Morgunblaðið - 22.06.1996, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
IjAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 17
ERLENT
Reuter
Fischer segir skákina
orðna „eintómt svindr4
BANDARÍSKI skáksnillingurinn Bobby Fisch-
er segist hafa breytt skákreglunum til þess
að skák megi aftur verða sú list sem hún var
áður en tölvur komu til sögunnar. Segir Fisch-
er að skák sé orðin leiðinleg, vegna þeirra
endalausu rannsókna sem gerðar væru á fá-
einum, mögulegum byijunarstöðum. Það sem
verra væri, skák sé orðin tómt svindl.
„Allar skákimar [milli Anatólís Karpovs
og Garrys Kasparovs] voru fyrirfram skipu-
lagðar leik fyrir leik,“ sagði Fischer á frétta-
mannafundi í Buenos Aires, þar sem hann
Bobby
Fischer
var staddur til þess að kynna nýtt afbrigði
tafls, sem hann nefnir „Handahóf Fischers".
Felst breytingin í því, að skákmönnum er
raðað upp af handahófi á bakvið peðalínuna
í upphafi skákar. Sagði Fischer, að stærsta
vandinn við hefðbundið tafl væri sá, að úr
því skákmennirnir vissu byijunarstöðuna upp
á hár væri auðvelt að skipuleggja skákina út
í ystu æsar. Handahóf Fischers býður upp á
960 mögulegar byijunarstöður. Þetta er í
fyrsta sinn í fimm hundruð ár sem gerðar
em breytingar á manntafli.
Fyrsti bíll
Toyota
fæst á ný
JAPANSKI bifreiðaframleið-
andinn Toyota hefur nú hafið
framleiðslu að nýju á fyrsta
einkabílnum, sem kom af færi-
böndum fyrirtækisins. Bifreiðin
hefur hlotið nafnið Toyota
Classic, en þegar hún var fyrst
framleidd árið 1936 hét hún
Toyota AA. Það verður ekki á
færi hvers sem er að kaupa bif-
reiðina. Hún kostar 8,17 milljón-
ir japanskra jena eða um 50
milljónir íslenskra króna.
.....----------
Albanía
Hundsa til-
mæli Evr-
ópuþingsins
Tirana. Reuter.
RÍKISSTJÓRN Albaníu virti í gær
að vettugi tilmæli Evrópuþingsins
um að umdeildar kosningar í land-
inu yrðu lýstar ógildar. Kváðust
albanskir ráðamenn myndu kalla
saman þing eins og ráðgert hefði
verið.
Evrópuþingið í Strassbourg
hvatti til þess á fimmtudag að kos-
ið yrði á ný í Albaníu, vegna þess,
að fregnir hefðu borist um alvar-
lega misbresti á kosningunum sem
haldnar voru í tveim umferðum 26.
maí og 2. júní. Væri slíkt dragbítur
á lýðræði í landinu.
Tritan Shehu, leiðtogi Demó-
krataflokksins, sem er stærsti
borgaraflokkurinn, tjáði Reuters
að á Evrópuþinginu réðu vinstri-
menn lögum og lofum. Samþykktir
þingsins væru ekki bindandi, og
þótt vinstrisinnar á Evrópuþinginu
færu fram á eitt og annað þá væri
Albanía sjálfstætt ríki.
Demókrataflokkurinn fékk lang-
flest atkvæði í kosningunum og
hefur 75-85% þingsæta, sem alls
eru 140. „1. júlí mun nýja þingið
koma saman og það mun veit nýrri
ríkisstjórn brautargengi og allt
mun ganga eðlilega fyrir sig,“ sagði
Shehu.
Stjórnarandstöðuflokkarnir, sem
hættu þátttöku í kosningunum,
saka stjómina um umfangsmikið
kosningasvindl og hafa krafist
þess, að kosið verði á ný. Sósíalist-
ar, helsti stjómarandstöðuflokkur-
inn, hafa neitað að taka þau fáu
sæti sem þeir fengu í kosningunum.
Sagðist varaformaður flokksins,
Mamik Dokle, ánægður með sam-
þykkt Evrópuþingsins, sem hefði
orðið fyrst vestrænna stofnana til
þess að krefjast nýrra kosninga.
Dokle sagði, að samþykktin sýndi
að vestrænum ráðamönnum væri
ljóst, að einræðisstjómir gætu aftur
náð fótfestu í Austur-Evrópu.
500
sinnum
dregið i
Lottó 5/38
Ferðavinniruiar
í léttum lei
10 UTANLANDSFERÐIR!
-vertu viðbúin(m vinningi
Starfsfólk sölustaða Lottósins
veitir allar nánari upplýsingar.
/ tilefni af 500. útdrœttinum í Lottóinu í kvöld gefum við
Lottóspilurum tcekifœri til að vinna 10 utanlandsferðir
að andvirði 50.000 kr. hver.
Það eina sem pú parft að gera er að kaupa 10 raða miða
í Lottóinu eða meira. Þá fœrð pú afhent sérstakt leikspjald
sem pú fyllir út og afhendir á sölustaðnum.
Dregið verður úr nöfnum heppinna þátttakenda í beinni
útsendingu í Lottóinu, laugardagskvöldið 29. júní.
Misstu ekki af tækifærinu,
leiknum lýkur í kvöld.
Vertu með - draumurinn gæti orðið að veruleika