Morgunblaðið - 22.06.1996, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Framhaldsskóla
Vestfjarða slitið
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
STÚDENTARNIR sem brautskráðir voru frá
Framhaldsskóla Vestfjarða.
ísafirði - Framhaldsskóla Vest-
fjarða var slitið laugardaginn 25.
maí sl. Brautskráðir voru fimmtán
stúdentar. Tveir nemendur luku
iðnprófi í vélsmíði. Af 1. stigi skip-
stjórnarbrautar, eftir eins vetrar
nám, voru brautskráðir sex nem-
endur. Þá luku fjórir verslunar-
prófi og einn sjúkraliðaprófi.
Baldur Smári Einarsson frá
Bolungarvík, af hagfræðibraut,
fékk hæsta meðaleinkunn á stúd-
entsprófi, ágætiseinkunn 9,06, og
hafa áður aðeins þrír nemendur
hlotið ágætiseinkunn á stúdents-
prófi á ísafirði. Næsthæstu ein-
kunn á stúdentsprófi nú fékk
Hulda Pétursdóttir, 8,38, sem
einnig brautskráðist af hagfræði-
braut. Hæstu meðaleinkunn af
náttúrufræðibraut fékk Hlynur
Guðmundsson, 8,00, en hæstu ein-
kunn af mála- og samfélagsbraut
fékk Arna Lára Jónsdóttir, 7,99.
Af skipstjórnarbraut fékk
hæsta einkunn Egill Jónsson, 7,75.
Anna K. Kristjánsdóttir fékk
hæstu einkunn þeirra sem braut-
skráðust með verslunarpróf, 7,75.
Á iðnprófi var hæstur Sigurður
Viðarsson með 7,61. Allir þessir
nemendur og fieiri til hlutu verð-
laun.
Til máls tóku Halidór Þorgeirs-
son, sem var fulltrúi tuttugu ára
stúdenta, og Unnur Árnadóttir,
fulltrúi tíu ára stúdenta, og færðu
þau skólanum gjafir, sem eru
margmiðlunarefni og forrit til
notkunar á bókasafni.
í skólanum voru á haustönn 243
nemendur í dagskóla, 15 utan
skóla og 55 í öldungadeild, þar
af 23 í öldungadeild á Reykhólum,
en hún var starfrækt í eina náms-
önn aðeins. Á vorönn voru nem-
endur nokkru færri. Nemendur við
skólann voru talsvert fleiri í vetur
en árið á undan. Við Framhalds-
skóla Vestfjarða eru 18 kennarar
í fullu starfi, að stjórnendum með-
töldum.
Skólameistari, Björn Teitsson,
ávarpaði sérstaklega þá nemendur
sem brautskráðust, og sagði þá
m.a.: „Byggð á Vestfjörðum á nú
í vök að veijast fremur en byggð
í nokkrum öðrum landshluta. Þeg-
ar svo er komið reyna þeir helst
að flytjast burt sem auðveldast
eiga með það. Ungt fólks eins og
þið á yfirleitt ekki fasteignir og
ekki maka eða börn, og því er það
oft hreyfanlegast. Séu brottflutn-
ingar miklir verður hætta á að
þeim sem eftir sitja komi æ verr
saman. Ég leyfi mér að ráðleggja
ykkur að reyna að komast hjá því
að glata uppruna ykkar. Hættur
leynast miklu víðar um heim en
hér, bæði á sjó og landi, og yrði
of langt upp að telja. Því er alls
kostar óráðlegt að afskrifa Vest-
firði sem byggilegt svæði. Það er
mjög óvíst að grasið sé grænna
annars staðar."
50 árvið
kirkju-
orgelið
Stokkseyri - Á þjóðhátíðardaginn
var haldið upp á það við messu
að 50 ár eru liðin frá því að Pálm-
ar Eyjólfsson tók við starfi organ-
ista við Stokkseyrarkirkju. Að lok-
inni messu bauð sóknarnefndin
upp á kaffi í íþróttahúsinu honum
til heiðurs þar sem honum voru
þökkuð góð störf og færðar gjafir.
Á þessum 50 árum hefur Pálm-
ar Eyjólfsson starfað með fjórum
prestum og voru þrír þeirra við-
staddir þessa hátíðarstund; þeir
eru sr. Magnús Guðjónsson, sr.
