Morgunblaðið - 30.05.1996, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Logsoðið á listasafni
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík
var í viðbragðsstöðu á Kjarvals-
stöðum í gær þegar Halldór
Ásgeirsson myndlistarmaður
var að vinna og selja upp eitt
verka sinna sem verður á sýn-
ingunni Náttúran í íslenskri
myndlist er opnuð verður á
Listahátíð í Reykjavík. Halldór
bræddi hraungrýti með log-
suðutækjum niður á gipsplötur
sem síðan voru hengdar upp á
vegg. Hluti verksins sést á bak
við listamanninn. Mary Robin-
son, forseti írlands, staldraði
við á Kjarvalsstöðum í gær og
fylgdist um stund með Halldóri
að verki.
Framhaldsskólafrum-
varp orðið að lögnm
ALÞINGI samþykkti í gær ný lög um
framhaldsskóla með 36 atkvæðum
þingmanna stjómarflokkanna og Ai-
þýðuflokks en þingmenn hinna stjóm-
arandstöðuflokkanna sátu hjá.
Lögin miða að því að auka sjálf-
stæði skólanna og styrkja stjóm
þeirra. Lögð er megináhersla á starfs-
nám og gert ráð fyrir mun virkari
þátttöku atvinnulífs í tillögugerð og
stefnumótun en nú er. Einnig er gert
ráð fyrir aukinni verkaskiptingu milli
framhaldsskóla.
Miðað er við að árlegur starfstími
nemenda í framhaldsskólum verði
ekki styttri en 9 mánuðir, eins og nú
er, og þar af skuli kennsludagar ekki
vera færri en 145. Þetta felur í raun
í sér fjölgun um 10 kennsludaga en
próftími er jafnframt styttur. Bjöm
Bjamason menntamálaráðherra lýsti
þvi yfir við lokaumræðu um frum-
varpið, að þessi breyting kæmi ekki
Sjö daga
átak gegn
umferðar-
slysum
UMFERÐARRÁÐ, Fararheill og bif-
reiðatryggingafélögin gangast fýrir
sjö daga umferðarátaki í næstu viku
sem hefst laugardaginn 1. júní.
Markmiðið er . að vekja athygli al-
mennings á fjölda umferðarslysa og
tollinum sem þau taka. í frétt frá
Umferðarráði segir að slysakostnaður
í umferðinni sé 16,2-18,8 milljarðar
króna, sem samsvarar tekjum þjóðar-
innar af ferðaþjónustu og er þrefalt
hærri upphæð en varið er til reksturs
ríkisspítalanna, svo dæmi séu tekin.
Átak Umferðarráðs og bifreiða-
tryggingafélaganna hefst formiega
með samkomu í Laugardal klukkan
14 á laugardag. Þar verður sýnt hvað
verður um bíl sem lendir á steinvegg
á 90 kílómetra hraða og hvemig fólki
er náð úr stórskemmdum bíl. Einnig
verður búnaður björgunarsveita til
sýnis og veltibíllinn fer nokkra hringi
til að sanna ágæti bílbelta.
. Sjónvarpsstöðvamar sýna stuttan
þátt laust fyrir klukkan 20 þessa viku
til framkvæmda fyrr en á skólaárinu
1997-8 en frumvarpið á aðfaka gildi
í ágúst, mánuði áður en skóiarnir
taka til starfa. ' . - ■
Lagafrumvarpið var nokkuð gagn-
rýnt af stjómarandstæðingum. Sig-
ríður Jóhannesdóttir, Alþýðubanda-
lagi, sagði við atkvæðagreiðsluna að
fátt væri í frumvarpinu sem kæmi
nemendum til góða eða bætti aðstöðu
þeirra, það byði upp á aukna miðstýr-
ingxi og drægi úr möguleikum kenn-
ara til að hafa áhrif á stefnumótun .
í menntamálum.
