaldan hófst á sunnu-
dagsmorgni fyrir rúmri viku er tvær
sprengjur sprungu, önnur í strætis-
vagni í Jerúsalem en hin í mannþröng
í Ashkelon. Fórnarlömbin höfðu ekki
fyrr verið lögð til hinstu hvílu en ann-
að reiðarslag gekk yfir. Á mánudag
keyrði palestínskur Bandaríkjamaður
viljandi inn I mannþröng, _________
drap. eina konu og særði
u.þ.b. tuttugu.
Það lýsir greinilega
hugarástandi þeirra sem
búa við sífellda ógnun af .........11
þessu tagi að vegfarendur gripu til
vopna sinna með þeim afleiðingum
að ökumaðurinn lá í valnum og aðrir
voru ekki einungis sárir eftir árekstur-
inn heldur einnig af völdum skotsára.
Á föstudagskvöld handtók herinn
fimm menn vopnaða sveðjum á leið
inn í landnemabyggð á Gazasvæðinu.
Á sunnudag sprakk áðurnefnd
sprengja í strætisvagni í Jerúsalem,
grandaði nítján manns og særði sex.
I gær, mánudag voru svo tveir land-
nemar stungnir í Hebron áður en
sprengingin skók miðborg Tel Aviv.
Hefnt eftir Ramadan
Olgan í Israel hefur farið vaxandi
að undanförnu og margir óttuðust
hefnd eftir að ísraelska leyniþjónust-
an, að því er talið er, réð einn helsta
Friðarvon-
um drekkt
í blóði?
Sjálfsmorðsárásir íslamskra öfgamanna í Tel
Aviv í gær og í Jerúsalem á sunnudag hafa
vakið gífurlega reiði í ísrael. Sigrún Birna
Birnisdóttir, fréttaritari Morgunblaðsins í
Jerúsalem, íjallar um þessa blóðugu herför
gegn friðarsamningnm ísraela og Palestínu-
manna og hugsanlegar afleiðingar hennar.
Reuter
SHIMON Peres, forsætisráðherra Israels, ávarpar blaðamannafund í
Jerúsalem á sunnudag. Fundurinn var haldinn eftir að tilræðismaður
Hamas-samtakanna varð sjálfum sér og 18 öðrum að bana í strætis-
vagni í borginni.
Margir óttuð-
ust hefndar-
ráðstafanir
sprengjusérfræðing Hamas-samtak-
anna, „Verkfræðinginn" svokallaða,
af dögum í upphafi árs. Þegar bið
varð á hefndarráðstöfunum róaðist
fólk smám saman jafnvel þó öryggis-
gæslan hafi sífellt verið að koma upp
um fyrirhuguð hryðjuverk.
Hamas beið með hefndarráðstaf-
anir uns hinum helga mánuði múslima
Ramadan lauk. Það hefur vakið reiði
margra að hernumdu svæðin sem
höfðu verið lokuð af öryggisástæðum
voru opnuð aðeins nokkrum dögum
fyrir tilræðið m.a. vegna þess 'sem
Shimon Peres, forsætisráðherra, kall-
aði þrýsting norrænna mannúðar- og
mannréttindasamtaka.
________ Sprengjutilræðin í Jerú-
salem og Ashkelon í síð-
ustu viku voru ekki einung-
is framin rétt eftir að
Ramadan lauk heldur einn-
——— ig nákvæmlega tveimur
árum eftir fjöldamorð gyðingsins
Baruchs Goldsteins á Palestínumönn-
um í Hebron en sérstaklega hafði
verið varað við hefndaraðgerðum á
þeim degi.
Síðustu viku hefur Yasser Arafat
hvað eftir annað þurft að birta yfirlýs-
ingar þar sem hann fordæmir tilræðin
og vottar ísraelum samúð sína. Reiðir
stjórnmálamenn, fréttamenn og al-
menningur bera honum því á brýn að
hann geri ekki nóg til að koma í veg
fyrir hryðjuverk; Arafat kveðst gera
allt sem í hans valdi stendur. Ásökun-
um um að áframhaldandi hryðjuverk
séu sönnun þess að honum sé um
megn að stjórna hernumdu svæðunum
svarar hann með því að benda á að
ísraelum hafi ekki gengið betur þegar
þeir fóru þar með stjórn. Einnig bend-
ir hann á að hryðjuverkamenn undan-
farinnar viku hafi komið frá Hebron-
svæðinu sem enn er undir stjórn ísra-
elsmanna. Því var spáð í gær að
umsömdum brottflutningi ísraelskra
hermanna þaðan yrði frestað vegna
þess alvarlega ástands sem nú ríkir.
