Morgunblaðið - 11.05.1996, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 11.05.1996, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 11. MAI1996 LISTMUNIR Á LAUGARDEGI Hinn svokallaði endurreisnarstíll átti upptök sín á Ítalíu, en breiddist út til ann- arra landa Evrópu á 16. öld. Sigríður Ingvarsdóttir fræðir okkur hér um margbreytileika hans. MORGUNBLAÐIÐ STÓR kista úr eik frá 1588. Smíðuð í Bretlandi af þýskum innflytjanda. ÞÝSKUR skápur úr eik og ask- viði eftir Peter Flötner frá 1541. Endurreisnarstíllinn birtist hér og þar í Þýskalandi og þá fyrst í Suður-Þýskalandi. Það kom í hlut Albrecht Dúrer (1471-1528) sem löngum hef- ur verið talinn einn mesti listamaður Þýskalands, að vinna að þessari samlögun og innleiða endurreisnina, en vera þó trúr þýsku þjóðar- sálinni í þeim umbrotum og átökum sem þar gerðust. Diirer ferðaðist mikið alla tíð. Ítalíuferðir hans höfðu veruleg áhrif á listsköpun hans. Fyrst hélt hann til Ítalíu 1495 og síðar 1505 og dvaldist þá lengi í Feneyjum. Fyrsta stórverk Diirers var tréskurðarverk, „opinberun- in“, sem táknar opinberun Jóhannesar. Durer hafði ekki einungis tileinkað sér tækni ítala heldur gekk hann einn- ig í gotneskan skóla. Hann var því í vissum skilningi tímamótamaður og hafði áhrif á alla listþróun Þýska- lands. Listamaðurinn Hans Hol- bein yngri (1497-1543) er ásamt Albrecht Dúrer talinn mesti listamaður Þýska- lands. Hann hafði dvalist um tíma á Ítalíu og átti einnig stóran þátt í því að innleiða ítalska endurreisnar- stílinn í Þýskalandi. Það var ekki fyrr en um miðja öldina að lista- maðurinn Peter Flöttner frá Nuremberg byrjaði að þróa nýjar aðferðir í skreytingarlist frá Ítalíu. Atti hann stærstan þátt í því að innleiða endurreisnina í húsgag- nagerð. Fyrirmyndirnar sótti hann í fomklassísk minni sem kölluðu fram nýjar skrautgerðir; naktir drenghnokkar (putti), ferhyrnd, oft HIMINN úr eik með glæsilegum útskurði frá 1580. Á efri myndinni er þýsk brúðarhirsla úr eik og hlyni frá 1590. Hérna er kistum raðað saman, sem var vísir að klæðaskápnum. FRANSKUR skápur úr hnotu eftir Huges Sambin. c. 1570. þægilegri. Nýjar gerðir af húsgögnum komu fram á sjónarsviðið. Himinrúmið skipaði virðulegan sess í híbýl- um og varð jafnvel mik- ilvægasta húsgagnið. Mikið var lagt upp úr því að hafa svefnherbergið sem glæsilegast og var það jafnan notað sem móttökusalur. Kistan bjó enn yfir verulegu notagildi og var skreytt útskurði eða innlögn. Síðan var farið að raða kistum saman sem var vísir að klæðaskápnum. Nuremberg var þekkt fyrir glæsilega skápa af mismunandi gerðum. Yfirstéttin lagði mikið upp úr því að hafa skáp- ana sem glæsilegasta, þeir voru úr íbenvið, inn- greyptir dýrindis stein- um og málmum. niðurmjókkandi stoð með manns- höfði efst (hermes), bjamarkló, akantusmynstur, gotneskar skrautgerðir, dýrsmyndir og grím- ur sem voru áberandi á skápum og kistum. Peter Flöttner varð einn atkvæðamesti listamaður næstu ára í Þýskalandi. ítalski endurreisnarstíllinn barst han- dahófskennt norður um Þýskaland með teikningum og varð flatari en á Ítalíu og Frakklandi. A 16. öld jókst velmegun í Þýskalandi og húsakynnin urðu Bretland tSSO-tGBO Á dögum Elísabetar 1. Breta- drottningar sögðu Bretar skilið við gotneska stílinn, en gekk illa að fínna eigin stíltegundir. Þeir voru fremur háðir handahófskenndum áhrifum erlendra listamanna. Áhrif endurreisnarstílsins frá Ítalíu bárust fyrr tO annarra landa Evrópu en Bretlands. Fjarskipti og samgöngur tóku óhemju langan Art* a VI (7 4' 4' u/wnwlinl* . . A .... A 4 .t.. vegi þeim hefðum sem höfðu verið ríkjandi hjá þjóðum sem voru langt í burtu frá Róm. Upphafsmaður endurreisnar- stílsins í Bretlandi var Inigo Jones (1573-1651). Árið 1613 hélt hann í listkönnunarferð tO Ítalíu og var fyrstur Englendinga að rannsaka rómverskar minjar. Þegar hann kom til London var hann skipaður húsameistari konungs. Frægasta bygging Inigos er Drottningar- húsið í Greenwich í London. Hann grundvallaði enska byggingarlist og hreinskorin