Morgunblaðið - 17.03.1996, Side 32

Morgunblaðið - 17.03.1996, Side 32
JJ2 SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996 SKOÐUIM MORGUNBLAÐIÐ HVAÐ HÉTU DÆTLJR NJÁLS A BERGÞORSHVALI? Svar við grein Einars Pálssonar fræðimanns ÞAÐ er upphaf þessa máls, að ég reit ritgerð, sem ég nefndi: „Leyndar ástir í Njálu.“ Fjölvi gaf út í kilju 1987. Tók ég þar skýrt fram að ég talaði eingöngu sem einn einfaldur baðstofulesari, en taldi mig hafa rétt til vissra ágisk- ana, ef ég færði fram sennileg rök, máli mínu til stuðnings. Ritgerðina gerði ég til þess að segja það álit mitt, að dætur Njáls hefðu heitið, fyrsta Þorgerður, önnur Þorgerður og þriðja Helga. Einnig til að sýna það baksvið í Rangárþingi, sem Hallgerður kom inn í. Tel ég að Þorgerður og Helga hafi verið ógefnar heimasætur í Njálsbæ, þegar Gunnar Há- mundarson festi sér Hallgerði. Njáll tók þungt á við Gunnar þeirri frétt. Hvers vegna? Njáll varð fyr- ir vonbrigðum, að þessi vinur hans leitaði ekki mægða að Bergþórs- hváli. Hefur Njáll vitað hrifningu dætra sinna af Gunnari. Njáll sér vinslitin fyrir milli Bergþórshváls og Hlíðarenda. Afbrýðissemi dætra sinna og ofsa Bergþóru, þegar svo var slegið niður þeirra fegurstu von að Bergþórshváli. Þá er ónefnt það hatur, sem Rannveig lagði á Hall- gerði. Ókunnug kona tók við henn- ar búsforráðum að Hlíðarenda - en ekki Njálsdóttir. Njáll óttast að Bergþóra og Hallgerður etji saman köppunum frá Bergþórshváli og Hlíðarenda. Njáll tryggir sér vináttu Gunn- ars hvað sem í skerst. Gunnar á að trúa því, að „af henni (Hall- gerði) mun standa allt it illa, er hún kemur austr hingat". Hinn slyngi höf. Njálu leiðir lesarann í sömu villu. E. Ólafur Sveinsson, segir í bók sinni „Á Njálsbúð“, að ein af dætr- um Njáls sé aldrei nefnd með nafni í Njálu. Eftir að ég varð fullorðin, trúði ég því ekki, að Ketill í Mörk hefði haft konu sína Þorgerði stadda á Bergþórshváli, þar sem hann sjálf- ur var með Flosa fyrirliði að hundr- að manna her, sem ráðast skyldi á bæ Njáls, ákveðinn dag að hausti og brenna bæinn, ef þeir ætluðu að verjast inni. Vissulega fyrirgef ég Einari Pálssyni þá ábendingu, að fullyrða varlega, að enginn hefði skrifað um dætur Njáls, af þeim sem höfðu skrifað um Njálu. Eg átti við það, að enginn hefði minnst á þær dætur sem örlagavalda í hjóna- bandi Hallgerðar og Gunnars og, að enginn þeirra hefði giskað á Þorgerðarnafnið í sambandi við brennuna. Þriðja dóttirin aldrei nefnd í þeirra skrifum. Þar átti ég við, nefnd með nafni. „Þykir mér þá skörin færast upp í bekkinn,“ segir Einar. „í 13 bókum útgefnum síðastliðin 30 ár og sem allar fjalla að einhveiju leyti um Njálu, hefur þessu meginatriði launsagnarinnar verið gerð rækileg skil.“ E.P. segir einnig í grein sinni: „Rósa gefur eingöngu gaum að fyrsta stigi miðalda ritunar sem yfirleitt er nefnt „historia" þ.e.a.s. þeirri hlið sem er auðskiljanlegust og fjallar um sögu eða viðburði, án þess að meginatriði launsagnarinnar séu krufin.“ Hér kemur nú mergurinn máls- ins. Söguskoðun fræðimannsins og baðstofulesarans mætast ekki nema að nafninu til, þ.e. í nöfn- um manna og staða. Nú verð ég að benda E.P. á það, að sú bók hans, sem ég las fýrst og kom út 1969 er „Baksvið Njálu“. Þeg- ar höf. talar þar ekki um dætur Njáls tel ég í því nokkra afsökun að búast ekki við þeim systrum í öðrum bók- um hans. Strax er auðséð á þeirri bók, að hún er ofar skilningi flestra. En það verð ég að segja, að stórmerkilegt er, hvað þessi bókaflokkur, „Rætur íslenskr- ar menningar", er skemmtilega skrifaður á lifandi máli - um jafn Söguskoðun fræði- mannsins og baðstofu- lesarans, segir Rósa B. Blöndals, mætast ekki nema að nafninu til. flókið og margþætt efni, samansafn visku og þekkingar úr öllum