Morgunblaðið - 30.05.1996, Side 2

Morgunblaðið - 30.05.1996, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÖUu flugi Bingó-ferða aflýst DANSKA ferðaskrifstofan Wihlborg Rejser og umboðsaðili hennar hér á landi, Bingó ehf., tilkynnti til sam- gönguráðuneytis í gær að fyrirtækið gæti ekki staðið við áætlanir sínar um flug milli íslands og Kaupmanna- hafnar. Hefur öllu flugi á þeirra veg- um því verið aflýst. Samkvæmt upplýsingum frá ráðu- neytinu hefur það gert samning við Flugleiðir um heimflutning farþega sem eru erlendis á þeirra vegum og erlendra ferðamanna sem staddir eru hér og eiga gildan miða til síns heima. Hilmar A. Kristjánsson hjá Bingó ehf. sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að tíu milljóna króna trygging sem ferðaskrifstofan lagði fram til þess að fá starfsleyfi færi í Samið við Flugleiðir um flutning far- þega sem lagðir eru af stað í ferð Ovíst með endurgreiðslu á farmiðum það að greiða farseðla þeirra sem væru staddir í Kaupmannahöfn eða hérlendis. Búið væri að selja farseðla fyrir tólf milljónir og ljóst að farseðlar með öðru flugfélagi fengjust ekki á sama verði og Bingó ehf. hefði boð- ið. Það kæmi því ekki í ljós fyrr en búið væri að greiða fyrir þá hvort eitthvað yrði aflögu hjá fyrirtækinu til þess að bæta þeim skaða, sem búnir væru að kaupa miða en ekki famir af stað. Hilmar segir Bingó ehf. bera ábyrgð á farmiðasölunni og því eigi kaupendur enga kröfu á Wihlborg Rejser, ef ekki tekst að bæta öðrum farþegum miðakaupin. Sem þýði að eigi Bingó ehf. ekki fyrir endur- greiðslu, geti viðskiptavinir ekki leit- að annað. Þá sagði Hilmar að ástæða þess að tvær ferðir Wihlborg hefðu fallið niður væri sú að leigufiugið frá Gatwick til Kaupmannahafnar hefði ekki borið sig. Ferðir milli Kaup- mannahafnar og íslands hefðu hins vegar selst betur, en ekki var unnt að útvega flugleyfi milli þeirra staða og fá áhafnir til þess með svo skömmum fyrirvara. Hlutaðeigandi eru beðnir um að hafa samband við Guðrúnu Jóhanns- dóttur á söluskrifstofu Flugleiða í Reykjavík, Laugavegi 7, í dag eftir klukkan níu. Þeir sem eru í Kaupmannahöfn eru beðnir um að snúa sér til Hafdís- ar Óskarsdóttur á skrifstofu Flug- leiða, Vester Farimagsgade 1, ann- arri hæð, í síma 33123388. Ný lög um ríkis- starfsmenn UMDEILT frumvarp um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins varð að iögum í gær en það var samþykkt á Alþingi með 30 atkvæð- um gegn 20 en tveir þingmenn sátu hjá. Stjórnarsinnar greiddu allir at- kvæði með frumvarpinu, utan Guð- mundur Hallvarðsson Sjálfstæðis- flokki sem sat hjá og hann sat einn- ig hjá í atkvæðagreiðslu um frávís- unartillögu stjómarandstöðunnar við frumvarpið. Stjómarandstæð- ingar greiddu allir atkvæði gegn fmmvarpinu, utan Kristinn H. Gunnarsson Alþýðubandalagi sem sat hjá. Samkvæmt nýju lögunum er æviráðning ríkisstarfsmanna af- numin að mestu. Embættismenn verða, með nokkmm undantekning- um þó, ráðnir til fímm ára í senn. í þeim hópi eru prestar og hefur það verið gagnrýnt mjög í umræðu um málið. Þá gera iögin m.a. ráð fyrir því að forstöðumenn ríkisstofnana geti greitt starfsmönnum viðbótarlaun ofan á grunnlaun, en laun embætt- ismanna verða þó alfarið ákveðin af kjaranefnd eða kjaradómi. Einn- ig er biðiaunaréttur þrengdur. Miklar breytingar Frumvarpið tók miklum breyt- ingum í meðfömm Alþingis, bæði við aðra og þriðju umræðu um málið. Svavar Gestsson Alþýðu- bandalagi lagði til að fmmvarpinu yrði vísað aftur