Morgunblaðið - 25.07.1996, Side 6
v aftfii 1.1111.,asHlrOAaUTMMH
6 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1996
FRÉTTIR
GIQA.iaKU05
MÖRGUNBLAÐIÐ
Miklatún (Kkmbmtúh)
Götur á yfirborði
Stokkurinn
inn i stokTí-
irm til austui
STIGAHÍÍÐ
Hverfisumferð á yfirborði -
Gegnumumferð í stokk -
Snið við Miklubraut 50
Bætt hljobvist vib Miklubraut:
Jarbgöng eba stokkur
Stækkað
svæði
Tónabær Ekið um stokk til vesturs
Hlióðmúr
STIGAHLÍD
Snið við Miklubraut 5
Hljóðmúr,
hæð 2,5 m
Snið við Miklubraut 80
Hljóðmúr,
Bætt hljóbvist vib Miklubraut:
Hljóbmúr
iiraraR
Snið við Miklubraut 50
r Hljóðmúr,
rnijuumu
hæð 2,8
hæð
mm
Míklatun (Khmbmtún)
Tonabær
Mikla-
torg
i
Borgarskipulagi falin úttekt vegna umferðarhávaða
Áhersla á minni umferð
GUÐRÚN Ágústsdóttir, formaður
skipulagsnefndar, lagði fram á fundi
nefndarinnar í gær, tillögu þess efnis
að Borgarskipulag geri heilstæða út-
tekt á hávaða frá umferð í borginni.
I tillögu nefndarinnar, sem sam-
þykkt var einróma, er áhersla lögð
á að umferðarþörf verði minnkuð og
grein gerð fyrir mögulegum úrbótum
vegna hávaða, svo sem með breyt-
SKIPULAGSNEFND Reykjavíkur
hefur komist að þeirri niðurstöðu að
ekki sé hægt að samþykkja útfærslu
fyrirhugaðra nýbygginga við Kirkju-
sand á þeirri forsendu að ekki hafi
tekist að fullnægja kröfum sem gerð-
ar eru til hljóðvistar í byggingar- og
mengunarvamareglugerðum. Guðrún
Ágústsdóttir, formaður skipulags-
nefndar, segir að eins og málið horfi
nú, verði ekki hægt að byggja þau
háhýsi sem sýnd hafí verið á teikning-
um til þessa. Hins vegar er möguleiki
á lægri byggð að Guðrúnar sögn.
Hljóðstyrkur reiknast mestur við efstu
hæðir húsanna og var í upphaflegum
tillögum arkitekts miðað við þijár
byggingar, 6,7 og 9 hæða.
Skipulagsnefnd kom saman á
fundi í gær og var samþykkt einróma
bókun þar sem útfærsla deiliskipu-
lags er ekki talin fullnægja kröfum
hvað hljóðvist varðar. Gengið er út
frá því að um nýbyggingarsvæði sé
að ræða, að fengnu áliti borgarlög-
manns, sem þýðir að umferðarhávaði
við húsvegg má ekki fara yfir 55
desibel, samkvæmt reglugerðum.
Nefndin tók ekki afstöðu til um-
sagnar Borgarskipulags um athuga-
semdir vegna auglýsingar á tillögum
um breytt aðal- og deiliskipulag á
lóðinni við Kirkjusand og segir Guð-
rún Ágústsdóttir ennfremur að af-
greiðslu tillögu um breytta landnotk-
un hafi verið frestað til þess að halda
möguleikum eiganda lóðarinnar, þ.e.
Ármannsfells, á nýtingu, opnum.
