Morgunblaðið - 07.07.1996, Síða 11

Morgunblaðið - 07.07.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1996 11 FRAMKVÆMDIRNAR vorið 1941 drógust vegna slæms árferðis, klaka í jörðu og bleytu. A þessari ljósmynd sem tekin er 10. apríl það ár sér yfir flug- vallarsvæðið og vestur yfir Alftanes. A firðinum lón- ar breskt birgðaskip. Á ÞESSARI mynd sem tekin er 28. maí 1941 er Norð- ur-Suður brautin orðin allmyndarleg. Vinstra megin má sjá hús sem í daglegu tali var kallað Tunnan. SVONA leit flugvöllurinn út fullbyggður, haustið 1941. RE YKVÍSKIR unglingar tóku mikinn þátt í byggingu flugvallarins. BERGUR G. Gíslason var fyrsti verkstjóri áhugamanna sem hófu framkvæmdir við gerð flugbrautar sumarið 1940, sem Bretar tóku síðan við um haustið. VIÐ afhendingu Reykjavíkurflugvallar 6. júlí 1946. Á myndinn eru Harper, yfirmaður flugvallarins, Ólafur Thors, forsætisráð- herra, og Sir Gerald Shepheard, sendiherra. LJÓSMYND af flugvellinum á Kaldaðar- nesi, tekin 1. ágúst 1941. Búið er að leggja eina flugbraut og verið að vinna að tveim- ur öðrum. Tveimur árum síðar flæddi Ölfusá yfir bakka sína, olli skemmdum á flugbrautunum, og þá fluttu Englending- ar starfsemina alla til Reykjavíkur. Veturinn 1940-1941 var unnið hörðum höndum við gerð Reykja- víkurflugvallar. Ástandið á Atl- antshafi versnaði dag frá degi, þar höfðu Þjóðveijar með sína kafbáta algjöra yfirhönd. Það var engin spurning að þetta var orðin bar- átta upp á líf og dauða. Flugvöllur á Islandi myndi skipta sköpum. Þess vegna varð að flýta byggingu Reykjavíkurflugvallar sem mest til þess að hægt væri að hefja eftirlitsflug frá Islandi. Áhrifa orrustunnar á Atlants- hafi gætti svo sanriarlega í ís- lensku þjóðlífi. Sorgarmars var leikinn í útvarpinu, allir biðu í óvissu, vissu hvaða fréttir biðu áheyrandans, — enn einn tpgarinn hafði horfið í hafið með manni og mús. Spurningar vöknuðu, hvað hafði gerst, var það djúpsprengja — tundurdufl — sprengjuflugvél? Oftar en ekki var enginn til frá- sagnar — togarinn eða fragtskipið hvarf í hafið og eftir stóðu ekkjur og munaðarlaus börn. Hinn 28. maí 1941 tilkynnti Curtis yfirmaður breska hersins á íslandi hermálaráðuneytinu í London að stærsta flugbraut Reykjavíkurflugvallar væri tilbú- inn í stríðsátök. Fyrsta opinbera lendingin var framkvæmd af yfirmanni Flus- flota Orkneyja og Hjaltlands sem kom fljúgandi til Reykjavíkur. Flugvélar frá Reykjavíkurflugvelli tóku við gæzlu vegna skipalesta á Atlantshafinu. Mikilvægi Reykja- víkurflugvallar hefur aldrei verið metið að verðleikum. Bretar voru stoltir af framkvæmdum á Reykja- víkurflugvelli, enda máttu þeir vera það, því bygging flugvallarins tók aðeins 10 mánuði. Hinn 6. júlí 1946 tók Ólafur Thors við lykli flugvallarins úr hendi sendiherra Breta við hátíð- lega athöfn á Reykjavíkurflugvelli. í fyrstu gegndi Reykjavíkur- flugvöllur lykilhlutverki í utan- lands- og innanlandsflugi en í dag hafa hlutverkin breyst. Keflavík- urflugvöllur er orðinn alþjóðlegur flugvöllur en Reykjavíkurflugvöll- ur skipar eftir sem áður stóran sess í hugum íslendinga sem ein aðalsamskiptamiðstöð í innan- landsflugi. YFIRMENN breskra flugmála voru stoltir af Reykjavíkurflug- Welli og sendu listamenn til að gera myndir af honum. Hér er vatnsiitamynd eftir einn þeirra, af gamla flugturninum og brögg- um\sem hýstu m.a. slökkviliðið og síðar veitingastað Loftleiða. / í ÁGÚST 1941 kom Winston Churchill í heimsókn til Reykjavík- ur. Hér er hann að koma úr Alþingishúsinu, eftir að hafa flutt ræðu á svölum þess. Úr miðbænum hélt hann meðal annars út á Reykjavíkurflugvöll. SVEIT Lancaster- flugvéla á Reykjavíkurflugvelli árið 1947, en þetta mun hafa verið síðasta stórheimsókn breskra flugvéla á sinn gamla flugvöll.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.