til efnahags- og viðskiptanefndar eftir að breyting- artillögur við 3. umræðu höfðu ver- ið samþykktar. Heimild er fyrir því í þingsköpum Alþingis að prenta frumvarpið eins og það lítur út eft- ir að breytingartillöguriiar við 3. umræðu hafa verið samþykktar og Ieggja það þannig fyrir að nýju. Þessi tillaga var felld með 30 at- kvæðum gegn 21. Bókaútgefendur gagnrýna bókaskatt Hagfræðistofnun telur svar ráð- herra rangt AÐALFUNDUR Félags íslenskra bókaútgefenda iýsir yfír furðu sinni á skýrslu fjármálaráðherra um áhrif 14% virðisaukaskatts á útgáfu bóka, blaða og tímarita. í því efni er vitnað í álitsgerð Hag- fræðistofnunar Háskóla íslands um efni skýrslunnar. Fundurinn skorar á stjómvöld að fella niður virðisaukaskatt af bókum. í skýrslu sem fjármálaráðherra lagði fyrir Alþingi í síðasta mánuði um áhrif virðisaukaskatts á bóka-, blaða- og tímaritaútgáfu á íslandi er komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé ástæða til að ætla að álagn- ing skattsins hafí rýrt stöðu at- vinnugreinarinnar. Félag íslenskra bókaútgefenda taldi svar ráðherr- ans mjög villandi og fékk Hag- fræðistofnun HÍ til að semja álits- gerð um skýrslu hans. Villandi gögn Hagfræðistofnun gagnrýnir mjög aðferðir og ályktanir sem fram koma í greinargerð fjármála- ráðherra. Hagfræðistofnun telur til dæmis gagnrýnisvert að meta afkomu bókaútgefenda með af- komu blaðaútgefenda eins og gert er skýrslunni. Stofnunin segir að í skýrslunni sé verið að bera sam- an gögn á villandi hátt að ýmsu leyti og það, ásamt öðru, leiði til rangrar niðurstöðu. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson BALDUR Grétarsson (t.v.) og Aðalsteinn Jónsson með hreindýrs- kálfana þrjá sem þeir náðu í sl. föstudag. Þeir félagar voru báðir í kuldagöllum eins og þeim sem Baldur er í og stakk hann ein- um kálfinum inn á sig og Aðalsteinn tveimur og þar máttu þeir dúsa á leiðinni til byggða. Halda hreindýr til að sýna ferðafólki AÐALSTEINN Jónsson, bóndi á Klausturseli, fór ásamt Baldri Grétarssyni sl. föstudag inn í svokallaðan Háls innan við Kára- hnjúka og náði í þrjá hreindýrs- kálfa. Meiningin var að sækja tvo kálfa en á leiðinni til baka björg- uðu þeir þriðja kálfinum, sem var nýborinn, upp úr krapa. Aðal- steinn og kona hans, Olafía Sig- marsdóttir, eru með tvo vetur- gamla kálfa fyrir og ætla þau að hafa dýrin til sýnis fyrir ferða- fólk. Kálfarnir fá sérstaka blöndu nýmjólkur, eggja og lýsis og segja þau hjónin að þeir þríf- ist vel. Aðalsteinn segist vonast til að hægt verði að ten\ja dýrin og beita þeim fyrir sleða eða vagn. Hann segir veturgömlu kálfana miklu styggari en hina nýfæddu, sem þekki ekkert ann- að en að umgangast fólk. Þeir veturgömlu séu þó farnir að elta krakkana um, eta úr lófa manns og láta stijúka sér. Aðalsteinn segir hugmyndina að þessum hreindýrabúskap hafa kviknað í tengslum við vinnu- stofu Olafíu þar sem hún vinnur ýmsa muni úr hreindýraleðri. Þeim hafi fundist tilvalið að hafa lifandi dýr til sýnis fyrir ferða- fólk en að Klausturseli komu nokkur hundruð manns á síðasta ári. Þorsteinn Pálsson Prestinum ekki vikið vegna und- irskrifta- söfnunar ÞORSTEINN Pálsson kirkjumála- ráðherra hafði ekki fengið ályktun aðalsafnaðarfundar Langholtssafn- aðar í hendur, þegar blaðið átti sam- tal við hann í gær, en hafði frétt af henni í fjölmiðlum. Fundurinn álykt- aði að kirkjuyfírvöldum og ráðherra bæri að taka til greina skriflegar yfirlýsingar 1.500 sóknarbarna og að ráðherra