Morgunblaðið - 22.06.1996, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ1996 43
FRÉTTIR
RAGNAR Gíslason, skólastjóri Foldaskóla og Kristín A. Árnadóttir, aðstoðarkona borgarstjóra,
tóku við gjöf Olíufélagsins hf. fyrir hönd Vímuvarnaskólans og Hafliði Hjartarson, formaður Styrkt-
arfélags vangefinna og Jónína Sigurðardóttir tóku við gjöf Olíufélagsins hf. fyrir hönd Styrktarfé-
lags vangefinna.
Olíufélagið hf. leggur tvær
milljónir til mannræktarmála
í TILEFNI af 50 ára afmæli Olíu-
félagsins hf. þann 14. júní sl.
ákvað stjórn félagsins að veita
tveggja milljóna króna styrkt til
mannræktarmála, annars vegar
eina milljón til Vímuvarnarskól-
ans og hins vegar eina milljón til
Styrktarfélags vangefinna.
I fréttatilkynningu segir:
„Vímuvarnarskólinn er sam-
starfsverkefni Reykjavíkurborg-
ar, ríkisins og fjölmargra aðila
sem tengjast forvarnarstarfi
Fjölskyldu-
hátíð ná-
granna á
Miklatúni
HALDIN verður fjölskylduhátíð á
Miklatúni fyrir hverfin umhverfis
Miklatún; Hlíðar, Norðurmýri og
Holt, sunnudaginn 23. júní kl.
l. 4-1.7.
í fréttatilkynningu segir: „Á
hátíðinni verður margt til gamans
gert, það verða m.a. leiktæki fyrir
börnin og þau geta látið mála sig
í framan. Furðufuglar og líka Ge-
org frá íslandsbanka mæta á
svæðið og Möguleikhúsið verður
með leikþáttinn Kalli eignast vin.
500 blöðrur frá Búnaðarbankanum
munu svífa til himins og tónlistar-
maðurinn Megas mun taka nokkur
lög. Auk þessa verður margt annað
sér til gamans gert. Allir leika sér
saman og það verða grillpylsur á
vægu verði. Ennfremur ætla íbú-
arnir að bjóða hver öðrum upp á
heimabakaðar kökur. Allir í hverf-
inu ætla að leggjast á eitt að hafa
gaman af.“
-----» ♦ ♦-----
Flugdagur 1996
FLUGKLÚBBUR Selfoss býður alla
velkomna til Flugdags 1996 laugar-
daginn 22. júní kl. 14.
Dagskrá samkomunnar stendur
saman af ýmsum sýningaratriðum,
s.s. flugi þyrlu Landhelgisgæslunnar
TF-LÍF, listflugi, svifflugi, fallhlífar-
stökki, flugmódelasýningu og sýn-
ingu á heimasmíðuðum flugvélum,
m. a. vél sem Albert Siguijónsson í
Forsæti í Flóa hefur unnið við á síð-
ustu misserum. Þá er einnig boðið
upp á útsýnisflug með flugvélum eða
þyrlum og einnig flugnám kynnt.
Kynnir á flugdegi er Omar Ragnars-
son, flug- og fréttamaður.
Flugdagur flyst til sunnudagsins
23. júní ef veður hamlar á laugardag.
gegn vímuefnum. Þar má nefna
Barnaverndarstofu SÁÁ,
Fræðslumiðstöð í fíkniefnavörn-
um, Rauða krossinn og Forvarna-
deild lögreglunnar. Vímuvarna-
skólinn er eins konar farskóii sem
fer á milli skóla með fyrirlestra
og leiðbeiningar til kennara og
annarra starfsmanna skólanna
um leiðir til baráttu gegn fíkni-
efnum. Markmið fræðslunnar er
að efla forvarnastarf grunnskóla
og koma á vímuvarnaráætlun í
RADÍÓMIÐUN hf. færði Slysa-
varnafélagi íslands tölvu og sér-
hæft forrit að gjöf nýlega. Bún-
aðurinn kemur m.a. að gagni við
skipulagningu leitar- og björgun-
araðgerða. Verðmætið er um 700
þúsund krónur.
Að sögn Kristjáns Gíslasonar,
framkvæmdastjóra Radíómiðunar,
er um að ræða skipstjórnartölvu
og alhliða upplýsingabanka á
tölvutæku formi, sem gagnast við
að skipuleggja leitar- og björgun-
araðgerðir og fá upplýsingar um
fyrri tíma atburði og aðgerðir, svo
hægt sé að læra af reynslunni.
