Morgunblaðið - 04.05.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
_______________________LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1996 39
MESSUR Á MORGUINI
SJÓNMENIMTAVETTVANGUR
var á öllu að það kom fyrir væntum-
þykju og á_st á myndlist en ekki til
að sýnast. Ástæða er að geta þessar-
ar sýningar sérstaklega í Lesbók
ásamt grein um Köbke svo ég sný
mér að öðru (til 27. maí).
í Öksnehallen við Halmtorvet er
hluti framkvæmdar kringum 250
ungmenni á aldrinum 18-30 ára frá
16 borgum er liggja að Eystrasalti,
og nefnist „Artgenda 96“. Munu þau
öll mæta á sýninguna í smáhópum
að mér skilst og á þann veg er vel
að henni staðið. Höllin er aðalbygg-
ing brúnu kjötborgarinnar við
Halmtorvet og var upprunalega
byggð til að hýsa lifandi nautgripi
(öksne = uxi), sem voru seldir til
slátrunar, útflutnings eða kynbóta.
Sýningarsvæðið er risastórt eða
5.000 fermetrar og satt að segja
varð lítið úr þeim 800 verkum sem
til sýnis voru, og enn minna í ljósi
þess að hér var mikið til á ferðinni
miðstýrður, tillærður frumleiki sem
maður rekst á í hverju byggðu bóli
er svo er komið.
Afar fátt fólk var á sýningunni
þau tvö skipti sem ég skoðaði hana
enda ris hennar lítið í höllinni, sýnu
lakast var hve losaralega hún var
skipulögð svo hún var á stundum
líkust markaðstorgi. Málverkin, í
þessu mikla kraðaki af öllu mögu-
legu í myndlist listiðnaði hönnun
myndböndum. tónlist og hljóðskúlpt-
úrum, illa máluð. Fullljóst má vera,
að einungis vond pentverk geta
gengið af málverkinu dauðu (til 30.
júní).
Islömsk list er í brennidepli í Þjóð-
minjasafninu með magnaðri fram-
kvæmd er nefnist „Sultan, Sah og
Stormogul“, þar sem á yfírgripsmik-
inn hátt er mögulegt að rekja menn-
ingarsögu Islam. Var það mikil lifun
að skoða sýninguna og er fyrirhuguð
heil grein sem segir frá þessari hlið
islamska veldisins. Fleiri sýningar
eru í gangi er skara Islam t.d „I
halvmánens skær“ í Davids-safninu"
og „Den Arabiske Rejse“ í safninu
í Moesgárd (til 29. semptember).
Einnig er sérstök sýning á 1.000
ára gamalli víkingamynt í mynt-
deildinni, en þá deild er jafnan afar
fróðlegt að renna augum yfír.
Minnt er rækilega á viðburði
menningarársins á jarðhæð þar sem
er forláta listgripa- og bókabúð. Á
hæðinni beint fyrir ofan er svo mjög
vistleg veitingabúð sem ég gef mjög
háa einkun. Þennan þriðjudag 2.
apríl skein sólin skyndilega á Kaup-
mannahafnarbúa, eftir kaldasta
marzmánuð í manna minnum, en
meðalhitinn mældist 0 gráða og
voru menn afar snöggir að reikna
það út, því það gat að lesa í morgun-
blöðunum 1. apríl! Mjög hýmaði yfir
borgarbúum og allir í góðu skapi,
en ég veit ekki hvort það hafí verið
út af því eða öðru, að unga fallega
stúlkan sem hafði fært mér kaffið
sendi mér alltaf fallegt bros í hvert
skipti sem hún átti leið framhjá
borði mínu (til 29. september).
Helst hefði ég viljað gista, en
áfram skyldi haldið og nú var farið
í Kunsforeningen og sýning á æsku-
stílnum í Miðevrópu heimsótt „Art
Nouveau i Central Europa". það
reyndist mjög upplýsandi sýning,
því minna vissi maður um þróun
stílbragðanna í Ungveijalandi,
Tékkalandi, Slóvakíu og Póllandi
þótt eitthvað hafi maður rekist á í
bókum. En að skoða verkin svona
augliti til auglitis og bera saman,
er allt annar handleggur og þannig
séð ómetanlegur ávinningur fyrir
fróðleiksfúsa. Nú hefur allt húsið
verið tekið undir starfsemi Kunst-
foreningen sem þýðir að menn geti
átt von á enn meiri listaveislum í
því en áður. Nóg er af kaffihúsum
og ölstofum í nágrenninu svo þeirri
hlið þurfa húsráðendur ekki að
sinna en gera samt (til 9. júní).