leysi sóknarprestinn frá störfum svo fljótt sem verða mætti. „Ég sé að þarna er vísað til undir- skriftasöfnunarinnar sem fram fór í vetur,“ sagði Þorsteinn. „Ég svaraði því þá til að samkvæmt íslenskum lögum væri ekki hægt að víkja ævi- ráðnum embættismanni frá störfum á grundvelli undirskriftasöfnunar og lögin hafa ekki breyst,“ sagði Þor- steinn. Hann taldi ályktun fundarins engu breyta þar um. Þorsteinn sagði það ljóst að alvar- leg staða væri komin upp í þessum söfnuði og ef til vill ástæða fyrir sóknarprestinn að meta það hvernig hann þjónaði best söfnuðinum og Guði sínum. ■ Sóknarnefnd hlaut/12 Ásgeirsdóttir, ráðu- í félagsmálaráðuneyt- fundi forsætisnefndar Forsætisnefnd Norðurlandaráðs Islenskur framkvæmda- stjóri ráðinn BERGLIND neytisstjóri inu, var á Norðurlandaráðs í Helsinki í gær valin til að gegna starfi fram- kvæmdastjóra nefndarinnar til næstu fjögurra ára. Þetta er hæsta staðan inn- an Norðurlanda- ráðs og hefur ís- lendingur aldrei gegnt henni áður. Forsætisnefndin er samstarfs- vettvangur þjóðþinga Norðurland- anna. Skrifstofa hennar er nú í Stokkhólmi en hún verður flutt síðla sumars til Kaupmannahafnar þar sem skrifstofur norrænu ráðherra- nefndarinnar eru fyrir. Berglind segist gera ráð fyrir að hún taki við stöðunni á sama tíma og starfsemin hefst á nýjum stað. Berglind Asgeirsdóttir Rætt um fiskveiðistj órnun á fundi sjávarútvegsráðherra þjóða við N-Atlantshaf FUNDI sjávarútvegsráðherra Norður-Atlantshafsríkja í Reykja- vík lýkur í dag með útgáfu sameig- inlegrar yfírlýsingar ráðherranna. Rússneski sjávarútvegsráðherr- ann segir Rússa hafa hugleitt að senda varðskip til að verja Smug- una í Barentshafí. Að sögn Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra var rætt í gær um ýmis viðfangsefni viðvíkj- andi fískveiðistjórnun á heima- miðum og úthafinu, meðal annars nýja tækni við fískveiðieftirlit. Þar er meðal annars rætt um gervihnattaeftirlit og sagði Þor- steinn að þjóðirnar þyrftu að ákveða hvernig það yrði af hendi leyst. Aðlaga þarf reglur Þá var farið yfír helstu verkefni á sviði fiskveiðistjórnunar á vett- Rússar hafa hug- leitt að senda varð- skip í Smuguna vangi NAFO og NEAFC sem bíða úrlausnar innan svæðasamtak- anna. Þorsteinn sagði ljóst að laga þyrfti reglur að nýrri þróun í haf- réttarmálum og að taka þyrfti til- lit til gildistöku úthafsveiðisátt- málans. Einnig var rgett í gær um fyrir- komulag veiðistjórnunar á Flæmska hattinum. Þorsteinn sagði íslendinga leggja áherslu á að þar yrði miðað við aflakvóta en ekki sóknarmark. Endurmat á eftirlitsaðferðum kom til umræðu og var rætt um að leitað yrði ódýr- ari leiða við eftirlitið. Rússneski sjávarútvegsráðherr- ann Korelskíj varpaði fram þeirri spurningu í samtali við Stöð 2 í gærkvöldi hvernig íslendingar brygðust við ef Rússar sendu 100-150 fiskiskip til veiða á þorsk og loðnu við íslensku fiskveiði- mörkin. Rússar hafa íhugað að veija Smuguna Korelskíj sagði þá hugmynd hafa komið upp að senda varðskip í Smuguna. Nikolajev, hershöfð- íngi í rússnesku landamærasveit- unum, biði bara eftir því að ákvörðun yrði tekin um að senda oflug varðskip til að veria Smug- una. Korelskíj sagði Rússa hafa átt við svipað að etja í Okhotskahafi entekmt aðieysa úr því með sam- stilltu ataki. Engin vandamál af þessu tagi yæru nú á norðvestur Kyrrahafí, Barentshafið væri eitt eftir. Taldi ráðherrann að þar yrði gripið til svipaðra ráða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.