Morgunblaðið - 07.07.1996, Side 2

Morgunblaðið - 07.07.1996, Side 2
2 SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ágreiningur FÍ og Svínavatnshrepps um skipulag og yfirráð á Hveravallasvæðinu Óvissa um leyfi til framkvæmda ÞRÁTT fyrir þann úrskurð umhverfisráðuneytis- ins að Hveravellir falli innan staðarmarka Svína- vatnshrepps og hreppsnefnd fari með stjómsýslu- vald á Hveravöllum er ríkjandi óvissa um hvort heimilt er að ráðast í framkvæmdir á svæðinu. í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá í nóvember 1995, í máli Svínavatnshrepps, Torfalækjar- hrepps og fleiri hreppa gegn Landsvirkjun, varð niðurstaðan sú að ekki hefði verið sýnt fram á eignarhald hreppanna á Auðkúluheiði en Hvera- vallasvæðið tilheyrir heiðinni. Var dóminum áfrýjað til Hæstaréttar og er nú beðið dóms hans í málinu. í úrskurði skipulagsstjóra ríkisins í mars sl. um frekara mat á umhverfisáhrifum fyrirhug- aðra framkvæmda á vegum á Hveravöllum komst embættið m.a. að þeirri niðurstöðu að eignarhald á svæðinu þurfi að liggja ljóst fyrir áður en unnt sé að veita leyfi til framkvæmda og var í því sambandi vísað í umræddan héraðs- dóm. Páll Sigurðsson, forseti Ferðafélags íslands, segir að þessi niðurstaða skipulagsstjóra hafi verið athyglisverð. Ekki hafi þó rökstuðningur fylgt úrskurðinum og því sé óvíst hvaða áhrif þetta hafi. Unnið að gerð nýs deiliskipulags Hreppsstjórn Svínavatnshrepps lagði fram tillögu að deiliskipulagi á svæðinu í byrjun árs- ins en skipulagsstjóri vísaði deiliskipulaginu til baka og óskaði eftir að fram færu rannsóknir á svæðinu. Er nú unnið að gerð nýs deiliskipu- lags. í úrskurði sínum sagði skipulagsstjóri að meðan ekki lægi fyrir að viðkomandi hreppar hefðu eignarrétt yfir þessu landsvæði gætu sveitarstjómaryfirvöld ekki heimilað byggingar á því. Umhverfisráðuneytið víkur einnig að dómi héraðsdóms í úrskurði sínum og segir að þrátt fyrir að dómurinn hafi komist að þeirri niður- stöðu að Auðkúluheiði sé ekki eignarland Svína- vatns- eða Torfalækjarhrepps taki hann ekki á staðarmörkum hreppanna eða stjórnsýsluvaldi þeirra. „Staðarmörk sveitarfélags kveða ekki á um eignarrétt þess til landsvæðis," segir í úr- skurði ráðuneytisins. „Ég tel ákaflega líklegt að Hæstiréttur stað- festi úrlausn héraðsdóms því að héraðsdómur fer augljóslega í sömu stefnu og alimargir hæstarétt- ardómar sem fallið hafa um hálendissvæði á undanfömum ámm,“ sagði Páll. í niðurstöðum héraðsdóms sagði m.a.: „Það em gmndvaliarreglur í eignarrétti að sá, sem telur til eignarréttinda yfir landi, verði að færa fram heimildir fyrir tilkalli sínu og að sá, sem afsalar landi, geti ekki veitt viðtakanda sínum víðtækari rétt en hann átti sjálfur. Efni og orða- lag kaupsamninga og afsala, sem um ræðir í málinu, sker eigi til fullnustu úr um það hvort stefnendum hafi verið afsalað fullkomnu eignar- landi eða einungis afréttareign, þótt hið síðara verði líklegra talið." Fjórðungsmótið á Gaddstaðafiötum Oður enn efstur A Islensku liðin til Austur- Evrópu ÍSLENSKU knattspymuliðin, ÍA, KR og ÍBV, sem taka þátt í forkeppni Evrópumóts félags- liða, vom óheppin er dregið var í Genf í Sviss í gærmorgun. Öll þurfa þau að ferðast til Austur-Evrópu. íslandsmeist- arar Skagamanna drógust gegn FC Sileks frá Makedónía í UEFA-keppninni og ÍBV gegn Lantana frá Eistlandi í sömu keppni. KR, sem leikur