Eg var á leiðinni í Listiðnaðar-
safnið og ætlaði að sneiða fram hjá
Nikolai Kirke þar sem Artgenda í
Öksnehallen er með framlengingu
er skarar innsetningar. En þangað
var samt haldið og þakkaði ég guði
fyrir, því þetta er að mínu mati
tvímælalaust langbesti hluti fram-
kvæmdarinnar og unga fólkinu til
mikils sóma, þótt sumt orkaði tví-
mælis. Innsetningar eru oftar en
ekki mjög magnaðar ef þær eru vel
unnar og upplifaðar. Var svo
ánægður með tilveruna eftir að
hafa reikað um básana langa stund
að ég fékk mér rauðvínsglas í vist-
legri veitingabúðinni. Gekk svo út
í sólbjartan daginn og þau fáu skref
sem þarf til að ná út á Strikið.
Blasti þá við mér svo mikill
manngrúi að ég minnist þess ekki
að hafa séð annað eins á virkum
degi á þeirri margfrægu götu. Bros-
milt fólkið var þó einungis að út-
lofta sig, fagna veðurblíðunni, lang-
þráðum vorstraumum, og í kringum
gosbrunninn fagra við Höjbro-torg
sat ungt fólk yfír sig ástfangið af
lífinu, hvert öðru og ókomnum dög-
um.
Hafði í raun verið á leið á listiðn-
aðarsafnið á Breiðgötu alla dagana
en áttaði mig ekki strax á vetrar-
tíma safna, en þá opna þau seinna
og loka fyrr. Náði þangað loks á
skírdag og reyndist heimsóknin rús-
ínan í pylsuendanum. Gekk ég beint
á vit fortíðar og tækniheims nútíð-
ar, því annars vegar var mikilfeng-
leg sýning á Alfa Romeo-bílnum
og sögu hans frá upphafí, en hins
vegar á grafískri hönnun heima-
manna. Sýnt var hvemig form og
módel Alfa Romeo-bílsins hafði
fyrmm verið mótað í höndunum,
smíðað í tré og tálgað til eftir öllum
kúnstarinnar reglum áður en blikk-
grindin var steypt. Síðan hvernig
tölvan stjórnar áhöldunum í dag
eftir að hafa verið mötuð með þús-
undum skilaboða og er það ævin-
týraleg upplifun. Trégrindin er í
báðum tilvikum hreinn skúlptúr í
orðsins sígildustu merkingu, að
vonum stómm mannlegri í eldri
gerðinni. En hvað sem öðru líður
þarf mannlegt hugvit og mikla til-
fínningu fyrir hönnun til að móta
jafn fullkomna smíð. Þá eru sýndir
ýmsir árgangar bæði almennings- '
og kappakstursvagna og gerast
þeir vart rennilegri þótt það grípi
mann helst hve persónulegur bíllinn
er og framúrskarandi formun.
íslenzk þjóð veit ábyggilega
minnst um bakgrunninn að smíði
þessara blikkbelja sem hún hefur
lagt svo mikla ofurást á, og innlit
á sýninguna hefði verið mörgum
landanum opinberun en henni lauk
því miður 14. apríl.
Danska hönnunarsýningin var
ekki síður opinberun, því svo ný-
stárleg var hún. í mörgum kössum
undir gleri eru einstakir hönnuðir
kynntir, en á botninum er mynd-
skjár og þar talar sérfróður um við-
komandi. Hlýtur það að vera
ómældur fróðleikur fyrir þá sem
nema hönnun og ekki síður almenn-
an skoðanda. I einum kassanum er
sýnt hve ævintýralegir hlutir geta
gerst í gegnum alnetið, svo sem
þegar markaðsfulltrúi eins stór-
blaðsins í Tókýó rakst á skondna
teikningu af hundi eftir einn hönn-
uðinn og keypti hana til að nota í
auglýsingaherferð um útbreiðslu
blaðsins, sem gekk mjög vel. Án
þess að hafa nokkurn tímann kom-
ið til Japans né hitt þetta fólk á
blaðinu var teiknarinn orðin frægur
í Tókýó og mynd hans á veggspjöld-
um út um allar trissur, auk þess
sem 65% af íbúum borgarinnar
könnuðust við hundinn! Svo er ekki
ónýtt að blaðið er þrykkt í 8V2 millj-
ón eintaka!
