Morgunblaðið - 02.04.1996, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
^ /n&*yvlA FÓfZ/ÝUzÐ / /M/(S TÍL L^ÓS/y/VNO J þAO MJZ / {b/nAMM ÚE>L e<S T — —-<V\. / jós/n \zoeo HetT.t | (é6/MJS*T/ SNUPIP/ \ 1 YíJÓS/F/VNOAIZ/NN WR L S/C/TM/^C l / J C en e/NHveeM , \ / !/£<3/NN TÓkST/Me/Z/ AO \/eeAAL\scG 7 DASAM/-E6t>/*\
'9/ I
Ferdinand
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylgavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329
• Netfang: lauga@mbl.is
Askorun
tíl kennimanna
kirkjunnar
Frá Snorra Bjarnasyni:
NÚ ER loks kominn úrskurður bisk-
ups í Langholtskirkjudeilum. Ekki
er hann fullkominn fremur en önnur
mannanna verk en verður þó að
teljast áfangi. Sem kristinn maður
hef ég eins og aðrir hér á landi fylgst
með umræðum sem um deilur þess-
ar hafa verið og öðru þeim tengdu
með vaxandi áhyggjum. Mörg þung
orð hafa fallið á báða bóga eins og
gengur í hatrömmum deilum sem
þessum. Mál að linni myndi margur
segja. Vonir mínar um að svo verði
dvínuðu verulega við þau orð sem
formaður prestafélagsins lét falla í
viðtali við fjölmiðla sama dag og
úrskurður var kveðinn upp. Að mér
læðist sá grunur að sumir starfs-
bræðra hans hafí sömu meiningar
og styrkja fréttir þá skoðun. Leikir
vilja gjarna sættast en lærðir eigi.
„Auga fyrir auga og tönn fyrir
tönn“ stendur í lögmáli Gamla testa-
mentisins. Gömul gyðingalög sem
sumir prestar vilja hefja til vegs og
virðingar. En hafnaði ekki Kristur
þessu ákvæði í boðskap sínum? Er
ekki svo komið að þeir prestar sem
hvorki vilja né geta fyrirgefið mis-
gjörðir sem öðrum hafa orðið á deilu
þessari, hafni í orði og á borði þeim
kenningum sem frelsarinn sjálfur
kenndi? Er ekki svo komið að yfir-
maður prestanna, biskupinn, hafi
fulla ástæðu til að kanna hvort ein-
hveijir þjónandi prestar í kirkjunni
hafi unnið gegn þeim heitum sem
þeir unnu þegar þeir vígust til þjón-
ustu við kirkju Krists?
Þessar spurningar brenna á mér
og e.t.v. fleiri landsmönnum þegar
ýmsir prestar tjá sig í fjölmiðlum,
vitna gjama í Biblíuna, málstað sín-
um og að því virðist drottnunargirni
til stuðnings, svo mörgum óar sá
hugsunarháttur sem þar kemur
fram. Það moldviðri sem upp hefur
þyrlast hefur komið sumum til að
yfirgefa kirkjuna. Ekki skal dæma
allan skóginn af nokkrum fúnum
tijám og þrátt fyrir allt eru til marg-
ir prestar sem deilt geta kjörum og
kærleika með sóknarbörnum sínum.
Hafna drottnunargirni og yfirdreps-
skap. Flestir leita til kirkjunnar ein-
hverntíma ævi sinnar. Því má telja
það fljótfærni og skammsýni að
bregðast við með þessum hætti.
„Sá yðar er syndlaus er kasti
fyrsta steininum," hefur Biblían eft-
ir Kristi. Nú legg ég til að prestar
fundi með biskupi sínum, hætti að
hrópa hann út og krefjast afsagnar,
reyni að komast að kristilegri niður-
stöðu sem allir mættu hafa sóma
af en hætti að skemmta skrattanum.
Prestafélagsformaðurinn vitnaði í
Hallgrím Pétursson, sem ég skil þó
ekki hvernig megi verða málstað
hans til framdráttar nema þá sem
stuðningur við sundrungarmarkm-
iðið. Þykir mér nú kenning presta
á boðskap Krists vera orðin nokkuð
sundurleit og blendin. Ætla ég að
enda skrif mín með því að vitna
einnig í það sama skáld og formað-
urinn gerði í sínu máli.
Gefðu að móðurmálið mitt,
minn Jesú þess ég beiði,
frá allri villu klárt og kvitt
krossins orð þitt út breiði
um landið hér til heiðurs þér,
helst mun það blessun valda
meðan þín náð lætur vort láð
lýði og byggðum halda.
SNORRI BJARNASON,
fýrrv. organisti og
sóknarnefndarmaður.
Yfirlýsing
Frá Ragnari Jónssyni:
AÐ GEFNU tilefni, vegna blaða-
greinar biskups, herra Ólafs Skúla-
sonar, í Morgunblaðinu 26. sl., vil
ég geta þess að það var reynt að
koma í veg fyrir það að ég spilaði
í Langholtskirkju um síðustu jól sem
organisti við hátíðarmessur. Jón
Stefánsson organisti sem hafði farið
í fyrirvaralítið sumarleyfi á miðjum
vetri, lýsti því yfir fyrir jól að organ-
istafélagið stæði með sér og það
yrði reynt að koma í veg fyrir það
að annar organisti kæmi til starfa í
Langholtskirkju um hátíðirnar.
Það tókst ekki að koma í veg fyr-
ir það að ég spilaði í Langholts-
kirkju fyrr en eftir 21. janúar 1996.
Þá hótaði Félag íslenskra tónlistar-
manna sr. Flóka málaferlum ef ég
spilaði áfram við helgihald í Lang-
holtskirkju.
Þrátt fyrir það að biskupinn hafí
í fjölmiðlum frammi fyrir alþjóð, þ.e.
í sjónvarpi, óskað eftir því að Jón
Stefánsson léki á orgelið um jólin,
þá virti hann þá ósk biskups að vett-
ugi. Það finnst mér vera hreint alveg
ótrúlegur maður sem að hundsar ósk
biskups yfir íslandi. Eða var eitthvað
annað ákveðið?
Það slitnaði aldrei upp úr sam-
starfi okkar sr. Flóka, heldur var
eins og hér að framan greinir komið
í veg fyrir það að ég gæti starfað
með honum eftir 21. janúar sl. Sr.
Flóki Kristinsson er sérstakt ljúf-
menni að starfa með, en lög og leik-
reglur sem gilda í þjóðfélaginu, t.d.
í spurningaliði íslands í Kontra-
punkti, þá er það fyrirliðinn sém
ræður. Það gildir ekki í Langholts-
kirkju að fyrirliðinn ráði.
Um úrskurð sr. Bolla Gústavsson-
ar, vígslubiskups, vil ég taka það
eitt fram að þar úrskurðar „frímúr-
ari“ reglubróður í hag, þannig eru
lög reglunnar.
RAGNARJÓNSSON,
organisti.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.