Morgunblaðið - 04.05.1996, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1996 9
FRÉTTIR
Borgaryfirvöld vilja hætta útgáfu nýrra vínveitingaleyfa
Um hundrað veitinga-
staðir í miðborginni
BORGARRAÐ hefur ákveðið að á
næstunni verði tímabundið hætt
að mæla með útgáfu nýrra vínveit-
ingaleyfa fyrir veitingastaði í mið-
borginni. Að sögn Guðrúnar Ag-
ústsdóttur, forseta borgarstjórnar,
hefur borgarstjórn Kaupmanna-
hafnar gripið til sömu aðgerða.
Um 200 veitingastaðir eru starf-
andi í borginni og þar af eru um
100 í miðborginni. Þá sé ljóst að
eftirlitsmenn vínveitingastaða ráði
ekki við að sinna sínu verkefni því
þeir séu of fáir.
Guðrún segir að þessi ráðstöfun
eigi einungis við um útgáfu nýrra
vínveitingaleyfa í miðborginni.
Eftir því sem næst verði komist
séu um 200 veitingahús í allri
borginni þar af um 100 í miðborg-
inni að Hlemmtorgi og segir Guð-
rún að allir Reykvíkingar á lö-
galdri gætu verið samtímis inn á
veitingastöðum borgarinnar. Ný-
lega sóttu tveir veitingastaðir um
vínveitingaleyfi, annar í Pósthús-
stræti og hinn í Hafnarstræti, og
sagði Guðrún að ákveðið hafi ver-
ið að veita þeim leyfið. „Við treyst-
um okkur ekki til að setja á tíma-
bundna stöðvun nema að undan-
genginni auglýsingu," sagði hún.
„Fyrir þessu er fordæmi. Borgar-
stjórn Kaupmannahafnar greip til
þessa ráðs, þegar þeim fannst
vera komið mikið ójafnvægi milli
þjónustuíyrirtækja í miðborginni
eins og hefur verið að gerast hjá
okkur. Skemmtistaðir eru alltof
margir miðað við aðra þjónustu
sem þar er í boði. Það þarf að ríkja
jafnvægi ef miðborgin á að vera
hjarta borgarinnar.“
Guðrún sagði að þegar nýr veit-
ingastaður tæki til starfa hætti
annar. „Það er ekki endilega okk-
ar borgaryfirvalda að hafa af-
skipti af því en þetta skapar mik-
ið ójafnvægi og erfiða og mikla
samkeppni," sagði hún.
Fleiri íbúðir í miðborgina
Guðrún benti á að borgaryfir-
völd hafi stuðlað að fjölgun íbúða
í miðborginni og að ekki fari sam-
an íbúðarbyggð og fjöldi skemmti-
staða. Langt sé síðan kvartanir
fóru að berast frá íbúunum, Þróun-
arfélagi Reykjavíkurborgar og
Laugavegssamtökunum með ósk
um að staldrað yrði við. Þá væri
Samband gisti- og veitingahúsa-
eigenda hlynnt þessari ákvörðun.
„Borgaryfirvöld hafa hingað til
ekki treyst sér til að reyna þetta,“
sagði hún.
Guðrún sagðist ekki telja að
ákvörðunin stangaðist á við sam-
keppnislög, þar sem auglýst væri
fyrirfram hvenær gripið yrði til
aðgerða. „Ég held að borgaryfir-
völd hljóti með skipulagi að geta
ákveðið framboð þjónustu og hvar
hún er í borginni,“ sagði hún.
Umsagnaraðili
Borgaryfirvöld eru umsagna-
raðili en embætti lögreglustjóra
veitir vínveitingaleyfið og dóms-
málaráðuneytið sér um að lögum
um veitingastaði sé framfylgt.
