Morgunblaðið - 04.05.1996, Side 8
8 LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rannsóknir á íslenskum lækningajurtum
Líffræðileg virkni
í hvaimarfræjum
RANNSÓKN á virkni lúpínuseyðis
á krabbamein hefur staðið_ yfir í
Raunvísindadeild Háskóla íslands
undanfarna mánuði á vegum pró-
fessors Sigmundar Guðbjarnason-
ar. Steinþór Sigurðsson lífefna-
fræðingur framkvæmdi rannsókn-
ina. Samkvæmt henni er viss virkni
í hvannarfræjum i lúpínuseyðinu.
Forsaga þess að rannsókn hófst
á lúpínuseyði við háskólann er sú
að seyðið er framleitt í töluverðu
magni hérlendis af Ævari Jóhann-
essyni. Hundruðir íslendinga neyta
seyðisins daglega og til eru margar
sögur um áhrif þess í ýmsum tilfell-
um, m.a. á krabbamein, en seyðinu
var upphaflega stefnt gegn krabba-
meini. Þá reyndist margt fólk sem
þjáðist af óskyldum sjúkdómum,
s.s. magabólgu, ristilbólgu, blöðru-
hálskirtilsbólgu, astma og fleiru, fá
bót meina sinna, oft eftir langa og
árangurslausa baráttu með hefð-
bundnari aðferðum.
Ekki sjáanleg áhrif á
krabbamein
Steinþór segir að skoðuð hafí
verið áhrif lúpínuseyðis á krabba-
meinsfrumur en niðurstöðurnar eru
þær að áhrifin séu ekki sjáanleg.
„Það segir ekki annað en að í lúp-
ínuseyðinu sé ekki frumueitur. Hins
vegar erum við einnig að skoða líf-
fræðilega virkni í þáttum í seyðinu.
Við höfum fundið virkni í ákveðinni
meðferð á hvannarfræjum sem eru
notuð í seyðið. Við erum með mjög
einfalt kerfi til þess að mæla líf-
fræðilega virkni, sem hefur verið
prófað með góðum árangri í Banda-
ríkjunum, og það hefur gefið okkur
svipaða niðurstöðu og fengist hefur
í Japan með mun flóknari athugun-
um á krabbameinsfrumum,“ sagði
Stejnþór.
Ótal jurtir eru í lúpínuseyðinu
og flestar hafa þær verið notaðar
sem lækningajurtir hérlendis. Lúp-
ínan sjálf hefur hins vegar hvergi
verið notuð til lækninga en mest
er af henni í seyðinu.
Einnig rannsakaði Steinþór glý-
kósfingólípíð (GSL). Hann segir að
þessi efni finnist í yfirborði frumu-
himna. Efnin séu mikið rannsökuð
um þessar mundir í sambandi við
krabbameinsrannsóknir. Steinþór
segir að vísbendingar séu um að
glýkólípíð breytist þegar fruma
breytist í krabbameinsfrumu.
„Það er vitað að það eru glýkólíp-
íð í plöntufrumum en það er miklu
minna rannsakað. Við höfum verið
að skoða þetta og mikill tími farið
í aðferðarfræði. En okkar rann-
sóknir sýna að það eru glýkólípíð í
lúpínuseyðinu," segir Steinþór.
Hann segir að nú liggi fyrir að
gera tilraunir með líffræðilega
virkni glýkólípíðs.
Guðmundur J. Guðmundsson
heiðursfélagi Dagsbrúnar
AÐALFUNDUR Verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar var haldinn
þriðjudaginn 30. apríl sl. Á fund-
inum lét Guðmundur J. Guð-
mundsson af formennsku í félag-
inu. Hann hafði starfað hjá félag-
inu síðan 1953, þar af 15 sem
formaður og 21 sem varaformað-
ur. Guðmundur var kjörinn heið-
ursfélagi Dagsbrúnar með lófataki
og sæmdur gullmerki félagsins.
Allir sjóðir félagsins utan vinnu-
deilusjóður voru reknir með halla
á starfsárinu miðað við innkomin
iðgjöld. Hins vegar vinna fjár-
magnstekjur tapið upp og þeirra
vegna er hagnaður af heildarstarf-
semi félagsins upp á 10,7 milljón-
ir. Heildartekjur nema 98 milljón-
um króna samanborið við tæpar
110 milljónir árið á undan og hafa
því lækkað um 10,8% milli ára.
Rekstrargjöld nema um 108,7
milljónum króna samanborið við
114,7 milljónir árið á undan og
nemur lækkunin 5,25% milli ára.
Tap af rekstri nemur 10,5 milljón-
um en frá því dragast fjármagns-
Guðmundur J. Guðmundsson.
tekjur upp á 21,3 milljónir króna
sem fyrr segir.