Deilt um heimavistir
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
lögðu fram nokkrar breytingartillögur
fyrir 3. umræðu um frumvarpið en
þær voru allar felldar, þar á meðal
tillaga um að ríkið greiði áfram að
fullu kostnað við byggingu heimavista
en samkvæmt lagafrumvarpinu skipt-
ist þessí kostnaður á milii. ríkis og
sveitarfélaga, en gert er ráð fyrir að
samið verði um livernig aúkinni
kostnaðarþátttöku sveitarfélága yerði
mætt.
Nðkkrir stjómarþingmenn höfðu í
ufnræðu lim frumvarpið lýst andstöðu
við þetta, en þeir féllu frá andstöð-
unni eftir að Björn Bjarnason lýsti.
því yfir, að hann mundi gangast fyr-
ir úttekt á þörf fyrir heimavistarrými
við framhaldsskólana. Teknar yrðu
upþ viðræður milli menntamálaráðu-
néytisins og viðkomandi sveitárféiága
vegna aukinnar hlutdeildar þeirra í
kostnaði og þess hvemig sá munur
yrði jafnaður.
Alþingi samþykkti einnig í gær lög
um kennara og skólastjórnendur
grunnskóla, en samkvæmt þeim halda
grunnskólakennarar þeim, réttindum
sem þéir hafa þegar skólinn færist
til sveitarfélaganna nú í ágúst.
UMFERÐARRÁÐ, Fararheill og bifreiðatryggingafélögin
standa fyrir átaki gegn umferðarslysum 1.-7. júní,
sem kynnt var í húsnæði Króks í gær.
þar sem greint verður frá hvemig
gengið hefur að komast hjá_ slysum
og óhöppum í umferðinni. Útvarps-
stöðvar munu jafnframt fjalla um
umferðina frá ýmsum hliðum þessa
daga, en átakinu lýkur 7. júní. Þá
verður minnisvarði um Karl Sighvats-
son tónlistarmann, sem lést í umferð-
arslysi á Suðurlandsvegi 2. júní 1991,
afhjúpaður á sunnudag, skammt frá
slysstað í grennd við skíðaskálann í
Hveradölum.
Fylgst verður með fjölda umferð-
arslysa og reynt að meta hvort átak-
ið og miðlun upplýsinga í kjölfar þess
beri árangur og þá hvérsú mikinn;
Samstarfíð markar upphaf umferðar-
öryggisáætlunar tii 2001 og vonast
þeir, sem standa að áætluninni, til
þess að takist að vekja almenning og
stjómvöld til vitundar um mikilvægi
þess að taka sameiginiega á til þess
að koma í veg fyrir umferðrslys, seg-
ir loks í frétt frá Umferðarráði.
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi formaður yfirkjörstjórnar
Ástæðulaust að víkja fyrr
en framboð lágu fyrir
„EKKERT tilefni var til að víkja úr
yfirkjörstjórn fyrr en það lá fyrir
hverjir væru í framboði. Fram að
þeim tíma var bara um að ræða fyrir-
ætlanir manna um að fara í framboð
og fráleitt að yfirkjörstjómarmaður
víki sæti vegna slíkra hugleiðinga,"
segir Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.
um þá gagnrýni Sigurðar G. Guðjóns-
sonar hrl. í Morgunblaðinu i gær, að
hann hafí ekki gert nokkrar athuga-
semdir þegar meðmælendalistum
vegna framboðs Ólafs Ragnars
Grímssonar var skilað inn eða vottorð
um þá gefíð út. Sigurður er umboðs-
maður Olafs Ragnars gagnvart yfir-
kjörstjóm.