form hans féllu vel að enskum þjóðarsmekk. Glæsilegri húsgögn voru undir áhrifum frá endurreisnarstílnum og manierisma, flögð íburðarmiklu skreytimynstri úr blómum og blöð- um sem kom upphaflega frá ísl- ömskum listamönnum. Ibenviður og perlur voru einnig notaðar í skrautgerð húsgagna. Útskurður var þó algengasta skreytingin. Áhersla var lögð á að hafa himin- sængina sem glæsilegasta. Algengasta húsgagnið frá þessum tíma var kistan sem var notuð undir lín. Skápurinn varð einnig vinsæll, samsettur úr tveimur hlu- tum, undir- og yfirskáp. Vin- sælustu viðartegundirnar voru eik og hnota frá 1500?1650. Þegar líða tók á 17. öldina fór að berast talsvert á hflluskápum með snúnum fótum. Lausar sessur höfðu verið notaðar á stólum frá ómunatíð, en armstóflinn birtist í því formi sem við þekkjum hann núna með bólstruðu baki. 1 I. ITALSKI endurreisnarstíllinn breiddist til Frakklands í byrj- un 16. aldar. Um það leyti sem endurreisnin var að festa rætur á Ítalíu reis Frakkland upp úr Hundrað ára stríðinu undir samein- uðu konungsvaldi. Síðar blönduðust Frakkar í héraðsdeflur á Ítalíu og kynntust þannig endurreisninni á ftalíu. Frans 1. ríkti í Frakklandi frá 1515-1547, þegar hann sneri til Frakklands 1525 helltist ítölsk tíska yfir Frakkland. Hann fékk ítalska listamenn í þjónustu sína og sendi íranska listamenn tO Ítalíu að nema hinn nýja stíl. Enn mægðust franskir konungar við Medici ættina í Flórens. Frans 1. lét son sinn Henrik II sem var barn að aldri ganga að eiga Katrínu Madici frá Flórens. Árið 1528 stóð Frans 1. konungur fyrir þvi að reisa eina glæsilegustu konungshöll allra tíma, Fontainbleau, rétt fyrir utan París sem átti að undirstrika endur- reisnarstflinn. Réð hann tvo ítala, Giovanni Battista Rosso og Frans- eseo Primaticcio (1504-70), til að skreyta viðhafnarsal hallarinnar sem varð fyrirmynd að skreyting- um víða í Evrópu. Glæsileikinn í Fontainbleau varð til að efla franskan listiðnað svo um munaði. Frakkar fóru nú að seflast til listrænnar forystu einkum í myndvefnaði, sem síðar náði há- marki í Góbelínverksmiðjunni skammt frá París. Þjóðverjar höfðu skarað frarn úr í gotneskri tréskurðarlist, en það kom í hlut Frakka að leiða fram ný skrautform í anda endurreisnar- stflsins. Árið 1550 kom út rit af teikningum eftir franska listamann- inn Jacques Androuet DuCerceau (1520-84) sem átti eftir að hafa mik- 0 áhrif í skrautgerð húsgagna í Frakklandi. Fyrirmyndimar voru sóttar í fomklassísk minni sem hæfðu til ytra skrauts; ljónslíki, dýrsmyndir, grímur, amartákn, og hvers kyns kynjakvikindi. Frönskum húsgögnum frá þess- um tíma svipar talsvert til ítalskra húsgagna. Skápurinn (armoires) hafði eina hurð og var aðalhirslan í Frakklandi. Þegar líða tók á 16. öld- ina kom liram ný tegund af skápum, voru þeir samsettir úr tveim hlut- um, undir- og yfirskáp. Yfirskáp- urinn var yfirleitt minni, styttri og grennri. Tvær hurðir vom yfirleitt fyrir hverjum skáp og voru með glæsilegum útskurði á framhliðinni og þóttu mikil listaverk. Rúmstæðið var gert að íburðarmiklu húsgagni á þessum tíma þ.e. rúm með „himni“ yfir. Hægt var að draga tjöld fyrir hliðarnar. Armstóllinn, með bólstr- uðu sæti og baki, var farinn að líta dagsins ljós á seinni tíma endurreisnarinnar í Frakklandi. Lítið hefur varðveist af bólstruðum stólum frá þessu tímabili. Áhrif ítalsku en- durreisnarinnur í Þýskalandi í byrjun 16. aldar stóðu Þjóðverj- ar á miklum tímamótum. Þeir höfðu einangrast í þjóðlegri sundrung og gotneskri íhaldsemi. Talsverð tregða var á útbreiðslu endurreisn- arinnar norður um Alpafjöll til Þýskalands. Þar ríkti gotneski stfll- inn lengur en í öðrum löndum. Síð- an dró úr viðskiptum Þjóðverja við Ítalíu, verslun færðist frá Feneyj- um tfl Hollands og rofnuðu stjóm- artengsl sem verið höfðu milli land- anna. FRANSKT borð úr hnotu frá 156071600 eftir Jacques Andrauet DuCerceon. Endurreisn í E t/rápu Áhríf ítalska entturreisnarstíEsins í Frakkiantti 1500-1600

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.