Morgunblaðið - 22.06.1996, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Grandís frá
Kjörís
GRANDÍS er ný ístegnnd frá Kjör-
ís. Hann er vanilluís með stökkum
hnetum, mjúkri karamellu og Sirius
súkkulaði. Grandís fæst í öllum
helstu söluturnum.
Ný verslun
Slaufan
opnuð í
Hafnarfirði
NÝLEGA opnaði gjafa-, og heimil-
isvöruverslunin Slaufan í miðbæ
Hafnarfjarðar. Þar eru seldir dúkar,
púðar, teppi, rúmföt og handklæði frá
ýmsum löndum. Þá er dönsk textíl-
hönnun frá Maríu Soul til sölu hjá
Slaufunni eins og dúkar, svuntur,
ofnhanskar og körfur með rykktum
pífum og í stíl hægt að fá kerti og
servíettur.
Einnig eru til sölu hjá Slaufunni
leirmunir, dúkar og fylgihlutir frá
Sia, sem er þekkt vörumerki í Svíþjóð
og Danmörku. Um er að ræða diska,
eggjabikara, tekatla, mjólkurkönnur,
tebolla og ýmsa skrautmuni.
Þegar barnaafmæli stendur fyrir
dyrum fást í Slaufunni diskar, glös,
servíettur, dúkar og afmælisgiafir,
t.d. tréóróar, ofín rúmteppi með
bamamyndum, tuskubangsar,
skrautblýantar með tréfígúrum, post-
ulínsdúkkur og fleira.
Valdís Guðmundsdóttir er útstill-
ingahönnuður verslunarinnar og
hefur bæði stillt upp vörum
og ráðlagt með litaval í
versluninni. Eig-
andi Slauf-
unnar er
Sigríður
Jóhannes-
dóttir.
starfsmenn kvörtunarþjónustu Neytenda-
samtakanna.
Töluvert ber á kvörtunum frá neytendum
sem gert hafa munnlega verksamninga
um viðgerðir á fasteignum og ökutækjum
sem hafa síðan ekki staðist. Að þessu
komst Hrönn Marinósdóttir í samtali við
ÞAÐ kemur alloft fyrir í við-
skiptum að ekki eru gerðir skrif-
legir samningar þegar um stór
verk í byggingariðnaði og í bílavið-
skiptum er að ræða. Kvartanir
berast því frá neytendum sem
þurfa að greiða mun hærri reikn-
inga en um var samið í upphafi.
Starfsmaður Neytendasamtak-
anna, Þóra Sigurðardóttir segir
neytandann vera réttindalausan
ef verktaki telur kostnaðinn vera
meiri en munnlega tilboðið hljóðar
upp á.
„í fyrrasumar voru til að
mynda nokkrum sinnum gerð
munnleg tilboð í þakviðgerðir sem
síð-
an stóð-
ust ekki.
Samkeppnin er
mikil hjá iðnaðar-
mönnum og undirboð
því algeng,“ segir Þóra. Hún
bætir við að til samtakanna
hafi einnig borist mál er varða
munnlega samninga um steypu-
viðgerðir á húsum, málningu á
fasteignum og fleira.
„Bílaeigendur leita mikið til
okkar en við sölu á notuðum öku-
tækjum og í bílaviðgerðum er al-
gengt að orð standi á móti orði.
Greiðandinn stendur þá uppi alger-
lega varnarlaus.
Við hvetjum því alla til að gera
skriflega verksamninga. Ef um
fasteignaviðgerðir er að ræða fást
eyðublöð hjá Samtökum iðnaðar-
ins og einnig á skrifstofu okkar
sem hægt er að fylla út við gerð
verksamninga.,“ segir Þóra.
Ferðalög og fasteignir
algengustu umkvörtunarefnin
Á sumrin snúast kvörtunarmál-
in töluvert um ferðalög og fast-
eignaviðgerðir. „Margir hringja
hingað til að grennslast fyrir um
rétt sinn t.d. ef það hættir skyndi-
lega við að fara í sólarlandaferð
sem það hefur fest kaup á eða ef
ferðin var ekki eins og ráð var
fyrir gert,“ segir Þóra.
„Fóik gerir sér enga grein fyrir
þeim fjölda málaflokka sem við
sinnum. Sumir halda að við sinn-
um einungis efnalaugamálum en
svo er aldeilis ekki.“ segir Þóra.
Inn á borð kvörtunardeildar
berst ógrynni mála er varða kaup
á vöru og þjónustu, bankastarf-
semi, tannviðgerðir, tryggingar
og ótal margt fleira. „Algengt er
að neytendur leiti til samtakanna
með fyrirspurnir um tiltekin við-
skipti en símaþjónustan er opin
frá kl. 10.00 til 15.00, alla virka
daga.
