Morgunblaðið - 30.05.1996, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 30.05.1996, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996 2c Uppreisn lokið FRÁNSKIR hermenn bundu á þriðjudag enda á uppreisn í Mið-Afríkulýðveldinu er þeir fylgdu 270 þarlendum her- mönnum aftur til herskála sinna. Hafði franskur herfor- ingi samið um uppgjöf þeirra gegn sakaruppgjöf. Þrátt fyrir misheppnaða uppreisnartil- raun, segja stjórnarandstæð- ingar í lýðveldinu að hún hafi skaðað mjög stjórn Ange-Felix Patasse, forseta þess. Bjóða Hillary aðstoð við ættleiðingu RÚMENSKT dagblað bauðst í fyrradag til þess að að- stoða Hillary Clinton, for- setafrú í Bandaríkjun- um, í kjölfar viðtals við tímaritið Time þar sem hún kveðst hæglega geta hugsað sér að ættleiða barn. Offitugenið fundið ENN er langt í land áður en „megrunarpilla" kemur á markað en franskir og banda- rískir vísindamenn segjast hafa fundið DNA-keðju sem tengist offitu í mönnum. Telja þeir að uppgötvun sín muni gera kleift að þróa ný lyf til að stýra margarlyst og þyngd manna. Lætur Fahd af völdum? FAHD, konungur Saudi-Arab- íu, sem fékk heilablóðfall á síð- asta ári, þjáist af andlegri hrörnun og er jafnvel búist við að hann flytji af landi brott og láti hálfbróður sínum eftir völd- in, að því er fullyrt er í nýjasta hefti Time. Gæti ég fengið byss- una aftur? ÓHEPPNIN elti mann sem gerði tilraun til þess að fremja vopnað rán í Hong Kong. Kon- an sem hann ógnaði með byssu, réðst gegn honum og náði af honum vopninu. Er lögreglan kom á staðinn stóð konan yfir ræningjanum, sem grátbað hana um að láta sig fá byssuna að nýju. UnsmennafélaB íslands 03 Umhverfissjóöur verslunarinnar gangast fyrir hreinsunarátaki dagana 1.-17. júní. Markmiöiö er aö „flagga hreinu landi" 17. júní. Einstaklingar, fjölskyldur, hópar og félög. Tökum öll þátt í hreinsun landsins. Ungmennafélög víöa um land munu skipu- leggja hreinsun. GRÆNI HIRÐIRINN er hluti af verkefninu, en hann inniheldur stóran poka til aö tína rusl í og upplýsingabók um umhverfismál. Meö því aö eignast GRÆNA HIRÐINN getur þú oröiö þátttakandi í skemmtilegu happdrætti þar sem margir góöir vinningar eru í boði. Þú færö GRÆNA HIRÐINN í flestum matvöruverslunum og hjá ungmennafélögum um land allt. UMHVERFISSJÓÐUR VERSLUNARINNAR Umhverfisátakiö veröur formlega sett laugardaginn 1. júní. KI.10 hefst hreinsun viö kvenfélagsgarðinn á Álftanesi þar sem forseti Jslands Frú Vigdís Finnbogadóttir veröur viöstödd. KI.13 hefst hreinsun viö íþróttahúsiö Dalhúsum 2, Grafarvogi og hefur öllum forsetaframbjóöendum veriö boöiö aö vera viðstaddir. Tökum á - hreinsum landið ILADA HYunom nin FREISTANDI TILBOÐ Á BÍLUM FRÁ FJÓRUM LÖNDUM, SKEMMTIDAGSKRÁ, VEITINGAR O.M.FL. UM HELGINA. ÁRMÚLA 13, SÍMI: 568 1200 BEINN SÍMI: 553 1236

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.