Morgunblaðið - 30.05.1996, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ1996 43
MIIMIMIMGAR
HALLGERÐUR LINDA
PÁLMADÓTTIR
Hallgerður
Linda Pálma-
dóttir fæddist í
Reykjavík 9. júlí
1949. Hún lést 12.
maí síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Fjóla Jóns-
dóttir og Pálmi Jó-
hannsson.
Linda giftist Jó-
hanni Guðjónssyni
16. desember 1972
og eignuðust þau
fjögur börn. Þau
eru: 1) Hrefna Sig-
urbjörg, f. 29. sept-
ember 1972, í sambúð með
Einari Ólafi Matthíassyni. 2)
Pálmi, f. 3. júlí 1974, unnusta
Sjöfn Ólafsdóttir. 3) Þórey, f.
1. nóvember 1981. 4) Jóhann,
f. 28. desember 1986.
Útför Lindu fór
fram frá Landa-
kirkju í Vestmanna-
eyjum 18. maí.
Mig langar í örfáum
orðum að minnast
Hallgerðar Lindu
Pálmadóttur. Linda,
eins og við kölluðum
hana, var móðir bestu
vinkonu minnar. Ég
kynntist Lindu fyrir
um það bil 15 árum
þegar ég og Hrefna
dóttir hennar urðum
vinkonur.
Linda var alltaf eins og ein af
okkur krökkunum og gat hún setið
á spjalli um heima og geima tímun-
um saman með okkur Hrefnu.
FRIÐRIK
GÍSLASON
+ Friðrik Gíslason fæddist í
Hafnarfirði 5. nóvember
1964. Hann lést af slysförum
í Tælandi 26. apríl síðastliðinn
og fór útförin fram frá Hafn-
arfjarðarkirkju 21. maí.
Þegar Stefán sonur minn
hringdi í mig um daginn og til-
kynnti mér að Friðrik hefði beðið
bana í hörmulegu slysi, varð mér
orðfall. Fáum dögum áður hafði
hann komið við hjá mér í kaffi-
sopa, en tíminn var naumur og við
ákváðum að hann kæmi seinna og
við mundum eiga góða stund og
ræða sameiginlegt áhugamál okk-
ar, dulspekina. Ur þessu varð ekki
þar sem hann kom ekki lifandi
heim úr ferðalaginu sínu.
Við kynntumst honum fyrir
u.þ.b. 10-12 árum þegar Villi vin-
ur okkar kom með hann hingað
heim og kynnti hann fyrir okkur.
Honum var vel tekið og tókst góð
vinátta milli okkar, sem stendur
enn, þótt Friðrik hafi farið í lengri
ferð en til stóð. Við stöndum eftir
slegin óhug því að fyrir nokkrum
árum létust tveir aðrir ungir sam-
eiginlegir vinir okkar í óhugnan-
legu slysi og er þetta mikil blóð-
taka af ekki stærri vinahóp.
Friðrik var hæglátur maður, stór
og stæðilegur, ljúfmenni mikið og
gaman að tala við hann um áhuga-
mál hans og fleira.
Þar sem hann er farinn yfir í
annan heim, skilur hann eftir skarð
sem ekki verður fyllt og minningar
sem enginn getur frá okkur tekið.
Lífið var Friðriki dálítið erfitt
Oftast var margt um manninn á
heimili Jóa og Lindu því sjálf áttu
þau fjögur börn og voru leikfélagar
þeirra ávallt velkomnir í þeirra hús.
Linda var há, grönn og dökk-
hærð með blágrá augu. Hún var
alla tíð mjög hlédræg kona og sótti
lítið út fyrir fjölskylduna. Mér var
hún alltaf góð.
Ég þakka fyrir að hafa fengið
að kynnast þessari yndislegu konu
og mun ævinlega muna hana eins
og hún var.
Elsku Jóhann, Hrefna, Pálmi,
Þórey og Jóhann litli, sorg ykkar
er mikil, en þið eigið góðar minn-
ingar um yndislega eiginkonu og
móður. Megi algóður guð veita
ykkur styrk á þessum erfiðu stund-
um. Blessuð sé minning hennar.
