Morgunblaðið - 08.05.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 1996 23
LISTIR
SAMKÓR Vopnafjardar
Morgunblaðið/Pétur H. ísleifs
Rafgít-
arleikur
í sal FÍH
GUNNAR Þór Jónsson rafgít-
arleikari heldur burtfarartón-
leika frá Tónlistarskóla FÍH á
morgun, fimmtudag 9. maí, í
sal Félags íslenskra hljómlist-
armanna,
Rauðagerði
27. Með hon-
um leika á
tónleikunum
Tómas Jó-
hannesson á
trommur, Ró-
bert Þórhalls-
SOn á bassa, Gunnar Þór
Oskar Guð- Jónsson
jónsson á Tenór Sax og Rík-
harður Arnar á píanó.
Gunnar Þór hóf nám við skól-
ann árið 1989 og hefur lært
hjá Hilmari Jenssyni og Birni
Thoroddsen.
Tónleikarnir hefjast kl. 20
og er aðgangur ókeypis. Allir
velkomnir.
Kvennakór
Reykjavíkur í
Hafnarborg’
KVENNAKÓR Reykjavíkur
heldur hina árlegu vortónleika
sína í Hafnarborg í Hafnarfirði
í dag, miðvikudag, og í Lang-
holtskirkju 10., 11. og 12. maí.
Tónleikarnir bera yfirskrift-
ina „ísland er land þitt“ og
verður þar flutt fjölbreytt dag-
skrá sem samanstendur af ís-
lenskum og erlendum lögum.
Meðal annars verður á tónleik-
unum frumflutt verk sem Þor-
kell Sigurbjörnsson hefur skrif-
að fyrir kórinn við ljóð Jóns úr
Vör, Konur.
Félagar í Kvennakór Reykja-
víkur eru nú um 120 talsins.
Auk kórsins munu minni hópar
kórkvenna flytja einstök lög.
Stjórnandi er Margrét J. Pálma-
dóttir og undirleikari er Svana
Víkingsdóttir.
Kvennakór Reykjavíkur
hyggur á söngferðalag til Ítalíu
nú í júnímánuði og eru tónleik-
arnir liður í undirbúningi þeirr-
ar ferðar.
Tónleikar
Samkórs
Vopnafjarðar
Bergman snýst hugur
á síðustu stundu
Stokkhólmi. Reuter.
SÆNSKI leikstjórinn Ingimar Berg-
man hætti á mánudag við að setja
gamanleikinn „Le Misanthrope" eftir
Moliére upp í New York í sumar,
aðeins nokkrum vikum áður en til
stóð að frumsýna það í borginni.
Bergman hafði sett leikritið upp í
Svíþjóð á vegum Konunglega leik-
hússins, Dramaten. í tilkynningu
leikhússins sagði hins vegar að eftir
að leikstjórinn hefði séð sýningu á
verkinu 28. apríl sl. hefði hann lýst
því yfir að það hefði tekið breytingum
í meðförum leikaranna og að hann
treysti sér ekki til að breyta því í tíma.
Ætlunin var að frumsýning yrði í
byijun júní í Brooklyn Academy of
Music og hefur ákvörðun Bergmans
komið sér ákaflega illa fyrir banda-
ríska leikhúsið, svo og Dramaten.
Til stendur að bjarga málinu með
því að setja upp sviðsetningu Berg-
mans á „Ivona, prinsessa Búrgúndíu“
eftir pólska leikskáldið Witold
Gombrowicz.
í sænska blaðinu Expressen var
fullyrt að Bergman hefði hætt við
að fara með sýninguna til Bandaríkj-
anna vegna þess hversu honum þótti
hún hafa versnað og að hann hefi
skammast sín fyrir hana. Ætlunin
var að sýningin yrði ein af síðustu
uppfærslum leikstjórans sem hefur
leikstýrt á sviði og í kvikmyndum í
hálfa öld. Hann hefur ekkert viljað
tjá sig um málið.
