Morgunblaðið - 25.07.1996, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Krislján Jóhannsson á aukasýningum í Veróna
Kallað í Kristj án vegna
óánægju með nýja söngvara
Slj órnarf or maður Sjúkrahúss
Patreksfjarðar
Gekk inn í Laun
fráfarandi fram-
kvæmdastjóra
GESTIR óperunnar í hringleika-
húsinu í Veróna á Ítalíu hafa ver-
ið óánægðir með þá nýju söngvara
sem nýráðnir stjórnendur hússins
hafa verið með á boðstólunum upp
á síðkastið og krafist þess að fá
aftur þá gömlu góðu, en á meðal
þeirra er Kristján Jóhannsson sem
hefur nú verið kallaður aftur til
starfa í húsinu sökum þessa.
Kristján sagði í samtali við
Morgunblaðið að mikill styrr hafi
staðið um stefnubreytingu nýs list-
ræns ráðunautar, Angelu Spozzi,
og hljómsveitarstjóra, Daniels
Oren, við húsið að undanfömu.
„Hér rýkur úr hvers manns koppi,
ef svo má segja. Nýju stjómend-
urna langaði til að stokka upp í
söngvaraliði hússins og gefa nýju
fólki tækifæri til að spreyta sig.
Sjálfur átti ég til dæmis ekki að
syngja í sumar frekar en um það
bil tuttugu aðrir þekktir söngvar-
ar sem hafa verið við húsið und-
anfarin tíu til fimmtán ár við góð-
an orðstír.
Eg var út af fyrir sig mjög sátt-
ur við þessa breytingu því ég ætl-
aði að eyða kröftum mínum niður
í Toscana á árlegri Puccini-hátíð
auk þess sem ég á að syngja Aidu
átta sinnum í hringleikahúsinu í
Verona á næsta sumri. En áheyr-
endurnir vora ekki jafnánægðir
með þessar breytingar á söngvar-
aliðinu og pullunum, sem þeir
leigja undir rassinn á sér til að
þurfa ekki að sitja á beram marm-
aranum, hefur verið hent upp á
sviðið og ofan í hljómsveitargrylj-
una á sýningum; áheyrendur hafa
líka látið vanþóknun sína I Ijós
með bauli og blístri. Stjórnendur
hússins hafa því neyðst til að kalla
til sína gömlu söngvara aftur. Ég
þarf til dæmis að syngja sjö auka-
sýningar sökum þessa í júlí og
byijun ágúst.“
Aðstæður erfiðar
Aðspurður um ástæðuna fyrir
því að svo mikil óánægja hefði
verið með hina nýju söngvara
sagði Kristján að það væri geysi-
lega erfitt að syngja í hringleika-
húsinu. „Það hefur verið vinda-
samt og rakt hér í sumar og það
hefur gert söngvurunum erfitt
fyrir. Maður þarf að búa yfir sér-
stakri öndunartækni til að geta
sungið við þessar aðstæður.
Manni verður líka kalt, enda er
maður hálfber i sumum þessara
sýninga, eins og Aidu. Söngvarar
verða því bæði að hafa mjög
hrausta rödd frá náttúrunnar
hendi og vera vel á sig komnir
líkamlega til að geta sungið af
einhverjum krafti í þessu húsi.
Það verður að hafa í huga að
húsið tekur tuttugu þúsund
áheyrendur og hljómburðurinn
er ekkert sérstaklega góður. Það
er engin spurning að þetta hafa
allt verið ágætir söngvarar sem
voru að syngja hér í sumar en
það þarf að sérvelja söngvara til
að syngja í þessu tiltekna húsi
eins og gert hefur verið í gegnum
tíðina."
Með glöðu geði
Kristján mun syngja i Carmen,
Aidu og Turandot eftir Puccini
og leysir af hólmi fjóra tenóra.
„Eg geri þetta auðvitað með glöðu
geði því mér þykir vænt um þetta
leikhús, það er hérna við bæjar-
dyrnar hjá mér og auk þess hef
ég framtíðarsamning við það.“
Kristján sagði að þessar auka-
sýningar muni koma í veg fyrir
að hann geti verið viðstaddur
heiðurssamkomu til handa Ólafi
Ragnari Grímssyni 1. ágúst. „Þótt
ég glaður vildi koma þá kemst
ég ekki til að hylla nýjan forseta
en ég bið að heilsa honum."
