Morgunblaðið - 07.07.1996, Qupperneq 48
48 SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA
ÍAfertil Makedóníu, KRtil Hvíta-Rússlands og ÍBVtil Eistlands
w
Islensku liðin, ÍA, KR og ÍBV, Rússlandi. ÍA og KR leika fyrri ætlum við ekki að tapa fyrir því. hundsbiti. Ég þekki þetta lið ekki Eðvaldsson, þjálfari ÍBV, sagðist
sem taka þátt í forkeppni Evr- leikina á heimvelli, en ÍBV fékk Við þurfum að vinna heimaleikinn neitt og nú þarf ég að fara í það ekki vita neitt um þetta lið og
ópumóts félagsliða, voru óheppin fyrst útileik. með minnst tveggja marka mun að útvega mér upplýsingar um færi nú í að afla sér upplýsinga
er dregið var í Genf í Sviss í Guðjón Þórðarson, þjálfari til að komast í gegnum þessa það. Jákvæða við það að lenda á um það.
gærmorgun. Öll þurfa - þau að Skagamanna, sagðist frekar umferð og það ætlum við okkur,“ móti liði frá Hvíta-Rússlandi, er „Það er greinilegt að ég iosna
ferðast til Austur-Evrópu og ieika ósáttur við að þurfa að fara til sagði Guðjón. að þar er sumarfrí í deildinni á ekkert við Eistland, kannski að
gegn áður óþekktum liðum. Is- Makedóníu og hefði frekar kosið Ætlum áfram meðan við erum hér á fullu. Það hann faðir minn sáiugi hafí ráðið
landsmeistarar Skagamanna Götu frá Færeyjum. „Þetta er “u aTram verður mikið álag á liðinu í ágúst einhveiju í þessu en hann var frá
drógust gegn FC Siieks frá Make- slæmur kostur og ofan á ailt feng- Lúkas Kostic, þjálfari KR, var því það mun spila sex til sjö leiki. Eistlandi. Eg fékk fyrsta landsl-
dónu í UEFA-keppninni og ÍBV um við heimaleikinn fyrst. Ég vissi á sama máli og Guðjón að hann En við förum í þetta verkefni til iðsþj álfaratilboðið mitt frá Eist-
gegn Lantana frá Eistlandi í sömu fyrirfram við hverju mátti búast hefði getað óskað sér betri mót- að komast áfrarn," sagði Lúkas. landi, ég stjórnaði í fýrsta sinn
keppni. KR, sem leikur í for- því það var ijóst í hvaða grúbbu .heija. „Það þýðir ekkert að iáta Eyjamenn drógust á móti Lant- 21. árs landsliðinu í Eistlandi og
keppni Evrópumóts bikarhafa, við vorum. Þótt ég hafi aldrei þetta fara í taugarnar á sér, held- ana frá Eistlandi og á fyrri leikur- nú stjórna ég fyrsta Evrópuleikn-
mætir MPCC Mozyr frá Hvíta- heyrt á þetta lið, Siieks, minnst ur taka þessu eins og hverju öðru inn að fara fram á útivelli. Atli um í Eistiandi,“ sagði Atli.
EM-DRÁTTUR
UEFA-keppnin
Forkeppni:
Jeunesse (Lúx) - Legia Warsaw (Póll.)
Lantana (Eistlandi) - ÍBV
Becej (Júgósl.) - Mura (Slóvenía)
Zalgiris (Litháen) - Crusaders (N-írlandi)
Newton (Wales) - Skonto (Lettlandi)
Tiligul (Mold.) - Dinamo Minsk (H-Rús.)
Khazri (Aserba.) - Hutnik Krakov (Pól.)
Portadown (N-lrlandi) - Vojvodina (Júgósl.)
Gata (Færeyjum) - Jazz (Finnl.)
Akranes - Sileks (Makedóníu)
Bohemians (írl.) - Dynamo Minsk (H-Rús.)
Haka Ry (Finnl.) - Flora Tallinn (Eistlandi)
Barry Town (Wales) - Dinaburg (Lettlandi)
Dynamo Tbilsi - Grevenmacher (Lúx.)
Maccabi Haiía (ísr.) - Partizan Belg. (Júg.)
Hit Gorica (Slóveníu) - Vardar (Makedóníu)
Croatia Zagreb (Króatíu) - Tirana (Albaníu)
Beitar Jerúsalem (ísrael) - Floriana (Möltu)
Pyunic (Armeníu) - HJK Helsinki (Finnl.)
