Morgunblaðið - 17.03.1996, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 17.03.1996, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSIIMS SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996 43 Árshátíðir og göng Frá Pálínu Magnúsdóttur: NÚ EIGA sjúkir og aldraðir að leggja í „púkk“ fyrir ríkissjóð upp á tvær milljónir á mánuði. Er ekki hægt að fara aðrar leiðir en að lækka lífeyrisuppbót þessa fólks? Nú er verið að eyða úr þessum sama sjóði fyrir veislu þingmanna, og segja þeir að það sé nú ekki mikið að bjóða þeim upp á eina árshátíð árlega, á okkar kostnað. Vita þeir ekki að á allar aðrar árshátíðir þarf fólk að borga sjálft. Þeim sem eru í fullri vinnu með allskonar fríðindi að auki fínnst þetta bara smá-peningar, ein millj- ón og tvöhundruð þúsund. Hver átti uppástunguna? 20 þús. á mann miðað við 60 þingmenn. Á meðan þeir bjóða sér svona skemmtun á okkar kostnað eins og svo margt annað sem þeir bjóða sér geta öryrkjar aldrei farið á árshátíð hjá sínu stéttarfélagi nema spara matarpeningana. Rík- issjóður er ekki sjóður einkastofn- unar eins og þeir leyfðu sér að miða við, þegar fundið var að. Þetta er alveg ótrúlegt og vekur reiði flestra. Eg veit ekki um neitt stéttarfélag sem býður ókeypis á árshátíð, en þið? Bfllinn Nú er búið að útiloka að við öryrkjar sem höfum átt bíl, getum endurnýjað bílinn okkar, með því að lengja veitingu styrks til bif- reiðakaupa, jafnvel þó maður kom- ist ekki „spönn frá rassi“ nema í bíl. Ég geri fastlega ráð fyrir því að tryggingarnar (eða ríkissjóður) greiði ekki fyrir þær viðgerðir á bílum öryrkjanna. Þeir eiga fullt í fangi með að halda bílnum þótt hann sé ekki í viðgerðum, ég miða þá við meira en 75% ör- yrkja. Nú vita allir að bílarnir hækka ár hvert en gamli bíllinn fellur í verði svo mismunurinn verður óviðráðanlegur. Hveijir þurfa á bílum að halda frekar en öryrkjar? Göngin Svo vil ég minnast á göngin sem á að fara að ráðast í á þessum verstu tímum. Þeir ætla að selja aðgang að þeim og segja að það sé ekki hærra verð en að fara með Akraborginni. Ég veit ekki hvort þeir reikna allan mismun, við þurf- um nú að aka að göngunum, og þá þarf að reikna meira en bensín. Mig langar að spyija þessa menn, sem allt vita um jarðgöng, hvað þeir ætla að gera í sambandi við útbiástur vöruflutningabíla og stórra hóp-bíla auk annarra bíla um göngin? Þeir sem hafa farið í viss göng í Noregi vita að þau eru með mikinn koltvísýring og fólk hefur liðið út af vegna súrefnis- leysis í þeim. Þeir hafa ekki minnst á þau göng. PÁLÍNA MAGNÚSDÓTTIR, Dofrabergi 11, Hafnarfirði. Areitni Frá Hákoni H. Kristjónssyni: ÓSKÖP er allt þetta tal um kynferð- islega áreitni á þröngu umræðu- plani. Þeim, sem mest óskapast yfir kynferðislegri áreitni í þjóðfé- laginu, finnst þó sennilega að þeir séu að gera góða hluti og að þeir séu með þetta í víðu samhengi að því leyti til að þeir fella allskyns óvelkomna snertingu og óvelkom- inn talsmála undir hugtakið. Þó ganga menn að sjálfsögðu mislangt í þessu sem öðru. En er ekki tími til kominn að tala um áreitni I enn víðara samhengi? Hvað með, al- mennt talað, starfsáreitni þar sem yfirboðari getur