Morgunblaðið - 25.07.1996, Side 10

Morgunblaðið - 25.07.1996, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Krislján Jóhannsson á aukasýningum í Veróna Kallað í Kristj án vegna óánægju með nýja söngvara Slj órnarf or maður Sjúkrahúss Patreksfjarðar Gekk inn í Laun fráfarandi fram- kvæmdastjóra GESTIR óperunnar í hringleika- húsinu í Veróna á Ítalíu hafa ver- ið óánægðir með þá nýju söngvara sem nýráðnir stjórnendur hússins hafa verið með á boðstólunum upp á síðkastið og krafist þess að fá aftur þá gömlu góðu, en á meðal þeirra er Kristján Jóhannsson sem hefur nú verið kallaður aftur til starfa í húsinu sökum þessa. Kristján sagði í samtali við Morgunblaðið að mikill styrr hafi staðið um stefnubreytingu nýs list- ræns ráðunautar, Angelu Spozzi, og hljómsveitarstjóra, Daniels Oren, við húsið að undanfömu. „Hér rýkur úr hvers manns koppi, ef svo má segja. Nýju stjómend- urna langaði til að stokka upp í söngvaraliði hússins og gefa nýju fólki tækifæri til að spreyta sig. Sjálfur átti ég til dæmis ekki að syngja í sumar frekar en um það bil tuttugu aðrir þekktir söngvar- ar sem hafa verið við húsið und- anfarin tíu til fimmtán ár við góð- an orðstír. Eg var út af fyrir sig mjög sátt- ur við þessa breytingu því ég ætl- aði að eyða kröftum mínum niður í Toscana á árlegri Puccini-hátíð auk þess sem ég á að syngja Aidu átta sinnum í hringleikahúsinu í Verona á næsta sumri. En áheyr- endurnir vora ekki jafnánægðir með þessar breytingar á söngvar- aliðinu og pullunum, sem þeir leigja undir rassinn á sér til að þurfa ekki að sitja á beram marm- aranum, hefur verið hent upp á sviðið og ofan í hljómsveitargrylj- una á sýningum; áheyrendur hafa líka látið vanþóknun sína I Ijós með bauli og blístri. Stjórnendur hússins hafa því neyðst til að kalla til sína gömlu söngvara aftur. Ég þarf til dæmis að syngja sjö auka- sýningar sökum þessa í júlí og byijun ágúst.“ Aðstæður erfiðar Aðspurður um ástæðuna fyrir því að svo mikil óánægja hefði verið með hina nýju söngvara sagði Kristján að það væri geysi- lega erfitt að syngja í hringleika- húsinu. „Það hefur verið vinda- samt og rakt hér í sumar og það hefur gert söngvurunum erfitt fyrir. Maður þarf að búa yfir sér- stakri öndunartækni til að geta sungið við þessar aðstæður. Manni verður líka kalt, enda er maður hálfber i sumum þessara sýninga, eins og Aidu. Söngvarar verða því bæði að hafa mjög hrausta rödd frá náttúrunnar hendi og vera vel á sig komnir líkamlega til að geta sungið af einhverjum krafti í þessu húsi. Það verður að hafa í huga að húsið tekur tuttugu þúsund áheyrendur og hljómburðurinn er ekkert sérstaklega góður. Það er engin spurning að þetta hafa allt verið ágætir söngvarar sem voru að syngja hér í sumar en það þarf að sérvelja söngvara til að syngja í þessu tiltekna húsi eins og gert hefur verið í gegnum tíðina." Með glöðu geði Kristján mun syngja i Carmen, Aidu og Turandot eftir Puccini og leysir af hólmi fjóra tenóra. „Eg geri þetta auðvitað með glöðu geði því mér þykir vænt um þetta leikhús, það er hérna við bæjar- dyrnar hjá mér og auk þess hef ég framtíðarsamning við það.