Árið 1994 nam hagnaðurinn
26,3 milljónum og hefur því af-
koma versnað um 15,6 milljónir
milli ára. Ástæða þess að afkoma
er nú þetta lakari er einkum sú
að heildartekjur hafa dregist sam-
an um 6 milljónir auk þess sem
fjármunatekjur félagsins hafa
lækkað um 10 milljónir milli ára.
Þrátt fyrir það að tap fyrir fjár-
magnstekjur sé á sjóðum félagsins
er fjárhagur þess traustur. Skuld-
laus eign Dagsbrúnar í heild er
730 milljónir.
Hvatt til vinnustöðvunar
Lýst var stjórnarkjöri, það gerði
formaður kjörstjórnar, Snær
Karlsson og, ný stjórn sem kosin
var í janúar sl, tók formlega við
undir forystu Halldórs Björnsson-
ar.
Samþykkt var ályktun gegn
frumvarpi ríkisstjórnarinnar um
stéttarfélög og vinnudeilur og
hvatt til aðgerða gegn frumvarp-
inu. Einnig var samþykkt tillaga
þar sem hvatt er til vinnustöðvun-
ar allra Dagsbrúnarmanna þegar
frumvarpið kemur til atkvæða-
greiðslu.
Viðvörun frá Rafmagnseftírliti ríkisins
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi viðvörun frá Bergi
Jónssyni, rafmagnseftirlitsstjóra
ríkisins:
„Rafmagnseftirlit ríkisins harm-
ar mjög að á. listasíðu Morgun-
blaðsins miðvikudaginn 1. maí er
sýnd mynd af „rafmagnstæki“ sem
sett er saman úr eldhúsáhaldi og
rafbúnaði. Auk þess eru birtar leið-
beiningar um gerð tækisins eða
fyrirmælaverksins, sem svo er
nefnt. í fáum orðum sagt er hér
um stórhættulegt verk að ræða,
ef einhveijum dytti í hug að setja
það saman samkvæmt þeim leið-
beiningum sem fylgja myndinni.
Þegar „tækið“ er sett í samband
við raflagnir heimilisins getur 230
volta spenna verið á stálsigtinu
sem myndin sýnir. Þeim sem
snerta sigtið við þær kringumstæð-
ur getur verið lífshætta búin.
Rafmagnseftirlitið varar mjög
eindregið við þeirri hættu sem hér
getur skapast og brýnir fyrir for-
eldrum að ræða um hana við böm
og unglinga á heimilinu og þær
afleiðingar sem svona tækissmíð
gæti haft, bæði fyrir þann sem að
verkinu stæði og aðra þá, sem
óvitaðir um hættuna, kynnu að
snerta það.“
Alþjóðaráð Rauða krossins
Láta sig mannúðar-
reglur litlu skipta
LEON ISLER
STYRJALDIR eru
jafngamlar mann-
kyninu, lög um að
koma eigi fram við óvininn
af virðingu eiga sér jafn-
langa sögu,“ sagði Isler í
samtali við Morgunblaðið
en í erindi sínu fjallaði
hann meðal annars um
sögulegan bakgrunn
mannúðarlaganna.
„Mannúð var sjaldnast
eina ástæðan fyrir því að
menn settu reglur um
hvernig ætti að haga sér
í stríði heldur vegna al-
mennra þarfa,“ sagði
hann. „Ein af fyrstu regl-
unum var bann við að eitra
vatnsból því land án vatns
kom sigurvegurunum að
litlu gagni.
Það tók margar aldir að
þróa reglur sem almennt
voru viðurkenndar á stærri
svæðum, tvíhliða reglur varðandi
vopnahlé, uppgjöf, meðhöndlun á
stríðsföngum, umönnun særðra
svo eitthvað sé nefnt. Ég ætla að
fræða íslensku sendifulltrúana
um þessi lög. Hvað er það sem
við getum gert til að fá lönd til
að fylgja reglunum. Hver eru rétt-
indi og skyldur þeirra sem vinna
hjá Alþjóðaráði Rauða krossins
og skjólstæðinga þeirra."
Hvernig gertgur að fá þjóðir sem
eiga í stríði til að framfylgja
mann úðarreglun um?
„Það gengur sífellt erfiðlegar.
Ástæðan er einkum sú að stríðin
eru háð af svo miklu meira hatri
og grimmd en áður. Þeir eru fleiri
sem láta sig mannúðarregiur litlu
skipta. Virðingin fyrir manns-
lífunum virðist minni, pyntingar
og aftökur er algengari. Þessi
þróun hefur leitt til þess að út-
breiðsla mannúðarlaga er brýnni
en áður. í ýmsum löndum Afríku,
Asíu og í Rússlandi erum við með
verkefni í gangi til að kynna þessi
mál. Fræðslan verður að vera í
mjög einföldu formi svo fólk skilji
hana því ólæsi er mikið í mörgum
þessara landa.
