Morgunblaðið - 03.05.1996, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ1996 43
AÐSENDAR GREINAR
Getur rön g innihalds-
lýsing verið lífshættuleg?
ALMENNINGUR
treystir því að það sem
hann leggur sér til
munns sé honum ósk-
aðlegt og heilnæmt.
Að öllu jöfnu er það
svo í okkar þjóðfélagi
en til eru einstaklingar
sem þjást af fæðuof-
næmi og aðrir sem
haldnir eru fæðuóþoli.
Fyrir þessa einstakl-
inga er sérstaklega
mikilvægt að þær upp-
lýsingar sem veittar
eru um matvöru séu
réttar.
Ekki alls fyrir löngu
var frétt í sænskum
blöðum þar sem sagt var frá því
að drengur á 15. ári hefði dáið eft-
ir að hann fékk sér bita af köku.
Drengurinn, sem vissi að hann hafði
ofnæmi fyrir jarðhnetum, fór ásamt
föður sínum á kaffihús, þar sem
hann pantaði sér möndluköku í
þeirri trú að í henni væru einungis
möndlur. Eftir aðeins tvo bita af
kökunni komu fram ofnæmisein-
kenni, kláði í hálsi og bjúgur, sem
torveldaði öndun. Ofnæmislyf sem
drengurinn bar á sér dugðu
skammt. Ofnæmisviðbrögðin leiddu
til þess að drengurinn fékk alvar-
legt ofnæmislost og var hann látinn
áður en á sjúkrahúsið kom. I ljós
kom að viðkomandi „möndlukaka“
innhélt ekki möndlur heldur jarð-
hnetur.
Framleiðandinn bar því við að
jarðhnetur væru ódýrara hráefni en
möndlur og að hann
gerði sér ekki grein
fyrir hættunni sem
skapaðist af því að
veita rangar upplýs-
ingar um innihald kök-
unnar, enda þyldi
meirihluti fólks jarð-
hnetur og fyndi lítinn
sem engan mun. Fjögur
dauðsföll hafa verið
skráð í Svíþjóð síðustu
ár sem rekja má til
neyslu á fæðu sem ein-
staklingurinn var með
ofnæmi fyrir. Alvarleg-
ustu tilvikin eru rakin
til jarðhnetu-, hnetu-
og sojaofnæmis.
Það er alvarlegur hlutur að veita
ekki fullnægjandi upplýsingar um
samsetningu matvæla eða blekkja
neytendur. Vörusvik eru refsiverð
og geta valdið alvarlegu tjóni. Hér
á landi hafa engin dauðsföll verið
rakin beint til fæðuofnæmis en upp
hafa komið alvarleg tilfelli þar sem
fólk hefur verið lagt inn á sjúkra-
hús þungt haldið. Atvik sem þessi
ættu að vekja matvælafyrirtæki til
umhugsunar um þá ábyrgð sem á
þeim hvílir.
Notkun sojapróteina í kjötvörum
hefur aukist á síðustu árum og er
það áhyggjuefni fólks með soja-
ofnæmi að sumir matvælaframleið-
endur geti þess ekki í innihaldslýs-
ingum. Önnur hlið á vandanum er
sú að sum tilvikin hafa verið rakin
til krossmengunar. Fólk hefur t.d.
fengið leifar af hnetujógúrti í jarð-
Ófullnægjandi upplýs-
ingar um innihald mat-
væla geta, að mati Sig-
ríðar Klöru Arnadótt-
ur, valdið ofnæmis-
sjúklingum miklum
skaða, jafnvel dauða.
arbeijajógúrti og er það hlutur sem
framleiðendur verða að taka til
skoðunar. Þar ríður á að huga að
hlutum eins og þrifum á vélarkosti
og áhöldum á milli tegunda í fram-
leiðsluferli eða taka síðast í fram-
leiðslu þær tegundir sem innihalda
algenga ofnæmisvalda til að
minnka líkur á því að einstaklingur
með ofnæmi veikist eftir neyslu á
vöru sem á alls ekki að innihalda
viðkomandi hráefni.
Neytendur eiga rétt á að fá ná-
kvæmar upplýsingar um samsetn-
ingu matvæla sem dreift er til sölu.
Þær upplýsingar eiga að koma fram
í innihaldslýsingu á umbúðum mat-
vöru. Þegar um óinnpakkaða vöru
er að ræða á söluaðili að geta veitt
réttar upplýsingar, jafnt fyrir fisk-
rétt í kæliborði og köku í bakaríi.
Höfundur er deildarmatvæla-
fræðingur hjá Hollustuvernd
ríkisins.
Sigríður Klara
Arnadóttir
NÝJUNG ■■■ M bæði sér áranaurinn oa
111 1 J UIH WR LIFT-MINCEUR FRÁ CLARINS wm y JgÍSánda valinna efna með jppérlega mótandi eiginleika dregur úr „appelsínuhúð" Strax frá fyrstu notkun. Jurtaefnið keratólín mýkir húðina og með hverjum deginum sem líður verður hún sléttari og þéttari. fh’. *
Frískar oa fearar iift-Minceur kremið gefur frískleikatilfinningu sem varir. Það eykur blóðstreymi í yfirborði húðar og dregur úr þyngslatilfinningu í fótum. • Hl'
f"^7' \ \ I ”9i
n tBí éi
— HÍ mBÍM Erafflárskarandi.árangúr,
tft-ivúiice'xií /wU , * % 1 - 94% kvenna upplifðu
Wg/ff frískleikatilfinningu í húðinni strax við fyrstu
notkun.
I Eftir daglega notkun í 4 vikur:
' -86% fundu að húðin
:: - ' varð stinnari.
-71% tóku eftir mótandi
t B áhrifum kremsins.
Lift-Minceur frá Clarins: V
Hinstök reynsla i meöferö húðar. Ekki prófað á dýrum. CLARINS
Veldurekki ofnæmi. P A R 1 S
K A N A D A
Háskólanám
í Nova Scotia
- nyrog spcnnandi kostur!
í Nova Scotia eru 12 háskólar
sem bjóða nemendum afburða-
aðstöðu. Skólarnir eru í mjög
háum gæðaflokki þrátt fyrir
að námskostnaður þar sé
minni en víða annars staðar.
< Nova Scotia er í næsta nágrenni við iðandi heims-
; menninguna. Þar er blómlegt og lifandi mannlíf og
I landslagið stórfagurt. K^nntu þér háskólanám á Nova
| Scotiadögunum!
táttu sjá þig á Nova Scotia dögunum
seni haldnir verða dagana 22. - 24. maí nk. Hingað fjölmenna
fulltrúar ferða-, atvinnu- og menntamála með ítarlegar upplýsingar
um land og þjóð í máli og myndum.
Frekari upplýsingar veitir:
Dr. Peter Rans.
Nova Scotia Council