“ Kristján sagði að þessar auka- sýningar muni koma í veg fyrir að hann geti verið viðstaddur heiðurssamkomu til handa Ólafi Ragnari Grímssyni 1. ágúst. „Þótt ég glaður vildi koma þá kemst ég ekki til að hylla nýjan forseta en ég bið að heilsa honum." STEINDÓR Ögmundsson, stjórnar- formaður Sjúkrahúss Patreksfjarð- ar, vill koma á framfæri athuga- semdum við frétt Morgunblaðsins frá 23. júlí um að Ríkisendurskoðun hafi gagmýnt störf hans sem fram- kvæmdastjóri sjúkrahússins. Því starfí gegndi Steindór tímabundið í desember og fyrrihluta janúar síð- astliðins. „Það er sagt að Ríkisendurskoð- un hafi samið sérstaka skýrslu um störf mín,“ sagði Steindór. Hann sagðist hafa heyrt ávæning af því að slík skýrsla væri til en aldrei séð hana, þótt hann hafí tvisvar kallað eftir henni. Eftir því sem hann kom- ist næst sé hér um að ræða bréf til Ríkisendurskoðunar frá endur- skoðanda sjúkrahússins. Bréfið hef- ur hann ekki heldur séð. Sljórnin gerði engar athugasemdir Steindór segir það hafa verið bókað að stjórn sjúkrahússins fór fram á að hann tæki tímabundið við framkvæmdastjórastarfinu og prókúru fyrir sjúkrahúsið. Hann segir að ekkert hafi verið bókað sérstaklega um launin, en sér hafi þótt liggja í hlutarins eðli að hann gengi inn í sömu laun og fráfar- FINNSK lögregluyfirvöld hafa far- ið fram á að maður fæddur í Si- erra Leone 1959, sem hefur verið búsettur hér á landi frá því í árs- byijun 1993, verði framseldur til Finnlands. Þar hefur hann hlotið dóm fyrir nauðgun og verið dæmd- ur til fangelsisvistar. Vetjandi mannsins hér á landi, Tómas Jóns- son héraðsdómslögmaður og skip- aður veijandi mannsins, hefur fengið frest fram til 8. ágúst til þess að afla gagna. Maðurinn kom til Finnlands fyrir u.þ.b. átta árum. í nóvember 1991 var hann kærður fyrir nauðgun og dæmdur í skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu skaðabóta í undir- rétti í Helsinki í mars 1992. Þá hafði hann landvistarleyfi í Finn- landi sem námsmaður. Hann sótti um framlengingu á landvistarleyf- inu eftir að undirréttardómurinn féll og var honum tvívegis neitað um það. „Neyddur úr landi“ Tómas segir að skjólstæðingur sinn hafi tjáð sér að finnska lögregl- an hafi neytt hann til þess að fara úr landi. „Reyndar hefur finnska lögreglan neitað því að honum hafí verið vísað formlega úr landi. Saga hans er sú að lögreglan hafí komið í skólann þar sem hann var við nám, tekið af honum vegabréfið og sagt honum að hann fengi það ekki aftur nema hann hitti þá á flugvell- inum í Helsinki með flugmiða úr landi," sagði Tómas. Þá hafði maðurinn áfrýjað dómn- um, sem Tómas segir að sé byggð- ur á óbeinum sönnunargögnum og vitnisburði kærandans. Hann fór síðan úr landi 1992 til síns heima- lands og kom til íslands í janúar 1993. Reyndar ætlaði hann þá að hafa viðkomu í Finnlandi en fékk þá ekki að fara inn í landið. í mars 1993 féll dómur Hæsta- réttar í Helsinki þar sem dómur undirréttar er þyngdur og var mað- andi framkvæmdastjóri hafði, eða 243.900 krónur á mánuði. Þau laun hafí hann fengið fyrir desember og um 90 þúsund krónur fyrir janúar, alls um 340 þúsund krónur. Auk þess hélt hann venjulegum launum fyrir stjórnarformennsku. Steindór segir að stjórn sjúkrahússins hafi ekki gert neinar athugasemdir við þessar launagreiðslur. Hins vegar hafí endurskoðandinn, sem er verk- taki hjá Ríkisendurskoðun, spurt sig út í launin. Tölvukaup ákveðin af stjórn í fréttinni segir að Ríkisendur- skoðun hafi fundið að ákvörðun Steindórs um tölvukaup fyrir liðlega 400 þúsund krónur. „Ég tók enga ákvörðun um þessi tölvukaup, en tók á móti tölvunum þegar þær komu,“ sagði Steindór. „Á stjórnarfundi í nóvember var framkvæmdastjóra falið að athuga með tölvukaup. Næst var þetta rætt á fundi 28. desember og þá skýrði yfirlæknirinn frá stöðu mála varðandi tölvukaupin. Einnig var þetta rætt á fundi í jan- úar og ég staðfesti þá að tölvumar kæmu. Læknarnir voru búnir að þrýsta á tölvukaup í heilt ár, svo þetta kom engum á óvart og ekki nokkur feluleikur í kringum þetta.