Morgunblaðið - 17.03.1996, Page 12
12 SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Árásin á tengdasyni Saddams Husseins stóð í heilan dag
drekar segja að mennimir tveir, sem
féllu, hafi verið úr sérstökum örygg-
issveitum Qusays, sonar Saddams.
Qusay fór fremstur ásamt Uday, eldri
bróður sínum, í líkfylgd „píslarvott-
anna“. Opinbera skýringin er reyndar
að þvi' leyti rétt að hér var verið að
gera upp fjölskylduetjur. Það var hins
vegar ekki aðeins al-Majeed-fjölskyld-
an, heldur það fjölskyldunet, sem
Saddam notar til að stjórna Irak, sem
átti hlut að máli.
Fáir grétu Hussein Kamel, sem var
yfírmaður leynilegra hemaðaráætl-
ana íraka þar til hann flúði land. írök-
um stóð ótti af þessum manni.
Stuðningsmenn Saddams fyrirlitu
hann fyrir að flýja og andstæðingar
Saddams töldu hann eftirlíkingu
erkióvinarins. Flestir vom þeirrar
hyggju að flóttinn myndi leiða til
þess að lengjast myndi biðin eftir því
að refsiaðgerðunum, sem settar vom
vegna innrásar Iraka í Kúveit, yrði
aflétt.
Verður hefnt?
Nú er spurt hvort blóðsúthelling-
unum sé lokið vegna þess að í írak
ber mönnum skylda til að hefna.
Stjómarerindrekar og íraskir heim-
ildamenn segja að Kamel-bræður
hefðu átt að vera við svikum búnir.
Þeim var heitið náðun, en um leið
og þeir komu yfir landamæri íraks
voru þeir skildir frá konum sínum
og sáu þeir þær vísast
ekki aftur. Tveimur dög-
um síðar skildu dætur
Saddams við þá sem
svikara og dánarvottorð
þeirra hafði verið undir-
ritað.
Heimildamenn Reut-
ere-fréttastofunnar telja
að bræðurnir hafí varið
sínum síðustu stundum
í að safna vopnum og
birgja sig inni. Sögu-
sagnir herma að síðar
hafi komið til bardaga
við ættingja Husseins
Kamels bæði í miðri
Bagdad og í Tikrit, þar
sem ýmsar fjölskyldur
tengdar Saddam búa.
Lífið hefur hins vegar
gengið sinn vanagang í
Bagdad og ferðamenn, sem farið
hafa til Tikrit, hafa ekki orðið varir
við neitt óvenjulegt. Stjórnarerin-
drekar_ segja sumir að stríð milli
ætta í írak vofi yfir. Aðrir segja hins
vegar að Saddam hafi aldrei verið
jafn tryggur í sessi og örlög Hus-
seins Kamels beri því vitni. Að þeirra
hyggju mun morðið á Hussein Ka-
mel ekki draga dilk á eftir sér, held-
ur færa öllum þeim, sem vilja gera
Saddam skráveifu, heim sanninn um
það að þeirra bíða grimm örlög.
Hussein Kamel,
tengdasonur Sadd-
ams Husseins,
þungur á brún eftir
flóttann.
Söfnuðu vopn-
um og biðu
hefðu ættmenni þeirra veríð að verki en sú
kenning er nú dregin í efa.
Reuter
HUSSEIN Kamel (t.h.) óskar Uday, mági sínum og syni Saddams
Husseins, til hamingju á brúðkaupsdegi þess síðarnefnda 1993.
Sagt er að Uday hafi hrækt á lík Husseins Kamels og sparkað í það.
IRASKAR öryggissveitir lokuðu
stórum hluta hverfísins Say-
adiya í Bagdad í dögun.
Óárennilegur hópur ve! vop-
naðra hermanna beið fyrir utan hús
systur Husseins Kamels Hassans til-
búinn að láta til skarar skríða. Þegar
síðustu skotunum hafði verið hleypt
af var farið að rökkva. Húsið hafði
verið jafnað við jörðu. írakarnir tveir,
sem höfðu flúið land og niðurlægt
Saddam Hussein, forseta íraks, voru
allir.
Ekki er með öllu ljóst hvað gerðist
23. febrúar í Sayadiya, einu af betri
hverfum Badgad. írakar eiga erfitt
með að komast á staðinn og það er
allt að því ómögulegt útlendingum.
Opinberlega er því haldið fram að
ættingjar Husseins Kamels hafí ráðið
hann og bróður hans, Saddam Ka-
mel, af dögum. Ættingjamir hafí
verið æfir yfír því að bræðurnir hefðu
vanvirt fjölskylduna og niðurlægt
Saddam Hussein með því að flýja til
Jórdaníu í ágúst og taka með sér
konur sínar, dætur forsetans.