„Hér áður fyrr þegar telja mátti
vínveitingastaði á fingrum sér
voru starfandi þrír eftirlitsmenn
vínveitingahúsa á vegum ráðu-
neytisins sem fylgdust með að
engum undir lögaldri væri hleypt
inn, en nú eru á annað hundrað
vínveitingastaðir í borginni og
eftirlitsmönnum hefur að ég held
verið fjölgað um einn,“ sagði hún.
„Þeir geta ekki sinnt þessu svo
vel sé. Við vitum að ekki er hægt
að framfylgja aldursmörkum þeg-
ar hleypt er inn á staðina eða að
selja áfengi. Það er vandi sem
dómsmálaráðuneytið verður að
fást við.“
Heimsstjóm Kiw
anis í Reykj avík
Leita nagla-
dekkja
LÖGREGLAN í Reykjavík
byrj aði í vikunni að leita bíla
sem enn aka um á nagladekkj-
um.
Að sögn Ómars Smára Ár-
mannssonar, aðstoðaryfirlög-
regluþjóns, áttu allir bílar að
vera komnir á sumardekk
þann 15. apríl síðastliðinn
nema sérstakar akstursað-
stæður krefðust annars.
Hann sagði að ökumenn
sem enn aka á nagladekkjum
mættu búast við að vera stöðv-
aðir og í framhaldi af því
krafðir um 2.500 króna sekt.
Eldur við
Grensásveg
UNGUR piltur var handtekinn
um miðjan dag á fimmtudag
grunaður um að hafa lagt eld
að vinnupalli og hjólbörðum.
Lögregla og slökkvilið voru
kvödd að húsi Sölunefndar
varnarliðseigna þar sem logaði
eldur við húsið. Eldurinn var
slökktur á skammri stundu.
Sjóvarvottar höfðu séð pilt
hlaupa frá húsinu og var hann
handtekinn og gekkst við að
hafa kveikt eldinn.
HEIMSSTJÓRN Kiwanis-hreyf-
ingarinnar sat í vikunni á fundi
í Reykjavík og er það í fyrsta
skipti í 81 árs sögu hreyfingar-
innar, sem heimsstjórnarfundur
er haldinn utan Bandaríkjanna,
að sögn Eyjólfs Sigurðssonar,
heimsforseta Kiwanis. Megin-
verkefni Kiwanis-hreyfingar-
innar er að vinna að því í sam-
vinnu við Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna að eyða joðskorti sem
herjar á íbúa 109 landa í heimin-
um.
Hreyfingunni tengjast 650
þúsund félagar í 83 löndum.
Eyjólfur Sigurðsson er fyrsti
Evrópumaðurinn sem gegnir
starfi heimsforseta Kiwanis. Að
sögn hans hefur Kiwanis-hreyf-
ingin, í samvinnu við Barnahjálp
SÞ, einsett sér að safna 75 millj-
ónum bandaríkjadala fyrir árs-
lok 1998 en sú upphæð er talin
nægja til að útrýma joðskorti í
109 löndum.
Eyjólfur segir að við joðskort
sé helst að glíma þar sem flóð
eru tíð og valda því að þetta líf-
snauðsynlega frumefni skolast á
brott. Eyjólfur nefnir Bangla-
desh sem land þar sem ástandið
sé slæmt að þessu leyti. Joðs-
kortur veldur fósturdauða og
heilaskemmdum hjá ungbörnum
en skjaldkirtilsstækkun í full-
orðnu fólki.
„Það eru ekki nemaum það
bil 30 ár síðan menn gerðu sér
grein fyrir þeim skaða sem joðs-
kortur veldur,“ segir hann. Eyj-
ólfur segir að með 75 milljónum
bandaríkjadala sé hægt að leysa
vandamálið og blanda joði í
matarsalt. Hreyfingin kaupi
blöndunartæki til að koma upp
í saltverksmiðjum og þrýsti á
stjórnvöld í viðkomandi löndum
að leyfa aðeins neyslu joðbland-
aðs salts.