“ fangelsi í eitt ár og tíu mánuði. Þar með var hann orðinn eftirlýstur í Finnlandi. Hann hefur búið á ís- landi síðan í janúar 1993 og starfað hjá Norðurtanganum á ísafírði. Hann á íslenska unnustu. Kærður fyrir meinta nauðgun á ísafirði Maðurinn var síðan kærður fyrir nauðgun sem átti að hafa sér stað á Isafirði og voru sæðisleifar úr meintu fórnarlambi nauðgunarinn- ar send utan til DNA-rannsóknar. Niðurstöður hennar sýndu sæðis- leifar úr tveimur mönnum en ekki úr Sierra Leone búanum. Eftir- grennslan íslensku lögreglunnar í tengslum við þetta mál leiddi til þess að finnska lögreglan komst á snoðir um að maðurinn væri á ís- landi og fer hún nú fram á framsal hans. Tómas segir að maðurinn eigi rétt á því að héraðsdómur á íslandi úrskurði um það hvort framsal- skrafa Finnanna uppfylli lagaskil- yrði. Málið var tekið fyrir í Héraðs- dómi Reykjavíkur fyrir u.þ.b. tveim- ur vikum. Veittur var frestur til 8. ágúst til gagnaöflunar. „Ég tel að hægt sé að byggja varnir á því að dómur Hæstaréttar I Finnlandi miðar við aðra sönnun- arreglu en gildir hér á Islandi. Á íslandi eru til dómar þar sem meint- ir nauðgarar eru sýknaðir vegna sönnunarskorts jafnvel þó að fórn- arlambið sé trúverðugt og óbein sönnunargögn bendi til þess að nauðgun hafí verið framin. Einnig viljum við sanna það að manninum hafi verið vísað úr landi með óform- legum hætti af lögregluyfirvöldum. Mér finnst það vera brot á mann- réttindum þegar finnska ríkið vísar manninum úr landi og veitir honum ekki landvistarleyfi til þess að fylgja eftir áfrýjuðu máli sínu en krefst síðan framsals hans eftir að dómur er fallinn," sagði Tómas. Fagmenn segja aö myndgæöi Siemens tækjanna séu mikil. Verulega mikil. Smith & Norland býöur mikiö úrval sjónvarps- og myndbands- tækja frá Siemens. Fagleg ráðgjöf og góð þjónusta. Verulega góö. Umboðsmenn okkar á landsbyggðinni eru: • Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs • Borgarnes: Glitnir • Ðorgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála • Snæfellsbær: Blómsturvellir • Grundarfjöröur: Guöni Hallgrímsson • Stykkishólmur: Skipavík • Búöardalur: Ásubúö • ísafjöröur: Póllinn • Hvammstangi: Skjanni • Sauðárkrókur: Rafsjá • Síglufjörður: Torgiö • Akureyri: Ljósgjafinn • Húsavík: Öryggi • Vopnafjöröur: Rafmagnsv. Árna M. • Neskaupstaður: Rafalda • Reyöarfjöröur: Rafvélaverkst. Árna E. • Egilsstaðir: Sveinn Guömundsson • Breiödalsvík: Stefán N. Stefánsson • Höfn í Hornafirðl: Króm og hvítt • Vík í Mýrdal: Klakkur • Vestmannaeyjar: Tróverk • Hvolsvöilur: Kaupfélag Rangæinga • Hella: Gilsá • Selfoss: Árvirkinn • Grlndavík: Rafborg • Garöur: Raftækjav. Sig. Ingvarss. • Keflavík: Ljósboginn • Hafnarfjöröur; Rafbúö Skúla, Álfaskeiöi. SMITH & NORLAND Nóatúni 4 • Sfmi 5113000 Framsals manns frá Sierra Leone krafist urinn þá dæmdur í óskilorðsbundið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.