STEINDÓR Ögmundsson, stjórnar-
formaður Sjúkrahúss Patreksfjarð-
ar, vill koma á framfæri athuga-
semdum við frétt Morgunblaðsins
frá 23. júlí um að Ríkisendurskoðun
hafi gagmýnt störf hans sem fram-
kvæmdastjóri sjúkrahússins. Því
starfí gegndi Steindór tímabundið
í desember og fyrrihluta janúar síð-
astliðins.
„Það er sagt að Ríkisendurskoð-
un hafi samið sérstaka skýrslu um
störf mín,“ sagði Steindór. Hann
sagðist hafa heyrt ávæning af því
að slík skýrsla væri til en aldrei séð
hana, þótt hann hafí tvisvar kallað
eftir henni. Eftir því sem hann kom-
ist næst sé hér um að ræða bréf
til Ríkisendurskoðunar frá endur-
skoðanda sjúkrahússins. Bréfið hef-
ur hann ekki heldur séð.
Sljórnin gerði engar
athugasemdir
Steindór segir það hafa verið
bókað að stjórn sjúkrahússins fór
fram á að hann tæki tímabundið
við framkvæmdastjórastarfinu og
prókúru fyrir sjúkrahúsið. Hann
segir að ekkert hafi verið bókað
sérstaklega um launin, en sér hafi
þótt liggja í hlutarins eðli að hann
gengi inn í sömu laun og fráfar-
FINNSK lögregluyfirvöld hafa far-
ið fram á að maður fæddur í Si-
erra Leone 1959, sem hefur verið
búsettur hér á landi frá því í árs-
byijun 1993, verði framseldur til
Finnlands. Þar hefur hann hlotið
dóm fyrir nauðgun og verið dæmd-
ur til fangelsisvistar. Vetjandi
mannsins hér á landi, Tómas Jóns-
son héraðsdómslögmaður og skip-
aður veijandi mannsins, hefur
fengið frest fram til 8. ágúst til
þess að afla gagna.
Maðurinn kom til Finnlands fyrir
u.þ.b. átta árum. í nóvember 1991
var hann kærður fyrir nauðgun og
dæmdur í skilorðsbundið fangelsi
og til greiðslu skaðabóta í undir-
rétti í Helsinki í mars 1992. Þá
hafði hann landvistarleyfi í Finn-
landi sem námsmaður. Hann sótti
um framlengingu á landvistarleyf-
inu eftir að undirréttardómurinn
féll og var honum tvívegis neitað
um það.
„Neyddur úr landi“
Tómas segir að skjólstæðingur
sinn hafi tjáð sér að finnska lögregl-
an hafi neytt hann til þess að fara
úr landi. „Reyndar hefur finnska
lögreglan neitað því að honum hafí
verið vísað formlega úr landi. Saga
hans er sú að lögreglan hafí komið
í skólann þar sem hann var við
nám, tekið af honum vegabréfið og
sagt honum að hann fengi það ekki
aftur nema hann hitti þá á flugvell-
inum í Helsinki með flugmiða úr
landi," sagði Tómas.
Þá hafði maðurinn áfrýjað dómn-
um, sem Tómas segir að sé byggð-
ur á óbeinum sönnunargögnum og
vitnisburði kærandans. Hann fór
síðan úr landi 1992 til síns heima-
lands og kom til íslands í janúar
1993. Reyndar ætlaði hann þá að
hafa viðkomu í Finnlandi en fékk
þá ekki að fara inn í landið.
í mars 1993 féll dómur Hæsta-
réttar í Helsinki þar sem dómur
undirréttar er þyngdur og var mað-
andi framkvæmdastjóri hafði, eða
243.900 krónur á mánuði. Þau laun
hafí hann fengið fyrir desember og
um 90 þúsund krónur fyrir janúar,
alls um 340 þúsund krónur. Auk
þess hélt hann venjulegum launum
fyrir stjórnarformennsku. Steindór
segir að stjórn sjúkrahússins hafi
ekki gert neinar athugasemdir við
þessar launagreiðslur. Hins vegar
hafí endurskoðandinn, sem er verk-
taki hjá Ríkisendurskoðun, spurt
sig út í launin.
Tölvukaup ákveðin af stjórn
í fréttinni segir að Ríkisendur-
skoðun hafi fundið að ákvörðun
Steindórs um tölvukaup fyrir liðlega
400 þúsund krónur. „Ég tók enga
ákvörðun um þessi tölvukaup, en tók
á móti tölvunum þegar þær komu,“
sagði Steindór. „Á stjórnarfundi í
nóvember var framkvæmdastjóra
falið að athuga með tölvukaup.