Slíkar tölvur eru nú um borð í 250
íslenskum skipum, en með tölvu-
hverjum skóla. Þetta verkefni
hófst sl. vetur og er mat þeirra
sem best þekkja til að starf þetta
sé líklegt til að skila árangri í
baráttunni gegn eiturlyfjum.
Styrktarfélag vangefinna var
stofnað 1958 og hefur alla tíð
unnið að bættum aðstæðum
þroskaheftra. Starfsemi félagsins
hefur borið mikinn og góðan
árangur og er viðurkennt braut-
ryðjendastarf í mannrækt á ís-
landi.“
búnaðinum er hægt að ná sam-
bandi við fiskiskipaflotann í gegn-
um fjarskiptatæki.
Gunnar Tómasson, formaður
Slysavarnafélags Islands, segir að
gjöfin hafí heilmikla þýðingu fyrir
félagið. „Með þessu fer Slysa-
varnafélagið að tileinka sér þá
tækni sem skip og bátar eru al-
mennt að taka í notkun núna og
við getum þ.a.l. talast við á sama
máli,“ sagði Gunnar. „Hugmyndin
er að reyna að koma þessu kerfi
einnig á við leit og björgun á landi
og nú er hægt að hefja skipulega
söfnun upplýsinga um helstu staði
á landi og sjó sem við koma leit og
björgun.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
RADÍÓMIÐUN hf. færði Slysavarnafélagi íslands að gjöf tölvubún-
að og upplýsingabanka til skipulagningar á leitar- og björgunarað-
gerðum. Á myndinni eru Baldur Bjarnason eigandi Radiómiðun-
ar, Kristján Gíslason framkvæmdastjóri Radíómiðunar, Esther
Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri SVFÍ, Páll Ægir Pétursson
deildarstjóri hjá SVFÍ og Gunnar Tómasson formaður SVFÍ.
Sly savarnafélag-
ið fær tölvugjöf
Hafnarfjörður, Hveragerði,
Hornafjörður og Húsavík
Heilsuefling
á Jónsmessu
HEILSUEFLING býður íbúum og
gestum heilsubæjanna Hafnaríjarð-
ar, Hveragerðis, Hornafjarðar og
Húsavíkur að njóta útívistar og
heilsuræktar á bjartasta tíma ársins
nú um Jónsmessuleytið. Þar má til
dæmis nefna sund, göngur, leiki,
golf og ýmsar uppákomur til
skemmtunar og heilsubótar.
Heilsuefling er verkefni heil-
brigðisráðuneytisins og Landlækn-
isembættisins um bætta lífshætti
almennings sem hefur verið í sam-
starfi við þessi fjögur sveitarfélög
undanfarin tvö ár.
í Hafnarfirði er yfirskrift laugar-
dagsins „Heilsuefling á sundlaugar-
barminum", en þar gefst gestum
Suðurbæjarlaugar kostur á að sam-
eina sundsprett, slökun í heita pott-
inum og ráðgjöf Heilsugæslunnar
Sólvangs um heilbrigði og vellíðan.
Hvergerðingum er boðið í Jóns-
messuferð á sunnudagskvöld. Ekið
verður í rútu frá Grænu smiðjunni
upp á Kambabrún og gengið þaðan
undir leiðsögn Björns Pálssonar.
Lofað er óvæntum uppákomum.
Á Hornafirði er fjölbreytt dag-
skrá allan sunnudaginn. Má þar
nefna sundleikfimi eldri borgara,
smábarnasund, golf og hestakynn-
ingu. Dagskránni lýkur með Jóns-
messugöngu „út í bláinn“ með
Ferðafélagi Austur-Skaftafells-
sýslu.
Á Húsavík hefst dagskráin eftir
hádegi í dag á hafnarsvæðinu.
Meðal atriða þar eru dorgveiði-
keppni, fjársjóðsleit, kassabílarall
og keppni um loftmesta Þingeying-
inn. í kvöld verður svo slegið upp
bryggjuballi og farið í miðnætur-
göngu á Húsavíkurfjall.
„Við viljum leggja áherslu á að
heilsuefling sé ekki bara eitthvað
leiðinlegt og alvarlegt. Fólk getur
svo sannarlega líka skemmt sér um
leið og það nýtur útivistar og hreyf-
ingar með fjölskyldu og vinum,“
segir Anna Björg Aradóttir, verk-
efnisstjóri Heilsueflingar.
Jonsmessuhátíð
í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum
FJÖLSKYLDU- og húsdýragarður-
inn stendur fyrir Jónsmessuhátíð
nú um helgina.
Á laugardaginn verða sprelltæki
á staðnum allan daginn og um kl.