Arafat í vanda
Jafnvel þó Arafat hafi hlotið yfir-
burðakosningu í kosningum Palest-
ínumanna fyrir stuttu og tugir þús-
unda Palestínumanna hafi safnast
sáman í gær til að mótmæla árásunum
á ísrael er enginn hægðarleikur fyrir
Arafat að ráðast gegn Hamas. Talið
er að fjórðungur Palestínumanna
styðji samtökin beint og að mun fleiri
styðji þau óopinberlega eða hafi sam-
úð með málstað þeirra. Þó Hamas-
samtökin séu á alþjóðavettvangi best
þekkt fyrir hryðjuverkastarfsemi er
áætlað að einungis fimm prósent af
fjármunurn þeirra fari til hryðjuverka
en annað til heilbrigðis-, mennta- og
félagsmála á hernumdu svæðunum.
Það er því meira en að segja það fyr-
ir Arafat að ráðast gegn Hamas. Að
auki hafa komið fram efasemdir um
að hann réði við að taka yfir þau fé-
lagslegu málefni sem Hamas-samtök-
in hafa á sínum snærum.
En það er ekki einungis Arafat sem
lendir í klemmu við síendurtekin
hryðjuvérk. _ Þingkosningar eiga að
fara fram í ísrael í lok maí og kemur
því ólgan á viðkvæmasta tíma þegar
stjórnmálamenn eru að hefja kosn-
ingabaráttu sína með tilheyrandi
flokkadráttum og hrossakaupum.
Hryðjuverkaaldan sem nú ríður yfir
setur Peres í mjög erfiða aðstöðu. Til
þess að þjóðin veiti honum áframhald-
andi umboð til friðarviðræðna verður
hann að fullvissa ísraela um að þeim
sé óhætt undir stjórn hans en auk
þess sem margir Israelar líta á áfram-
haldandi hryðjuverk sem sönnun þess
að friðarumleitanir hafi mistekist hafa
ólga og óöryggi almenna tilhneigingu
til að styrkja stöðu hægri aflanna í
ísraelskum stjórnmálum. Sigri þau í
kosningum í maí er ljóst að mikil
óvissa mun ríkja um framhald friðar-
viðræðna og raunar öll samskipti ísra-
ela og nágranna þeirra.
Aðgerða krafist
Gífurleg reiði ríkir nú urn stundir
í ísrael og þjóðin krefst aðgerða. Per-
es verður sýna að hann sé harður í
horn að taka til að vinna sér traust
þeirra sem umfram allt óttast um
örygg' sitt. Nú þegar hafa heimili
hryðjuverkamannanna verið innsigluð
eða jöfnuð við jörðu og allir karlmenn
verið teknir til yfirheyrslu í þeim
flóttamannabúðum í nágrenni Hebron
sem hryðjuverkamenn undanfarinnar
viku komu frá. Það lítur því út fyrir
að ísraelskir ráðamenn hafi í hyggju
að beita gamalkunnum aðferðum,
aðferðum sem þeir hafa notað án sjá-
anlegs árangurs undanfarna áratugi.
Reuter.
STUÐNINGSMENN Þjóðarflokksins fögnuðu ákaft í miðborg Madrid er úrslit lágu fyrir, þrátt fyrir að flokkurinn næði ekki hreinum meirihluta.
Þ
JÓÐARFLOKKURINN und-
ir forystu José Maria Aznar
vann sigur í þingkosning-
unum á Spáni á sunnudag
og batt þar með enda á þrettán ára
valdatímabil Sósíalistaflokksins og
Felipe Gonzalez forsætisráðherra.
Þjóðarflokkurinn fékk hins vegar ekki
hreinan meirihluta í kosningunum og
verður því að reyna að semja við
smáflokka um stjórnarmyndun eða
stuðning við minnihlutastjórn flokks-
ins. Aznar fagnaði þó sigri og sagði
kosningaúrslitin marka upphaf nýrra
tíma í spænskum stjórnmálum.
