Morgunblaðið - 08.05.1996, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 1996 21
LISTIR
Hvammstangi. Morgnnblaðið.
FRÁ tónleikum Karlakórsins á Hvammstanga.
Karlakór Reykjavíkur
á Hvammstanga
Morgunblaðið/Karl
Handrita-
sýning
í Arna-
garði
VEGNA mikillar aðsóknar
verður hátíðarsvning handrita
í sýningarsal Árnastofnunar
í Árnagarði framlengd til
laugardagsins 11. maí.
Sýningin var sett upp 21.
apríl sl. í tilefni af því að þá
voru 25 ár liðin frá heimkomu
fyrstu handritanna frá Dan-
mörku, Konungsbókar Eddu-
kvæða og Flateyjarbókar.
Þessi tvö handrit eru til sýnis
og auk þeirra saltarablað úr
Skálholti, sem stofnuninni var
gefið nýlega.
Á salarveggjum og í anddyri
er sýnt myndefni sem tengist
handritunum tveimur og sögu
þeirra, m.a. myndaröð frá
komu þeirra til landsins, af-
hendingu og fyrstu sýningu í
Árnagarði.
Sýningin er opin daglega
kl. 14-16, og eru allir vel-
komnir. Unnt er að panta
sýningar fyrir hópa á öðrum
tímum með dags fyrirvara,
en ekki eftir 11. maí.
Aðgangur er ókeypis, en
til sölu er sýningarskrá og
nýgerð veggspjöld með mynd-
um úr Konungsbók og Flat-
eyjarbók.
Sumarsýning með öðrum
handritum verður opnuð 1.
júní.
KARLAKOR Reykjavíkur helt
tónleika í Félagsheimilinu á
Hvammstanga 3. maí sl. á vegum
Tónlistarfélags Vestur-Húnvetn-
inga. Fjölmenni var á tónleikun-
um og viðtökur gesta góðar.
Karlakór Reykjavíkur varð 70
ára í janúar sl. og var söngskrá-
in valin með tilliti til þessa tíma-
móta kórsins. Einsöngvarar með
kórnum voru Friðbjörn G. Jóns-
son og Ásgeir Eiríksson og undir-
leikari Þóra Fríða Sæmundsdótt-
ir. Þessir listamenn ásamt kórn-
um heilluðu áhorfendur, en ekki
hvað síst stjórnandinn, Friðrik
S. Kristinsson, sem stjórnaði ■
kórnum af mikilli innlifun, svo
unun var á að horfa og hlýða.
Kórfélagarnir hafa tekið upp
nýja búninga i tilefni timamót-
anna og eru þeir af hinni þjóð-
legu gerð, sem nú er að öðlast
sess meðal íslenskra karlmanna.
Setur búningurinn þjóðlegt yfir-
bragð á kórinn.
Margt hefur verið í boði fyrir
tónelska Vestur-Húnvetninga á
liðnum vikum. Karlakórinn Lóu-
þrælar hélt fyrir nokkru árshátíð
á Hvammstanga, ásamt maka-
kór, Sandlóum og gestakór, sem
að þessu sinni var Samkór Mýra-
manna. Þá söng kvennakór hér-
aðsins, Lillukórinn, fyrir gesti
og gangandi þann 1. maí. Að-
gangur var ókeypis en gestum
boðið að kaupa veislukaffi í söng-
hléi. Þann 3. maí voru harmon-
ikkuleikar í félagsheimilinu Víði-
hlíð. Þar hittust nikkarar úr öllu
Húnaþingi og einnig úr Dala-
byggð. Spilað var, sungið og
dansað fram á nótt. Þá má geta
þess, að Kirkjukór Víðidalst-
ungukirkju stóð fyrir tónlistar-
skemmtun í Víðihlíð í marslok,
en megintilgangurinn var að
safna fyrir nýafstaðinni viðgerð
á flygli félagsheimilisins. Tónlist-
arskóli Vestur-Húnvetninga hef-
ur nýverið haldið vortónleika,
svo sem árlegt er.