ekki séð undirmann sinn í friði við störf hans? Rýrir hlut hans í starfinu, niðurlægir hann gagnvart öðru starfsfólki, og reynir leynt og ljóst að gera honum lífið leitt. Á þolandinn í starfs- áreitni-málinu að einhveiju leyti lélegri siðferðislegan rétt en þoland- inn í kynferðisáreitnimálinu? Ég bara spyr? Starfsmaðurinn er kannski hámenntaður á sínu sér- sviði og hefur unnið sín störf á sama stað í áratugi undir hand- leiðslu annarra yfirmanna, sem ekki sáu ástæðu til að finna að störfum hans heldur þvert á móti notuðu öll tækifæri til að prísa og vegsama starfsmanninn. Hvað með - ólíkt því sem oftast gerist með kynferðis- lega áreitni þar sem allir eru sam- mála um að erfitt sé um sannanir - ef undirmaður þessi getur vísað til þess að margir geta borið vitni um þessa starfsáreitni. Ef dómstóll götunnar telur sig þess umkominn að dæma einn sekan um kynferðis- lega áreitni án nokkurra sannana ber þá ekki dómstóli götunnar skylda til að dæma annan sekan um starfsáreitni þar sem málsatvik þurfa ekki að vefjast fyrir neinum? Dómstóll götunnar veitir þeim lið sem hyggur á hefndir, en sá sem hyggur á hefndir skyldi hugsa vel sinn gang því hann heldur sárum sínum opnum, sem að öðrum kosti myndu gróa. Mér finnst hálf-skrýt- ið hvernig orðin vanhæfur og trún- aður eru skyndilega orðin aðalvopn sumra manna. Sá sem kynnir sér mál vegna embættisskyldu sinnar og kemst að einhveiju gruggugu í pokahorni er skyndilega orðinn van- hæfur til að fara með málið. Og sá sem borinn er sökum, hinum alvar- legustu sökum, er skyndilega talinn hafa brotið trúnað á sögumanninum þegar sá sem ráðist er á reynir að bera hönd fyrir höfuð sér. HÁKON H. KRISTJÓNSSON Goðheimum 10, Reykjavík. Til sölu á Kópaskeri 110 fm einbýlishús í góðu ásigkomu- lagi. Tilvalið fyrir trillusjómann eða félagasamtök. Stutt er í marga fallega staði, t.d. Ásbyrgi og þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum o.fl. Upplýsingar í síma 587 3541. 10,5 ha sumarhúsaland í Grímsnesi Tilboð óskast í 10,5 hektara af óskipulögðu sumarhúsa- landi sunnan við Kerið í Grímsnesi. Landið liggur fjarri umferð, er kjarri vaxið u.þ.b. 50 mínútna akstur frá Reykjavík, slitlag alla leið. Tilvalið fyrir félagasamtök, fyrirtæki eða verktaka. Eitt vinsælasta sumarhúsa- svæði landsins, stutt í þjónustu, sundlaugar, golfvelli, veiði og margar helstu náttúruperlur Suðurlands s.s. Gullfoss, Geysi, Þingvelli og Laugarvatn. Aðgengilegt allan ársins hring. Frekari upplýsingar veita sölumenn okkar. Húsakaup, Suðurlandsbraut 52 v/Faxafen, s. 568-2800. Opið hús milli kl. 13 og 16 Austurströnd 12-2. hæð Mjög skemmtileg 3ja herb. íbúð. Hentar sérlega vel eldra fólki sem og barnafólki. Bílgeymsla og þvottahús á sömu hæð. Engin þrif á sameign. í næsta nágrenni má m.a. finna Hagkaup, Bónus, apótek, sundlaug, heil- sugæslu, barnaskóla og bókasafn. Tryggvi býður ykkur velkomin milli kl. 13 og 16. Borgir, fasteignasala, sími 588 2030. Opið í dagkl. 