Morgunblaðið - 30.05.1996, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Karfaveiðarnar á Reykjaneshrygg
Togarnarnir hver í kjöl-
far annars með fullfermi
KARFAVEIÐAR á Reykjanes-
hrygg ganga mjög vel þessa dag-
ana og íslensku togaramir streyma
hver af öðrum til hafnar með full-
fermi. Langstærsti hluti sjófrystu
afurðanna fer á markað í Japan
en einnig eru stórir markaðir í
Evrópu.
Halldór Eyjólfsson hjá Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna segir að
maímánuður hafi verið virkilega
góður og mun betri en í fyrra og
líkari því sem var 1994. Hann seg-
ir erfítt að segja nákvæmlega hve
framleiðslan sé í tonnum talið það
sem af er árinu þar sem SH hafi
á sínum snærum ísfisktogara og
þeirra afurðir séu unnar í landi og
á frystitogurunum sé karfinn bæði
heilfrystur og hausskorinn. Hins-
vegar gæfi það vísbendingu um
magnið að um 3000 tonnum af
karfa var landað úr frystitogurum
á vegum SH í síðustu viku.
Halldór segir að langstærsti hluti
framleiðslunnar fari hausskorinn á
Japansmarkað eða um 80%, en
einnig fari hluti framleiðslunnar til
1
suður-Evrópu. Heilfrystur karfi fer
mest á Kóreu en einnig hafí farið
töluvert af flökum á markað í norð-
ur-Evrópu.
Að sögn Halldórs hafa góð afla-
brögð á Reykjaneshrygg ekki haft
mikil áhrfif á verð á karfa og ekki
hafi komið til lækkana. „Gæðin á
þessum vörum hafa verið það góð
að ekki hefur komið til lækkunar
enn sem komið er. Framleiðendur
hafa verið að vanda sig það sem
af er og uppskera eftir því,“ segir
Halldór.
Sj ómannadagsblað
Vestmannaeyja komið út
Vestraannaeyjum. Morjjunblaðið,
SJÓMANNADAGSBLAÐ Vest-
mannaeyja 1996 er komið út.
Blaðið er 160 blaðsíður, í því er
fjölbreytt efni og yfir 250 myndir
prýða blaðið. Margir skrifa grein-
ar í blaðið og er efnisval af ýmsu
tagi.
Meðal efnis má nefna; í útræði
frá austfjörðum, eftir Þórarin
Magnússon, sem fjallar um sum-
arveiðar Vestmannaeyinga á opn-
um bátum frá austfjörðum fyrir
50 - 60 árum. Kostgangarar, pftir
Margo Renner og Ingu Óskars-
dóttur, sem er byggt á viðtöium
við konur sem seldu fæði og þjón-
ustu í Vestmannaeyjum á árum
áður. Sjómaðurinn og bóndinn,
sem er viðtal Ólafs Sigurðssonar
við Hilmar Jón Brynjólfsson,
bónda á Þykkvabæjarklaustri,
um minningar hans frá vertíðum
í Vestmannaeyjum. Hvað verður
um kvótann? Grein eftir Gísla
Pálsson, mannfræðing, og Agnar
Helgason. Grunsamlegt skip
framundan - fulla ferð, eftir
Ólaf Val Sigurðsson, um land-
helgisgæslu frá sjónarhóli varð-
skipsmanna. Eyjabanki suður á
Banka, eftir Guðjón Ármann Ey-
jólfsson, um Eyjamiðin en greinin
er framhald af grein sem hann
skrifaði í Sjómannadagsblað
Vestmannaeyja 1995. Fjöldi ann-
arra greina eftir ýmsa höfunda
er í blaðinu auk kaflans Minning
látinna þar sem er að finna fjölda
minningargreina. Alls eru 26
greinar í blaðinu auk ljóða og
myndaopna úr lífi og starfi sjó-
manna.
Utgefandi Sjómannadagsblaðs-
ins er Sjómannadagsráð Vest-
mannaeyja 1996 en ritstjóri og
ábyrgðarmaður er Sigmar Þór
Sveinbjömsson, sem hefur rit-
stýrt balðinu undanfarin ár. Blað-
ið er prentað hjá Prentsmiðjunni
Eyrúnu í Vestmannaeyjum og
verður gengið með það í hús til
sölu í Vestmannaeyjum auk þess
sem það verður selt í Granda-
kaffi, Umferðarmiðstöðinni og
Bókabúð Árbæjar í Reykjavík, í
Bárunni í Grindavík og Kænunni
í Hafnarfirði.
