Morgunblaðið - 30.05.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996 15
FRÉTTIR
*
Ovenju margir
dómpápar á landinu
ÓVENJU margir dómpápar
hafa sést hér á landi að undan-
förnu eða milli 40 og 50 fugl-
ar. Dómpápar sáust fyrst á
Austurlandi árið 1994.
Dómpápi er fugl af finkuætt
og verpir hann um mestalla
Evrópu eða allt frá Azoreyjum
og austur eftir Asíu. Dómpápar
eru staðbundnir og fuglar á
Bretlandseyjum, sem eru af
sérstakri undirtegund, eru al-
gjörir staðfuglar. Dómpápar
frá Skandinavíu eru hins vegar
farfuglar að eunhverju leyti og
sjást þeir fuglar stundum á
Bretlandseyjum. Það kemur
stöku sinnum fyrir að dómpáp-
ar, líklega frá Skandinavíu,
flakka út fyrir venjubundin
heimkynni. Það átti sér einmitt
stað í haust þegar stærsta dóm-
pápaganga í manna minnum
fór af stað. Síðasta skráða
gangan á Bretlandi af svipaðri
stærð var árið 1910.
Stærsta dómpápagangan
Nú hafa dómpápar sést um
allt Island og eru það milli
40-50 fuglar. Aður en gangan
hófst höfðu sést hér alls um
40 fuglar þannig að nú hafa
komið fleiri dómpápar á nokkr-
um mánuðum en höfðu sést á
Islandi áður. Dómpápinn er
ekki eina fuglategundin sem á
það til að flakka, því að tegund-
ir eins og krossnefur, silki-
toppa og fleiri gera þetta einn-
ig-
Karlfugla og kvenfugla dóm-
pápa má auðveldlega þekkja í
sundur á sterk rauðbleikri
bringu karlfuglsins og gráu
baki. Bæði kynin eru með svart
Breytingar
á úthlut-
unarregl-
+
umLIN
NOKKRAR breytingar hafa verið
gerðar á úthlutunarreglum Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna fyrir
skólaárið 1996-1997. Lán vegna
bóka- og tækjakaupa hækka úr
40% af grunnframfærslu eins mán-
aðar í 50%.
Samkvæmt breytingunum verð-
ur nú lánað vegna greiðslu venju-
legs meðlags að fullu en jafnframt
fellt niður að helmingur meðlags
hjá greiðanda komi til frádráttar
tekjum hans þegar lán til hans er
reiknað.
Veitt verður lán að jafnaði í níu
mánuði fyrir fullt nám á skólaári.
Þetta þýðir að menn fá lán miðað
við níu mánaða námstíma þegar
starfstími skóla er milli átta til níu
mánuðir og menn stunda nám allt
skólaárið.
Grunnframfærsla hækkar um
nálægt 2% eða um 1.100 kr. á
mánuði fyrir námsmann á íslandi
í leiguhúsnæði, en svonefnt frí-
tekjumark verður óbreytt, 180
þúsund kr. vegna námsmanns á
Islandi í leiguhúsnæði og 140 þús-
und kr. ef viðkomandi er í foreldra-
húsum. Þá eru tekin af tvímæli
um að úrskurðir stjórnar sjóðsins
í vafamálum eru endanlegir og
verða ekki bornir undir æðra
stjómvald enda þótt unnt sé að
kvarta yfir þeim við umboðsmann
Alþingis eða kæra þá til dómstóla.
höfuð, vængi og stél, með hvít-
an gump og eitt hvítt væng-
belti. Hljóðin eru auðþekkt tíst.
Dómpápar eru skógarfuglar og
gætu vel lifað hér og því vonum
við að einhveijir þeirra sem
eru á landinu ílendist hér.
Fleiri finkutegundir flækjast
hingað til lands og heitir sú
algengasta fjallafinka og er
hún ekki ósvipuð dómpápan-
um.
Morgunblaðið/Gunnar Þór Hallgrímsson
Sjóvá-Almennar eru fyrsta tryggingafélagið sem
hefur lækkað tryggingakostnað heimilanna með
afslætti og endurgreiðslu á hluta iðgjalda.
Ræddu við tryggingaráðgjafa okkar
í Kringlunni 5, næsta umboðsmann
eða leitaðu álits hjá viðskiptavinum
sem þekkja Stofn af eigin raun.
SJOVAljÍoALMENNAR
Þú tryggir ekki eftir á!