Við setjum til dæmis upp vegg-
spjöld þar sem er mynd af fanga
sem verið er að skjóta, við setjum
kross yfir hana til að sýna að
svona eigi ekki að fara að. Svo
er önnur mynd við hliðina á þar
sem sýnt er að lífi fanga er þyrmt.
Þannig reynum við að koma þeim
skilaboðum áleiðis að óheimilt sé
að drepa stríðsfanga og að lögin
geti verndað viðkomandi í sömu
stöðu síðar.“
Það hefur færst í vöxt að börn
taki þátt í hernaði, hvernig horfir
það við ykkur?
„Þeir hópar sem standa í hern-
aði í þessum stríðshijáðu löndum
eru oft algjörlega stjómlausir. Þó
eru þeir ef til vill eina skjólið fyr-
ir munaðarlaus börn sem fá hjá
þeim fæði og klæði og visst ör-
yggi. Þetta unga fólk
er þjálfað til að drepa
en hefur sjaldnast
fengið fræðslu um þau
mannúðarlög sem
gilda í ófriði."
Alþjóðaráðið hefur einnig barist
gegn notkun á jarðsprengjum.
Hver hefur árangurinn verið?
„Það hefur ekki gengið vel að
sannfæra yfirvöld í þeim löndum
sem hagsmuni hafa af sölu jarð-
sprengna að hætta framleiðslu
þeirra. Einnig hefur það gengið
treglega að sannfæra þjóðir sem
eiga í stríði um takmarkað
hemaðarlegt gildi þeirra. Jarð-
sprengjur vinna ekki styijaldir
þær hræða og limlesta saklausa
borgara."
Hver finnst þér árangurinn vera
► Svisslendingurinn, Leonard
Isler gekk til til liðs við Alþjóða-
ráð Rauða krossins (ICRC) árið-
1968, þá 27 ára gamall, nýút-
skrifaður Iíffræðingur frá há-
skólanum í Genf. Isler hefur
unnið í 28 ár hjá alþjóðaráðinu
og er einn reyndasti sendifull-
trúi þess. Hann hefur starfað í
ýmsum löndum Suður-Amer-
íku, Afríku og Asíu. Annaðist
hann meðal annars heimför
stríðsfanga að loknu Persaflóa-
stríðinu og hefur mikla reynslu
af fangaheimsóknum, birgða-
flutningum og aðstoð við flótta-
menn. Síðustu árin hefur hann
starfað í höfuðstöðvunum í
Genf. Isler hélt í gær fyrirlestur
um alþjóðleg mannúðarlög á
námskeiði sem Rauði kross Is-
lands hélt í húsakynnum sínum.
af siarfi Alþjóðadeildar Rauða
krossins?
„Það er erfitt að meta árangur-
inn af svona starfí. En ég veit af
eigin reynslu að ef þessi starfsemi
væri ekki fyrir hendi væri ástand-
ið ennþá alvarlegra í þeim löndum
sem geisar stríð. Ég get nefnt sem
dæmi starf í flóttamannabúðum
við landamæri Kambódíu og Tæ-
lands á árunum 1979 til 1980.
Þegar við komum þangað fæddust
um það bil þrjátíu böm í búðunum
daglega en aðrir þijátíu létust.
Eftir tveggja mánaða starf tókst
okkur að breyta þessum hlutföllum
verulega.
Auk þess fer fram í fóttamanna-
búðunum mikið starf við að sam-
eina fjölskyldur sem tvístrast hafa
í stríðinu. Við söfnum upplýsing-
um um fólkið og setjum upp mynd-
ir af því. Þetta vita hinir innfæddu
og nýta sér óspart. Annað dæmi
sem ég get nefnt er að vinnufé-
lagi minn hitti argentískan ráð-
herra fyrir tveim ámm sem spurði
hann hvort hann kannaðist við
Leon Isler. Vinnufélagi
minn sagði það vera. Þá
sagði ráðherrann:
„Segðu honum að það
sé honum að þakka að
ég sé hér.“ Þegar póli-
tískir fangar eru komnir á lista
hjá okkur þá fylgjum við þeim
eftir til enda. Getur það virkað
sem líftrygging. Atvik sem þetta
gefa starfinu mikið gildi.“
Hvernig manngerðar þarfnist þið
í starfi sendifulltrúa?
„Sendifulltrúi þarf fyrst og
fremst að vera í góðu andlegu
jafnvægi, vera sveigjanlegur, op-
inskár og hafa sjálfsaga og vera
reiðubúinn að vinna mikið. Síðast
en ekki síst þarf hann að búa
yfir heilbrigðri skynsemi og hafa
hjartað á réttum stað.“
Stríð háð af
meira hatri og
grimmd