Morgunblaðið - 25.07.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1996 15
LANDIÐ
FRAMLEIÐENDUR sjónvarpsþáttanna ásamt íslenskum viðmæl-
endum sínum. Frá vinstri eru Jón Kjartansson hljóðmaður, Ein-
ar Bragason, Andrew Cochran og Fred MacDonald myndatöku-
maður.
Kanadískir sjónvarpsmenn
Islensk alnets-
þjónusta kynnt
Hveragerði - Framleiðendur sjón-
varpsþáttanna Live on the Internet
voru staddir í Hveragerði á dögun-
um þar sem þeir gerðu hálftíma
langan þátt um fyrirtækið Smart
Net, sem er alnetsþjónusta í eigu
Einars Bragasonar.
Þættirnir Live on the Internet
hafa verið gerðir í Kanada und-
anfarin tvö ár og sýndir í Kanada,
Bandaríkjunum og Kóreu. Markmið-
ið með þáttunum er að kynna mann-
legu hliðina á alnetinu og sýna að
það sé meira en vélar og tæki því
athyglisvert fólk um allan heim sé
að gera áhugaverða hluti með að-
stoð alnetsins, eins og Kanadamenn-
irnir komust að orði. ,
Andrew Cochran framleiðandi
þáttanna sagði að Smart Net væri
fyrsta fyrirtækið á Norðurlöndum
sem fengi umfjöllun í þáttunum.
Tilgangurinn með komunni hingað
væri að sýna hvernig einstaklingar
geti skapað sér atvinnu með aðstoð
alnetsins á jafn afskekktum stöðum
og íslandi og hvernig íslendingar
tengjast umheiminum gegnum net-
ið. Smart Net þótti ekki síst áhuga-
vert fyrir að meirihluti þeirra 50
þúsund netheimsókna, sem fyrir-
tækið fær á dag, koma erlendis frá.
Því má segja að Smart Net flytji
út upplýsingar í stað þess að vera
einungis einstefnugata íslendinga í
átt, að umheiminum.
Húsavík - Ferðamálafélag Húsa-
víkur ásamt ferðaþjónustuaðilum
og fyrirtækjum á Húsavík hefur
áformað að efna til mannfagnaða
um þrjár helgar á þessu sumri
og var sú fyrsta í júní - Mærudag-
ar - um Jónsmessu.
Um síðustu helgi fór fram önn-
ur hátíðin undir kjörorðinu „Líf
og fjör á Húsavik" og stóð sú
hátíð í þrjá daga.
Skipulögð dagskrá var frá
morgni til kvölds og voru þátttak-
endur fjölmargir, heimamenn og
gestir í bænum. Keppni og sýning-
ar voru af ýmsu tagi svo telja
má að allir hafi getað fundið eitt-
hvað við sitt hæfi. Verslanirnar
sýndu nýjustu tísku, fjalla-fröm-
uðir sýndu sín farartæki sem voru
hin glæsilegustu, en þurfa dijúg-
an skammt af bensíni eða olíu.
Mörg húsvísk fyrirtæki sýndu
sína framleiðslu og buðu hana á
sérstöku kjaraverði. Brunaliðið
kynnti starfsemi sína og sýndi sín
tæki og tól. Björgunarsveitin
Garðar sýndi klif og kleif fimm
Fjöldi
gesta á
Húsavík-
urdögum
hæða hús Kaupfélagsins. Boðið
var upp á hestaleigu í Saltvík og
farnar voru skemmtisiglingar um
Skjálfanda.
Keppt var í aflraunum og urðu
Húsvíkingar að sætta sig við að
vera sigraðir af aðkomumönnum.
Gengið var um miðbæinn um lir
stjórn Siguijóns Jóhannessonar,
sem sagði sögu fyrri byggðar,
gamalla húsa og ýmsu sem flestir
viðstaddra höfðu ekki áður um
heyrt.
Á sunnudeginum messaði sókn-
arpresturinn séra Sighvatur
Karlsson uppi við Botnsvatn að
viðstöddu fjölmenni í góðu veðri,
á fallegum stað.
