Morgunblaðið - 04.05.1996, Page 26
MORGUNBLAÐIÐ
Bókin sem Verzlingar gefa út og inni-
heldur spémyndir af nemendum í sjötta
bekk heitir Spégríma.
Trausti í faununni, að sjálfsögðu með
ársskýrslu Veðurfræðingafélagsins í
hönd.
Faunumyndin af Jóni Múla frá 1940.
Hann er vöðvastæltur á myndinni, enda
var hann með kraftadellu á þessum tíma,
að sögn Jóns Bergmann.
^ ^ MEmM
Aí>RIR HUN HAÍÍ 5Ej
ÍeþekífínumrSS' ""
HÆRVerNEMV .
B, RAU-TAFAB ^ t
W>MA«rBEiuw„ '
BSUR AB ÞEll«\„ 'W., _
NIBUR5IBW, Atí K
ÍE FAjURKfeRi r. , *
KVNFEIÍBDMAUIM
(Utuj-t, fSw
Svava Björnsdóttir teiknaði faunu-mynd-
ina af Sigríði Dúnu á sínum tíma.
Færslu
á undan
hennaranum
Selma Björnsdóttir, söngkona
og umsjónarmaður sjónvarps-
þáttarins 0, var í 6. bekk R í
Verzlunarskólanum skólaárið
1993-4. Hún þurfti lítið að hafa
fyrir náminu.
TELMA Halldórsdóttir var með Selmu í
bekk. „Selma var ein af þeim sem aldrei
virtust þurfa að hafa mikið fyrir náminu.
Hún hafði mikinn metnað í þeim fögum sem
vöktu áhuga hennar og þar má helst nefna
íslensku, bókmenntafræði og sögu. Þrátt fyrir
háar einkunnir get ég þó ekki sagt að
samviskusemin í náminu hafi verið hennar
sterkasta hlið, enda var heimalærdómur okkar
vinkvennanna helst fólginn í að vera einni
færslu á undan kennaranum í bókfærslu.
Hún tók talsverðan þátt í félagslífi skólans,
en þó aðallega í sjötta bekk. Þá gerði hún sér
lítið fyrir og sigraði söngvakeppni Verzlunar-
skólans, Verzlóvæl, auk þess sem hún var dans-
höfundur í nemendamótssýningunni á sön-
gleiknum „Jesus Christ Superstar“. Aðals-
merki Selmu var sterkur húmor og mikil út-
geislun, enda var hún vinsæl jafnt meðal sam-
stúdenta sem kennara," segii- Telma.
Hrúhur alls
fagnaðar
Trausti Jónsson veðurfræðin-
mjög forvitinn að eðlisfari.
VEINN Eldon kennari var með
Trausta í bekk. „Trausti var mjög for-
vitinn nemandi. Það sem kom okkur
samnemendum hans í opna skjöldu þegar við
byrjuðum í þriðja bekk var að hann vann
kerfisbundið að veðurathugunum. Hann
hlustaði á veðurlýsingar, sama hvenær sólar-
hringsins var. Hann tók sér alltaf ákveðinn
tíma í veðurathuganir á dag. Hann var vel yfir
meðallagi sem námsmaður og hneigðist til
raunvísinda.
Trausti tók virkan þátt í félagslífínu, en
hann var og er enn stakur bindindismaður.
Við rákum til að mynda kvikmyndaklúbb
saman. Hann var gjarnan hrókur alls fagn-
aðar, vinsæll hjá öðrum nemendum og þótti
með eindæmum fyndinn. Eg man að það vakti
mikla athygli í þriðja bekk að á ferðatöskunni
hans stóð „Trausti Jónsson frá Borgarnesi“
og hann kynnti sig alltaf þannig. Síðan var
hann alltaf kallaður Trausti Jónsson frá
Borgarnesi. Hann var mikill grúskari og það
eina sem ég veit að hann hafði ekki áhuga á
var íþróttir. Hann var „með vottorð í leikfimi,“
eins og skáldið sagði,“ segir Sveinn.
Mlhill
sjarmnr
s
Jón Múli Arnason djassisti og
útvarpsmaður var í 6. bekk A í
Menntaskólanum í Reykjavík
árin 1939-40. Hann var vinsæll
meðal samnemenda sinna,
enda mikill sjarmör.
HALLDÓR Jónsson var með Jóni
Múla í A-bekknum á þessum tíma.
„Að mínu viti var Jón ekki orðinn
neitt vinstrisinnaður á þessum árum, eins og
kom á daginn seinna. Hann var ágætur nem-
andi, góður málamaður sem átti gott með að
læra, þótt hann hafi haft áhuga á ýmsu öðru
eins og gengur og gerist. Hann var og hefur
verið alla tíð ákaflega virtur og vinsæll hjá
samnemendum sínum, enda er hann ákaflega
skemmtilegur maður,“ segir Halldór.
Jón Bergmann var í B-bekknum á sama
tíma. „Jón Múli var afskaplega skemmtilegur
alla tíð. Hann var alltaf snyrtilegur og vel til
hafður, sem var ekki sjálfgefið á þessum tíma.
Hann þótti mikill sjarmör og ég held að flestar
stelpurnar hafi verið skotnar í honum. Á þess-
um árum var hann byrjaður að safna hljóm-
plötum, enda er hann landsþekktur sem tón-
listarmaður. Ég man að hann hélt ógurlega
mikið upp á Duke Ellington.“
Eúður
nemandi
Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir dósent var í 6. bekk A
1 Menntaskólanum í
Reykjavík árin 1971-2. Hún
átti auðvelt með að læra.
VAVA Björnsdóttir var með Sigríði
Dúnu í bekk. „Það er ekkert slæmt um
Sigríði að segja. Hún átti auðvelt með
að læra, var góður nemandi og stundaði
skemmtana- og félagslífið mikið. Hún var
mjög vel liðin af bekkjarfélögum sínum. Hún
var alltaf til í tuskið, hress og skemmtileg og
það var gaman að vera með henni. Það var alls
ekki greinilegt á þessum tíma að í henni blun-
daði stjórnmálamaður, þótt seinna hafi hún
fetað þá braut.
Ég man að hún ákvað í sjötta bekk að fara í
London School of Economics, en til þess þurfti
hún að ná fyrstu einkunn. Hún fór létt með
það.
Bekkurinn var aðallega skipaður stelpum
og á þessum tíma var til dæmis farið í gamla
Sigtún og Glaumbæ til að skemmta sér, fyrir
utan skólaböll og partí í heimahúsum. Við
Sigríður vorum miklar vinkonur, en Sigríður
Snævarr og Sigrún Steingrímsdóttir töldust
einnig til vinahópsins,“ segir Svava.
gur var í 6. bekk A í MR
skólaárið 1969-70. Hann var