Morgunblaðið - 22.06.1996, Side 48
48 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996
FÓLK í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ
HÚTEL ÍSLAHID KYHWIR EIIXIA BESTLI TÚIMLISTAROABSHRÁ ALLRA TÍMA:
70
Tk~.
foi
_ , 'BB KYXSLÓOIN-
SKEMMTIR SÉR
BESTU LÖB ÁRATUBARHMS / FRÁBÆRUM FLUTHIIIMEI SÖIMBVARA,
BAIMSARA OB IO MAIMIMA HLJÓMSVEITAR BUIMIMARS ÞÓRBARSOIMAR
Geisladiskur með tónlistinni kominn út!
Njótið lengstu daga ársins með veislu í Grillinu fram á
bjarta nótt. Lifandi tónlist verður leikin og matreiðslumenn
Grillsins, sem eru í sumarskapi, matreiða fyrir gesti frá
kl. 19.00-02.00 á föstudags- og laugardagskvöld.
I boði er nýr sumarmatseðill með ótal spennandi réttum,
þar á meðal réttum sem hlutu gullverðlaun í keppni
norrænna matreiðslu- og framreiðslunema sem haldin var
hérlendis í vor.
Meðal úrvalsliðs kokka og þjóna í Grillinu eru verð-
launahafarnir Agnar Sverrisson, sem vann gullið fyrir
matreiðslu og Hendrik Hermannsson, sem hlaut silfrið
fyrir framreiðslu.
Réttir sem hlutu gullverðlaun ogeru m.a. í boði:
Pressuð kjúklingalifur og rúsínur íportvínshlaupi
Bakaður laxaböggull jylltur með kartöflum og kryddjurtum,
framreiddur með kóríandersósu
Skyr- og mysuostsmarmari með berjum
Gerið björtustu daga ársins ógleymanlega
með sælkeraveislu í Grillinu!
-þín saga!
Morgunblaðið/Sverrir
40 ára afmæli landsliðsins fagnað
LEIKMENN fyrsta kvennalands-
liðs íslands í handbolta hittust
og gerðu sér glaðan dag á mið-
vikudag með því að fara út að
borða í Viðey. Tilefnið var að 40
ár voru liðin frá fyrsta kvenna-
landsleik íslendinga í handbolta,
við frændur okkar Norðmenn á
Bislett-leikvanginum í Ósló.
Leikið var utandyra, á grasi
og voru norsku stúlkurnar í
takkaskóm en þær íslensku í
strigaskóm. Það kom sér illa fyr-
ir okkar konur þar sem völlurinn
var blautur vegna rigninga. Þær
runnu til á grasinu, en engu að
síður vakti góð frammistaða
þeirra athygli. Leikurinn endaði
10-7, norsku stúlkunum í vil.
Þess má geta að í upphafi leiks-
ins afhenti ein af íslensku stúlk-
unum, klædd íslenskum þjóðbún-
ingi, fyrirliða norska liðsins blóm-
vönd og vakti það ánægju við-
staddra.
Hér sjáum við íslensku stúlk-
urnar 40 árum seinna, áður en
lagt var af stað út í Viðey. í
hópnum voru: Elín Guðmunds-
dóttir Þrótti, Elín Helgadóttir
KR, Geirlaug Karlsdóttir KR,
Guðlaug Elísa Kristinsdóttir FH
og síðar KR, Helga G. Emilsdótt-
ir Þrótti, Ingibjörg Hauksdóttir
Fram, Rut Guðmundsdóttir Ár-
manni, Sigríður J. Kjartansdóttir
Ármanni, Sigríður Lúthersdóttir
Ármanni, Sóley Tómasdóttir
Val, Svana Jörgensen Ármanni
og Gerða Jónsdóttir KR. Þá síð-
asttöldu vantar reyndar á mynd-
ina.
Stjómin
kynnir
plötu
► HLJÓMSVEITIN Stjórnin spil-
aði í Leikhúskjallaranum fyrir
skömmu og kynnti nýja geisla-
plötu, Sumar nætur. Eins og sjá
má var Sigga Beinteins jafnt sem
áhorfendur og Ijósmyndari Morg-
unblaðsins í miklu stuði.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
GUÐRÚN Ósk Hermansen og Vigdís
Ólafsdóttir tóku létta sveiflu.
BIRNA Ingadóttir, Rúnar Svavarsson og
Gunnhildur Anna Ingadóttir.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Töfrar í miðbænum
►ÞEGAR sól er sem hæst á lofti
fer miðbærinn að iða af lífi um
leið og skýin hverfa. Á rölti ljós-
myndara blaðsins um bæinn á
dögunum rakst hann á breska
töframanninn The Mighty Garr-
eth, eða Garreth hinn mikla, þar
sem hann lék listir sínar. Eins
og sjá má voru áhorfendur fjöl-
margir.