.Með þessum úrslitum virðist vera
bundinn endi á rúmlega þrettán ára
valdasetu Felipe Gonzalez forsætis-
ráðherra, sem fyrst komst til valda
árið 1982, þá fertugur að aldri. Úrslit-
in eru jafnframt söguleg að því leyti
að þetta er í fyrsta skipti sem Þjóðar-
flokkurinn vinnur kosningasigur frá
því að lýðræði var komið á á Spáni
fyrir tveimur áratugum.
Mikill óstöðugleiki einkenndi
spænsk stjórnmál fyrstu árin eftir
andlát Francisco Francos einræðis-
herra árið 1975 og það var ekki fyrr
en að stjórn Gonzalez tók við í des-
ember 1982 að línur tóku að skýrast.
Gonzalez treysti stöðu Spánar á al-
þjóðavettvangi og gerði ríkið að full-
gildum aðila í samstarfi vestrænna
lýðræðisþjóða, jafnt innan Atlants-
hafsbandalagsins sem Evrópusam-
bandsins.
Síðustu árin dró hins vegar mjög
úr fylgi við Gonzalez og flokk hans
ekki síst vegna fjölmargra hneykslis-
og spillingarmála.
Skoðanakannanir vikurnar fyrir
kosningar höfðu bent til afgerandi
Aznar í erf-
iðri stöðu
Spænskir hægrimenn unnu sigur í þingkosn-
ingum á sunnudag en náðu ekki hreinum
meirihluta. Engu að síður er talið líklegt að
þeim takist að mynda stjóm með stuðningi
smáflokka en óvíst er á hversu traustum
gmnni sú stjóm yrði mynduð.
sigurs Þjóðarflokksins. Þegar upp var
staðið hlaut flokkurinn hins vegar ein-
ungis 1,4 prósentustig umfram fylgi
Sósíalistaflokksins og skortir 20 þing-
sæti til að ná meirihluta á spænska
þinginu, þar sem sitja 350 þingmenn.
Flokkurinn fékk alls 156 menn
kjörna sem er aðeins 15 mönnum
meira en sósíalistar. Flokkurinn fékk
þremur færri þingmenn kjörna en
sósíalistar voru með er þeir töldu sér
ekki lengur fært að stjórna landinu.
Það má þó telja öruggt að Juan
Carlos Spánarkonungur veiti Aznar
fyrst umboð til stjórnarmyndunar og
strax í gærmorgun gáfu forystumenn
Þjóðarflokksins í skyn að þeir væru
reiðubúnir að veita fulltrúum annarra
José Maria Aznar, leiðtogi Þjóðarflokksins og væntanlegur forsætisráðherra Spánar
Viljasterkur, agaður
en litlaus
JOSÉ Maria Aznar, formaður Þjóð-
arflokksins, er líklegasti eftirmað-
ur Félipe Gonzalez í embætti for-
sætisráðherra Spánar. Aznar er 43
ára gamall fyrrum skattaeftirlits-
maður, lágvaxinn og með yfirvara-
skegg;
Þrátt fyrir að hann hafi verið
leiðtogi Þjóðarflokksins í sex ár er
hann cnn óráðin gáta í augum
margra Spánverja. Hann er ekki
talinn hafa mikia persónutöfra,
forðast að horfa beint, í augu við-
mælenda og þykir ekki sérstaklega
mæiskur.
Að undanförnu hafa spænskir
fjölmiðlar keppst við að draga per-
sónu Aznars fram í sviðsljósið og
komast að því hvaða mann hann
hafi að geyma.
Sú mynd sem dregin hefur verið
upp er af hlédrægum en öguðum
leiðtoga sem hefur gaman af skáld-
skap og yrkir jafnvel sjálfur. I
nýlegum viðtölum hefur liann við-
urkennt að hafa gaman af bröndur-
um, sem betra væri að hafa ekki
eftir í fjölmiðlum, og tónlist söng-
konunnar Gloriu Estefan.
Harður af sér
Vinir og samstarfsmenn lýsa
honum sem íhugulum og einstak-
lega viljasterkum manni, sem sjáist
meðal annars á því að er hann
ákvað að hætta að reykja fór hann
úr fimmtíu sígarettum á dag niður
í enga.
„Eg held að helsti kostur hans
sé hversu hann er harður af sér,“
segir rithöfundurinn og sósíalistinn
Pedro de Silvia.
Það er ekki síst talið viljastyrk
hans og ákveðni að þakka að Áznar
tókst að vinna sig úr því að vera
óþekktur þingmaður upp í að vera
formaður stærsta stjórnarand-
stöðuflokksins á örfáum árum.