Ég ætlaði aldrei að geta slitið
mig frá þessum sýningum, en ég
hafði séð veggspjald frá Thorvald-
senssafninu á kaffístofunni og hélt
að ég væri að missa af einhveijum
miklum viðburði þar og skundaði á
staðinn. En í ljós kom að þetta var
staðbundin sýning og lítt áhugaverð
nema að í gangi var fallegt og skil-
merkilegt myndband. Eitthvað er
rotið í konungsríkinu Danmörk, þeg-
ar þetta einstæða safn er svo langt
á eftir tímanum og ekki einu sinni
mögulegt að ganga að upplýsingum
um starfsemina. Ónnur söfn rækta
hlutverk sitt með miklum sóma á
þessu sviði, sem má marka af því
að Tryggvi Ólafsson, sem snaraði
bóka- og katalógatöskunni á skips-
Qöl fyrir mig, hélt því fram að eini
munurinn á henni og grjótklöpp,
væri að klöppin væri ekki með hand-
fangi og ei heldur á hjólum!
Guðspjall dagsins:
Sending heilags anda.
(Jóh. 16.)
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Kirkjukaffi Átthagafélags Snæfell-
inga og Hnappdæla eftir messu.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir
sóknarprestur í Grindavík prédikar.
Fáskrúðsfirðingar aðstoða við
helgihaldið. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
Dómkórinn syngur. Organisti Mar-
teinn H. Friðriksson. Aðalfundur
Safnaðarfélags Dómkirkjunnar í safn-
aðarheimilinu eftir guðsþjónustu.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Gylfi Jónsson. Org-
anisti Kjartan Ólafsson.
GRENSÁSKIRKJA: Laugardaginn
4. maí: Vorferð barnanna. Farið frá
Grensáskirkju kl. 10. Sunnudaginn:
Messa kl. 14. Prestur sr. Kjartan
Örn Sigurbjörnsson. Organisti Árni
Arinbjarnarson. Kammerkór Grens-
áskirkju tekur þátt í guðsþjón-
ustunni.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Sigurður Pálsson. Organisti
Douglas A. Brotchie.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Organisti Pavel Manasek. Sr. Tóm-
as Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA:Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11.
Prestur sr. Flóki Kristinsson. Org-
anisti Jón Stefánsson. Kór Lang-
holtskirkju syngur. Vorferð sunnu-
dagaskólans og foreldramorgna
hefst með sunnudagaskóla kl. 11.
Síðan verður farið til Þingvalla, þar
sem grillaðar verða pylsur og
brugðið á leik.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Félagar úr Kór Laugarneskirkju
syngja. Organisti Gunnar Gunnars-
son. Guðsþjónusta kl. 14 í Sjálfs-
bjargarhúsinu Hátúni 12. Ólafur
Jóhannsson.
NESKIRKJA: Barnastarf kl. 11. Vor-
ferð sunnudagaskólans. Farið í
Sæfiskasafnið í Höfnum. Farið í leiki
og grillað. Börn innan 5 ára séu í
fylgd með foreldrum eða eldri börn-
um. Guðsþjónusta kl. 11. Kór
Grandaskóla syngur við guðsþjón-
ustuna, stjórnandi Eyrún Finnboga-
dóttir. Sr. Halldór Reynisson. Guðs-
þjónusta kl. 14 með þátttöku Isfirð-
ingafélagsins. Prestur sr. Agnes
Sigurðardóttir. Kaffisala að lokinni
guðsþjónustu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Sr. Ragnheiður Erla Bjarna-
dóttir prédikar og fermir Sunnu
Gurúnu Eaton, Haukanesi 16,
Garðabæ. Sr. Solveig Lára Guð-
• mundsdóttir þjónar fyrir altari. Org-
anisti Violetta Smid. Barnastarf á
sama tíma í umsjá Elínborgar
Sturludóttur.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11 árdegis. Organleikari Sigrún
Steingrímsdóttir. Barnakór Árbæj-
arsóknar syngur í guðsþjónustunni
auk kirkjukórsins. Barnaguðsþjón-
usta kl. 13 í umsjón Örnu og Guð-
rúnar. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Ferðalag
barnastarfsins, lagt af stað frá kirkj-
unni kl. 13.30. Samkoma ungs fólks
með hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Organisti Smári Óla-
son. Tónleikar kl. 17. Gunnar Sigur-
jónsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Presturdr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson. Barnaguðsþjón-
usta á sama tíma í umsjón Ragnars
Schram. Organisti Lenka Máteóva.
Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. (Ath. breyttan messu-
tíma.) Lilja Kristín Þorsteinsdóttir
guðfræðingur prédikar. Organisti
Ágúst Ármann Þorláksson. Prest-
arnir.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Organisti Oddný J. Þorsteins-
dóttir. Bryndís Malla Elídóttir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti Örn Falkner. Ægir
Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Ágúst Einarsson. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Sóknarprest-
ur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Guðsþjónusta
kl. 14. Fermd verða: Bergsveinn
Jósepsson, Garðhúsum 6; íris Ósk
Ólafsdóttir, Hlaðhömrum 44, Krist-
inn Pétur Skúlason, Frostafold 47,
Nína Björg Thomsen, Danmörku,
p/t Hlaðhamrar 44. Organisti Pavel
Smid. Cecil Haraldsson.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20 og fimmtudag kl.
