Morgunblaðið - 04.05.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1996 19
B&Wlýst
Tekjur Fjárfestingarfélagsins Skandia jukust um 18% á síðastliðnu ári
gjald-
þrota
Málaferli fylgja
hugsanlega í
kjölfarið
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
LANGDREGIN gjaldþrotasaga
dönsku skipasmíðastöðvarinnar Bur-
meister & Wain í Kaupmannahöfn
virðist nú á enda, þar sem fyrirtækið
hefur verið tekið til gjaldþrotaskiptá.
Tilraunir til að bjarga rekstrinum
hafa mistekist og nú sakar hver aðil-
inn annan um óheilindi.
Daginn eftir að B&W var lýst gjald-
þrota var einnig lýst yfir gjaldþroti
Bremer Vulkan, stærstu skipasmíða-
stöðvar Þýskalands. Endalok þessara
tveggja keppinauta boða fátt gott í
skipasmíðum í Norður-Evrópu, sem
er ógnað af samkeppni við stöðvar í
Austur-Evrópu og Asíu.
Þeir aðilar sem komið hafa við
sögu í dauðastríði B&W eru hluthaf-
ar, lánardrottnar og stjóm fyrirtæk-
isins. Meðal lánardrottna eru fjögur
bandarísk tryggingafyrirtæki, en full-
trúi þeirra í samningaumleitunum um
framtíð fyrirtækisins er bandaríski
lögfræðingurinn Wilbur Ross. Hann
er þekktur í bandarísku viðskiptalífi
fyrir að hafa stýrt uppstokkun stór-
fyrirtækja eins og flugfélagsins TWA,
leikfangakeðjunnar Toys R US og
hótelfyrirtækis auðkýfíngsins Donald
Trumps.
I viðtali við Jyllands-Posten segir
Ross að hluti af vandanum sé ólík'
löggjöf i Danmörku og Bandaríkjun-
um um greiðslustöðvun. Þegar banda-
rískt fyrirtæki fái greiðslustöðvun sé
það til að auðvelda uppstokkun, en
greiðslustöðvun B&W hafi aðeins ver-
ið notuð til að undirbúa. gjaldþrot.
Ross sakar Jan Erlund, stjómar-
formann B&W, um að hafa grafið
undan tiltrú fjárfesta og banka á
framtíð fyrirtækisins með stöðugum
ummælum sínum um slæma stöðu
og dökkar horfur, en Erlund segir
þetta ómaklega gagnrýni. Ross og
fleiri reyndu alveg fram á síðustu
stundu að finna fyrirtækinu rekstrar-
grundvöll en þá ákvað stjóm B&W
að lýsa yfir gjaldþroti.
Ross bendir á að þeir hefðu ekki
verið svo lengi að nema af því þeir
trúðu í raun á að B&W ætti framtíð
fyrir sér.
Ross segist nú hugleiða málsókn á
hendur fyrri stjórnar B&W vegna
láns, sem skjólstæðingar hans veittu
B&W 1994. Um leið og lánið var
veitt höfðu ýmsir aðrir hluthafar ann-
aðhvort afskrifað hlut sinn í fyrirtæk-
inu eða gert sérstakar ráðstafanir til
að tryggja sinn hlut, ef til gjaldþrots
kæmi. Ross álítur að annaðhvort hafí
stjómin þá verið alls ófróð um stöð-
una eða villt um fyrir skjólstæðingum
sínum. Ef hið síðara reynist rétt
gæti að sögn Ross komið til málsókn-
ar. Eins og nú horfir gæti skipasmíða-
stöðin hugsanlega orðið viðgerðar-
stöð, en hún verður seint vinnustaður
fyrir átta þúsund manns eins og var,
þegar reksturinn gekk sem best.
Fríkirkjusöfnuðurinn
í Reykjavík
Tónlistarvor í Fríkirkjunni
Tónteikar þriðjudag,
7. maí, kl. 20.30.
Fiytjendur Auður Hafsteinsdóttir, fiðlo.
iiko Petrova Benkovn, þverflauta.
Pavel Smid, orgel.
Hagnaður nam
26 milljónum
HAGNAÐUR Fjárfestingarfélagsins
Skandia hf. nam alls tæpum 26
milljónum króna á síðastliðnu ári og
er það mjög svipuð afkoma og árið
1994. Tekjur félagsins námu alls um
148 milljónum og jukust um 18%
milli ára. Arðsemi eigin fjár nam
alls um 21% á árinu og skaraði félag-
ið að þvi leyti töluvert fram úr öðrum
verðbréfafyrirtækjum.