Næst var þetta rætt á fundi 28.
desember og þá skýrði yfirlæknirinn
frá stöðu mála varðandi tölvukaupin.
Einnig var þetta rætt á fundi í jan-
úar og ég staðfesti þá að tölvumar
kæmu. Læknarnir voru búnir að
þrýsta á tölvukaup í heilt ár, svo
þetta kom engum á óvart og ekki
nokkur feluleikur í kringum þetta.“
fangelsi í eitt ár og tíu mánuði. Þar
með var hann orðinn eftirlýstur í
Finnlandi. Hann hefur búið á ís-
landi síðan í janúar 1993 og starfað
hjá Norðurtanganum á ísafírði.
Hann á íslenska unnustu.
Kærður fyrir meinta
nauðgun á ísafirði
Maðurinn var síðan kærður fyrir
nauðgun sem átti að hafa sér stað
á Isafirði og voru sæðisleifar úr
meintu fórnarlambi nauðgunarinn-
ar send utan til DNA-rannsóknar.
Niðurstöður hennar sýndu sæðis-
leifar úr tveimur mönnum en ekki
úr Sierra Leone búanum. Eftir-
grennslan íslensku lögreglunnar í
tengslum við þetta mál leiddi til
þess að finnska lögreglan komst á
snoðir um að maðurinn væri á ís-
landi og fer hún nú fram á framsal
hans.
Tómas segir að maðurinn eigi
rétt á því að héraðsdómur á íslandi
úrskurði um það hvort framsal-
skrafa Finnanna uppfylli lagaskil-
yrði. Málið var tekið fyrir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur fyrir u.þ.b. tveim-
ur vikum. Veittur var frestur til 8.
ágúst til gagnaöflunar.
„Ég tel að hægt sé að byggja
varnir á því að dómur Hæstaréttar
I Finnlandi miðar við aðra sönnun-
arreglu en gildir hér á Islandi. Á
íslandi eru til dómar þar sem meint-
ir nauðgarar eru sýknaðir vegna
sönnunarskorts jafnvel þó að fórn-
arlambið sé trúverðugt og óbein
sönnunargögn bendi til þess að
nauðgun hafí verið framin. Einnig
viljum við sanna það að manninum
hafi verið vísað úr landi með óform-
legum hætti af lögregluyfirvöldum.
Mér finnst það vera brot á mann-
réttindum þegar finnska ríkið vísar
manninum úr landi og veitir honum
ekki landvistarleyfi til þess að fylgja
eftir áfrýjuðu máli sínu en krefst
síðan framsals hans eftir að dómur
er fallinn," sagði Tómas.
Fagmenn segja aö myndgæöi
Siemens tækjanna séu mikil.
Verulega mikil.
Smith & Norland býöur mikiö
úrval sjónvarps- og myndbands-
tækja frá Siemens.
Fagleg ráðgjöf og góð þjónusta.
Verulega góö.
Umboðsmenn okkar á landsbyggðinni eru:
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs • Borgarnes: Glitnir • Ðorgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála
• Snæfellsbær: Blómsturvellir • Grundarfjöröur: Guöni Hallgrímsson
• Stykkishólmur: Skipavík • Búöardalur: Ásubúö • ísafjöröur: Póllinn
• Hvammstangi: Skjanni • Sauðárkrókur: Rafsjá • Síglufjörður: Torgiö
• Akureyri: Ljósgjafinn • Húsavík: Öryggi • Vopnafjöröur: Rafmagnsv. Árna M.
• Neskaupstaður: Rafalda • Reyöarfjöröur: Rafvélaverkst. Árna E.
• Egilsstaðir: Sveinn Guömundsson • Breiödalsvík: Stefán N. Stefánsson
• Höfn í Hornafirðl: Króm og hvítt • Vík í Mýrdal: Klakkur • Vestmannaeyjar: Tróverk
• Hvolsvöilur: Kaupfélag Rangæinga • Hella: Gilsá • Selfoss: Árvirkinn
• Grlndavík: Rafborg • Garöur: Raftækjav. Sig. Ingvarss. • Keflavík: Ljósboginn
• Hafnarfjöröur; Rafbúö Skúla, Álfaskeiöi.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sfmi 5113000
Framsals manns frá
Sierra Leone krafist
urinn þá dæmdur í óskilorðsbundið