Legg ég nú bæði líf og ðnd,
ljúfí Jesú, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgr. Pét.)
Heiða, Kristmann og
Aníta Marý.
stundum en hann stóð það allt af
sér og kvartaði aldrei.
Ég held að hann sé gömul sál,
því hann hugsaði að mörgu leyti
um dýpri málefni en ungt fólk á
hans aldri gerði og hélt því áfram
öll þau ár sem við þekktum hann.
Þegar við lítum til baka og hugsum
um Þór, Kidda og svo nú Friðrik,
þökkum við fyrir þær stundir sem
við áttum með þeim. Spurningin
er ekki alltaf hve lengi hver ein-
staklingur lifir hér, heldur hve
mikið hann skilur eftir sig af góð-
um minningum og gjörðum.
Við sendum móður hans og öðr-
um ástvinum okkar innilegustu
samúð og biðjum Guð að gefa þeim
styrk.
Ókvíðinn er ég nú
af því ég á þá trú
miskunn Guðs sálu mína
mun taka í vöktun sina.
(H. Pétursson)
Þóra, Stefán og Vilhjálmur.
Morgunblaðið/Arnór
GUÐLAUGUR Sveinsson, vikumeistarinn í Sumarbridsi, var með-
al þátttakenda í kjördæmamótinu um helgina. Hér tekur hann
við sigurverðlaunum í 2. deild sem Kristján Kristjánsson, forseti
Bridssambandsins, afhenti.
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Sumarbrids 1996
SPILAMENNSKAN í Sumarbrids
1996 heldur áfram. Föstudaginn 24.
maí spiluðu 20 pör tölvureiknaðan
Mitchell-tvímenning með forgefnum
spilum. Meðalskor var 216 og efstu
pör urðu:
NS
Halldór M. Sverriss. - Páll Þór bergsson 266
Sigurður Amundason - Jón Þór Karlsson 244
Magnús Sverrisson - Guðlaugur Sveinsson 243
AV
Sveinn R. Þorvaldss. - Steinberg Ríkharðss. 280
SiguijónTryggvason-PéturSigurðsson 233
Kristín Þórarinsdóttir - Helga Bergmann 231
Á hvítasunnudag, 26. maí, mættu
10 pör til leiks. Spilaður var tölvu-
reiknaður Howell-tvímenningur með
forgefnum spilum. Meðalskor var 105
og efstu pör urðu:
ÞórðurSigfússon-EggertBergsson 126
Jacqui McGreal - Anna Guðlaug Nielsen 126
RúnarEinarsson-JónStefánsson 122
Guðlaugur varð
fyrsti vikumeistarinn
Mikil spenna var á sunnudag um
það hvort Rúnari Einarssyni tækist
að skjótast upp fyrir Guðlaug Sveins-
son í keppninni um fyrsta vikumeist-
aratitilinn. Að lokum fór þó svo að
Guðlaugur hélt velli. Lokastaðan í
fyrstu vikukeppninni varð þessi:
Guðlaugur Sveinsson 56
Rúnar Einarsson 50
Halldór Már Sverrisson 4 0
Gylfi Baldursson 38
Magnús Sverrisson 38
Pétur Sigurðsson 33
Sigurður B. Þorsteinsson 32
Að launum hlýtur Guðlaugur glæsi-
lega máitíð _ á veitingahúsinu Þrír
frakkar hjá Úlfari.
Spilamennska hefst kl. 19 sex daga
vikunnar (ekki laugardaga) og er spil-
að t húsnæði Bridssambandsins í
Þönglabakka 1, 3. hæð. Keppnisstjór-
ar eru Sveinn R. Eiríksson og Matthí-
as G. Þorvaldsson og taka þerir vel á
móti öllum spilurum. Reynt er að
hjálpa til við myndun para.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Sunnudaginn 19. maí spiluðu 16
pör í einum riðli:
Þorleifur Þórarinsson - Oliver Kristófersson 248
Lárus Amórsson - Ásthildur Sigurgísladóttir 248
Ólafurlngvarsson-JóhannLútersson 246
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 243
Meðalskor 210
Fimmtudaginn 23. maí mættu 14
pör og spiluðu í einum riðli:
Magnús Halldórsson - Ólafur Ingvarsson 204
Þórólfur Meyvantsson - Eyjólfur Halldórsson 192
Elín Jónsdóttir—Lilja Guðnadóttir 178
Sólveig Bjartmarz - Gunnar Bjartmarz 175
Meðalskor 156
PÉTUR
PÉTURSSON
+ Pétur Pétursson stórkaup-
maður fæddist í Reykjavík
1. október 1918. Hann lést í
Landspítalanum 17. maí síðast-
liðinn og fór útför hans fram
frá Dómkirkjunni 28. maí.