Eiginkona hans, Ana Botella,
segir í nýlegri bók frá því hvernig
hann barðist fyrir því að verða
forseti héraðsstjórnarinnar í Ca-
stilla-Leon, norður af Madrid.
Keyrði hann frá þorpi til þorps og
Reuter
JOSÉ Maria Aznar.
kynnti sig. Margir háttsettir
flokksmenn sögðu honum að hætta
baráttunni en hann svaraði: „Kem-
ur ekki til greina“.
Hann vann kosningarnar með
naumum meirihluta og stjórnaði
héraðinu með sæmd í tvö ár.
Árið 1989 var hann á síðustu
stundu valinn sem forsætisráð-
herraefni Þjóðarflokksins. Tók
hann við af Manuel Fraga, fyrrum
ráðherra í ríkissljórn Franciscos
Francos einræðisherra. Vildi flokk-
urinn yngja upp ímynd sína og má
þann stimpil af sér að vera af-
sprengi Franco-stjórnarinnar.
í skugga Gonzalez
Flokknum gekk fremur illa í
kosningunum 1989 og var Aznar
stöðugt í skugga Gonzalez. Hægt
og sígandi vann hann hins vegar
að því að færa flokkinn inn á miðju
stjórnmálanna. Hefur hann þótt
sýna mikið pólitískt næmi og fund-
ið á sér hvenær skynsamlegt væri
að ráðast harkalega á stjórnina
vegna hneýkslis- og spillingarmála
og hvenær væri heppilegra að láta
lítið á sér bera.
Helsti ókostur hans er talinn
vera hversu litlaus hann þykir sam-
anborið við Gonzalez.
Aznar slapp naumlega frá
sprengjutilræði Baska á síðasta ári
og hafði það mikið að segja varð-
andi almenningsálitið. „Fram að
tilræðinu var hann ákveðinn per-
sónulciki: daginn eftir tilræðið var
hann annar,“ hefur verið haft eftir
Miguel Angel Rodriguez, talsmanni
Þjóðarflokksins.
Aznar fæddist árið 1953 í
Madrid. Faðir hans var blaðamaður
og afi hans sendiherra. Hann var
fyrst kjörinn á þing árið 1982, þá
29 ára gamall. Hann er þriggja
barna faðir.
flokka aðild að stjórn landsins. „Þjóð-
arflokkurinn útilokar ekki að fulltrúar
annarra flokka fái ráðherra í stjórn
Þjóðarflokksins," sagði Mariano
Rajoy, framkvæmdastjóri flokksins, í
viðtali við spænska sjónvarpið.
Bjóða ráðherraembætti
Rajoy nefndi sérstaklega möguleik-
ann á stjórnarmyndun með flokki
Katalóna, Convergencia i Unio (CiU),
og gerði lítið úr ágreiningi sem kom
upp milli flokkanna í kosningabarátt-
unni. Hann útilokaði hins vegar nær
algjörlega samstarf við Sameinaða
vinstribandalagið, þar sem kommún-
istar eru í forystu.
CiU missti þingmann í kosningun-
um og fékk sextán þingmenn kjörna
og því er ljóst að Aznar verður að
leita til fleiri flokka til að ná meiri-
hluta. Er ekki ólíklegt að miðjuflokkur
frá Kanarieyjum, sem hlaut fjóra
menn kjörna, verði fyrir valinu.
Stjórnmálaskýrendur telja flestir
yfirgnæfandi líkur á að Aznar takist
að mynda stjórn en benda jafnframt
á að erfitt gæti reynst að halda henni
saman og óvíst sé hvort hún verði
langlíf.
Flest spænsk dagblöð fögnuðu í
gær sigri Þjóðarflokksins en lögðu þó
mikla áherslu á þá erfið- ----------
leika sem blasa við varð-
andi stjórnarmyndun.
„Spænskir kjósendur
hafa úthýst útkeyrðri ríkis-
stjórn eftir þrettán ár við ““
völd en þeir hafa jafnframt takmarkað
sigur hægrimanna,“ sagði dagblaðið
E1 Pais, sem verið hefur hliðhollt sós-
íalistum. „Spænsk stjórnmál verða
auðugri eftir þessar kosningar, at-
hyglisverðari, óljósari en jafnframt
erfiðari," sagði blaðið.
