Morgunblaðið - 30.05.1996, Side 17

Morgunblaðið - 30.05.1996, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996 17 LAIVIDIÐ Morgunblaðið/Sigurður Jónsson 80 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Suðurlands Selfossi - 80 nemendur voru 655 nemendur stunduðu nám í skólans undir stjórn Jóns Inga brautskráðir frá Pjölbrautaskóla skólanum á vorönninni í dagskóla Sigurmundssonar en kórinn er nú Suðurlands laugardaginn 25. maí og 84 hófu nám í öldungadeild á söngferðalagi í suðurhérðuðum að viðstöddu fjölmenni að venju. skóians. Við athöfnina söng kór Þýskalands. Brynjubær brá sér í sveitina Flateyri - Þar eð sólin skein sínum hlýju geislum fannst Sigrúnu Magnúsdóttur kjörið að drífa kon- urnar í Brynjubæ með sér heim til sín að Kirkjubóli í Valþjófsdal og skoða kiðlingana þar sem þeir skjögruðu nýfæddir í túninu undir vökulu auga móður sinnar. Það ríkti mikil gleði og umhyggja þeg- ar þær héldu kiðlingunum að sér og hjöluðu við þá. Og þeir undu sér glaðir í fangi þeirra, í öruggu skjóli frá varginum honum krumma um stundarsakir. Morgunblaðið/Egill Egilsson 150 ára verslunarafmæli Hátíðarhöld á Þórshöfn Þórshöfn - Undirbúningur vegna verslunarafmælis Þórshafnar hef- ur staðið yfir hjá afmælisnefnd en á þessu ári eru liðin 150 ár síðan Þórshöfn fékk verslunarleyfi. Á tímum einokunarverslunar hér á landi voru aðeins nokkrar hafnir sem höfðu verslunarleyfi og var landinu skipt í verslunarsvæði. Landsmönnum var þá óheimilt að versla annars staðar en við þá höfn sem þeir tilheyrðu samkvæmt þeirri skiptingu. Verslunarleyfi Þórshafnar var staðfest fyrir 150 árum í framhaldi af því að einokun- arlögunum af aflétt á íslandi. Þessara tímamóta verður minnst í júlí og hefst dagskráin föstudags- kvöldið 19 .júlí n.k. Hátíðarhöldin verða á menningarlegum nótum og fram koma viðurkenndir lista- menn sem allir eiga ættir sínar að rekja hingað og er það fólk í leikl- ist, myndlist og á tónlistarsviði, s.s. Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari og Einar Kristján Ein- arsson, gítarleikari, Sveinn Guðna- son listmálari og leikararnir Arnar og Helga Jónsbörn og fleira lista- fólk. Leikfélagið á Þórshöfn verður með leikþátt sem byggður er á leikriti eftir heimamann og dans- leikur verður í félagsheimilinu Þórsveri. Siglingar og sjóstanga- veiði eru einnig á dagskránni, svo og útsýnis- og gönguferðir. Tívolí verður á staðnum svo börnin gleymast ekki. Burtfluttir Þórshafnarbúar hafa sýnt komandi afmælishátíð mikinn áhuga og ætla t.d. fullorðin ferm- ingar„börn“ að grípa tækifærið og halda upp á fermingarafmælið hér á æskuslóðunum. Það eru því allar horfur á að margt verði um mann- inn í plássinu þessa helgi í júlí. Við tjaldstæðið verður komið upp aðstöðu fyrir ferðafólk og búa aðilar í ferðaþjónustu sig undir að taka á móti auknum fólksíjölda. Hótel Jórvík hér á Þórshöfn býður upp á mat og gistingu en í ná- grenni Þórshafnar er einnig ferða- þjónusta bænda en þar hafa hestar og önnur dýr mikið aðdráttarafl fyrir börnin. Ferðaþjónusta er starfrækt í Svalbarðsskóla og á Ytra-Álandi í Þistilfirði en í Skeggjastaðahreppi er einnig bændagisting á bænum Felli og er það ekki langur akstur frá Þórshöfn. Sundlaugin og heiti potturinn eru alltaf vinsæl, svo ekki sé minnst á Heilsuræktina, sem býður upp á ljósabekk, sauna- bað og líkamsræktartæki svo allir verða í fínu formi í fríinu. Það eru því ýmsir möguleikar í boði fyrir fólk sem hyggst sækja Þórshöfn heim á komandi afmælis- hátíð - og allir vona að verðurguð- imir skarti sínu fegursta af tilefn- inu. ww SJOARINIU SIKATI aa BÝÐUR YKKUR VELKOMIN I FJORIÐ! LEIÐIIU LIGGUR í CRiniDAVÍK, BLÁA LÓNIÐ OC SELTJÖRN BHB ■BNBMBBNBMBBaBHBM Kl. 14:00 - 22:00 Sýningar í menningarmiðstöð og skóla opnar alla dagana ?ú. $u€ií *96 HHHHMHHHHHHHHHEHHHHH Hitaveita Suðurnesja orkuverið opið Kl. 10:00 og kl. 14:00 Skemmtisigling og sjóstöng Hámark 10 manns í hverri ferð Kl. 14:00 Fyrirtækjakynningar Stakkavík, saltfiskverkun - Húsatóftir, saltfiskverkun Fiskanes, humarvinnsla - Gullvík, söltun á grásleppuhrognum Þorbjörn, netavinna og trolluppsetning Brunnar hf. fyrirtæki í stáliðnaði fyrir sjávarútveginn Krosshús, nótagerð og trollvinna Útsýnisflug með þyrlu - Gönguferðir Markaðstorgið opnar við Fiskmarkaðshúsið Bíla- og viðlegusýning við íþróttahúsið Hestaleiga og hestvagnsferð við Slökkvistöðina Sundlaugin opin - Bláa lónið opið Silungsveiði í Seltjörn - Húsatóftagolfvöllur opinn Leiktæki fyrir börnin á skólalóðinni Kl. 14:00 - 19:00 Jþróttavöllur Knattspyrnumót 3. fl. kvenna UMFG (2 lið), Keflavík, Haukar, Fjölnir, Afturelding og Leiknir. Kl. 15:00 Fiskmarkaðshúsið Uppboð á glænýjum fiski fyrir almenning HHHHHHHHHHH Kl. 15:30 - 17:00 Þruman Sklfuskrall fyrir börn 6 til 7 ára Kl. 17:30 - 19:00 Þruman . Skífuskrall fyrir börn 8 til 9 ára Kl. 17:00 Verslunarmiðstöð Lfnuskautakeppni, þrír aldurshópar Kl. 20:30 Grindavíkurkirkja Tónleikar barnakórs Tónlistarskóla Grindavíkur Kl. 20:00 - 23:00 Þruman Skífuskrall fyrir börn 10 til 13 ára Frítt tjaldstæði og hjólhýsastæði Veitingahúsin opin og strætó gengur um bæinn og upp í Bláa lón á kvöldin Öll dagskrá er háð breytingum og veðri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.