Morgunblaðið - 17.03.1996, Síða 42

Morgunblaðið - 17.03.1996, Síða 42
42 SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni 5AYS HERE THAT THERE ARE OOO ATT0RNEY5 IN THI5 COUNTRY.. Hér stendur að það séu 860.000 lögfræðingar í þessu landi. Segðu lögfræðingi aldrei neitt sem fær hattinn hans til að fjúka af honum. BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Simi 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Peð til vamar biskupi Frá Margréti Einarsdóttur: ÉG ER bara peð, sem verð vitni að áburði á hendur biskupi mínum. Áburði, sem ekki er hægt að kæra, vegna þess hve langur tími er liðinn síðan meint brot voru framin. Enginn veit hvað í raun og veru gerðist og hægt væri að fara út í langar og heimspekilegar umræður um sekt og sakleysi í svona málum. Fómarlömb í ofbeldismálum - kynferðislegum eða ekki - eiga alla mína samúð, hvort sem þau eru fórn- arlömb eða telja sig vera það. En til að árétta hve erfið svona mál eru viðfangs, langar mig að segja frá því, að ég hef þurft að leita til prests og starfsmanna innan heil- brigðisstéttanna, full sektarkenndar yfir hlutum sem ég taldi mig þurfa að gráta yfir. Ég upplifði mig eins og holdsveika konu, sem enginn þyrði að sýna samúð með snertingu af ótta við að eitthvað það gerðist, sem kom- ið gæti viðkomandi í koll síðar. Mér fannst það sárt og jók á harm minn. Nokkru síðar var ég lögð inn á geð- deild vegna veikinda og þar upplifði ég beiðni starfsfólks um að ég klæddi mig úr úlpunni sem grófa kynferðis- lega áreitni og neitaði því alfarið. Orð manna Þetta snertir mál biskupsins að sjálfsögðu ekki nema að hluta. Það er auðvitað miklu breiðara. En það breytir ekki því að mér koma í hug orð séra Björns Halldórssonar í Lauf- ási: „Hann fótstig getur fundið, sem fær sé handa þér“ - og þau ætti bisk- upinn að gera að sínum. Miklu frek- ar en að sjá sjálfan sig í orðum Steins Steinars: „Skyldi manninum ekki leiðást að láta krossfesta sig?“ Sannkristnum manni, ekki síst æðsta hirði kristins safnaðar, ætti að vera Ijóst að Guð er með honum - jafnt sekum sem saklausum. Sek- um býðst honum fyrirgefning, sem ein skiptir máli - jafnvel þótt heim- urinn snúi við honum baki. Saklaus- um eru honum flestir vegir færir. Sé hann saklaus vinnur tíminn með honum. Kristur svaraði því til að ásakanir í sinn garð væru orð manna, en hótaði engum málsóknum. Væri ekki rétt að biskup íslensku kirkjunnar brygðist eins við? Fórnaði sér jafnvel á altari rógsins, eins og sá sem hann hefur að fyrirdæmi? Og hver veit nema það yrði hann, sem á endanum stæði uppi sem sig- urvegari. Ekki endilega sigurvegari yfir þeim sem kalla hann til svara, heldur sá sigurvegari sem vinnur sig- ur á sjálfum sér. Og jafnvel heimin- um um leið. Veritas liberabit vos. MARGRÉT EINARSDÓTTIR, 060459-3479. Hvað er nauðgun? Frá Ragnheiði Briem: EIN ÞEIRRA kvenna, sem saka séra Ólaf Skúlason um kynferðislega áreitni, hefur skýrt frá því opinber- lega að biskup hafi læst hana með sér inni í gluggalausu herbergi í kirlq'u sinni að kvöldlagi. Það sem síðan á að hafa gerst nefnir hún nauðgunartilraun. Allir sem litið hafa biskup Islands augum sjá að hér er enginn væskili á ferð. Dettur einhverjum í hug að nauðgari með slíka líkamsburði hefði látið sér þetta ákjósanlega tækifæri úr greipum ganga? Trúa menn því í alvöru áð prestar á íslandi séu vísir til að reyna að nauðga sóknarbömum sínum í kirkjunni? Margumræddar ásakanir á hend- ur biskupi minna óþægilega á ýmis mál sem komið hafa upp erlendis og skýrt hefur verið frá í fjölmiðlum á umliðnum áratugum. Mér er sér- staklega minnisstætt gamalt atvik þegar hópur unglingsstúlkna í bandarískum gagnfræðaskóla sak- aði kennara sinn um mjög alvarleg siðferðisbrot. Lýsingar námsmeyj- anna á orðum og athöfnum kennar- ans voru lítt geðslegar svo að ekki sé meira sagt. Voru frásagnirnar teknar trúanlegar enda bar stúlkun- um saman í hvívetna. Kennaranum var umsvifalaust vikið úr starfi og hvergi vinnu að fá eftir það - sem vonlegt var. Fór svo að lokum að útskúfunin varð honum óbærileg og hann svipti sig lífi. Hann fékk þó uppreisn æru nokkru seinna þegar stúlkurnar ját- uðu að áburðurinn hefði verið upp- spuni frá rótum. Þær játningar komu því miður of seint. RAGNHEIÐUR BRIEM, íslenskukennari við Menntaskólann í Reykjavík. Hvatning til herra Ólafs Skúlasonar Frá Konráð Friðfínnssyni: ÉG GET ekki lengur orða bundist. Og nú langar mig að leggja orð í belg varðandi ásakanimar á hendur biskupi vorum, herra Ólafi Skúla- syni. Ég vil hvetja herra biskupinn til að vera staðfastan og hvika hvergi frá eigin sannfæringu né trú á Jesú Krist, til að hann fái staðist þann storm sem nú bylur á honum. Og við fjölmiðlana og almannaróm vil ég segja eftirfarandi: Ykkur mun ekki takast að flæma biskupinn yfir íslandi úr embætti, hann mun sitja áfram. Og þetta segi ég fyrir þær sakir að ég veit að þó að vald ykkar samanlagt sé mikið í dag er samt vald þess meira, sem er höfuð kirkj- unnar, þ.e. Jesús Kristur. Slíðrum því sverðin og snúum okk- ur að uppbyggilegri vangaveltum. Og munum að hatur og hefnigirni leysa engan vanda, heldur þvert á móti auka hann. KONRÁÐ FRIÐFINNSSON, Blómsturvöllum 1, Neskaupstað. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt i upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.