Tónlistarfélag Vestur-Hún-
vetninga hefur mánaðarlega, frá
september til maí, staðið fyrir
tónlistaratburðum í héraðinu,
bæði með heimamönnum og að-
komnum listamönnum. Aðstaða
til tónleikahalds er allgóð í hér-
aðinu, bæði í félagsheimilum og
einnig í kirkjum. Þá hafa djass-
tónleikar gjarnan verið haldnir
á veitingahúsinu á Hvamms-
tanga, sem nú heitir Selið. Má
telja að starfsemi Tónlistarfé-
lagsins hafi farið að vonum
þeirra sem hrundu því í fram-
kvæmd. Formaður félagsins er
Guðrún Helga Bjamadóttir.
NEMENDATÓNLEIKAR Tónlistarskóla Garðabæjar
verða í kvöld í Kirkjuhvoli.
Vortónleikar Tónlist-
arskóla Garðabæjar
NEMENDATONLEIKAR Tónlist-
arskóla Garðabæjar verða í kvöld,
miðvikudagskvöld, kl. 19. Tónleik-
arnir verða haldnir í Kirkjuhvoli.
Strengjasveit yngri nemenda leik-
ur undir stjórn Eyjólfs Bjarna Al-
freðssonar. Auk þess koma fram
ungir einleikarar á ýmis hljóðfæri.
Næstu tónleikar verða föstudag-
inn 10. maí kl. 18 einnig í Kirkju-
hvoli. Þar koma fram suðræna
svingsveitin, undir stjórn Reynis
Stálkonan í
SÝNINGIN Stálkonan stendur nú
yfir í Kringlunni og mun hún standa
til 28. maí. Sýningin hefur að und-
anförnu staðið yfir í Listasafni
Akureyrar. Á sýningunni eru mynd-
ir af vaxtarræktarkonum eftir ljós-
myndarann Bill Dobbins.
Um myndir sínar segir Dobbins:
„Vaxtarræktarfólk er listafólk, eins
konar mennskir skúlptúrar. En það
að ljósmynda þá er einnig list. Til
Sigurðssonar, blásarasveitir og
einleikarar.
Föstudaginn 17. maí kl. 18 leik-
ur strengjasveit undir stjórn Unnar
Maríu Ingólfsdóttur og blásara-
sveit undir stjórn Edwards Frefe-
riksens. Einnig koma fram nem-
endur á efri stigum og leika ein-
leik og samleik.
Allir eru velkomnir á tónleikana.
Skólaslit verða fimmtudaginn 23.
maí kl. 18 í Kirkjuhvoli.
Kringlunni
að fanga þrívíðan hlut eins og
mannslíkamann þarf að beita öilum
tiltækum ráðum, túlkun og yfirveg-
un, svo ekki sé minnst á marg-
brotna tækni. Þessir einstaklingar
hafa brotið blað í sögunni. Mér
finnst því kröftum mínurn vel varið
við að koma þeim á framfæri."
Sýningin er í boði Gym 80 og
er sýningarstjóri Hannes Sigurðs-
son listfræðingur.
og kaupa lítið pekkt vörumerki?
þegar þú geturfengið Sanyo fyrir aðeins:
Heimilistæki hf
SÆTÚN 8 SÍMI 569 1500
90Q.I
Verð: 77.666
SANYO 28 EH 85
• NICAM stereo
• Svartur, flatur Black Matrix
myndlampi
• Textavarp með öllum
íslenskum stöfum
• Allar aðgerðir á skjá
• 1 scarttengi með
S-VHS inntaki
• Tengi fyrir heyrnartól
• CTI (ColourTransit
Improvement)
litaaðgreiningarkerfi
• Tengi fyrir videotökuvél
framan á
Umboðsmenn um land allt