Sandeyjar (Fær.) - Apoel Nicosia (Kýpur)
Lokomotiv (Búlg.) - Neftchi Baku (Aserb.)
Simbru (Mold.) - HaJduk Split (Kró.) _
Slovan Bratislava (Slóv.) - St Patrick’s (Írl.)
Kosice (Slóvakiu) - Teuta (Albaníu)
Anorthosis (Kýp.) - Shirak Gyumris (Arm.)
Margveti (Georgíu) - Sliema (Möltu)
Slavia Sofia (Búlg.) - Inkaras-Grifas (Lit.)
■Fyrri leikirnir fara fram 17. júlí og síðari
leikirnir viku síðar, 24. júlí.
Evrópukeppni bikarhafa
Forkeppni:
Chemlon (Slóv.) - Flamurtari (Alb.)
Sion (Sviss) - Kareda Siauliai (Litháen)
Olimpija (Slóv.) - Levski Sofia (Búlg.)
Rauða Stjarnan (Júg.) - Hearts (Skotl.)
Karabakh (Aserba.) - MyPa-47 (Finnl.)
Kotaik (Arm.) - AEK Lamaca (Kýp.)
FC Constructorul (Mold.) - Hapoel (Israel)
Valletta (Möltu) - Gloria Bistrita (Rúm.)
MPCC Mozyr (H-Rússl.) - KR
SK Brann (Noregi) - Shelbourne (írl.)
Llansantffraid (Wales) - Ruch (Póll.)
Kispest Honved (Ung.) - FC Sloga (Make.)
FC Varteks (Króatíu) - US Luxemborg
Universitate (Lettl.) - Vaduz (Lichtens.)
Glentoran (N-írl.) - Sparta Prag (Tékkl.)
Dynamo (Georg.) - Havnar Boltfélag (Fær.)
Sadam Tallinn (Eist.) - Niva Vinnit. (Úkr.)
■Fyrri leikirnir fara fram 8. ágúst og síð-
ari 22. ágúst.
Evrópukeppni meistaratiða
Undankeppni:
Maccabi Tel Aviv - Fenerbahce (Tyrkl.)
Rangers (Skotl.) - Vladikavkaz (Rússl.)
Panathinaikos - Rosenborg (Noregi)
IFK Gautaborg - Ferencvaros (Ung.)
Widzew Lodz (Póll.) - Bröndby IF
Grasshopper (Sviss) - Slavia Prag
Club Brugge - Steaua Búkarest (Rúm.)
Rapid Vín - Dynamo Kiev (Úkraínu)
■Fyrri leikirnir fara fram 7. ágúst og síð-
ari 21. ágúst.
FOLX
■ JA VJER Sotomayor heimsmet-
hafi í hástökki frá Kúbu er að ná
sér á strik á ný eftir meiðsli í hné.
A alþjóðlegu móti í Salamanca á
Spáni í gær stökk hann 2,30 metra
og sigraði.
■ JAMES Beckford frá Jamaika
stökk lengst allra í langstökki í
Salamanca í gær, 8,46 metra, en
taka verður tillit til þess að með-
vindur var nokkur.
Mataræðið
erlykillinn
Frankie Fredericks spretthlaup-
ara frá Namibíu hefur, þrátt
fyrir að hafa verið í fremstu röð
lengi, aðeins einu sinni tekist að
ná á toppinn í sinni grein, og þess
vegna muna margir ekki eftir því.
Það var árið 1993 í Stuttgart er
hann sigraði í 200 metra hlaupi.
Fredericks varð annar bæði 100 og
200 metra hlaupi á Olympíuleikun-
um í Barcelona auk þess að verða
annar í 200 metra hlaupi á heims-
meistaramótinu í Gautaborg í fyrra.
Á þessum mótum féll hann í skugg-
ann af mönnum eins og Linford
Christie, Mike Marsh og og síðast
en ekki hvað síst Bandaríkjamanns-
ininum ótrúlega, Michael Johnson.
Þé enginn efist um að þarna sé á
ferð einhver sprettharðasti maður
fyrr og síðar er það ekki fyrr en
siðustu daga sem hann hefur komið
inn í sviðsljósið og talað er um Fred-
ericks sem hugsanlegan gullverð-
launahafa í Atlanta.