„Þegar kvartanir berast, þá öfl-
um við upplýsinga frá báðum
ágreiningsaðilum. Neytandinn er
beðinn um að skrifa stutta grein-
argerð um kvörtunarefnið. Mót-
aðilanum er skýrt frá réttarstöðu
sinni og honum boðið að koma á
framfæri sínum sjónarmiðum,“
segir Þóra.
Úr myndasafni Morgunblaðsins/Ásdís
Á SUMRIN snúast kvörtunarmál töluvert um fasteignaviðgerðir.
Starfsmönnum er gert að gæta
hlutleysis í ágreiningsmálum en
treysti þeir sér ekki til að skera
úr um mál hafa Neytendasamtökin
á sínum snærum matsmenn sem
hægt er að leita til. Að sögn Þóra
leysast þó málin oftast nær á skrif-
stofu samtakanna.
Sex úrskurðarnefndir
Lögfræðingur Neytendasam-
takanna, Sigríður Auður Arnar-
dóttir, veitir félagsmönnum
ókeypis lög- fræðiaðstoð í þeim
málum sem flokkast undir neyt-
endamál.
í samvinnu við aðila úr við-
skiptalífinu eiga Neytendasamtök-
in aðild að kvörtunarnefndum til
að úrskurða um ágreining neyt-
enda og seljenda. Sigríður segir
nefndirnar ekki koma í stað dóm-
stóla en vera fljótvirka og ódýra
úrlausnarleið sem jafnframt veiti
seljendum vöru og þjónustu ákveð-
ið aðhald.
Um er að ræða sex úrskurðar-
nefndir. Nefnd í samstarfi við Fé-
lag efnalaugaeigenda, nefnd
vegna kaupa á vöru og þjónustu
í samstarfi við Kaupmannasamtök
Islands og Samtök samvinnuversl-
ana, úrskurðarnefnd Félags ís-
lenskra ferðaskrifstofa, nefnd er
varðar nýbyggingar og viðhald
íbúðarhúsnæðis, úrskurðarnefnd í
vátryggingamálum og sjötta
nefndin fjallar um viðskipti við
fjármálafyrirtæki.
„Ef ekki er komið til móts við
eðlilegan og sjálfsagðan rétt neyt-
andans er viðkomandi mál gert
að umtalsefni í ijölmiðlum.
Einnig hefur verið gripið til
þess ráðs að birta svartan lista
yfir þau fyrirtæki eða verslanir
sem ítrekað hafa brotið á rétti
neytendans, segir Sigríður.
Fram kom einnig hjá Sigríði
að upplýsingastarfsemi gegni sí-
fellt mikilvægara hlutverki í starfi
samtakanna. „Félagsmönnum er
til dæmis boðið að fá ljósrit 'af
hinum ýmsu gæðakönnunum sem
gerðar hafa verið hér á landi og
erlendis.“
Kvörtunarþjónusta Neytendasamtakanna
Munnlegir
samningar
varasamir
i
>
K m w m
átqámogrunnum
Sitkagreni
Hvítgreni
Blágreni
Opnunartímar:
Virka daga kl. 9-21
Umhelgarkl. 9-18
Oafsláttur
• Loðvíðir
• Alaskavíðir
• Viðja
GRODRARSTOBIN
• Blátoppur
• Alaskayllir
• Fjailarós
• Hjónarós
• Sumarblómog
plærarplöntur
STJÖRNUGRÖF18, SMi S81 42SS, FAXS812228
Sækiö suraarið tii okkar
Morgunblaðið/Ásdís
Nýjar
salatsósur
TVÆR nýjar salatsósur hafa bæst
í hópinn hjá Heidelberg-vörunum.
Um er að ræða svokallaða Bret-
agne-sósu og hinsvegar ítalska
sósu sem nefnist Toscana og er
með tómatkeim.
Súkkulaði *
brættá
kaffivél-
arhellunni
MARGIR eru komnir upp á
lag með að bræða súkkulaði j
í örbylgjuofni en sumir nota
örugglega gömlu aðferðina
og bræða það í vatnsbaði.
Við rákumst nýlega á aðra
aðferð í dönsku blaði. Þar var
lesandi að segja frá því að
hann keypti alltaf súkkulaði-
bita eða spæni og setti í eld-
fast mót á plötu kaffivélar-
innar sinnar. Þá er auðvitað j
kveikt á kaffivélinni og súkk-
ulaðið bráðnar þar í rólegheit-
um.