Vanþóknun lýst á
meðhöndlun málsins
Lagðar voru fyrir fund nefndarinn-
ar tillögur arkilektsins, Helga Hjálm-
arssonar, um ráðstafanir til þess að
mæta kröfum um um hljóðstig. Þar
er gert ráð fyrir 5,5 metra háum hljóð-
skermi við Sæbraut og jarðfyllingu
að honum, á lóð húsanna, og 3 metra
háum gegnsæjum skermi á umferðar-
eyju milli brautarhluta Sæbrautar,
sem gerir að verkum að hæsta hljóð-
stig við efstu hæð hússins næst göt-
unni reiknast 54,5 desibel, sem er
undir hávaðamörkum. I bókun nefnd-
arinnar segir hins vegar að ekki sé
réttlætanlegt við nýskipulag að við-
hafa svo miklar ráðstafanir til þess
að tryggja viðunandi hljóðvist.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í
ingu á yfírborði gatna, byggingu
hljóðmana og lækkun hárriarkshraða.
Borgarráð samþykkti 16. júlí að veita
1,5 milljónir aukalega til embættis
borgarverkfræðings til þess að
reikna hávaðastig við götur borgar-
innar. Stefán Hermannsson borgar-
verkfræðingur segir til dæmis að
rætt hafí verið að beina % umferðar
um Miklubraut neðanjarðar, að reisa
skipulagsnefnd lögðu fram bókun á
fundinum þar sem lýst er „vanþókn-
un á meðhöndlun og afgreiðslu máls-
ins af hálfu meirihluta borgarstjórn-
ar“. Gera sjálfstæðismenn athuga-
semd við það að graftrarleyfi hafí
verið gefíð með „vitund og vilja borg-
arstjóra" mánuði áður en frestur til
þess að skila athugasemdum um
auglýstar framkvæmdir rann út. Þá
segir að samkvæmt gögnum sem
lágu fyrir þegar graftrarleyfi var
veitt hafi verið ljóst að reiknað hljóð-
stig á lóð væri langt yfir mörkum í
reglugerðum. Því sé „undarlegt að
sjá borgarstjóra lýsa því yfir fjölmiðl-
um [...] sjö vikum síðar að ekki komi
til greina að samþykkja frávik frá
reglugerðum hvað varðar hljóðstig".
Einnig segir í bókuninni að veiting
hljóðvegg við valda kafla og að
breyta aðkomu að hluta húsa við
götuna. Gerð ganganna er framtíðar-
lausn, og myndi kosta tvo milljarða
að Stefáns sögn, og búist við að hljóð-
veggur myndi kosta 100 milljónir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri segir ekki liggja fyrir hver
kostnaður við úrbætur í borginni
vegna hávaða frá umferð verði. „Það
leyfisins undir slíkum kringumstæð-
um sé fordæmislaus í sögu borgar-
innar og að með útgáfu þess hafi
meirihlutinn bakað lóðareigarida, það
er Ármannsfelli, tjón. „Þar sem leyf-
ið var gefið út með samþykki borgar-
stjóra, mátti framkvæmdaraðilinn
treysta því að meirihluti væri fyrir
skipulagsbreytingum og að málið
fengi skjóta afgreiðslu...“.
Fulltrúar R-listans lögðu einnig
fram bókun þar sem fram kemur að
við útgáfu graftrarleyfís hafi verið
tekið skýrt fram að í því fælist ekk-
ert fyrirheit. _ Einnig hafi fram-
kvæmdastjóri Ármannsfelis undirrit-
að yfirlýsingu þess efnis að fyrirtæk-
ið ætti enga kröfu á hendur Reykja-
víkurborg, þótt því yrði synjað um
byggingarleyfi eða breytingar gerðar
eru ákveðnir þættir sem þurfa að
vera mjög skýrir við slíka áætlun,
til dæmis um það hvar og hvenær
er eðlilegt að borgin taki þátt í end-
urbótum á húsnæði í einkaeign til
þess að útiloka umferðarhávaða.
Þetta er líka spurning um kostnaðar-
skiptingu milli borgar og ríkis þegar
um er að ræða endurbætur við stofn-
brautir," segir borgarstjóri.