áttum, frá fjarlægum löndum og heimsálf- um, frá fomri menningu liðinna kynslóða, með það háleita mark- mið, að leita þeirrar þekkingar sem fommenn íslands fluttu hingað heim. Þijár bækur hef ég lesið al- veg, en þar sem registur er sem annað, greinilegt og vel unnið hjá höf. er hægt að finna dætur Njáls og lesa eingöngu um þær. Bókin freistar þó til lengri íestrar, því Einar er mikill rithöf- undur. Það er stórkost- legt að rita eina slíka bók, hvað þá 13 slíkar bækur, samtals yfir 4.000 síður. Ef goð- kynjaður maður hefur nokkumtíma verið á íslandi, held ég að Ein- ar Pálsson sé sjálfur et sama. Svo ofur- mannleg elja liggur á bak við þessar bækur, framsögn alltaf jafn skýr og ákafinn að fræða eftir því. Ekki er þó langt mál um Njálsdætur á þeim sið- um. Ég þakka E.P. fyrir að virða grein mína um dætur Njáls á Berg- þórshváli svars. í „Leyndar ástir í Njálu“, var ég í vafa um, hvor Þorgerðanna Njálsdætra hefði verið í Hlíðar- endabrúðkaupi, Þorgerður Njáls- dóttir heimasæta á Bergþórshváli eða Þorgerður Njálsdóttir hús- freyja í Mörk. Seinna eftir að „Leyndar ástir í Njálu“ komu út, tók ég eftir því, að báðar alnöfnurnar í Mörk og að Bergþórshváli eru taldar upp í brúðkaupsveislu Gunnars og Hall- gerðar, sem gestir. En í öllum útgáfum af Njálu, sem ég hef séð, stendur aldrei í registri nema eitt nafn, Þorgerður Njálsdóttir. Ég vona að E.P. fyrirgefi, þótt ég taki upp línu og línu í vissum köflum um dætur Njáls. Trú og landnám 1970 k. 35 Hera og Gauk- urinn bls. 203. „Hafi Bergþórs- hvoll verið upphafshvoll sköpunar í Rangárhverfi er þannig mjög sennilegt að þar hafi „sköpunar- goðið“ búið með þrem sonum sín- um og dætrum. Eitt smáatriði í sögnum „Kær- leiksgyðjanna“ er mjög athyglis- vert í sambandinu: I Lakoníu og Aþenu voru aðeins tvær þeirra tignaðar á vissu tímaskeiði; Er til fræg mynd af þeim er sýnir andlit „tveggja þeirra“ - sú þriðja snýr baki við skoðanda. Þetta er ein- mitt eitt helsta einkenni þeirra Njálsdætra. Aðeins tvær þeirra eru nefndar til sögunnar „Helga og Þorgerður", nafn þeirrar þriðju fer leynt, enda þótt greinilega sé tekið fram, að þær systur hafi verið þijár. Kemur þannig hvert smáatr- iði heim af öðru.“ Steinkross 1976 k. 37 Askur og Embla. Þar er vitnað í gríska hug- myndafræði, þar gat að líta mynd, er tvær hliðar „mánagyðju" sneru andlitum fram, en sú þriðja aftur. Hér tákna dætur Njáls, fortíð, nútíð og framtíð í allegórískri merkingu. Framtíðina sjá menn ekki, nema Njáll, sem er forvitri. „Framtíðin hefur verið ein þriggja róta hans.“ Nú segi ég við þessu: Engin af dætrum Njáls sést greinilega. And- lit þeirra sjást ekki, þeim er hvergi lýst. Tæpast hafa þær verið kær- leiks- eða mánagyðjur að fegurð. Alltaf er pláss á kálfsskinni til að lýsa fegurð kvenna, sbr. Hallgerði og Þorgerði dóttur hennar. Rammislagur 1978 Tónlist og fornaldarsögur k. 30 bls. 217. Þar kemst E.P. að þeirri niðurstöðu, að hin „ónefnda dóttir Njáls hafi heitið Guðrún“. „Var sú að sjálf- sögðu kven-hliðstæða Gríms.“ Netto asko msm qmm oturbo nilfisk emide cc =0 1— U— > co '=D VELKOMIN í FÖNIX OG GERIÐ cz "D < O —I m Q _j LU cc < Ll_ REYFARAKAUP 1 m' i— y> zn TT <c o o CD Við bjóðum allt sem þig vantar o 3 1 Q CC o INNRÉTTINGAR OG RAFTÆKI < rri' 1— y> ZJD cp í eldhúsið, baðherbergið, þvottahúsið og að auki fataskápa í svefn- £ o CO herbergið, barnaherbergið og anddyrið. cz xr c= ZD LU =n SÖLUSYNING UM HELGINA za cn 5 ZJJ cc < INNRÉTTINGAR OG RAFTÆKI Á TILBOÐSVERÐI > cn Ll_ O BOTNFROSIÐ VERÐ - ALLT AÐ 30% AFSLÁTTUR GÖ' CO £ jj> cc < 1 Velkomin í Fönix. Heitt á könnunni og ís fyrir börnin. 