Lært af
Linford Christie
Michael Johnson ætlar sér tvö-
faldan sigur í Atlanta síðar í mánuð-.
inum, bæði í 200 og 400 metra
hlaupi og að verða fyrstur í sög-
unni til þess að sigra í_ þessum
tveimur greinum á sömu Ólympíu-
leikunum. Til þess að svo væri
mögulegt var dagskrá leikanna
breytt. En úrslitin í 200 metra
hlaupinu á Bislett á föstudagskvöld-
ið hafa rennt fleiri stoðum en áður
undir það að Fredericks geti sett
stórt strik í áætlanir Johnsons um
að fá nafn sitt skráð á spjöld ólymp-
íusögunnar.
Og Frankie Fredericks langar að
setja strik í reikning Johnsons og
verð ólympíumeistari. Hann hefur
æft af miklum móð síðustu mánuði
undir handleiðslu ólympíumeistar-
ans í 100 metra hlaupi, Linfords
Christie og árangurinn hefur ekki
látið á sér standa. Fredericks hefur
hlaupið eitt hundrað metrana á
tveimur bestu tímum ársins, 9,87
sekúndum í Helsinki fyrir tíu dögum
og á 9,86 sekúndum í Lausanne í
Sviss á miðvikudagskvöldið. Heims-
metið er 9,85 sekúndur og vafa-
laust hefði Fredericks slegið það
met hefði ekki verið mótvindur í
Lausanne.
Tvenn ÓL-gullverðlaun
í augsýn?
Fredericks ákvað fyrir nokkru
að taka einungis þátt í 200 metra
hlaupi á Ólympíuleikunum í sumar
en með hliðsjón af árangri sínum
sem að framan er getið hefur hann
gefið sterklega til kynna að hann
verði einnig með í 100 metra hlaup-
inu - tilkynningu gefur hann ekki
fyrr en á síðustu stundu. Hann veit
að hann getur gert Johnson skrá-
veifu í 200 metra hlaupinu ef hann
lætur þá grein nægja, en spurning-
in er sú hvort orkan sem fer í 100
metra hlaupið komi niður á 200
metrunum. Johnson sagði í vikunni
að keppti Fredericks í báðum grein-
um ætti hann enga möguleika á
að sigra sig í 200 metrunum. Þetta
sagði hann áður en Fredericks sigr-
aði hann í 200 metra hlaupinu á
Bislett-leikunum á föstudagskvöld-
ið. Þar var sett upp einvígi milli
þessara tveggja sterku 200 metra
hlaupara þar sem Fredericks sýndi
fram á að Johnson er ekki ósigr-
andi í greininni sem hann setti
heimsmet í fyrir skömmu. Þar með
fékk Fredericks sálrænt forskot á
heimsmethafann fyrir sálfræði-stríð
leikanna. Johnson, sem hefur verið
ósigrandi í 200 metra hlaupi í tvö
ár, tapaði einvigi skömmu fyrir leik-
ana - hann var ekki ósigrandi eins
og sumir voru farnir að halda.
Skyndibitafæði dugar skammt
En Namibíumaðurinn þakkar
ekki einungis bættum æfingum
undir stjórn Christies árangurinn.
Hann hefur um leið fært mataræði
sitt til betri vegar og telur að það
hafi skilað sér meiru en æfingarn-
ar. „Áður fyrr borðaði ég mikið af
skyndibitafæði sem var misjafnlega
hollt. Þetta gerði ég vegna þess að
ég taldi mig ekki hafa tíma til að
leita eftir hollum mat og stóð einn-
ig í þeirri í þeirri trú að ef ég æfði
vel væri það lykilacriði. Það sem
ofan í magann færi væri aukaat-
riði. Eftir að ég lagaði matseðilinn
hefur árangurinn ekki látið standa
á sér jafnvel þó ég æfí eitthvað
minna og keppi á færri mótum en
áður,“ sagði Fredericks í samtali
við blaðamenn.
Hvort hollustufæðið færir
Frankie Fredericks gull í Atlanta
Reuter
FRANKIE Fredericks fagnar hér sigrlnum á Michael Johnson
á Blslett á föstudaglnn. Mun þessi slgur teljast er á Ólympíu-
leikana verður komlð?
skal ósagt um látið en víst er að
með hliðsjón af góðri frammistöðu
hans síðustu daga munu enn fleiri
en ella fylgjast með úrslitum 200
metra hlaupsins í Atlanta. Úrslitin
eru ekki ráðin fyrirfram í þeirri
grein eins og margir voru farnir
að halda.
'ijlgjBMj
FRJALSIÞROTTIR
Frankie Fredericks spretthlaupari hefur blómstrað upp á síðkastið