Valgeir Ástráðsson og starfandi
prestur sr. Úlfar Guðmundsson.
Fjórði presturinn, sr. Árelíus Ní-
elsson, er látinn.
I ræðum manna kom fram að
Pálmar hefur í gegnum tíðina
verið iðinn við að safna að sér
nótum sem margar hefðu ella glat-
ast auk þess sem hann hefur sam-
ið mörg lög sjálfur og komu sum
þeirra út á geisladisknum Sólnæt-
ur fyrir fáum árum. Þess má að
lokum geta að Pálmar starfar
ennþá sem organisti við Stokks-
eyrarkirkju.
Aldarminning sr. Frið-
riks A. Friðrikssonar
Húsavík-17. júní voru liðin 100
ár frá fæðingu sr. Friðriks A. Frið-
rikssonar, prófasts á Húsavík og
var þess minnst á virðulegan hátt
í Húsavíkurkirkju á afmælisdaginn.
Sóknarpresturinn séra Sighvatur
Karlsson minntist forvera síns með
ítarlegri ræðu, en séra Friðrik þjón-
aði Húsavíkursöfnuði í um 30 ár
en lét þá af störfum að eigin ósk
og tók við umfangsminna presta-
kalli, Hálsi í Fnjóskadal, og þjónaði
því í átta ár. Hafði hann þá dyggi-
lega og eftirminnilega þjónað kirkj-
unni vestan hafs og austan í rúma
hálfa öld.
Auk prestþjónustunnar hlóðust á
sr. Friðrik tímafrek félagsstörf,
einkum er lutu að tónlist og skóla-
málum. Hann stjórnaði Karlakórn-
um Þrym í 18 ár og Kirkjukór
Húsavíkur í 20 ár og bjó báðum
kórunum í hendur gögn með upp-
skriftum og fjölritunum, sem nútíð-
ar söngstjórar þekka ekki, þar sem
allt er ljósritað.
Hann fékkst einnig við lagasmíð
og í handriti átti hann um 30 lög
fyrir karlakóra og blandaða kóra
og mörg þeirra við hans eigin texta.
Morgunblaðið/Silli
SR. SIGHVATUR Karlsson
minntist sr. Friðriks A. Frið-
rikssonar.
Með söngstjórastarfi sínu kom séra
Friðrik á framfæri fjölda sönglaga
er eigi höfðu verið sunginn hér á
landi áður en hafa síðan verið sung-
in af hinum ýmsu kórum. Textaþýð-
ingar hans vöktu athygli enda stóð
hann vel að vígi að fella saman Ijóð
og lag.
I sínu mikla prests- og tónlistar-
starfi naut hann dyggilegs stuðn-
ings eiginkonu sinar, frú Gertrud,
sem var organisti við Húsavíkur-
kirkju í 25 ár og einnig var hún
undirleikari við hin ýmsu tækifæri.
Verður ekki ofmetið hið mikla fram-
lag þeirra hjóna til söng- og tónlist-
armála í Þingeyjarsýslu.
Handbragð hans á nótnaskrift
var viðbrugðið og teiknaði hann
meðal annars til prentunar Passíu-
sálmalögin, sem Sigurður Þórðar-
son, söngstjóri, hafði safnað og
gefin voru út í viðhafnarútgáfu.
Einnig var gefin út afmælisdagabók
með málsháttum og skrautritaði
hann þá útgáfu.
í sambandi við 50 ára afmæli
Húsavíkurkirkju 1957 samdi séra
Friðrik hátíðarkantötu, dýrðarljóð
og lag, sem hann nefndi Ákall,
heit bæn og innileg. Við minningar-
athöfnina flutti kirkjukórinn þessa
kantötu undir stjórn Natalíu Chow.
í tilefni aldarafmæli sr. Friðriks
færði Húsavíkursöfnuður Friðriks-
sjóði 100 þúsund króna gjöf en sjóð-
urinn var stofnaður til minningar
um sr. Friðrik A. Friðriksson og
hefur þann tilgang að efla sönglíf
og tónmennt í Húsavíkursókn með
styrkjum til hljóðfærakaupa, radd-
kennslu og nótnaútgáfu.