Erlendar fregnir stönguðust á við
opinberu útgáfuna. Því var haldið
fram að Saddam hefði yfírheyrt
bræðuma og því næst tekið þá af lífí.
Frásagnir jafnt íraka sem útlend-
inga benda til þess að háður hafí
Samkvæmt nokkrum
frásögnum var lík Hus-
seins Kamels dregið út
á götu og því er haldið
fram að Uday, sonur
Saddams, hafí komið til
að sparka í og hrækja
á sinn gamla óvin, en
talið var að missætti
milli þeirra hefði leitt
til þess að Kamel-bræð-
ur gerðust landflótta.
Að minnsta kosti
tveir úr árásarliðinu
biðu bana og daginn
eftir var þeim gerð opin-
ber útför „píslarvotta".
Þessir tveir hétu Hus-
sein Kame! og er það
hefðbundið nafn í al-
Majeed ættinni, sem einnig tengist
Saddam gegnum föður hans. Dauði
mannanna tveggja þótti renna stoðum
undir opinbem skýringuna að fjöl-
skyldan hefði verið að láta Hussein
Kamel gjalda fyrir að hafa vanvirt
hana.
Stjómarerindrekar segja hins veg-
ar að útilokað sé að beijast svo
klukkustundum skipti í Bagdad nema
yfirvöld láti það viðgangast.
Öryggisverðir eru allajafna úr hópi
ættmenna Saddams og stjórnarerin-
örlaga sinna
Sú ákvörðun tengdasona Saddams Husseins
íraksforseta að snúa afturtil heimalandsins
úr útlegð í Jórdaníu hefur vakið mikla furðu.
Bræðumir virtust ganga beint í gin Ijónsins;
verið sýnu harðari bar-
dagi, en bæði írösk
stjómvöld og útlagahóp-
ar andvígir Saddam
halda fram. Samkvæmt
þeim stóð orrustan í
margar klukkustundir og
skothvellir heyrðust víða
að.
Bæði stjómarerin-
drekar og íraskir heimild-
armenn segja að stjórn-
arhermenn hafí hafist
handa með léttum vopn-
um, en því næst gripið
til hríðskotabyssa.
Sprengjuvörpum, sem
eiga að granda skrið-
drekum, var beitt á húsið
og skemmdust einnig
nærliggjandi byggingar.
Opinberlega er því
haldið fram að fjórir hafí
beðið bana í húsinu. Hus-
sein Kamel, Saddam Ka-
mel, þriðji bróðirinn og
faðir þeirra. Margir telja
hins vegar að fleiri hafí
látið lífið í húsinu, eða
minnst tíu úr fjölskyld-
unni, þar á meðal tvær
systur Kamel-bræðra og
barn annarrar þeirra.
AÐDÁENDUR Saddams íraksforseta
halda mynd af honum á lofti í Bagdad.
Erlendir stjórnarerindrekar halda þvl
sumir fram að staða Saddams í írak hafi
sjaldan verið jafn styrk og nú um stundir
og þess sjást engin merki að dýrkunin á
persónu forsetans sé á undanhaidi.
voru myrtir skömmu eftir að þeir sneru aft-
--------------------------------:--------
ur til Bagdad. Irakar héldu því fram að þar
Aftur heim til
vafasamra metorða
Rúmenska tennisstjaman
Ilie Nastase er í framboði
til embættis borgarstjóra
Búkarest. Margir eiga erf-
itt með að skilja að nokkur
maður sækist eftir þessu
embætti og grunsemdir
hafa vaknað um heilindi
hetjunnar.
Ilie Nastase
tennissijarna
er sá maður sem
sækist .eftir að stjóma
borg þar sem 100 heimil-
isleysingjar urðu úti í
frosthörkum í fyrra og þar sem eng-
ir peningar eru til að greiða útfarar-
kostnaðinn? Hvemig geta það talist
eftirsóknarverð metorð að verða
æðstráðandi í borg þar sem ruslið á
gangstéttunum er við það að færa
bílana í kaf og þar sem holunum í
götunum verður einungis líkt við gjár
eða gíga?
Maðurinn heitir Ilie Nastase, fyrr-
verandi tennishetja, sem nú hefur
afráðið að gefa kost á sér í kosning-
um í heimaborg sinni Búkarest, höf-
uðborg Rúmeníu. Stjama Nastase
skein skært á áttunda áratugnum
og hann var alræmdur fyrir hóglífí
og skemmtanafíkn. Nastase er orð-
inn fímmtugur, býr jöfnum höndum
í París og New York þar sem hann
hefur notið lífsins á undanfömum
ámm. Nú telur hann tímabært að
snúa heim. Hann hyggst koma lönd-
um sínum ti! hjálpar og telur sig
geta gert það með því að verða
næsti borgarstjóri Búkarest.