í for- keppni Evrópumóts bikarhafa, mætir MPCC Mozyr frá Hvíta- Rússlandi. ÍA og KR leika fyrri leikina á heimavelli en ÍBV fékk fyrst útileik. ■ íslensku liðin/48 ÓÐUR frá Brún og Hinrik Braga- son héldu fyrsta sætinu í A-flokki eftir fullnaðardóm tuttugu efstu hesta á fjórðungsmótinu í gær. Næstir komu Hjörvar frá Ketils- stöðum og Atli Guðmundsson með 8,73, Gordon frá Stóru-Ásgeirsá og Sigurbjörn Bárðarson með 8,64, Prins frá Hvítárbakka og Viðar Halldórsson með 8,62, Dal- var frá Hrappsstöðum og Daníel Jónsson með 8,60, Seimur frá Víðivöllum fremri og Þórður Þor- geirsson með 8,59. Jöfn með 8,56 urðu Prins frá Hörgshóli og Sig- urður Sigurðarson og Spá frá Varmadal og Erling Sigurðsson. Kappreiðar fóm fram á föstu- dagskvöld. í 150 metra skeiði sigr- aði Snarfari frá Kjalarlandi, knapi Sigurbjöm Bárðarson á 14,35 sek. Lúta frá Ytra-Dalsgerði varð önn- ur, knapi Þórður Þorgeirsson á 14.42 sek. og Hólmi frá Kvíabekk þriðji, knapi Svanur Guðmundsson á 14,98 sek. í 250 metra skeiði sigraði Sprengjuhvellur frá Efsta- dal, knapi Logi Laxdal á 22,20 sek. Ósk frá Litladal varð önnur, knapi Sigurbjörn Bárðarson á 22,21 sek. og Funi frá Sauðár- króki varð þriðji, knapi Erling Sig- urðsson á 22,54 sek. í 350 metra stökki sigraði Chaplin frá Hvítár- síðu, knapi Siguroddur Pétursson á 26,20 sek. Sprengja sem Erlend- ur Ingvarsson sat varð önnur á 26.42 sek., og Bangsi frá Hurðar- baki, sem Þórdís Guðmundsdóttir sat, þriðja á 26,43 sek. Einn hest- ur náði tíma í 300 metra brokki, Nari frá Laugarvatni, knapi Þor- kell Bjamason yngri og var tíminn 35,76 sek. QUEEN Elizabeth er einkar glæsilegt skip. Queen Elizabeth II væntanleg VON er á Queen Elizabeth II, einu þekktasta skemmtiferðaskipi heims, hingað til lands kl. 8 á mánudagsmorgun. Hjörleifur Hjörleifsson, umboðsmaður skemmtiferðaskipa á vegnm Eim- skips, segir að skipið hafi aðeins skamma viðdvöl í Reykjavík og láti úr höfn um kl. 16 sama dag. Á skipinu eru 1.545 farþegar og 1.058 manna áhöfn. Queen Elizabeth II sigldi jómfrúarferð sína frá heimahöfn- inni í Southampton til New York árið 1969. Skipinu var breytt úr gufuskipi í diselskip árið 1986 og gerðar voru verulegar endurbæt- ur á því árið 1994. Nú er skipið um 70.327 tonn og getur flutt 1.830 farþega. Skipið er 293 m að lengd og 32,9 m að breidd og ristir 9,9 m djúpt. Queen Elizabeth er í eigu al- þjóðlega skipafélagsins Cunard Line. Hingað kemur skipið frá Skotlandi og heldur áfram til Norður-Noregs. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Þingmenn gagnrýna vinnubrögð umhverfisráðherra Móta þarf reglur um flutning stofnana Breikkun brúar yfir Djúpadalsá UNDANFARIÐ hefur athygli manna beinst að hættunni sem stafar af einbreiðum brúm á þjóðvegum landsins. Vega- gerðin á Sauðárkróki lauk nýlega við breikkun brúarinn- ar yfir Djúpadalsá í Skaga- firði. Tíu manna vinnuflokkur sá um framkvæmdirnar, sem stóðu yfir í u.