Morgunblaðið - 25.07.1996, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 25.07.1996, Qupperneq 6
v aftfii 1.1111.,asHlrOAaUTMMH 6 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1996 FRÉTTIR GIQA.iaKU05 MÖRGUNBLAÐIÐ Miklatún (Kkmbmtúh) Götur á yfirborði Stokkurinn inn i stokTí- irm til austui STIGAHÍÍÐ Hverfisumferð á yfirborði - Gegnumumferð í stokk - Snið við Miklubraut 50 Bætt hljobvist vib Miklubraut: Jarbgöng eba stokkur Stækkað svæði Tónabær Ekið um stokk til vesturs Hlióðmúr STIGAHLÍD Snið við Miklubraut 5 Hljóðmúr, hæð 2,5 m Snið við Miklubraut 80 Hljóðmúr, Bætt hljóbvist vib Miklubraut: Hljóbmúr iiraraR Snið við Miklubraut 50 r Hljóðmúr, rnijuumu hæð 2,8 hæð mm Míklatun (Khmbmtún) Tonabær Mikla- torg i Borgarskipulagi falin úttekt vegna umferðarhávaða Áhersla á minni umferð GUÐRÚN Ágústsdóttir, formaður skipulagsnefndar, lagði fram á fundi nefndarinnar í gær, tillögu þess efnis að Borgarskipulag geri heilstæða út- tekt á hávaða frá umferð í borginni. I tillögu nefndarinnar, sem sam- þykkt var einróma, er áhersla lögð á að umferðarþörf verði minnkuð og grein gerð fyrir mögulegum úrbótum vegna hávaða, svo sem með breyt- SKIPULAGSNEFND Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé hægt að samþykkja útfærslu fyrirhugaðra nýbygginga við Kirkju- sand á þeirri forsendu að ekki hafi tekist að fullnægja kröfum sem gerð- ar eru til hljóðvistar í byggingar- og mengunarvamareglugerðum. Guðrún Ágústsdóttir, formaður skipulags- nefndar, segir að eins og málið horfi nú, verði ekki hægt að byggja þau háhýsi sem sýnd hafí verið á teikning- um til þessa. Hins vegar er möguleiki á lægri byggð að Guðrúnar sögn. Hljóðstyrkur reiknast mestur við efstu hæðir húsanna og var í upphaflegum tillögum arkitekts miðað við þijár byggingar, 6,7 og 9 hæða. Skipulagsnefnd kom saman á fundi í gær og var samþykkt einróma bókun þar sem útfærsla deiliskipu- lags er ekki talin fullnægja kröfum hvað hljóðvist varðar. Gengið er út frá því að um nýbyggingarsvæði sé að ræða, að fengnu áliti borgarlög- manns, sem þýðir að umferðarhávaði við húsvegg má ekki fara yfir 55 desibel, samkvæmt reglugerðum. Nefndin tók ekki afstöðu til um- sagnar Borgarskipulags um athuga- semdir vegna auglýsingar á tillögum um breytt aðal- og deiliskipulag á lóðinni við Kirkjusand og segir Guð- rún Ágústsdóttir ennfremur að af- greiðslu tillögu um breytta landnotk- un hafi verið frestað til þess að halda möguleikum eiganda lóðarinnar, þ.e. Ármannsfells, á nýtingu, opnum. Vanþóknun lýst á meðhöndlun málsins Lagðar voru fyrir fund nefndarinn- ar tillögur arkilektsins, Helga Hjálm- arssonar, um ráðstafanir til þess að mæta kröfum um um hljóðstig. Þar er gert ráð fyrir 5,5 metra háum hljóð- skermi við Sæbraut og jarðfyllingu að honum, á lóð húsanna, og 3 metra háum gegnsæjum skermi á umferðar- eyju milli brautarhluta Sæbrautar, sem gerir að verkum að hæsta hljóð- stig við efstu hæð hússins næst göt- unni reiknast 54,5 desibel, sem er undir hávaðamörkum. I bókun nefnd- arinnar segir hins vegar að ekki sé réttlætanlegt við nýskipulag að við- hafa svo miklar ráðstafanir til þess að tryggja viðunandi hljóðvist. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í ingu á yfírborði gatna, byggingu hljóðmana og lækkun hárriarkshraða. Borgarráð samþykkti 16. júlí að veita 1,5 milljónir aukalega til embættis borgarverkfræðings til þess að reikna hávaðastig við götur borgar- innar. Stefán Hermannsson borgar- verkfræðingur segir til dæmis að rætt hafí verið að beina % umferðar um Miklubraut neðanjarðar, að reisa skipulagsnefnd lögðu fram bókun á fundinum þar sem lýst er „vanþókn- un á meðhöndlun og afgreiðslu máls- ins af hálfu meirihluta borgarstjórn- ar“. Gera sjálfstæðismenn athuga- semd við það að graftrarleyfi hafí verið gefíð með „vitund og vilja borg- arstjóra" mánuði áður en frestur til þess að skila athugasemdum um auglýstar framkvæmdir rann út. Þá segir að samkvæmt gögnum sem lágu fyrir þegar graftrarleyfi var veitt hafi verið ljóst að reiknað hljóð- stig á lóð væri langt yfir mörkum í reglugerðum. Því sé „undarlegt að sjá borgarstjóra lýsa því yfir fjölmiðl- um [...] sjö vikum síðar að ekki komi til greina að samþykkja frávik frá reglugerðum hvað varðar hljóðstig". Einnig segir í bókuninni að veiting hljóðvegg við valda kafla og að breyta aðkomu að hluta húsa við götuna. Gerð ganganna er framtíðar- lausn, og myndi kosta tvo milljarða að Stefáns sögn, og búist við að hljóð- veggur myndi kosta 100 milljónir. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri segir ekki liggja fyrir hver kostnaður við úrbætur í borginni vegna hávaða frá umferð verði. „Það leyfisins undir slíkum kringumstæð- um sé fordæmislaus í sögu borgar- innar og að með útgáfu þess hafi meirihlutinn bakað lóðareigarida, það er Ármannsfelli, tjón. „Þar sem leyf- ið var gefið út með samþykki borgar- stjóra, mátti framkvæmdaraðilinn treysta því að meirihluti væri fyrir skipulagsbreytingum og að málið fengi skjóta afgreiðslu...“. Fulltrúar R-listans lögðu einnig fram bókun þar sem fram kemur að við útgáfu graftrarleyfís hafi verið tekið skýrt fram að í því fælist ekk- ert fyrirheit. _ Einnig hafi fram- kvæmdastjóri Ármannsfelis undirrit- að yfirlýsingu þess efnis að fyrirtæk- ið ætti enga kröfu á hendur Reykja- víkurborg, þótt því yrði synjað um byggingarleyfi eða breytingar gerðar eru ákveðnir þættir sem þurfa að vera mjög skýrir við slíka áætlun, til dæmis um það hvar og hvenær er eðlilegt að borgin taki þátt í end- urbótum á húsnæði í einkaeign til þess að útiloka umferðarhávaða. Þetta er líka spurning um kostnaðar- skiptingu milli borgar og ríkis þegar um er að ræða endurbætur við stofn- brautir," segir borgarstjóri. á fyrirliggjandi tillögu að deiliskipu- lagi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að þrátt fyrir að tafír hafi orðið á því hjá Borgarskipulagi að auglýsa landnotkunarbreytingu á sínum tíma hafi ekki verið hægt að hefja framkvæmdir á lóðinni áður en tillaga að deiliskipulagi lá fyrir eða fékkst samþykkt. Borgarstjóri segir ennfremur að Ármannsfell hafí ekki orðið fyrir meiri töfum en vænta megi þegar fjallað sé um skipulags- mál. „Auðvitað hafa þeir nokkuð til síns máls. Landnotkunarbreytingu hefði átt að auglýsa fyrr, og hvað það varðar stendur nokkuð upp á borgaryfirvöld. Vinna við deiliskipu- lag og meðferð þess hefur hins vegar gengið eðlilega fyrir sig,“ segir hún. Ekki fordæmi fyrir túlkun mismunandi ákvæða Ingibjörg Sólrún segir ennfremur, að þegar erindi Ármannsfells var upphaflega til umfjöllunar í skipulags- nefnd og borgarráði hafí menn ekki velt því fyrir sér hvort um endurbygg- ingarsvæði eða nýbyggingarsvæði væri að ræða. Borgarstjóri segir að skipulag Kirkjutúnssvæðisins, sem á ýmsan hátt sé sambærilegt, hafi farið fram árið 1992, án þess að slíkar vangaveltur væru uppi. „Skipulags- nefnd fær á sínum tíma bréf í hend- urnar frá arkitekt húsanna og Rann- sóknastofnun byggingariðnaðarins, þar sem fram kemur að hljóðvistar- mál séu í lagi og ég held að það hafi verið tekið gott og gilt án umhugsun- ar,“ segir Ingibjörg Sólrún. Hún segir jafnframt að stuðst hafi verið við ákvæði í byggingar- reglugerð frá 1992 um hávaða af umferð þegar Kirkjutúnssvæðið var skipulagt. I henni er frávik þar sem gert er ráð fyrir 70 dB hámarkshljóð- stig fyrir utan glugga þegar byggð sem fyrir er er endurnýjuð. Ingibjörg Sólrún segir ennfremur að mengun- arvarnareglugerð sem sett var árið 1994 hafí haft breytingar í för með sér. „Þar eru undanþáguákvæði og frávik sem áður voru í byggingar- reglugerð dottin út. Skipulagsnefnd hefur einfaldlega ekki staðið frammi fyrir því að þurfa að túlka þetta áður,“ segir borgarstjóri að lokum. Morgunblaðið/Árni Helgason ARNI Ásgeirsson heldur á hvíta lundanum sem faðir hans veiddi í Elliðaey. Sjald- séður hvítur lundi Stykkishólmi. Morgunblaðið. SAGT er að sjaldséður sé hvít- ur hrafn og eins er hægt að segja að sjaldséður sé hvítur lundi. En þegar Ásgeir Árna- son í Stykkishólmi var að háfa lunda úti í Elliðaey á Breiða- firði kom alhvítur lundi í háf- inn. Þetta er albínói og ungur fugl. Asgeir, sem hefur stundað lundaveiðar frá unga aldri, hefur aldrei áður séð svona lunda en fósturfaðir hans, Eggert Bjarnason, náði fyrir mörgum árum hvítri kofu. Svona eintök eru því sjaldgæf og lundinn hvíti verður ekki hamflettur og étinn heldur fær virðulegri meðferð, verður stoppaður upp og settur á góð- an stað í stofunni heima hjá Ásgeiri til minningar um vel- heppnaða veiðiferð í Elliðaey sumarið 1996. Útfærsla háhýsa við Kirkjusand uppfyllti ekki kröfur til hljóðvistar Lægri byggð sögð möguleg Morgunblaðið/Árni Sæberg SKIPULAGSNEFND var einróma um niðurstöðuna og hér virða Sigurður Harðarson, varamaður í skipulagsnefnd, Guðrún Ágústs- dóttir, formaður skipulagsnefndar, og Guðrún Jónsdóttir fyrir sér teikningar af húsunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.