Flest skip
flotansí
i •• n * * *
hofn a sjo-
mannadag
LANGFLEST fiskiskip íslenska flot-
ans streyma nú til hafnar vegna
sjómannadagsins sem er nk. sunnu-
dag. í samningum segir að öllum
fískiskipum sé skylt að vera í landi
kringum sjómannadag og gilda
sömu reglur fyrir öll íslensk skip,
hvort sem þau eru að veiðum innan
íslensku lögsögunnar eða ekki. Þó
má veita undantekningar frá þess-
um reglum sé skip að veiða í sigl-
ingu og einnig gilda sveigjanlegri
reglur fyrir skip sem eru að veiðum
á Flæmska hattinum.
Hjá Sjómannasambandi íslands
fengust þær upplýsingar að sam-
kvæmt samningum skulu öll íslensk
fiskiskip vera komin til hafnar í síð-
asta lagi kl.12 á hádegi á laugar-
degi fyrir sjómannadag og láta ekki
úr höfn fyrr en í fyrsta lagi kl.12
á hádegi á mánudegi eftir sjó-
mannadag. Sjómenn eiga rétt á 72
klukkustunda fríi í kringum sjó-
mannadaginn og er útgerðamönn-
um í sjálfsvald sett hvoru megin við
hátíðina þeir hafa fríið lengra.
Einu undantekningamar á þess-
um samningum eru þegar skip eru
að veiða upp í siglingar á erlenda
markaði. Þeim er þá heimilt að vera
á sjó á sjómannadag en verða að
bæta 36 klst. við næsta hafnarfrí.
Einnig hafa gilt sveigjanlegri reglur
varðandi veiðar á Flæmska hattin-
um. Strangt til tekið eiga sjómenn
þar að fá reglubundið frí á sjó-
mannadag en með undanþágum er
hægt að fresta því og bæta því við
næsta hafnarfrí eða uns skipin koma
til heimahafnar.
Whitewater :
íhámæliáný
Dómur í Arkansas áfall fyrir Clinton
DÓMUR yfir tveimur fyrrverandi
viðskiptafélögum Bills Clintons
Bandaríkjaforseta og Jim Guy Tuck-
er, ríkisstjóra Arkansas, hefur vakið
umræðu um fasteignaviðskipti for-
setahjónanna í Whitewater á ný.
Whitewater-málið virtist vera að
fjara út, en sakfelling þremenning-
anna þykir benda til þess að það
geti enn orðið Clinton fjötur um fót
í baráttunni fyrir endurkjöri.
Clinton lagði sig fram um að láta
líta út fyrir að ekkert hefði í skorist
í gær. Hann hélt fund um skólamál,
ræddi Bosníu og hitti ríkisstjóra úr
röðum demókrata.
Þar vantaði reyndar einn, Tucker,
sem tók við af Clinton þegar hann
varð forseti og sagði af sér á þriðju-
dag, aðeins nokkrum klukkustund-
um eftir að hann var fundinn sekur
um tvö af sjö ákæruatriðum í meintu
samsæri um að svíkja þrjár milljónir
dollara (tæpar 200 milljónir króna)
út úr tveimur ríkistryggðum banka-
stofnunum.
James McDougal var fundinn sek-
ur um 18 ákæruatriði af 19 og Sus-
an McDougal, fyrrverandi kona
hans, um öll ákæruatriðin fjögur.
Vitnisburður Clintons
Clinton var ekki sóttur til saka,
en hann bar vitni í málinu. Veijend-
ur lögðu mikla áherslu á vitnisburð
hans í málflutningi sínum og tefldu
trúverðugleika forsetans fram gegn
framburði Davids Hales, eins vitna
ákæruvaldsins, sem hafði haldið því
fram að Clinton hefði í embætti ríkis-
stjóra Arkansas þrýst á sig um að
veita Susan McDougal 300 þúsund
dollara (um 20 milljóna ísl. króna)
ólöglegt lán árið 1986, en endurtók
þá fullyrðingu ekki í vitnisburði, sem
tók níu daga.
Saksóknari hélt því fram að lánið
hefði verið notað til að fjárfesta í '
Whitewater. Clinton-hjónin og
McDougal-hjónin hugðust hagnast á
framkvæmdum þar á áttunda og
níunda áratugnum, en fjárfestingin
reyndist misheppnuð. Töpuðu Clin-
ton-hjónin fé á henni.
Sá skaði er hins vegar lítill miðað
við þær efasemdir, sem hafa vaknað
um heilindi Clintons og hann hefur
átt erfítt með að kveða niður. Fyrir-
sögn fréttar í dagblaðinu Wall Street
Journal í gær hljóðaði svo: „Allir
aðiljar í Whitewater fundnir sekir
þrátt fyrir vitnisburð forsetans."