þ.b. mánuð og kostuðu rúmlega 30 milljónir króna. Vegagerðin á Sauðár- króki er þessa dagana að vinna að breikkun brúar yfir Staðará milli Varmahlíðar og Sauðár- króks, og lýkur því verki vænt- anlega um næstu mánaðamót. SVAVAR Gestsson, Alþýðubanda- lagi, og Kristín Ástgeirsdóttir, Kvennalista, gagnrýna vinnubrögð umhverfisráðherra vegna ákvörð- unar hans um flutning Landmælinga íslands til Akraness og telja ófaglega að henni staðið. Svavar segir pólitísku valdi beitt þvert á fagleg sjónarmið. Þá megi spyrja um hlutverk höfuðborgarinn- ar. „Er ekki þjóðhagslega hagkvæmt að menn geti vitjað ákveðinna megin- þátta opinberrar þjónustu á sama svæðinu?" spyr Svavar. „Það er eng- in tilviljun að Reykjavík hefur byggst upp. Þjóðin hefur talið hagkvæmt að hafa þessa þjónustu hér og t.d. ákváðu menn að hafa Alþingi hér. Bæði sem Reykvíkingur og þingmað- ur landsins alls er ég óánægður með þessi vinnubrögð.“ Margir ókostir Svavar minnir á að Alþýðubanda- lagið hafi lagt fram þingsályktunar- tillögu í vetur um það hvemig standa skuli að flutningi ríkisstofnana út á land. „Það er tímabært að mótuð verði stefna um þetta þannig að ekki sé hægt að flytja starfsmenn stofn- ana í Reykjavík eins og gripi milli landshluta." Kristín telur ákvörðunina mjög hæpna og að henni fylgi margir ókost- ir. „Grundvöllur fyrir því að hægt sé að flytja stofnunina er að nógu mik- ill hluti starfsmanna vilji starfa áfram þannig að starfsemi stofnunarinnar raskist ekki verulega," segir hún. Hún segir að þess verði einnig að gæta að á þeim stað sem stofnun sé flutt til sé hægt að bjóða mökum atvinnu við hæfi. Hjá Landmælingum vinni margir háskólamenntaðir menn og þeir eigi margir maka með há- skólamenntun. í ljósi þess sé ólíklegt að makar fái auðveldlega vinnu við hæfi á Akranesi. ► 1-52 Flugvöllur með fortíð ►Upphaf Reykjavíkurflugvallar var sögulegt en nú eru liðin 50 ár frá því að Bretar afhentu íslend- ingum flugvöllinn til umráða. /10 Hlið vítis opnuðust ► Morð, pyntingar og mannát ein- kenndu menningarbyltinguna í Kína fyrir 30 árum samkvæmt upplýsingum í nýrri bók. /12 Barist á öllum vígstöðvum ►Frásögn Auðar Guðjónsdóttur sem enn berst fyrir því að fá kín- verskan lækni til landsins til að ljúka aðgerð á dóttur sinni. /20 Svifið seglum þöndum ►í Viðskiptum/Atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Jón Barðdal í Seglagerðinni Ægi. /22 B C FERDALOG D BILAR ► l-28 ílandifólksins ►Það er óneitanlega þverstæðu- kennt að Kalaallit Nunaat eða land fólksins eins og Grænlendingar kalla land sitt, skuli einmitt vera landið þar sem mennirnir eru svo agnarlitlir og fáir í hrikalegri nátt- úrunni. /1&12-15 Paradísá jörðu ►Verkfræðingurinn Guðmundur ’ Pétursson hefur sl. þijú ár starfað sem ráðgjafi við virkjunarfram- kvæmdir í Venesúela og segir frá þjóðinni sem þar býr, lífsstíl henn- ar, ríkidæmi, auðnuleysi og fá- tækt. /2 Gegnum Zimbabwe og Zambíu ►Frásögn íslensku fjölskyldunn- ar, á leið frá Góðrarvonarhöfða til Tröllaskaga, af öðrum áfanga ferðarinnar. /4 ► 1-4 Vestfirðir ►Uppbygging ferðamála á vest- asta odda Evrópu. /2 Með krakkana í Köben ►Kaupmannahöfn er heimsóknar virði fyrir fólk á öllum aldri en hér er rakið hvað borgin býður upp á fyrirkrakka. /4 ► l-4 Ör dísilbílavæðing ►Evrópskir bílaframleiðendur telja sig sjá fram á enn aukna eftirspum eftir dísilbílum í álf- unni. /3 Reynsluakstur ► Scania hópbifreið með þægind- um í bak og fyrir. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Leiðari 26 Helgispjall 26 Reykjavtkurbréf 26 Minningar 32 Myndasögur 38 Bréftilblaðsins 38 ídag 40 Brids 40 Stjömuspá 40 Skák Fólk í fréttum Bíó/dans íþróttir Útvarp/sjónvarp Dagbók/veður Mannlifsstr. Kvikmyndir Dægurtónlist INNLENDAR FRÉTTIR- 2-4-8-BAK ERLENJDAR FRÉTTIR' 1&6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.