'Qj > Þeir sem versla fyrir kr. 10.000,- eða meira, geta tekið þátt í lau- =D < Q - i fléttri Fönix-getraun og unnið Nilfisk-ryksugu að verðmæti -< Ps LU cc kr. 31.350,- eða einhvern 5 aukavinninga. C= o c= < CD Z h- 1— 'LLl H| LAUGARDAG 10-16 |^%/r OPgffl SUNNUDAG 12-17 /JTUl 11J% 30 CO £ cc z AÐRA DAGA 9-18 HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420 25 • EMIDE NILFISK Oturbo Gnw (^Ö) ASKO NettOUe Rósa B. Blöndals „Helgi/Helga, Skarphéðinn/Þor- gerður, Grímur/Guðrún.“ Um þetta verða menn að lesa nánar. Hér er auðvitað allt í alleg- órískri merkingu. í Hvolfþak him- ins 1985 er E.P. horfinn frá Guð- rúnarnafninu og æ síðan. Hér spyr höf. á bls. 55 k 9: Hvers vegna notaði Brunelleschi brotið 5/6? Þar sem höf. kallar stórskrítna en hugsanlega lausn á dæminu: hinir 5 í 6 skiptri „línu“ Rangárhverfis voru þá e.t.v. tölurnar 1-3-5 „syn- ir“ Njáls, þeir þrír er sáust og nefndir voru til sögunnar, en töl- urnar 2-4-6 voru e.t.v. „dætur“ Njáls þijár, hvar af einungis tvær sáust og voru nefndar til sögunn- ar, en ein var hulin sjónum - utan þríhyrnings mannlífs handan við Pólstjörnu. Síðast í svargrein sinni til mín, segir E.P.: „Þannig er það einkenni á Glast- onbury í Somerset (frumheim- kynnum) Njáls ættarinnar, að dæturnar voru þijár, tvær sjást, en ,,ein“ sneri ávallt við þeim baki. Svo mikilvægt er þetta atriði, að unt er að rekja það í hvorum tveggja strauma allegóríunnar, sem kennd er við Platon og Pyth- agoras. Dæturnar „tvær“, sem voru í raun þijár - ganga beinlín- is inn í vönduðustu og dýpstu töl- vísina: „Dæturnar" merktu í alleg- óríunni Tíðirnar þijár, fortíð, nútíð og framtíð og enginn fékk séð eina þeirra, „framtíðina“ - nema Njáll. Því hann var forvitri. Hann einn vissi nafn hennar.“ Hér sést best hversu ólíkt er sögusviðið og allegóría. Ef talað er um svo nefnda (hina ónefndu) dótt- ur Njáls sem lifandi konu á sínum tíma, en ekki sem framtíð. Þá er augljóst, að Njáll veit ekki einn nafn hennar, heldur veit Bergþóra það líka, heimilisfólk og nágrannar. Sömuleiðis sést að söguritari Njálu veit einnig nafn hennar. Hann valdi það að kynna nöfn Njálsdætranna þriggja í brúðkaupi Gunnars og Hallgerðar. Hann telur Þorgerði Njálsdóttur upp með Katli í Mörk manni hennar, næst á eftir Þórhildi og Þráni Sigfússyni bróður Ketils. Síðan alla hina Sigfússonu. Konur þeirra ekki nefndar, þær koma ekki meir við sögu. Þá Dala- menn. Síðan stendur orðrétt í Njálu kap. 34 bls. 76: „Þar var ok brúðr- in í för með þeim [Dalamönnumj og Þorgerðr dóttir hennar ok var hon kvenna fríðust. Hon var þá 14 vetra gömul. Margt var með henni annarra kvenna. - Þar var ok Þórhalla dóttir Ásgríms Elliða- Grímssonar ok dætur Njáls tvær Þorgerðr ok Helga." Kemúr ekki til mála að höf. Njálu telji Þorgerði í Mörk tvisvar í sömu veislu. Kristnitaka og Kirkja Péturs 1995. Sama stef, dæturnar þijár, „tvær“ sjást, ein sést ekki. Einar Pálsson, fræðimaður, gengur sjálfur frá Njálsdætrum síð- ast þannig, að hann virðist enn ekki hafa áttað sig á því, að Þor- gerður sú sem talin er upp í Hlíðar- endabrúðkaupi með Þórhöllu konu Helga og Helgu systur sinni er jafn sýnileg þar eins og aðrir gestir. í kap. 129 í Njálu, segir svo: „Ok þá gekk út Þorgerðr Njálsdótt- ir ok Helga systir hennar.“ Þor- gerður talin á undan. Hún er þar jafn sýnileg og Helga kona Kára, þótt hún bæði hjá E. Ólafi Sveins- syni og öðrum fræðimönnum gangi út úr brennunni undir nafni Þor- gerðar systur sinnar og alnöfnu í Mörk. Þorgerður „hin ógefna" gengur því tæpast inn í „meginatriði laun- sagnarinnar", þót af henni fari lítil saga. Segja má, að hún gæti næstum verið utan þríhyrnings mannlífs, handan við Pólstjörnu. Dætur Njáls, heita: „Þorgerður kona Ketils í Mörk, önnur Þorgerð- ur heimasæta á Bergþórshváli og sú þriðja Helga kona Kára Söl- mundarsonar.“ Höfundur er rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.