Morgunbiaðið/Sigurður Aðalsteinsson
FJÖLDI fólks, allt að 250 manns, voru við vígslu nýju sundlaugar-
innar við Skjöldólfsstaðaskóla.
Ný sundlaug
vígð við
Skjöldólfs-
staðaskóla.
Vaðbrekku, Jökuldal - íbúar Jök-
uldalshrepps fögnuðu vígslu nýrrar
sundlaugar víð Skjöldólfsstaða-
skóla á þjóðhátíðardaginn sautj-
ánda júní síðastliðinn.
Sundlaugin hefur verið í bygg-
ingu síðastliðið ár, en Ingifmna
Jónsdóttir bóndi á Hvanná tók
fyrstu skóflustungu að henni 12.
júní fyrir rúmu ári. Samhliða sund-
laugarvígslunni var haldið upp á
fimmtíu ára afmæli Skjöldólfs-
staðaskóla, og hélt Jökuldalshrepp-
ur íbúum og brott fluttum og fleiri
gestum kaffisamsæti í tilefni dags-
ins.
Fluttur var fróðleikur um bygg-
ingar- og starfssögu skólans af
oddvita hreppsins Arnóri Bene-
diktssyni, Hákon Aðalsteinsson og
Aðalsteinn Jónsson sögðu sögur
af veru sinni í skólanum.
Að kaffisamsætinu loknu var
haldið til laugar þar sem Séra
Brynhildur Óladóttir frá Merki
sóknarprestur á Skeggjastöðum
flutti bæn og vígði laugina. Því
næst drifu allir sem vettlingi gátu
valdið sig í sundföt og tóku sér
sundsprett, og þeir er ekki höfðu
sundföt meðferðis fengu jafnvel
líka sumir hveijir ókeypis bað.
Sundlaugin verður opin almenn-
ingi yfir sumartímann auk þess sem
þar verður kennt sund, og er sund-
laugin því kærkomin viðbót við þá
ferðaþjónustu í sveitinni sem fyrir
er en í Skjöldólfsstaðaskóla er rek-
in greiðasalan Dalakaffi. í Möðru-
dal er Fjallakaffi og í Klausturseli
er rekið handiðnarvinnustofa og
vísir að dýragarði með hreindýrum,
gæsum og tófum, og nú geta þeir
er nýta sér ferðaþjónustu í sveitinni
farið í sund til að farga ferðaþreyt-
unni.
Morgunblaðið/Gísli Gíslason
FJOLA Ægisdóttir afhenti Pálmari og eiginkonu hans,
Guðrúnu Loftsdóttur, gjafir.
Miklar framkvæmdir
í Stykkishólmsbæ
Stykkishólmi - Hjá starfsmönnum
Stykkishólmsbæjar er nóg að gera
og verða miklar framkvæmdir á
vegum bæjarins í sumar. Nú er ver-
ið að lagfæra Skólastíginn sem er
ein elsta gata bæjarins og ein af
örfáum götum í bænum sem ekki
hefur verið lagt á bundið slitlag.
Verið er að færa götuna aðeins vest-
ar til að fá hana lengra frá húsun-
um. Skipt verður um jarðveg og
allar götulagnir og í framhaldinu
verður stígurinn malbikaður eða
hellulagður eins og skipulag gerir
ráð fyrir.
Þá hefur í vor verið gengið frá
einni nýrri götu í bænum, Tjarnar-
ási. Þar hafa verið boðnar út bygg-
ingarlóðir og eru nú þegar hafnar
framkvæmdir við tvö íbúðarhús.
Þá eru starfsmenn bæjarins farn-
ir að vinna við endurbætur á íþrótta-
vellinum. Hér hefur verið malarvöll-
ur en nú á að útbúa hann sem gra-
svöll og á framkvæmdum að ljúka
í sumar. Á íjárhagsáætlun bæjarins
eru áætlaðar 10 milljónir til verksins
þannig að hér er um miklar fram-
kvæmdir að ræða. Þá stendur til
að byggja þjónustuíbúðir fyrir aldr-
aða og verður fljótlega ieitað tilboða
í verkið sem á að hefjast í sumar.
Morgunblaðið/Árni Helgason
UNNIÐ við breikkun á Skólastígnum í Stykkishólmi.