Að sögn Brynhildar Sverrisdóttur,
framkvæmdastjóra félagsins, var
kaup og sala verðbréfa um 40 millj-
arðar króna á árinu, sem er um 20%
aukning frá árinu á undan. „Veltan
hefur aukist mikið frá ári til árs og
það sem af er þessu ári nemur aukn-
ingin um 50% frá sama tíma í fyrra.
Verðbréfasjóðirnir hafa hins vegar
staðið í stað frá árinu 1992 með um
tveggja milljarða eignir, en við
hyggjumst hins vegar leggja aukna
áherslu á að kynna þá á næstunni.
Þá nema heildareignir Fijálsa lífeyr-
issjóðsins um 3 milljörðum og 1,5
milljarðar eru í fjárvörslu fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki,“ sagði hún.
Hún segir fyrirhugað að stækka
fyrirtækið á næstunni og fjölga
starfsmönnum úr 15 í 20 á þessu
ári. Félagið fái aukið rými til um-
ráða á næstunni þegar söludeild
Vátryggingafélags Skandia flytji í
húsnæði við Nóatún í næsta ná-
grenni við höfuðstöðvarnar.
„Við höfum bæði átt vaxandi við-
skipti við lífeyrissjóði, fyrirtæki og
einstaklinga en ekki síður banka
þrátt fyrir að þeir hafi rekið sín eig-
in verðbréfafyrirtæki. Verðbréfa-
markaðurinn hefur stækkað mjög
mikið síðustu árin og fleiri aðilar eru
að koma inn á hann. Við höfum styrk
til að sækja fram og ætlum að leggja
aukna áherslu á að afla þekkingar
frá móðurfyrirtækinu í Svíþjóð,"
sagði Brynhildur. Eigið fé félagsins
nam alls um 153 milljónum í árslok
1995 og hafði aukist úr um 125
milljónum frá árinu á undan.
VISSIR ÞÚ ÞETTA UM REYKJAGARÐ HF.
OG McDONALD’S Á ÍSLANDI?
Alltaf gæði • Alltaf góður matur • Alltaf góð kaup
^ . LYST ehf., er leyfishafi McDonald's á íslandi. Ef frekari upplýsinga er óskad,
_ l" . | | skrifið þá góðfúslega til: LYST ehf. Pósthólf 52, 121 Reykjatnk,
Reyk|agarður nf eða: Reykjagarður hf, Urðarholt 6, 270 Mosfellsbcer.
LYST
Bjarni Ásgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Reykjagarðs hf. leggur
mikla áherslu á strangar vinnureglur
um hreinlæti, meðhöndlun og um-
gengni. Þessar ströngu reglur eru
einmitt ástæða þess að McDonald’s
valdi Reykjagarð hf. sem fram-
leiðanda kjúklingabita sinna en
Reykjagarður hf. er nú stærsti kjúk-
lingaframleiðandinn á markaðnum.
„Eggjaframleiðsla, útungun, upp-
eldi og slátrun eru í algjörlega
aðskildum húsum hjá okkur og
sérstakt starfsfólk er á hverjum
stað. Héraðsdýralœkninnn á Hellu
fylgist með allri framleiðslunni og
tekur reglulega sýni til eftirlits og til
þess að tryggja að allt sé í lagi.
Tœknimenn McDonald’s koma
einnig til okkar reglulega til að
skoða framleiðsluna. “
Kjúklingabitarnir fyrir McDonald’s
eru sérunnir hjá Reykjagarði hf.
strax að lokinni slátrun. Ekki aðeins
eru kjúklingarnir skornir í 8 bita
(ekki 9 eins og algengt er), heldur
eru þeir líka fitusnyrtir. Til að gera
kjötið ennþá meyrara og safaríkara
eru bitarnir síðan marineraðir með
sérstakri aðferð McDonald’s sem
tryggir ferskleika.
En McKjúklingur verður ekki bara
til á kjúklingabúitiu.
MacDonald’s fylgir náttúrulega
einnig stífum reglum við eldun
kjúklinganna og sérstakt er að olían
er hreinsuð strax eftir aðra hverja
steikingu. Ein ástæðan að baki
vinsældum McKjúklingsins er deigið
sem bitunum er dýft í áður en þeir
eru steiktir. Engin egg og ekkert ger
eru í deiginu en samt myndast mjög
stökk húð sem líka er einstaklega
bragðmikil, þökk sé blöndu ferskra
jurta og sérvahnna krydda.
„Styrkurinn liggur i öguðum vinnu-
brögðum. Að varan sé alltaf eins frá
degi til dags - bitarnir séu alltaf
jafnstórir og vel snyrtir."