20. Altarisganga öll sunnudags-
kvöld. Prestur sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há-
messa kl. 10.30. Messa kl. 14.
Ensk messa kl. 20. Laugardaga
messa kl. 14. Aðra rúmhelga daga
messur kl. 8 og kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11 á sunnudögum.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelfia:
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Daníel Glad. Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðumaður Dögg Harðar-
dóttir. Allir hjartanlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálpræð-
issamkoma sunnudag kl. 20. Reid-
un og Káre Morken stjórna og tala.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Ath. breyttan messutíma.
Sigurður Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Umsjón sr. Þórhild-
ur Ólafs. Guðsþjónusta kl. 14. Vist-
fólki á sambýlum í sókninni sérstak-
lega boðið tii kirkju. Prestur sr.
Gunnþór Ingason. Organleikari Sól-
veig Einarsdóttir. Kaffiveitingar í
Strandbergi eftir guðsþjónustu.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Organisti Kristjana
Þ. Ásgeirsdóttir. Einar Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl.
8. Allir velkomnir.
MOSFELLSPRESTAKALL: Guðs-
þjór.usta í Lágafellskirkju kl. 14. Jón
Þorsteinsson.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 11. Kór Grinda-
víkurkirkju syngur. Organisti Sigu-
róli Geirsson. Sóknarprestur.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Guðsþjónusta sunnudag kl. 117
Aðalsafnaðarfundur Innri-Njarðvík-
ursafnaðar haldinn eftir guðsþjón-
ustuna.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðs-
þjónusta sunnudag kl. 14. Kór Fé-
lags eldri borgara á Suðurnesjum
syngur við athöfnina. Stjórnandi
Agota Joó. Einsöngur Birna Rúnars-
dóttir. Aðalsafnaðarfundur Ytri-
Njarðvíkursafnaðar haldinn eftir
guðsþjónustuna.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Sigfús Baldvin Ingva-
son prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sóknarpresti. Kór Keflavíkur-
kirkju syngur. Órganisti Einar Öm Ein-
arsson. Súpa í hádeginu í Kirkjulundi
og aðalsafnaðarfundur eftir messu.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 10.30. Aðalsafnaðarfundur
að lokinni messu. Ath. breyttan
messutíma. Sóknarprestur.
GAULVERJABÆJARKIRKJA:
Messa kl. 14. Úlfar Guðmundsson.
STÓRU-BORGARKIRKJA, Gríms-
nesi: Fermingarmessa sunnudag
kl. 14. Rúnar Þór Egilsson.
LEIRÁRKIRKJA, Leirársveit: Ferm-
ingarmessa verður sunnudag kl.
11. Sigríður Guðmundsdóttir.
ÞINGVALLAKIRKJA: Fermingar-
messa verður sunnudag kl. 14.
Hanna María Pétursdóttir.
Guðþjónusta kl. 14.00
Fermd verða:
Bergsveinn Jósepsson, Garðhúsum 6.
íris Ósk Olafsdóttir, Hlaðhömrum 44.
Kristinn Pétur Skúloson, Frostafold 47.
Níno Björg Thomsen,
Danmörku,
p/t Hlaðhamrar 44.
Wb UTANHÚSSKLÆÐNING
M
- SAMSKEYTALAUS
- SEM EKKI ÞARF AÐ MÁLAS
Eru eftirfarandi vandamál
að angra þig?
1 1 ALKALÍ-SKEMMDIR ■ SÍENDURTEKIN MÁLNINGARVINNA
■ FROSTSKEMMDIR B LÉLEG EINANGRUN
■ LEKIR VEGGIR B EILÍFAR SPRUNGUVIÐGERÐIR
Ef svo er, skaltu kynna þér kosti sto-utanhússklæðningarinnar:
STO-KLÆÐNINGIN
...er samskeytalaus akríl-klæöning
...er veöurþolin
...leyfir öndun frá vegg
...gefur ótal möguleika í þykkt, áferö og mynstri
...er litekta og fæst 1400 litum ____
...er teygjanleg og viönám gegn
sprungumyndun er mjög gott
STO-KLÆÐNINGUNA
...er unnt aö setja beint á vegg, plasteinangrun eöa steinull
...er hægt aö setja á nær hvaöa byggingu sem er,
án tillits til aldurs eöa lögunar
HÆGT ER AÐ KLÆÐA HLUTA HÚSA MEÐ
STO ÁN SÝNILEGRA BREYTINGA!
BÍLDSHÖFÐA 18
112 REYKJAVfK
i'
VEGGBRYÐI
SIMI 567 3320
FAX 567 4320
I EHF