Jón Steinar segir að afskipti hans
af meðmælendalistum frá Ólafí Ragn-
ari hafi eingöngu verið með þeim
hætti að gefa vottorð um að menn á
listunum væru heimilisfastir í til-
teknum kjördæmum og hefðu aldur
til að kjósa á kjördegi. „Þegar kemur
að framkvæmd kosninga eru störf
yfirkjörstjómar allt annars eðlis. Þá
Sigurður G. Guðjónsson vísar til stjón-
sýslulaga um hugsanlegt ólögmæti
aðgerða Jóns Steinars
kann að þurfa að úrskurða um ýmis
áiitaefni og framkvæmd kosning-
anna, teija atkvæði og úrskurða um
vafaatkvæði. Við slík störf reynir á
hæfí nefndarmanna. Það er líka skrít-
ið að Sigurður skuli í öðru orðinu
segja að ég þurfí ekki að víkja en í
hinu að ég hefði átt að gera það fyrr.“
Tilhæfulausar
samsæriskenningar
Sigurður G. Guðjónsson sagði það
sína niðurstöðu að Jón Steinar hætti
í yfírkjörstjóm til að geta beitt sér í
þágu einhvers frambjóðanda. „Ég hef
ekki látið uppi stuðning við neinn
frambjóðanda og hef ekki í hyggju
að gera það opinberlega. Það em
hefðbundin viðbrögð manna að búa
sér til einhverjar samsæriskenningar
og ég get ekki sagt annað en að það
er með öllu tilhæfulaust."
Jón Steinar kveðst ekki átta sig á
hvað Sigurður sé að fara, þegar hann
segi ummæli um Ólaf Ragnar á mörk-
um þess að vera lögleg. „Ég varð að
skýra það út hvers vegna ég vík úr
sæti mínu. Það er vissulega rétt hjá
Sigurði að dómsmálin, sem ég fer
yfir, eru öll skjalfest og ekkert nýtt
á ferðinni, en þetta eru ástæður þess
að ég vík. Aðalmálið fyrir Ólaf Ragn-
ar Grímsson frambjóðanda er, að það
er nóg af góðum mönnum til að fram-
kvæma þessar kosningar. Hans
hagsmunir eru fólgnir í því, að það
sé gert af mönnum, sem hafa hlut-
lausa stöðu gagnvart honum. Það
er ég að tryggja með þessu.“
Sigurður G. Guðjónsson sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
með ummælum um hugsanlegt ólög-
mæti aðgerða Jóns Steinars vísaði
hann til stjómsýslulaga.
„Jón Steinar vísar sjálfur til stjóm-
sýslulaga til að styðja ákvörðun sína
og ég geri slíkt hið sama,“ sagði Sig-
urður.
„Samkvæmt þeim lögum taka
stjómvöld sínar ákvarðanir og kynna
þær þeim sem málið varðar, áður en
þær eru sendar til fjölmiðla. Það er
heldur ekki siður stjómvalda, sem
taka hlutverk sitt alvarlega, að hnýta
í þann sem vanhæfíð beinist að, þeg-
ar um slíkt er að ræða. Þá er tekið
málefnalega á málum og persónuleg
afstaða til viðkomandi aðila á ekki
að endurspeglast í niðurstöðunum.
Stjómsýsiulögin em réttarreglur
framkvæmdavaldsins og eftir þeim
verða þeir að fara sem ætla að beita
þeim fyrir sig, eins og Jón Steinar
gerir." -
Vörugjald af bílum
Flokkum
fækkað
ALÞINGI samþykkti í gær fmm-
varp til laga um breytingu á lögum
um vömgjald af ökutækjum. Sam-
kvæmt lögunum fækkar vöm-
gjaldsflokkum úr fjómm í þijá.
Gjaldflokkamir miðast við
sprengirými véla. í 1. gjaldflokk
rúmast bflar með 0-1.600 rúm-
sentimetra vélar sem bera 30%
gjald, í 2. flokk 1.601-2.500 rúm-
sentimetra vélar sem bera 40%
gjald og í þriðja flokki vélar stærri
en 2.500 rúmsentimetrar sem bera
65% gjald.
Varamaður í
yfirkiörstjórn
Akveður
sig* á morgun
HARALDUR Blöndal hrl., 1. vara-
maður í yfírkjörstjóm Reykjavíkur,
segist ákveða það á fundi nefndar-
innar á morgun hvort hann tekur
sæti í kjörstjóminni. Jón Steinar
Gunnlaugsson hrl., formaður yfír-
kjörstjórnarinnar, ákvað í fyrra-
dag, eins og kunnugt er, að víkja
sæti úr kjörstjöminni vegna fram-
boðs Ólafs Ragnats Grímssonar.