Átján manna heimsstjórn
Kiwanis-manna lýkur fundar-
störfum í Reykjavík í dag. Á
laugardag fara stjórnarmenn og
gestir þeirra til Vestmannaeyja
og á sunnudag ferðast hópurinn,
sem telur um 50 manns, um
Suðurland.
... , ' i* , _. _
...................■
MARGIR lögðu leið sína að Elliðavatni og þöndu stangir sínar.
Vatnsdalsá í Húnaþingi hefur
verið leigð Pétri Péturssyni og
Fransmanninum Guy Geffroy til
þriggja ára frá og með sumrinu
1997. Brynjólfur Markússon og
Gestur Árnason, sem einnig
leigja Víðidalsá, hafa verið með
Vatnsdalsá síðustu sumur.
Eingöngu fluguveiði
„Það verður eingöngu flugu-
veiði í ánni og skylda að sleppa
öllum stórlaxi. Einhver sveigjan-
leiki verður hins vegar með smá-
laxinn. Það hafa allir sama rétt
til veiðileyfakaupa hjá okkur, en
við markaðssetjum ána fyrst og
fremst erlendis. Guy hefur selt
mikið í rússneskar ár, en ætlar
að taka fyrir það, m.a. í krafti
þess að geta boðið á móti það
sama hér á landi og boðið er í
Rússlandi, þ.e.a.s. hreina flugu-
veiði og skyldusleppingu á stór-
laxi.
Við ætlum að reyna að beina
augum erlendra stangaveiði-
manna aftur að íslandi. Þetta er
það sem sumir leigutakar hafa
velt fyrir sér að gera, en varla
vitað hvernig þeir kæmu út úr
því. Við Guy getum leyft okkur
þetta í krafti þess að við höfum
svo breiðan hóp viðskiptavina,"
segir Pétur.
Þeir félagar hafa viða verið
með viðskiptavini sína síðustu
sumur, ekki síst í Hofsá og Selá.
Pétur sagði að þeir yrðu áfram
í Vopnafjarðaránum, en annað
yrði leikið af fingrum fram eftir
hentugleika hveiju sinni.
Líflegt
fyrsta dag-
inn í Elliða-
vatni
STANGAVEIÐI hófst í ýmsum
vötnum 1. maí og bar þar hæst
Elliðavatn og Helluvatn. Þar var
fjölmenni mætt á vatnsbakkana
í blíðskaparveðri í morgunsárið
og gekk mörgum veiðin vel. Einn-
ig fréttist af góðum aflabrögðum
í Vífilsstaðavatni og víðar, s.s. í
Varmá. Eflaust er stutt í að veiði-
menn hefji sókn í Þingvallavatni,
en það er oftast heldur seinna
til en Elliðavatn.
„Veiðimenn höfðu á orði, að
þetta væri besta opnun í vatninu
í mörg ár. Veiðin var mjög lífleg
og voru dæmi um að einstakir
veiðimenn væru komnir með yfir
20 fiska á land. Mest var það
bleikja. Það má segja að þetta
góða tíðarfar hjálpi til, en ástand
vatnsins er eins og í miðjum maí
í venjulegu árferði," sagði Vignir
Sigurðsson, eftirlitsmaður við
Elliðavatn á miðvikudaginn.
Bjóðum marga góða hluti
á hálfvirði af áfsláttarstandinum
komdu og gríptu tcekifærið »
PELSINN X
Kirkjuhvoli • sími 552 0160
m
UTSALA
á dúkum, teppum og púðum. 30% afsláttur
‘Bfámastofa ‘friðfinns
Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099
!
Mamina brjósahaldarinn frá abecita úrhreinni, mjúkri bómull.
i /íl ; l|k Hentar vel fyrir konur með barn á brjósti.
Verð kr. 2.850 og 2.950
Stæröir 75-100 í B, C, D og E
Laugavegi 4, sími 55 1 4473