Morgunblaðið - 11.05.1996, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
AFMÆLI
LAUGARDAGUR 11. MAÍ1996 37
ASMUNDUR
BREKKAN
Ásmundur Brekkan
prófessor er sjötugur í
dag, 11 maí. Hann á
að baki sérlega glæsi-
legan feril sem starfs-
maður í heilbrigðisþjón-
ustu okkar íslendinga.
Allt frá því að hann kom
frá Svíþjóð að loknu
sémámi árið 1962 hefur
Ásmundur verið áber-
andi persónuleiki í ann-
ars litríkri flóru manna
og kvenna sem gert
hafa þjónustu við sjúkl-
inga að sínu ævistarfi.
Ásmundur hefur allt-
af tekið virkan þátt í félagsstarfi og
gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir
samtök lækna á íslandi og erlendis.
Hann er heiðursfélagi í nokkrum
samtökum og hefur fengið mikinn
trúnað samstarfsmanna fyrir störf
sín. Þannig var hann formaður
læknaráðs á Borgarspítalanum um
skeið og í síðustu viku lauk hann
farsælu tímabili sem formaður lækn-
aráðs Landspítalans.
Ásmundur tók við yfirlæknisstöðu
á röntgendeild Borgarspítalans 1965
°g byggði upp þá deild sem þar starf-
ar í dag. Hann skipulagði nám röntg-
entækna og var skólastjóri Röntgen-
tæknaskólans frá 1972 og þar til
nám röntgentækna var flutt í Tækni-
skóla íslands. 1982 var hann skipað-
ur prófessor í röntgen- og mynd-
greiningu við Háskóla íslands og
forstöðulæknir á röntgen- og mynd-
greiningardeild Landspítalans.
Ásmundur er mikill ákafamaður í
öllu sem hann tekur sér fyrir hendur
og það svo, að við yngra fólkið eigum
oftast fullt í fangi með að fylgja
honum eftir. Hann er
geysivel lesinn, hefur
leiftrandi áhuga á fag-
inu og er alltaf reiðubú-
inn að takast á við ný
verkefni. Mitt í öllu
þessu blundar svo lista-
maður með óvenju
næmt auga fyrir hvers
konar menningu og list-
um og ágætur píanó-
leikari.
Gæðastjórnun,
gæðahandbækur, „tele-
medicine", framtíðar-
sýn í heilbrigðismálum
og tölvumálum í heil-
brigðisþjónustu, eru oftast ekki að-
albaráttumál manna sem eru að ljúka
starfsferli sínum, en Ásmundur hefur
þekkinguna, áhuga fyrir og dugnað-
inn til að byija aftur upp á nýtt.
Persónulega vil ég þakka alla vin-
áttu og handleiðslu. Eg þakka marg-
ar ógleymanlegar stundir, í daglegu
starfi og á ferðum erlendis en einkum
fyrir það, að Ásmundur hefur alltaf
heiðrað 24 tíma regluna þegar við
höfum orðið ósammála.
Hann hefur með einum eða öðrum
hætti stuðlað að sérnámi flestra sér-
fræðinga í myndgreiningu, sem
starfa á Islandi í dag, auk þess að
stofna til náms fyrir röntgentækna
og hefur því lagt meira af mörkum
til nútíma röntgen- og myndgrein-
ingar á íslandi en aðrir menn.
Ásmundur og Ólöf Helga eru á
ferð um Ítalíu, en ef hann les þessar
línur á veraldarvef okkar tíma þá
hafðu þökk fyrir og við óskum þér
hjartanlega til hamingju með dag-
inn.
Ólafur Kjartansson.
FÉLAGSSTARF
Sveitarstjórnarkosningar
11. maí 1996
á norðanverðum Vestfjörðum
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er í Sjálfstæðishúsinu
(Valhöll), Háaleitisbraut 1, Reykjavík.
Símar: 588 4042, 588 4033.
Fax: 515 1717.
Skrifstofustjóri: Brynjólfur Samúelsson.
D-listinn.
SlltQ ouglýsingor
Nám í cranio sacral-
jöfnun
1. hluti af þremur
22.-28. júní.
Kennari: Svarupo
H. Pfaff, lögg.
„heilpraktikerin”
frá Þýskalandi.
Uppl. og skrán. í sfma 564-1803.
Dagsferð sunnud. 12. maí
kl. 10.30 Fjallasyrpan, 1. áfangi
af 10 1 þessari sívinsælu ferða-
röð; Esjan, Þverfellshorn.
Jeppaferð 11.-12. mai
kl. 08.00 Básar í Goöalandi.
Leiðbeint verður um akstur í
straumvötnum.
Verð kr. 1.800/1.500.
Útivist.