Aðstoðarmenn forsetans hófust
þegar handa við að koma sinni túlk-
un á dóminum á framfæri við ijöl-
miðla.
„Allir, sem hlut áttu að þessum
réttarhöldum, jafnt sækjendur sem
veijendur, gátu komið sér saman
um eitt: forsetinn tengdist á engan
hátt þeim ásökunum sem réttarhöld-
in snerust um,“ sagði Mark Fab-
iani, sérlegur ráðgjafi Clintons, í
yfirlýsingu.
Clinton gaf sig óvænt á tal við
blaðamenn við Hvíta húsið og kvaðst
ekki telja að niðurstaða kviðdómsins
benti til að vitnisburður sinn hefði
verið dreginn í efa.
Kviðdómarar í málinu segja að
skjöl, sem lögð voru fram, hafi skipt
mestu máli. „Trúverðugleiki forset-
ans var aldrei álitamál," sagði Sandy
Wood, formaður kviðdómsins.
Túlkun liðsmanna Clintons átti
ekki upp á pallborðið hjá repúblikön-
um. Tony Blankley, aðstoðarmaður
Newts Gingrich, forseta fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings, sagði að
dómurinn þýddi að „yfirhylmingin"
væri að fara „úr böndunum“.
„Þessar sakfellingar gefa til
kynna hversu djúpt angar Whitewat-
er-harmleiksins ná,“ sagði Alfonse
DAmato, repúblikani frá New York
formaður bankanefndar öldunga-
deildarinnar.
DAmato setti á laggirnar sér-
staka Whitewater-nefnd til að fara
í saumana á hlut forsetans í málinu.
DAmato hefur reynt að kalla Hale
fyrir nefndina, en það hefur strandað
á kröfu um að ekki megi nota vitnis-
burðinn gegn honum síðar.
DAmato sagði í síðustu viku að
fáist Hale ekki ti! að bera vitni
muni nefndin ekki kalla fleiri til vitn-
isburðar. Búist er við að í skýrslu
nefndarinnar, sem á að koma út um
miðjan júní, verði Clinton-hjónin
harðlega gagnrýnd.
Demókratar segja hins vegar að
það muni grafa undan trúverðug-
leika skýrslunnar að DAmato er
jafnframt annar formanna kosn-
ingastjórnar Bobs Doles, forseta-
frambjóðanda repúblikana.
Hagnast Dole?
Dole hefur haft sýnu minna fylgi
en Clinton samkvæmt skoðanakönn-
unum. Larry Sabato, stjórnmála-
fræðingur við Virginíu-háskóla,
sagði að úrskurðurinn myndi leiða
til endurmats repúblikana, sem
hefðu afskrifað Dole og lífga við
kosningabaráttu hans.
Kenneth Starr, sérskipaður sak-
sóknari dómsmálaráðuneytisins
stjómar rannsókn Whitewater og
hann hefur nokkur járn í eldinum
til viðbótar réttarhöldunum, sem
dæmt var í á þriðjudag.
Demókratar hafa gagnrýnt Starr
og segja hann ekki geta verið óhlut-
drægan gagnvart forsetanum. Hann
sé yfirlýstur andstæðingur Clintons
og hagsmunir ýmissa skjólstæðinga
hans gangi þvert á stefnu Clintons,
en yrði borgið kæmist Dole til valda.
Sakborningarnir þrír eiga yfir
höfði sér langa fangelsisdóma. Talið
er að lagalega stafi Clinton mest
hætta af því að einhver þeirra
þriggja geri samkomulag við Starr
um að bera vitni gegn forsetanum
gegn því að fá vægan dóm.
Ymsir hafa farið ofan í saumana
á Whitewater á undanförnum fjórum
árum og stuðningsmenn Clintons
segja hæpið að veigamikil sönnunar-
gögn finnist úr þessu.
Hvað sem rannsóknum líður mun
fortíðardraugur Whitewater halda
áfram að fylgja forsetanum í kosn-
ingabaráttunni og gefa fylgismönn-
um Doles von um að enn megi
klekkja á Clinton.
ERLENT
Reuter
JIM Guy Tucker, ríkisstjóri Arkansas, greinir frá afsögn sinni
i kjölfar fjársvikadóms með Betty, konu sína, sér við hlið.
Morgunblaðið/Ómar Össurarson
Skorið á þenslugjarðir
SVEINN Gíslason fer út á pok- irnar í 25 tonna hali Engeyjar
ann til að skera á þenslugjarð- á Reykjaneshrygg.