Skop og
veiðimennska
BðKMENNTIR
ÍLjóö
SÓLSKIN
Eftir Inga Steinar Gunnlaugsson
Hörpuútgáfan, 1996 - 95 bls.
ÞAÐ er fremur bjart yfir fyrstu
ljóðabók Inga Steinars Gunnlaugs-
sonar, enda nefnir hann hana Sól-
skin. Stíll hans er oft glaðhlakkaleg-
ur og á stundum kumpánlegur og
yrkisefnin jarðbundin. Ljóðum sínum
skiptir hann upp í fjóra flokka: Ham_-
ingju, Gönguseiði, Foldarskart og Á
veiðum og þessi heiti þeirra segja
býsna margt um efnisinnihaldið.
Ingi Steinar hefur ljóðmálið ágæt-
lega á valdi sínu. Hann á létt með
að yrkja bundin ljóð en mikill hluti
ljóðanna er þó óbundin ljóð og víða
má sjá tilraunir með nútímalegt
myndmál og leik að líkingum og orð-
um. Hins vegar finna menn ekki
mikla skáldlega alvöru í ljóðum hans
eða listræn átök og áraun nútímans
sem svo gjarnan er miðdepill nútíma-
ljóðsins á þar varla heima. Áhugi
Inga Steinars beinist miklu fremur
að veiðiskap og náttúruskoðun, því
hann er greinilega mikið náttúru-
Ingi Steinar
Gunnlaugsson
barn. Kvæðið Kvöld við Fiskilækjar-
vatn er nokkuð dæmigert um skáld-
skap Inga:
Þegar vindurinn geispaði golunni
og lognið
breiddi vængi sína yfir vatnsflötinn
fór bleikjan að taka
Ólympíuhringir um allt vatn
Eina af annarri losaði ég varlega
af flugunni
þakkaði leikinn
spýtti á nefið á þeim
og sleppti þeim mjúklega i vatnið
Vopnafjörður. Morgunblaðið.
SAMKÓR Vopnafjarðar hélt tón-
leika í Félagsheimilinu Mikla-
garði á Vopnafirði 30. apríl síð-
astliðinn. Kórinn hafði áður farið
í tónleikaferð um Austfirði og
sungið á Breiðdalsvík, Neskaup-
stað og í Brúarási.
Stjórnandi kórsins er Marcus
Glanville og undirleikari Indra
James. Einleikarar á tónleikun-
um voru Alfreð P. Sigurðsson,
Anna Guðný Sigurðardóttir,
Ómar Þröstur Björgólfsson og
Vigdís Agnarsdóttir. Samkór
Vopnafjarðar hefur starfað í þrjú
ár.
Ýmsar ádrepur má finna í bók
Inga Steinars. Þær eru nokkuð mis-
jafnar að áhrifamætti og stundum
finnst mér ádeilan renna út í sandinn.
Hún drukknar í orðaleikjum (íslensk
ijárfesting) eða er of vandlætingar-
full og ofljós til að verða að skáld-
skap (Af spori). Stundum tekst þó
betur til eins og í skopádeilu sem
nefnist Þula:
Konan á skjánum
kvöldgestur minn
þylur upp með blíðu brosi
boðslista sinn
oft finnst mér hann afar leiður
öskur klám og vopnaseiður
mér hún býður - mitt í hreiður -
morðin krydduð ránum
Konan á skjánum
Raunar er skopið aldrei langt und-
an í ljóðum Inga Steinars og ef til
vill besti kostur þeirra. Eftirminni-
legustu ljóð hans eru þau sem inni-
bera hæfilegan skammt af sjálfs-
hæðni eins og kvæðið Einfeldni:
Og ég held áfram
að beija höfðinu við steininn
og hlusta á þetta sérstæða
tómahljóð sem frá honum
kemur.