Pétur Pétursson móðurbróðir
minn er látinn. Mín fyrstu kynni
af honum, sem ég man eftir, voru
áhrifamikil. Ég var drengstauli
þegar hann kom á heimilið fær-
andi hendi um páska. Við systkin-
in fjögur fengum hvert sitt páska-
eggið og það þori ég að fullyrða
að stærri páskaegg hafa aldrei
verið framleidd. Páskaeggin hans
Péturs voru fast að því yfirnáttúru-
leg og æ síðan hef ég fundið fyrir
sérstakri orku í návist Péturs. Og
mikilli velvild. Mitt fyrsta sumar-
starf sem unglings var í heildversl-
un Péturs við Suðurgötuna. Minni
fyrstu launagreiðslu í lífinu tók ég
við úr hendi Péturs frænda og ég
man að mér þótti ekki aldeilis
naumt skammtað. í gegnum tíðina
hittumst við Pétur ekki eins oft
og skyldleiki gaf tilefni til, en allt-
af þegar við hittumst fannst mér
að það væru að koma páskar.
Eitt af síðustu verkum hans var
einstaklega vel þegin gjafmildi og
drengskapur í garð móður minnar,
systur hans. Blessuð sé minning
Péturs frænda míns. Og ef þú
skyldir nú heyra í mér, Pétur
minn, þá bið ég að heilsa ætt-
mennum okkar. Einkum Jóni afa,
stjúpföður þínum, í von um að
ykkur auðnist að renna saman
fyrir silung í Þingvallavatninu fyr-
ir handan.
Friðrik Þór Guðmundsson.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 - sími 587 1960
Skilafrest-
ur minn-
ingar-
greina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-,
föstudags- og laugardagsblað
þarf greinin að berast fyrir
hádegi tveimur virkum dögum
fyrir birtingardag. Berist grein
eftir að skilafrestur er útrunn-
inn eða eftir að útför hefur
farið fram, er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi.
BORGAR
APÓTEK
Álftamýri 1-5
GRAFARVOGS
APÓTEK
Hverafold 1-5
eru opin til kl. 22
Næturafgreiðslu
eftir kl. 22 annast
Borgar Apótek
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
VALGERÐAR MAGNÚSDÓTTUR,
Reykjum
i Lundarreykjadal.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra
í Borgamesi og Sjúkrahúss Akraness.
Sigurður Ásgeirsson,
Ásgeir Sigurðsson,
Björg Sigurðardóttir, Sveinn J. Sveinsson,
Freysteinn Sigurðsson, Ingibjörg S. Sveinsdóttir,
Ingi Sigurðsson,
Magnús Sigurðsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vináttu við
andlát og útför okkar ástkæra
SNÆLAUGS KR. STEFÁNSSONAR,
Vanabyggð 2D,
Akureyri.
Margrét Sölvadóttir,
Baldvina Snælaugsdóttir, Margrét Björk Jónsdóttir,
Ólina Snælaugsdóttir, Eggert Arason,
Ólaffa Halldórsdóttir,
Karólma Stefánsdóttir og fjölskylda,
Ráðhildur Stefánsdóttir og fjölskylda,
Óskar Stefánsson og fjölskylda,
Anna Stefánsdóttir og fjölskylda,
Sigrún Stefánsdóttir og fjölskylda,
Kristín Stefánsdóttir og fjölskylda.
Lokað
eftir hádegi í dag, fimmtudaginn 30. maí, vegna
útfarar INGVARS AGNARSSONAR, forstjóra.
Barðinn,
Skútuvogi 2.