Dagblaðið E1 Mundo, sem andvígt
hefur verið stjórn sósíalista, sagði að
„innsti Spánn“, sveitahéruðin og hér-
uð þar sem gamlar hefðir væru enn
við lýði, hefðu stutt Gonzalez þrátt
fyrir öll hneykslismálin. „Sá sem eng-
an veginn getur tekið við stjórninni
er Gonzalez. Hann yrði að fá stuðning
CiU og Sameinaða vinstribandalags-
ins sem væri ómöguleg samsteypa,"
sagði blaðið.
Hægriblaðið ABC tók í svipaðan
streng og sagði kjósendur í Andalúsíu
og Extremadura, héruðum er ættu
allt undir opinberum niðurgreiðslum,
hafa dregið úr ósigri Gonzalez.
Mörg blöð gagnrýndu hversu
óáreiðanlegar skoðanakannanir hefðu
reynst og sagði E1 Mundo að vaxandi
efasemda gætti um fagmennsku á því
sviði.
Viðskiptablaðið Expansion sagði
úrslitin valda óvissu í efnahagsmálum
en spænskt viðskiptalíf hefði þráð
stöðugleika og öryggi.
Óróleiki á peningamörkuðum
Gengi spænska pesetans og spæn-
skra verðbréfa lækkaði á peninga-
mörkuðum eftir að úrslitin Iágu fyrir
og sérfræðingar sögðu líklegt að
óstöðugleiki myndi einkenna peninga-
markaði næsta mánuðinn. „Úrslitin
eru neikvæð fyrir markaði til skemmri
tíma litið,“ sagði Henrik Lumholdt,
yfirhagfræðingur Bank of America.
Richard Turnill hjá Paribas sagði
fjárfesta eiga eftir að halda að sér
höndum þar til línur skýrðust varð-
andi stjórnarmyndun. „Það eru þó
90% líkur á að stjórn [hægri- og miðju-
flokka] verði rnynduð," sagði Turnill.
Innan viðskiptalífsins vilja flestir
stjórn Þjóðarflokksins og margir
benda á hversu margt flokkurinn og
flokkur Katalóna eigi sameiginlegt
hvað stefnu í efnahagsmálum varðar.
Þjóðarflokkurinn vill ýta undir sköp-
un nýrra atvinnutækifæra, tryggja
útgjöld til félagslegra málefna en jafn-
framt draga úr fjárlagahalla, stokka
upp vinnulöggjöfina og lækka skatta.
CiU vill áþekkar aðgerðir en flokk-
urinn leggur meiri áherslu á stuðning
við smáfyrirtæki sem eru uppistaða
efnahagslífs Katalóníu.
„Það er ekkert ósamrýmanlegt í
efnahagsstefnu þeirra ... málið snýst
um forgangsröðun og tímasetningar
aðgerða,“ sagði Valentin Fernandez
hjá Deutsche Bank.
Ósammála í grundvallarmálum
Það gæti þó valdið erfiðleikum í
hugsanlegu stjórnarsamstarfí ef
nauðsynlegar aðhaldsaðgerðir myndu
bitna harkalega á Katalóníu.
Og þó að stefna flokkanna í efna-
hagsmálum sé áþekk eru þeir ósam-
mála í mikilvægum grundvallaratrið-
um. Þjóðarflokkurinn legg-
ur áherslu á Spán sem
sameinað ríki en Jordi Pu-
jol, leiðtogi CiU, sækist
eftir því að Katalónía fái
...... sífellt aukna sjálfstjórn.
Margir telja að stjórnarmyndunin
muni einkennast af hrossakaupum og
að Aznar hefði í raun ekki getað lent
í verri stöðu. Ekki er hægt að mynda
stjórn án Pujols og hann er því í að-
stöðu til að knýja í gegn nánast hvað
sem er fyrir flokk sinn.
Með því að gefa í skyn strax í gær
að til greina kæmi að taka ráðherra
úr öðrum flokkum inn í stjórnina hef-
ur Þjóðarflokkurinn lagt spilin á borð-
ið. Pujol hefur hins vegar ekki viljað
segja af eða á um hvort hann hafi
áhuga á samstarfi við Aznar né held-
ur hver skilyrði hans séu.
„Fyrir þremur árum buðu sósíalist-
ar ráðherraembætti en CiU hafnaði
því tilboði. Þið verðið að spyrja Pujol
um ástæðurnar að baki því,“ sagði
háttsettur vestrænn stjórnarerindreki.
Óvíst hvort ný
ríkisstjórn
verður langlíf