Nastase hefur bætt á sig nokkrum
kílóum og hann notar gleraugu þeg-
ar hann horfir á sjónvarpið. „Það er
frábært að búa í Bandaríkjunum og
Frakklandi," segir Nastase um-
kringdur aðstoðarmönnum sínum í
kosningamiðstöðinni í Búkarest. „Ég
þáði peningana þeirra og konumar
þeirra líka en ég verð alltaf Rúm-
eni. Ég naut alls þess besta sem
útlöndin höfðu upp á að bjóða og
nú vil ég færa það hingað heim.“
„Heim“ vísar til Búkarest. Lífskjör
almennings hafa heldur farið versn-
andi í höfuðborginni frá því að Nic-
olae Ceausescu einræðisherra var
steypt af stóli í blóðugu váldaráni
um jólin 1989. Einungis fámenn yfír-
stétt nýtur lífsins. Eigendur verslana
nærri Byltingartorginu í miðbænum
siga hundum sínum á fátæklingana
þar sem þeir híma fyrir utan og virða
fyrir sér dásemdirnar í gluggunum.
„Hér eru um 90% auðsins í höndum
sex eða sjö manna. Tíu prósentin sem
eftir standa af þjóðarauðnum renna
til fólksins, hugsanlega minna...Ég
tel að okkur vanti viti borinn mann
sem dvalist hefur í 30 ár á Vestur-
löndum.“
Margir íbúar Búkarest eru sam-
mála þessari greiningu Ilie Nastase
en það hefur jafnframt vakið sér-
staka athygli að framboð hans nýtur
stuðnings stjórnarflokksins í Rúmen-
íu og forseta landsins, Ion Iliescu.
Til liðs við Iliescu
Nastase gekk til liðs við „Jafnað-
armannaflokk" Iliescus í nóvember
en flokkurinn hefur verið ráðandi afl
í rúmenskum stjómmálum frá því
Ceausescu var steypt og Iliescu var
í eina tíð undirsáti harðstjórans.
Andskotar Nastases segja að hann
hafi gengið til liðs við afturhaldið
sem barist hafi gegn öllum raunveru-
legum umbótum í Rúmeníu og steypt
hafí þjóðinni út í hyldýpi allsleysis
og spillingar. Einhverjir vina hans
hafa sagt að tennisstjarnan fyrrver-
andi sé nytsamur sakleysingi sem
láti hin ráðandi öfl nota sig til að
treysa tök sín á Búkarest.
Nastase naut forréttinda íþrótta-
stjömunnar í valdatíð kommúnista í
Rúmeníu. Hann gat farið úr landi
og snúið aftur þegar hann kærði sig
um og átti glæsilegt hús á meðan
flestum öðrum landsmönnum var
gert að hírast í niðurníddum íbúðum
í ömurlegum fjölbýlishúsum.
En tennisstjarnan gagnrýndi aldr-
ei yfirvöld opinberlega og þá kúgun
sem tíðkaðist i tíð Ceausescus. Nú
fer hann gagnrýnum orðum um þró-
un mála í heimalandi sínu á þeim sex
árum sem liðin eru en forðast á hinn
bóginn að segja nokkuð sem skaðað
gæti stjórnmálamennina. „Þeir
ákváðu framboðið fyrir mig,“ segir
hann og vísar greinilega til Iliescu
og flokksmanna hans. „En þegar ég
er orðinn borgarstjóri mun ég hvergi
gefa eftir.“
Ilie Nastase telur að hann geti
nýtt sér sambönd sín á Vesturlöndum
til að greiða fyrir erlendum Ijárfest-
ingum í Búkarest. Það fjármagn sem
til höfuðborgarinnar hefur borist er-
lendis frá hefur einkum komið frá
Kína, Líbanon, Tyrklandi og Pakistan.
Geg-n spillingxinni
„Ég mun sýna mikinn sveigjan-
leika gagnvart þeim sem vilja fjár-
festa,“ segir tennisstjaman fyrrver-
andi. „Þeir hjá McDonald’s kvarta
undan því að það hafi tekið þá tvö
ár að koma upp skyndibitastað hérna
vegna þess að þeir vildu ekki borga
uppsettar mútur. Ég þekki nokkra
náunga, Rúmena, sem vilja laga göt-
urnar en vegna þess að að þeir eru
ekki tilbúnir til að borga núverandi
borgarstjóra nokkrar milljónir fá
þeir ekki leyfí til þess. Ég veit um
fyrirtæki í Danmörku sem vill laga
lagnirnar og síðan gætum við byggt
ódýrt húsnæði í samvinnu við banda-
rískt fyrirtæki."
Heimild:T/ie International Herald
Tribune.