Morgunblaðið - 30.05.1996, Page 37

Morgunblaðið - 30.05.1996, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996 37 Um skoðanamyndun ÍM (Gallup) MIÐVIKUDAG 23. maí var birt grein eftir framkv.stj. IM (Gall- up) um vinnuaðferðir fyrirtækisins. Þar koma fram nokkur atr- iði sem vert er að huga að. Varðandi útkomu fyrri spurningar í um- ræddri könnun ÍM (Gallup) og félags- málaráðuneytis er ekkert sem kemur á óvart. Svör við spurn- ingunni segja okkur ekkert, sama niður- staða hefði fengist ef spurt hefði verið: „Ertu ánægð(ur) með launin þín?“ I svari framkv.stj. ÍM (Gallup) kemur fram sú skoðun að stjórnir og trúnaðarráð ákveði hvort farið sé í verkföll og á þeim grunni sé spurningin byggð. Hann segir einn- ig að breytingar í þá átt að minnka völd verkalýðsfórystunnar séu tímabærar eigi almenningur á ann- að borð að hafa eitthvað um málin að segja. Grunnur þessara fullyrð- iiiga er rangur. Hvorki stjórnir eða trúnaðarráð ákveða hvort farið sé í verkfall, það hefur ætíð verið gert á opnum félagsfundum í stéttarfé- lögunum. Seinni spurningin er þvi leiðandi og ekki hlutlaus. Það hefur verið hrollvekjandi að horfa til þess hvernig ráðherra og nokkrir helstu ijölmiðlar hafa nýtt sér niðurstöður Guðmundur Gunnarsson þessarar könnunar til rökstuðnings á fram- setningu lagafrum- varps sem mun skerða lýðræði í landinu. Hvers vegna breytir svo ÍM (Gallup) spurn- ingu Rafiðnaðarsam- bandsins? Send var inn eftirfarandi spurning: „Ertu sammála því að settar verði inn tak- markanir á félagsleg- um réttindum í stéttar- félögunum og völd verkalýðsrekenda auk- in eins og lagt er til í frumvarpi félagsmála- ráðherra". Ég viður- kenni fúslega að þessi spurning er leiðandi, en hún er byggð á sama grunni og fyrri spurning ÍM (Gall- up) og félagsmálaráðuneytisins. Mín rök eru að þröskuldar í at- kvæðagreiðslum stéttarfélaga muni leiða til þess að verkalýðsforystan verði tregari til þess að leggja mál- in fyrir félagsmenn sína. Það sem . sannfærði mig um hversu óvönduð vinnubrögð ÍM (Gallup) eru, er að fyrirtækið vildi breyta 'spurningunni í: „Finnst þér að lágmarksþátttaka 20% félags- manna stéttarfélaga við að fella kjarasamninga og heimila vinnu- stöðvanir eins og gert er ráð fyrir í frumvarpi um stéttarfélög og vinnudeilur sé hæfileg, of mikil eða of lítil krafa?“. Þetta er leiðandi Ég fer þess á leit við ÍM (Gallup), segir Guðmundur Gimnars- son, að þeir gefi upp heimilisfang alþjóða- skrifstofunnar. orðalag sem er til þess fallið að draga fram sjónarmið vilholl núver- andi stjórnvöldum. Innan Rafiðnaðarsambandsins hefur verið reifuð sú hugmynd að kanna hvort alþjóðafyrirtækið, sem ÍM hefur fengið leyfi til að kenna sig við, væri reiðubúið að meta hvort spurningar ÍM (Gallup) í við- horfskönnun fyrir félagsmálaráðu- neytið uppfylli kröfur um óhlut- drægar spurningar: •Að öllu leyti •Að nokkru leyti •Alls ekki Nú er það svo að mér er ekki kunnugt um hver hefur gefið ÍM leyfi til þess að bera nafn Gallup og hef ekki heimilisfang alþjóða- skrifstofu þeirra. Þess vegna fer ég þess á leit að ÍM (Gallup) á ís- landi láti Rafiðnaðarsambandi ís- Iands í té heimilisfangið. Höfundur er formaður Rafiðnaðarsambands íslands. Sjúkraliðanám í 30 ár í VOR eru liðin 30 ár síðan fyrstu sjúkra- liðarnir voru braut- skráðir, og á hausti komanda verður Sjúkraliðafélag íslands 30 ára. Það eru því ákveðin tímamót, sem vert er að minnast með margvíslegum hætti- Ragnheiður Guð- mundsdóttir læknir varð fyrst til þess á prenti að vekja athygli á þörfinni fyrir þessa menntun, og í marz 1964 skipaði Sigurður Sigurðsson landlæknir nefnd til þess að gera tillögur um nám og starfssvið hjálparfólks við hjúkrun. Ingibjörg R. Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur var frumkvöðull að því að sjúkraliðanámi var komið á laggir við Fj'órðungssjúkrahúsið á Akureyri og lagði hún til að þessi nýja stétt fengi starfsheitið sjúkral- iði. Fyrstu sjúkraliðarnir voru braut- skráðir á Akureyri 26. maí 1966. Næstu ár voru brautskráðir á níunda hundrað sjúkraliðar á 54 námskeið- um á ýmsum sjúkrahúsum. Straumhvörf urðu þegar Sjúkral- iðaskóli íslands hóf störf 17. október 1975, og námið var síðar tekið upp í fjölbrautaskólum víða um land. Sjúkraliðaskóli íslands var lagður niður haustið 1990 og starfsemi hans sameinuð Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Sjúkraliðanám er nú 86 einingar eða tveggja og hálfs til þriggja ára nám. Starfsþjálfun á að vera í 34 vikur, og hingað til hafa sjúkraliðar fengið laun á starfsþjálfunartíman- um. Á því kunna nú að verða breyt- ingar í samræmi við nýja námskrá. Námið er tvískipt, annars vegar almennar greinar, en síðan sérhæft nám í hjúkrun og þeim greinum sem nýtast starfsfólki á heilbrigðisstofn- unum; líffæra- og lífeðlisfræði, nær- ingarfræði, skyndihjálp, sýklafræði, siðfræði o.fl. Þróunin hefur verið á þá lund, að sérhæfingin hefur aukizt eftir því sem ár líða, og við endurskoðun nám- skrár, sem nú er í bí- gerð hjá menntamála- ráðuneyti, verður vísast lagt tií að ýmsir nýir áfangar verði teknir upp. Oll menntun úreldist nú á dögum, einkum í þeim greinum þar sem mestar rannsóknir eru stundaðar. Þetta gildir sérstaklega um heil- brigðisgeirann þar sem margvíslegar breyting- ar hafa dunið yfir und- anfarin ár og kalla á nýjar úrlausnir, og ný tækni krefst þess, að menn svari ágengum sið- fræðilegum spurningum. Skólinn hefur reynt að bregðast við þessu. Vor hvert eru starfandi sjúkraliðar í sérnámi í hjúkrun tiltek- inna sjúklinga hveiju sinni, og nú hefur hátt á annað þúsund sjúkraliða sótt skemmri símenntunarnámskeið í margvíslegum greinum. Þeirri starfsemi verður haldið áfram, enda er þörfín brýn. Allt þetta starf er unnið í góðri samvinnu kennara og fræðslunefndar Sjúkraliðafélags ís- lands. I tilefni 30 ára afmælis Sjúkra- liðafélags íslands hyggst skólinn HEYRÐU! Hefur ÞÚ athugað ÁRSNÁM í Reykholti? Allar upplýsingar í síma 435 1200/431 2544 INNRITUN lýkur 5. júní 30 ár eru síðan fyrstu sjúkraliðarnir voru út- skifaðir. Sölvi Sveins- son fjallar um sögu Sjúkraliðafélagsins. gefa út Handbók sjúkraliða. Síðast- liðið ár kom út Handbók læknaritara og hefur mælzt vel fyrir, og nú verð- ur því starfi fylgt eftir. Ýmsir koma að ritun bókarinnar, sérfræðingar innan skólans og utan. Starfsfólk Fjölbrautaskólans við Ármúla árnar sjúkraliðum heilla á þessum tíma- mótum. Höfundur er skólameistari Fjölbraulaskólans við Ármúla. Biddu um Banana Boat sólbrúnkufestandi Alter Sun ef þú vill testa sólbrúnkuna til mánaða um leiö og þú nærir húðina með Aloe Vera, E-vitam., kollagtni og lanólini. □ Sérhannaðar Banana Boat bamasólvarnir 115,129,130 og 501. Krem, úði, þykkur salvi og stifti. o Banana Boat næringarkrem Bmn-án sólar m/sólvöm #8. □ Hraðgræðandi Banana Boat varasalvi steyptur úr Aloe Vera m/sólv. #21, E-vítamin m/sólvöm #30; kirstuberjum, vatns- melónum, blönóuöum ávöxtum m/sólv. #15. Bragðgóðir. o Hvers vegna að borga 1200 kr. fyrir kvartlítra af Aloe geli þegar þú gétur fengið sama magn af 99,7% hreinu Banana Boat Aloe Vera geli á 700 kr ? Eða tvöfalt meira magn af Banana Boat Aloe Vera geli á 1000 kr. Án spírulinu, til- búinna lyklarefna eða annarra ertandi ofnæmisvalda. Biddu um Banana Boat i sólbaðsstofum, apótekum, snyrtiv. verslunum og öllum heilsubúðum utan Reykjavikur. Banana Boal E-gel fæst lika hjá Samtökum psoriasis- og exem- sjúkinga. Sölvi Sveinsson BAiNDUR OG HESTAMENN RAFGIRÐINGAR MR búðin • Laugavegi 164 Símar: 551 1125 • 552 4355 • Fax 581 4450 (Galli á mynd kr. 14.991 stgr.) »CL E I G A N ■ T|/ISTARBÚÐIN vi&mferðarmiðstöðioar-T^ síma&519800 og 65430ÍZ-ttS* ítölsk hönnun á ótrúlegu verði SMEG eldhústækin marka tímamót í hönnun, eru stílhrein og auöveld í notkun. Heilsuval - Barónsstíg 20 n 562 6275

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.