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkóma I dag kl. 14.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Sunnudagur 12. maí
Dagsferðir
1) Kl. 10.30 Strandarheiði,
rústir og sel. Strandarheiði heit-
ir heiðin ofan byggða allt frá
Afstapahrauni og inn að Voga-
landi upp af Vatnsleysuströnd.
I fylgd staðkunnugs fararstjóra,
Sesselju Guðmundsdóttur,
verða rústir og sel könnuð á
þessum slóðum.
2) Kl. 13.00 Hrafnagjá (Strand-
arheiði) - Snorrastaðatjarnir.
Létt gönguferð.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni austanmegin og Mörkinni
6. Verð kr. 1.200. Fritt fyrir börn
m/fullorðnum.
Ferðafélag Islands.
SÁNING SUMARBLÓMA
NÚ ÞEGAR veðrið er búið að
vera svona hlýtt og gott erum við
áreiðanlega bytjuð að hugsa um
blómin í garðinum. Þau fjölæru eru
farin að kíkja upp úr moldinni og
margir laukar í blóma. Sumarblóm-
in eru nú þegar farin að koma í
verslanir, en heldur snemmt er að
setja þau út núna því alltaf er von
á næturfrosti. Þeir sem eiga gróður-
skála geta hinsvegar gróðursett í
þá. I gróðurvöruverslunum eru
núna seldar óteljandi tegundir af
fræjum. Það er orðið of seint að
sá sumarblómum sem þurfa langan
ræktunartíma, en til eru tegundir
sem enn má sá með góðum ár-
angri. Það eru til dæmis morgunfrú
(Calendula officinalis), dúkablóm
(Tagetes tenuifolia) og skjaldflétta
(Tropaeolum majus) sem er klifur-
planta en er Iíka falleg
í ker og svalakassa.
Til þess að ræktun-
in takist vel og blóm-
in verði ekki teygð
þarf að vera hægt að
hafa plönturnar á
björtum stað, til
dæmis í gluggakist-
unni. Bæði er hægt
að dreifsá í bakka og
síðan dreifsetja í
potta, þegar fyrsta
varanlega laufblaðið
sést, en auðveldast er
að sá beint í litla potta
því þá skemmast ræt-
ur plantnanna ekki.
Bakkamir og pott-
BLOM
VIKUNNAR
327. þáttur
SKJALDFLETTA og krýsi.
arnir þurf að vera
hreinir og best er að
kaupa svokallaða
sáðmold, sem er laus
við sjúkdóma, illgresi
pg er áburðarsnauð.
ílátin eru nærri fyllt
og yfirborðið sléttað.
Ef sáð er í bakka er
fræjunum dreift jafnt
yfir en í potta eru
sett tvö til þijú fræ
og önnur plantan
fjarlægð ef bæði fræ-
in spíra. Síðan er ör-
lítilli mold stráð yfir
og vökvað vel á eftir.
Gott er að setja gler
eða glært plast yfir svo rakinn
haldist í moldinni og ef sólin verð-
ur of sterk þarf að skýla sáning-
unni til dæmis með því að leggja
dagblað yfir glerið. Þegar fræin
byija að spíra er glerið/plastið tek-
ið af og þá þarf plantan á allri
þeirri birtu að halda sem hún nær
í. Nú þarf að gæta þess vel að
ekki þorni í pottunum. Meðan fræ-
in eru að spíra er æskilegur hiti
20°C en 15-18°C eftir spírun.
I lok maí þarf síðan að herða
plönturnar og hafa þær úti á dag-
inn þar til þær síðan verða gróður-
settar á endanlegan stað í byijun
júní. Gangi ykkur vel.
KoFi
MORGUN
BLAÐSINS
rúbkaup
í blíðu og stríbu
Sunnudagsblaöi Morgunblaðsins 26. maí nk. fylgir blaðauki, sem
heitir Brúbkaup - í blíbu og stríbu. í blaðaukanum verður fjallað
um undirbúninginn fyrir brúðkaupið, veisluna, birtar uppskriftir og
rætt um veisluþjónustur. Einnig veröur umfjöllun um fötin og tískuna,
brúðarkjólaleigur, brúðkaupsferðina, brúðkaupsgjafir og þróun þeirra,
fjallað verður um kostnaðarliði o.m.fl.
Þeim, sem áhuga hafa á ab auglýsa í þessum blabauka,
er bent á ab tekib er vib auglýsingapöntunum til
kl. 12.00 mánudaginn 20. maí.
Dóra Gubný Sigurbardóttir og Anna Elínborg
Gunnarsdóttir, sölufulltrúar í auglýsingadeild,
veita allar nánari upplýsingar í síma 569 1171 eba
meb símbréfi 569 1110.
plDri9»íl>t®í<ii|i
- kjarni málsins!