15 verður gríska söngdagskráin
Vegurinn er vonar grænn fluttur
af Sif Ragnhildardóttur og félögum.
Á sunnudaginn kl. 14 verða flétt-
aðir blómakransar og reist Jóns-
messustöng. Sungið og dansað
verður í kringum stöngina með
góðvinum garðsins, þeim Trjálfi og
hinum skemmtilega Hróa hrakfalla-
bálki. Furðufjölskyldan slæst síðan
í hópinn um kl. 15.
Veiðidagur
fjölskyldunnar
VEIÐIDAGUR fjölskyldunnar verð-
ur haldinn á morgun. Að honum
standa Ferðaþjónusta bænda,
Landssamband stangaveiðifélaga,
Landssamband veiðifélaga og Upp-
lýsingaþjónusta landbúnaðarins. í
tilefni dagsins bjóða þessir aðilar
fjölskyldum til ókeypis silungsveiða
víða um land.
„Að baki Veiðidegi fjölskyldunnar
býr sú hugmynd að öll ljölskyldan
drífí sig af stað í veiðitúr, njóti þess
eina dagstund að renna fyrir góm-
sætan vatnafisk i hinni stórbrotnu
íslensku náttúru og kynnist um leið
skemmtilegri tómstundaiðju," segir
Jón G. Baldvinsson formaður Lands-
sambands stangaveiðifélaga.
Ferðaþjónusta bænda býður upp
á ókeypis veiði á eftirtöldum veiði-
stöðum: Meðalfellsvatni í Kjós,
Haukadalsvatni, Hnausatjörn í
Húnaþingi, Höfðavatni, Vestmanns-
vatni, Urriðavatni í Fellum á Hér-
aði, Langavatni á Héraði, Víkurflóði
nærri Klaustri, Höfðabrekkutjöm-
um við Vík, Heiðarvatni í Mýrdal
og Hestvatni.
Stangaveiðifélögin bjóða upp á
eftirfarandi: Elliðavatn, Kleifarvatn,
Þingvallavatn fyrir landi þjóðgarðs-
ins, vötn í Svínadal, Geitabergsvatn,
Þóristaðavatn og Eyrarvatn, Langa-
vatn og Hítarvatn á Mýrum, Langa-
vatn í Laxárdal, Vesturós Héraðs-
vatna, Laxárvatn á Ásum og Botns-
vatn, Langavatn og Kringluvatn í
nágrenni Húsavíkur.
Á Jónsmessunótt verður opið í
garðinum frá kl. 23-1 eftir mið-
nætti og verður aðgangur ókeypis.
Valgeir Guðjónsson byijar dag-
skrána um kl. 23.30 með söng við
varðeldinn. Bergur Ingólfsson leik-
ari flytur gamanmál tengd Jóns-
messunni og þjóðsagan Selshamur-
inn verður síðan fluttur við sela-
laugina. Kaffihús garðsins verður
með til sölu seiðmagnað kúmen-
kaffi og ástarpunga og einnig verð-
ur þar kynning á jurtum og steinum
sem tengjast Jónsmessunni í þjóð-
trú okkar. Að sjálfsögðu tala kýrn-
ar á miðnætti.
Fermingar
á morgun
FERMING í Lágafellskirkju
kl. 11. Prestur sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson. Eftirtalin
fermingarbörn eru flest bú-
sett í Svíþjóð.
Albert Örn Sigurðsson.
Bjarki Þór Jónsson.
Erna Björk Harðardóttir.
Hjördís Kjartansdóttir.
Ingi Karl Sigríðarson.
Karen Anna Sveinsdóttir.
Sigi-íður Nanna Gunnarsdóttir.
Tekla Hrund Karlsdóttir.
Þórhallur Andri Jóhannsson.
■ ÞRIÐJU djasstónleikar
Jómfrúarinnar verða laugardag-
inn 22. júní kl. 16-18 á Jómfrúar-
torginu. Það eru djassararnir
Hilmar Jensson, gítar, Þórður
Högnason, bassa, og Einar Valur
Scheving, sem ná upp stemmning-
unni.
------»■♦ ♦-----
LEIÐRÉTT
Ljósið varð ljósiðn
í fyrstu minningargreininni um
Gunnlaug Sigurbjömsson á blað-
síðu 38 í Morgunblaðinu 20. júní -
eftir bræður hins látna - afbakaðist
eitt orð, í sjöundu línu greinarinn-
ar, Ijósið varð óvart ljósiðn. Hlutað-
eigendur eru innilega beðnir afsök-
unar á þessum mistökum.