á fyrirliggjandi tillögu að deiliskipu-
lagi.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að þrátt fyrir að tafír
hafi orðið á því hjá Borgarskipulagi
að auglýsa landnotkunarbreytingu á
sínum tíma hafi ekki verið hægt að
hefja framkvæmdir á lóðinni áður en
tillaga að deiliskipulagi lá fyrir eða
fékkst samþykkt. Borgarstjóri segir
ennfremur að Ármannsfell hafí ekki
orðið fyrir meiri töfum en vænta
megi þegar fjallað sé um skipulags-
mál. „Auðvitað hafa þeir nokkuð til
síns máls. Landnotkunarbreytingu
hefði átt að auglýsa fyrr, og hvað
það varðar stendur nokkuð upp á
borgaryfirvöld. Vinna við deiliskipu-
lag og meðferð þess hefur hins vegar
gengið eðlilega fyrir sig,“ segir hún.
Ekki fordæmi fyrir túlkun
mismunandi ákvæða
Ingibjörg Sólrún segir ennfremur,
að þegar erindi Ármannsfells var
upphaflega til umfjöllunar í skipulags-
nefnd og borgarráði hafí menn ekki
velt því fyrir sér hvort um endurbygg-
ingarsvæði eða nýbyggingarsvæði
væri að ræða. Borgarstjóri segir að
skipulag Kirkjutúnssvæðisins, sem á
ýmsan hátt sé sambærilegt, hafi farið
fram árið 1992, án þess að slíkar
vangaveltur væru uppi. „Skipulags-
nefnd fær á sínum tíma bréf í hend-
urnar frá arkitekt húsanna og Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins,
þar sem fram kemur að hljóðvistar-
mál séu í lagi og ég held að það hafi
verið tekið gott og gilt án umhugsun-
ar,“ segir Ingibjörg Sólrún.
Hún segir jafnframt að stuðst
hafi verið við ákvæði í byggingar-
reglugerð frá 1992 um hávaða af
umferð þegar Kirkjutúnssvæðið var
skipulagt. I henni er frávik þar sem
gert er ráð fyrir 70 dB hámarkshljóð-
stig fyrir utan glugga þegar byggð
sem fyrir er er endurnýjuð. Ingibjörg
Sólrún segir ennfremur að mengun-
arvarnareglugerð sem sett var árið
1994 hafí haft breytingar í för með
sér. „Þar eru undanþáguákvæði og
frávik sem áður voru í byggingar-
reglugerð dottin út. Skipulagsnefnd
hefur einfaldlega ekki staðið frammi
fyrir því að þurfa að túlka þetta
áður,“ segir borgarstjóri að lokum.
Morgunblaðið/Árni Helgason
ARNI Ásgeirsson heldur á
hvíta lundanum sem faðir
hans veiddi í Elliðaey.
Sjald-
séður
hvítur
lundi
Stykkishólmi. Morgunblaðið.
SAGT er að sjaldséður sé hvít-
ur hrafn og eins er hægt að
segja að sjaldséður sé hvítur
lundi. En þegar Ásgeir Árna-
son í Stykkishólmi var að háfa
lunda úti í Elliðaey á Breiða-
firði kom alhvítur lundi í háf-
inn. Þetta er albínói og ungur
fugl.
Asgeir, sem hefur stundað
lundaveiðar frá unga aldri,
hefur aldrei áður séð svona
lunda en fósturfaðir hans,
Eggert Bjarnason, náði fyrir
mörgum árum hvítri kofu.
Svona eintök eru því sjaldgæf
og lundinn hvíti verður ekki
hamflettur og étinn heldur fær
virðulegri meðferð, verður
stoppaður upp og settur á góð-
an stað í stofunni heima hjá
Ásgeiri til minningar um vel-
heppnaða veiðiferð í Elliðaey
sumarið 1996.
Útfærsla háhýsa við Kirkjusand uppfyllti ekki kröfur til hljóðvistar
Lægri byggð
sögð möguleg
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SKIPULAGSNEFND var einróma um niðurstöðuna og hér virða
Sigurður Harðarson, varamaður í skipulagsnefnd, Guðrún Ágústs-
dóttir, formaður skipulagsnefndar, og Guðrún Jónsdóttir fyrir sér
teikningar af húsunum.