12-14. OPIÐHÚS í dag, sunnudag, milli kl. 14 og 17 GRETTISGATA 64 - Barónsstígsmegin 96 fm falleg íbúð á 3. hæð í vönduðu steinhúsi á þess- um vinsæla stað. íbúðin er skipt í 2 rúmgóð herb. og tvær rúmgóðár stofur. Endurnýjað eldhús, gluggar og gler. Hús nýviðgert að utan og málað. íbúðin er laus strax. Áhv. 2,3 byggsj. Verð 6,9 milj. Jón og Jóhanna sýna í dag milli kl. 14 og 17. Húsið - fasteignasala, Suðurlandsbraut 50, sími 533 4300. Opið ídag milli kl. 12 og 14 Opið hús - sýning - Hraunbær 118 3ja herb. herbtil sölu Ca 80 fm íb. á 3. hæð. Hagstætt verð. Ahv. 3,9 millj. Til sýnis í dag milli kl. 14 og 19. Ágúst á bjöllu, sími 587-4344. FJÁRFESTING FASTEIGNASALA" Borgartúni 31,105 Rvík, s. 562 4250. Lögfr.: Pétur Þór Sigurðsson, hdl. Opinhúsídag Brekkustígur 17 - 3ja + bílskúr Falleg 3ja herb. íbúð á 2. hæð í 4ra íbúða húsi (byggt 1973). Innbyggður bílskúr. Stórglæsilegt nýstandsett baðherb., 2 rúmgóð svefnherb. Parket. Áhv. húsbréf 4 millj. (5% vextir). Verð 8,8 millj. Þórdís og Steingrím- ur verða með opið hús í dag milli kl. 14 og 17. Allir velkomnir. Boðagrandi 6 - 2ja herb. Gullfalleg 62 fm íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli á skemmti- legum stað. Parket. Góðar sválir. Hús og sameign í toppstandi. Verð 5.650 þús. Björn og Áslaug verða með opið hús í dag miili kl. 14 og 16. Valhöll, fasteignasala, sími 588-4477. Borgarfjörður Til sölu eru hjá undirrituðum eftirtaldar fasteignir: Á jörðinni Höfn í Leirár- og Melahreppi 172 fm einbýlis- hús '(Nýhöfn), byggt 1976, ásamt 4.125 fm leigulóð, heitum potti og litlu gróðurhúsi. Eigninni fylgir hesthús og hlaða ásamt 2 ha eignarlóð. Hitaveita. Verð 8,2 milij. Á sömu jörð er einnig til sölu 176 fm einbýlishús (Höfn 2), byggt 1986 ásamt 5.000 fm leigulóð. Hitaveita. Verð 6,0 millj. Allar nánari upplýsingar gefur undirritaður. Gísli Kjartansson hdl., lögg. fasteigna- og skipasali, Borgarbraut 61, Borgarnesi, sími 437 1700, fax 437 1017. Opið hús í dag frá kl. 13-16 Boðahlein 9, parhús við Das, Hfj. Sérlega fallegt, vandað og vel staðs. 85 fm parh. á einni hæð með sólskála. Parket. Allt sér. Þjónusta tengd DAS. Verið velkomin til Guðbjargar. Opið hús í dag f rá kl. 14-17 Vindás 4,3ja með bílskýli Nýkomin mjög falleg 86 fm íb. á 2. hæð í litlu góðu fjölb. auk bílskýlis. Parket. Svalir. Laus fljótl. Góð eign. Ahv. byggsj. rík. ca 2,2 millj. Verð 7,3 millj. Verið velkomin til Sæmundar og Margrétar. Nánari upplýsingar gefur: Hraunhamar fasteignasala, sími 565-4511. FASTEICN ER FRAMTID FASTEIGNA SVERRIR KRISTJANSSON LÓCCILTUR FASTEICNASALI SUÐURLANDSBRAUT12,108REYKJAVÍK, FAX5687072 m MIÐLUN SIMI568 7768 Opið í dag frá kl. 13-14 Atvinnutækifæri Til sölu lítil ísbúð + smurbrauðsstofa í eigin húsnæði. Allar innréttingar og tæki eru ný og í háum gæða- flokki. Frábær staðsetning á miklu umferðarhorni. Sólheimar - sérhæð Til sölu falleg 130 neðri sérhæð ásamt 32 fm bílskúr sem er langur og getur tekið tvo bíla. 3-4 svenherb. o.fl. Góð eign. Verð 10,8 millj. Opið hús í dag frá 14-17 Skólagerði 40 - Kóp. - sérhæð Góð og mikið endurnýjuð 4ra herb. 113 fm sérhæð á 1. hæð í þríbýlishúsi. Nýlegt eldhús og bað, 3-4 svefn- herb., merbau parket o.fl. Gott hús. Fallegur garður. Bílskúrsréttur. Áhv. 3,6 millj. byggsj. og 1 millj. lífeyris- sjóður. Verð 8,9 millj.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.