Hátíðarhöldunum lauk svo með
þátttöku í Landgræðsludegi Olís
og Landgræðslunnar á Húsavík í
Aðaldalshrauni, vestan flugvallar.
Að lokinni gróðursetningu gæddu
menn sér við leik og grillaðar
pylsur. Þátttakendur þar hefðu
mátt vera fleiri, því þar var þarft
verk unnið. Sjáanlegur var árang-
ur Landgræðslunnar í heftun
sandfoks frá fjöru í botni Skjálf-
andaflóa, sem fýkur yfir hið fagra
Aðaldalshraun og mundi eyða
gróðrinum ef ekkert væri að gert.
Til hátíðarinnar komu brott-
fluttir Húsvíkingar, sem hittu á
sama stað gamla vini og kunn-
ingja, áttu við þá samræður og
upprifjun góðra minninga.
Framkvæmdanefnd hátiðanna
skipa Arnfríður Aðalsteinsdóttir,
Guðlaug Gísladóttir og Þórður
Höskuldsson.
Morgunblaðið/Silli
ÞAÐ var messað undir berum himni við Botnsvatn við Húsavík um síðustu helgi og fjölmenni hlýddi
á sr. Sighvat Kai’lsson sóknarprest.
Sautján Herradeild
Reiss jakkaföt áður 25.900 nú 9.900
Limehouse jakkaföt éður 18.800 nú 9.900
OBVIOUS jakkaföt m/vesti
áður 35.900 nú 19.900
Charly's jakkaföt m/vesti
áður 32.900 nú 19.900
Skyrtur áður áður 2.900 nú 990
Pólóskyrtur áður 3.900 nú 990
Diesel bolir áður 3.900 nú 1.900
Diesel jakkar áður 8.000 nú 3.900
Eddy's jakkar áður 9.900 nú 5.900
Everlast gallar 2.900
Bindi 2.900—3.900 nú 1,900
Skór allt að 40% afsláttur
□ömudeild
Dragtir
Stakir flnni jakkar
Dragtir
Jakkaföt
áður 16.900
éður 12.900
óður 17.800
áður 19.800
nú 9.900
nú 7.900
nú 10.900
nú 11.900
Skódeild - ný deild!
DESTROY ökklaskór éður 7.900 nú 4.900
DESTR0Y sandalar áður 5.600 nú 3.900
Sandalar áður 5,500 nú 2.900
Fínni skór áður 6.900 nú 4.900
Klossar aðeins 2.900
Riders hælaskór áður 6.900 nú 2.900
DESTROY stígvél áður 10.900 nú 4.900
DESTROY reimaðir ökklaskór
áður 8.900 nú 5.900
Afgangar og stök pör frá 1.900
Snyrtivörudeild
20—50% afsláttur af undirfatnaðir og
sundfatnaði
10—20% afsláttur af sokkum
20—50% afsláttur af töskum
10% afsláttur af snyrtivörum
10—30% afsláttur af sólgleraugum
Klútar frá 390
WARNER'S — PANACHE — BALLET —
MAIDENFORM — BJORN BORG — 0R0BLU
— HANES — HUE
■ihH
□pnunartími þessa helgi
Laugaveginum:
Im.'kl. 10-20
Fös. kl. 10—13
Lau. kl. 10—16
Sun.kl. 13-^TYfr.
VERIÐ
VELKOMIN
Kringlunni,
s. 568 9017.
Laugavegi,
s. 511 1717.
Útsölumarkaður
í kjallaranum
Allt á 990,
ótrúlegt!
Cafe 17
Girnílegur
kjúklingaréttur
með Cous cous
aðeins 350
Frítt kaffi í dag.
K00KAI - MORGAIII - STICKY
FINGERS - DIESEL
30—50% afslóttur
Blússur áður 5.900
Þykkir bolir áður 4.900
Þunnir bolir áður 1.990
Stakar ffnni buxur áður 6.900
Gallabuxur áður 4.900
Rifla flauelsbuxur áður 4.900
Everlast iþróttagallar
nú 2.900
nú 1.900
nú 990
nú 3.900
nú 2.900
nú 2.900
nú 2.900