{ Sólskini má finna snoturlega ort
ljóð en kvæðin eru nokkuð mörg og
sum þeirra hefðu mátt missa sín ár
þess að bókin hefði beðið skaða af.
Helsti styrkur bókarinnar er þc
kímnigáfa höfundar og glaðlyndi sen
gerir mörg ljóðin að aðgengilegr
lesningu.
Skafti Þ. Halldórsson
ÞUMALÍNA
20 ára
Bama- og heilsuvöruverslunin
ÞUMALÍNA er 20 ára um
þessar mundir. Verslunin er nú
til húsa i Pósthússtræti 13.
í tilefni afmælisins eru ýmsar
uppákomur þessa viku, m.a.
verður kynning á WELEDA
HEILSU V ÖRUNUM:
Gigtaroliur, slakandi olíur,
möndluolíur f. andlit, hárvörur
gegn flösu og hárlosi, tannkrem
gegn tamisteini og bólgum að
ógleymdum calendula/camomill
barnavörunum frábæru, allt með
20% afmælisafslætti.
Á útsölufataslá er allt að 90%
afsláttur, barnaullamærfatnaður
með 20-50% afslætti.
Gigtar-nuddtækið NAVAFON
með 20% afslætti að
ógleymdum fræðslu
námskeiðum fyrir mæður - ^
verðandi foreldra - einnig 20% ■§
afsláttur fyrir þá sem skrá sig
þessa viku. 3
Upplýsingar í síma 551 2136.
Lindab
BILSKURS-
& IÐNAÐAR
HURÐIR
Lindab hurðirnar eru dönsk hágæða
framleiðsla. Þær eru þéttar með
sterkar og efnismikilar brautir, sem
gerir opnun og lokun auðvelda og
tryggir langa endingu. Hurðagormar
eru sérstakíega prófaðir og spenna
reiknuð út nteð njálp tölvu.
Lindab hurðirnar eru einangraðar og
fást í fjölmörgum útfærslum allt eftir
óskum viðskiptavina.
Lindab hurðirnar eru fáanlegar úr áli
og stáli með plastisol yflrborði, með
eða án glugga og gönguhurða.
Hurðabrautir geta verið láréttar, eða
fylgjandi þakhalla. Opnun getur verið
handvirk, hálfsjálfvirk eða sjálfvirk.
Lindab hurðirnar eru fáanlegar í lit-
um að ósk viðskiptavina.
I
s
Smiðshöfða 9 • 132 Reykjavík
Sími 587 5699 • Fax 567 4699
4
smíði
= HÉÐINN =
SMiÐJA
STÓRÁSI 6 • GARDABÆ • SlMI 565 2921 • FAX 565 2927
Hönnun • smíöi • viðgerðir • þjónusta
Í|= BÍLATORG FUNAHÖFÐA I Ss SB7-7777 “BS
Mercedes Benz 500 SE árg. '88, dökk-
blár. Gullfallegur bíll. Verð 2.950.000.
Skipti.
Range Rover Vouge árg. '91, silfurgrár,
3,9 I vél, sjálfsk. Verð 2.480.000. Skipti.
Volvo 850 st. árg. '94, hvítur, hleðslu-
jafnari, ek. aöeins 19 þús. km. Verö
2.350.000. Skipti á jeppa.
Toyota Landcruiser II MWB árg. ‘89,
rauöur, upphækkaöur, 36" dekk, Turbo
diesel Intercooler. Verð 1.860.000.
Skipti á dýrari. •
MMC Pajero Superwagon GLS árg.
'92, gull- og grænsans., sjálfsk., sóllúga,
upphækkaður, 33" dekk. Toppeintak,
ek. 65 þús. km. Verð 2.950.000. Skipti.
Suzuki Sidekick JX árg. '95, dökkblár,
upp hækkaður, 33" dekk, álfelgur, ek. 9
þús. km. Verð 2.200.000. Skipti.
MIKIL SALA - ÚTVEGUM BÍLALÁN TIL ALLT AÐ S ÁRA